Morgunblaðið - 24.09.1943, Síða 5
Föstudagur 24. sept. 1943
i i ■ ! : i ; ií /
M ORGUNBLAÐIÐ
HÚSAVÍKIJRHÖFIM ÞARF AÐ FUFLGERAST
Það er einkum tvent, sem
mönnum þeim verður tíð-
rætt um, sem heim koma til
höfuðstaðarins úr annað
hvort skemtiferðum eða
ferðum til fjár, um Norð-
urland í sumar, en það er
ótíðin og síldin.
Hvorttveggja var með
einsdæmum, að jeg ekki
segi ódæmum.
Sumarið nyrðra var ó-
venju vott og kalt, en þrátt
fyrir kuldann óð síldin svo
uppi, að veiðin varð gífur-
leg.
En síldin var ekki um all-
'an sjó, hún óð nú sem fyrr
aðallega á svæðinu frá Tjör-
nesi að Skaga, en einmitt
þarna er aðal síldveiðisvæð-
ið fyrir Norðurlandi, og hef-
ir ætíð verið í venjulegum
síldarárum. Það var upp-
burðurinn á þessu svæði
sumarið 193ý, sem olli því,
að síldarverksmiðjurnar,
sem þá voru, entust ekki til
þess að taka við aflanum.
Þarna var ,,kraftsíldin“, þ.
e. aðal síldarmagnið sumur-
in 1936 og 1937. í viðtali við
Snæbjörn Ólafsson, skip-
stjóra á Tryggva gamla, sem
birtist 7. sept. 1938 í Morg-
unblaðinu, en sumarið 1938.
var hann aflakóngur síld-
veiðiflotans, kemst hann m.
a. þannig að orði um veiði-
svæðið: „Mesta síldarmagn
ið virtist vera á Skjálfanda-
flóa og við Tjörnes“.
Geri jeg ráð fyrir að
þessa árs „aflakóngur“ hafi
sömu söguna að segja um
göngu síldarinnar, en til
fróðleiks skal jeg leyfa mjer
að taka nokkrar glefsur upp
úr dagbók minni. 21. júlí:
— „Skjálfandi fullur af síld
og sjást stórar torfur úr
gluggum mínum rjett fram
an við Húsavíkurhöfn, enda
mörg skip að fylla sig. Verk-
smiðjuþróin full“. — 24.
júlí: — „Síld hefir verið
þessa viku um allan Skjálf-
anda og hefði stór síldar-
verksmiðja í Húsavík haft
ærið nóg úr að vinna“.
4. ágúst: — „Skjálfandi
svartur af síld. Mörg skip
leitað til verksmiðjunnar í
Húsavík, en hún altof lítil.
Þau öll gerð afturreka“.
Svona gæti jeg haldið á-
fram að heita má dag eftir
dag til 7. sept. síðastl., en
þá var hætt að taka við síld
í Húsavíkurverksmiðju.
Skipin, sem vísað var
þrirtu sökum rúmleysis þró
íiýinnar og smæðar verk-
smiðjurmar skiptu tugum og
þarf jeg ekki að rökstyðja
hvílíkt tjón það var og er
fyrir síldveiðiflotann, fvrir
ríkisverksmiðjurnar og sjálf
an ríkissjóðinn, að ekki
skuli þgar fyrir löngu vera
komin upp í Húsavík síld-
arverksmiðja með 5 til 10
þúsund mála sólarhrings af-
köstum.
Nú eru tíu ár liðin frá því
Framtíðarstaður síldar-
útvegs og fiskveiða
Eftir Júlíus Havsteen
að Alþingi veitti ríkisstjórn
inni heimild til þess að
reisa síldarverksmiðju á
Norðurlandi.
Einmitt vorið 1933 var
byrjað á hinni þörfu hafn-
argerð í Húsavík, hafnar-
gerð, sem hefir reynst svo
tímabær og svo vel gerð það
sem hún nær, að þær fáu
raddir þeirra manna, sem
ekki skildu þörfina og hvert
stefnt var, eru löngu hljóðn
aðar.
Benti jeg á það í blaða-
greinum 1933 að tilvalið
væri, að láta þessi tvö mann
virki, síldarverksmiðju, fvr-
ir Norðurland og hafnar-
garð í Húsavík, haldast í
hendur og styðja hvort ann
að, en þeir sém þá rjeðu,
skildu ekki vitjunartíma
þessara mála og heldur ekki
þeir sem síðar gengu á ný
framhjá Húsavík og reistu
báknið í Raufarhöfn, sem
ekki mun bræða gull í rík-
issjóðinn í sumar.
Þýðir ekki að fást um orð
inn hlut og skal það játað,
að Raufa.rhöfn hefir ýms
góð skilyrði til þess að þar
sje hæfileg síldarverk-
smiðja, þó hún komist ekki
til jafns við Húsavík, eins
og jeg rökstuddi í greinum
mínum um síldarverk-
smiðjumálið á Norðurlanai
í Morgunblaðinu 1936 og í
Vísi 1938.
Þetta hefir og nú verið
játað af hlutaðeigandi stjórn
arvöldum, þar sem Alþingi
hefir samþykt í fyrra, eftir
tillögum stjórnar Síldar-
verksmiðja ríkisins, að reist
skuli síldarverksmiðja á
Húsavíkurhöfða með alt að
10 þúsund mála sólarhrings
afköstum strax og fært þvki
vegna dýrtíðarinnar að full
gera Húsavíkurhöfn.
Hreppsnefnd Húsavíkur
hefir látið landið tafarlaust
og óspart undir væntanlega
verksmiðju og ekki hefir
staðið á stuðningi sýslu-
nefndar Suður-Þingeyjar-
sýslu.
Málin horfa þá þannig við
eins og fyrir tíu árum, að
verksmiðjan bíður eftir full
gerðri höfn og höfnin eftir
verksmiðjunni og sjávarút-
vegur okkar íslendinga eft-
ir hvorttveggja.
Og mjer er spurn. Hversu
lengi á að bíða? Á að bíða
eftir hruninu, sem altaf er
verið að hræða pkkur á að
hljóti að koma og halda
menn að þá sje betra að ráð-
ast í fyrirtækin, en þegar
Júlíus Havsteen, sýslumað-
ur og Finnbogi R. Þorvalds-
son, verkfræðingur, er rjeði
gerð hafnarbryggjunnar. —
(Hafnarbryggjan í smíðum)
allir hafa fullar hendur
fjár og ríkissjóðurinn er út
troðinn eins og nú af gjöld-
um skattