Morgunblaðið - 11.09.1943, Side 1
VikublaS: ísafold.
30. árg., 204. tbl. — Laugardagur 11. september 1943
Isafoldarprentsmiðja h.f.
Bretar berjast við Þjóðverja hjá itóm
Flotahöfnin Taranto á valdi bandamanna
Itölsk flotadeild komin til Gibraltar
Mtaiir herj-
ast á Maik-
anskaga
Off ví&ar
vi& ÞjóÖ-
verja
London í gærkveldi.
Einkaskeyti til Morgunblaðsins
frá Reuter.
VÍÐA HEFIR KOMIÐ
til vopnaviðskifta milli
Þjóðverja og ítala, þar sem
ítalrr hafa neitað að leggja
niður vopn og hafa varið
stöðvar sínar fyrir Þjóð-
verjum, eins og Badoglio
mælti fyrir í yfirlýsingu
sinni eftir uppgjöfina.
Vitað er um bardaga, sem
átt hafa sjer stað milli Þjóð
verja og ítala í Brenner-
skarði, á landamærum
Frakklands og Ítalíu og
víða á Balkanskaga.
Rommel stjórnar
í Norður-Ítalíu.
Rommel hershöfðingi
stjórnar hersveitum Þjóð-
verja í Norður-Ítalíu. Það
er ekki fyllilega ljóst, hvaða
Framh. á 2. siðu.
Badog'lio marskálkur
er flúinn frá Róm.
Mountbatfen
aðmíráll
LONDON í gærkvöldi: —
Louis Mountbatten lávarð-
ur, sem nú er yfirforingi als
herafla bandamanna í Suð-
austur Asíu, hefir verið
skipaður flotaforingi, segir
í tilkynningu frá breska
flotamálaráðuneytinu í
kvöld.
Ræða Hitlers:
„Mussolini mesti
maður ítala"
London í gærkvöldi. — Einkaskeyti til Morg-
unblaðsins frá Reuter.
„MUSSOLINI er mesti maður ítala síðan á dögum róm-
verska keisaradæmisins“, sagði Adolf Hitler í ræðu, sem
var útvarpað af hljómplötu, frá aðalstöðvum hans í gær-
dag. Það voru engir.áheyrendur að ræðunni, sem stóð yfir
í 16 mínútur. I ræðu sinni talaði Hitler nærri eingöngu um
uppgjöf ítala og taldi hana ekki mundu hafa lítil áhrif á
gang styrjaldarinnar.
„Nú þarf jeg ekki
að ljúga“.
Hitler hóf mál sitt með
því, að lýsa yfir því, að það
væri.sjer ljettir, að geta nú
talað eins og hann lýsti án
þess að taka tillit til neins.
Nú þyrfti hann ekki að
ljúga hvorki að þjóð sinni
nje sjálfum sjer.
Atburðir þeir, sem skeð
hefðu á Ítalíu ættu rót sína
að rekja til þeirra skemd-
arverkaafla, sem hefðu unn
ið að því, að draga á lang-
Framh. á 2. síðu.
Sókn
Banda-
manna
á undan
áætiun
London í gærkveldi.
Einkaskcyti til Morgunblaðsins
frá Reuter.
ÞAÐ VAR OPINBERLEGA
tilkynt í aðalherstöðvum
bandamanna í kvöld, að önn
ur mesta flotahöfn ítala,
Taranto, við Tarantoflóa,
væri á valdi bandamanna.
Settu bandamenn þar lið á
land í gærkvöldi (fimtud.)
og með aðstoð breska flot-
ans var höfnin tekin. Hún
er nú örugglega á valdi
bandamanna.
Taranto er í Apuliuhjer-
aði við ,,ítalíuhælinn“. Þar
eru miklar skipastöðvar
og er hægt að taka þar
stærstu orustuskip til við-
gerðar. Margir flugvellir og
góðir eru umhverfis borg-
ina.
ítalski flotinn.
Aðalflotastöð ítala er í
Spezia við Genuaflóa á N,-
Italíu. Sú borg er nú sögð
á valdi Þjóðverja, en áður
en Þjóðverjar náðu borg-
inni á sitt vald, sigldi ítalski
flotinn, sem þar hafði bæki-
stöð á haf út og er talið að
skipin sjeu nú leið til hafna
bandamanna til að gefast
upp. Þegar hefir ítölsk
flotadeild komið til Gibralt-
ar til að gefast upp. í deild-
inni voru tvö beitiskip,
tveir tundurspillar og tvö
aðstoðar flugvjelamóður-
skip.
Óstaðfestar fregnir herma,
að allmörg ítölsk herskip hafi
komið til hafna í Norður-Af-
ríku og gefist upp fyrir banda-
mönnum.
ÞÝSK ÁRÁS Á
fTÖLSK HERSKIP.
Þjóðverjar skýra frá því í
frjettum í dag, að flugvjelar
þeirra hafi ráðist á ítalska
flotadeild í Miðjarðarhafi.
Voru orustuskip, heitiskip og
tundurspillar í þessari flota-
deild. Segjast Þjóðverjar hafa
Framh. á 2. síðu.
Fleiri kaf-
bátum en
kaupskip-
um sökt
í ágúst
WASHINGTON í gærkv.:
Það var opinberlega tilkynt
hjer í kvöld, að fleiri þýsk-
um kafbátum hafi verið
sökt í ágústmánuði, heldur
en tala kaupskipa banda-
manna á sama tíma.
Ekki var í þessari tilkvnn
ingu gefin upp tala þeirra
þýskra kafbáta, sem sökkt
hafði verið. —Reuter.
Helgi Sigurðs-
son forstjóri
Hitaveitunnar
BÆ.TARRÁÐ samþykti
gær að leggja til við bæjar-
stjórn, að Ilelgi Sigurðsson
verkfræðingur yrði skipaður
forstjóri fyrir vatns- og hita-
veitu bæjarins, með sömu
launum og bæjarverkfræðing-
ur hefir.
Ilefir ITelgi unnið að undir-
búningi Hitaveitunnar frá
byrjun.
Samþykt var og á fundinum
að auglýsa stöðu bæjarverk-
fræðings lausa frá áramótum,
og skyldu umsóknir vera
komnar fyrir 15. október.
jPjóðvcrjar
haia sieff-
ið hring
um Róm
London í gærkveldi.
Einkaskeyti til Morgunblaðsins
frá Reuter.
FRÁ SVISSLANDI bárust
þær fregnir seint í kvöld, að
breskar hersveitir hafi verið
settar á land hjá Ostía, sem
er við Tíberfljót og skamt frá
Róm. Þessar bresku hersveitir
hafa þegar lent í bárdögum
við þýskar hersveitir, sem
verja Rómaborg og hjeraðið
irmhverfis höfuðborgina.
Fyr í dag bárust fregnir
um, að hershöfðingi Róma-
borgar hefði gefist upp fyrir
Þjóðverjum, en Þjóðverjar
rnuni þó ekki leggja undir sig'
sjálfa Rómaborg, sem verði á-
fram „friðlýst borg“, heldur
haldi þeir svæði, sem sje 50
km. á hvern veg út frá borg-
inni. Það var ítalska frjetta-
stofan, sem gaf út þessa fregn.
Þar segir, að Þjóðverjar
muni ekki leggja undir sig
aðrar byggingar í Rómaborg
heldur en þýsku sendisveitina,
útvarpsstöðina og aðal síma-
stöðina.
ÞJÓÐVERJAR
BÖRÐUST VIÐ
ÍTALI UM RÓM.
í þýskum fregnum er sagt,
að sama daginn, sem Italir gáf
ist upp, hafi Þjóðverjar ætlaö
að leggja undir sig Rómaborg,
Framh. á 2. síðu.
Lóðir fyrir
bráðabirgða
hús
BÆJARRÁÐ samþjdtti í
gær að heimila bæjarverkfræð-
ingi að vísa á lóðir við Soga-
veg undir hús, sem menn vildu
reisa til bráðabirgða, vegna
húsnæðisvandræðanna.
Ilús þessi þurfa ekki að
vera bygð samkv. reglum
byggingasamþyktar. En bæj-
arstjórn áskilur sjer rjett til
þess að mega segja upp bygg-
ingaleyfinu með 6 mánaða fyr-
irvara. Og hús þau, sem þann-
ig kunna að vera reist, má
ekki selja, nema með leyfi
bæjarstjórnar.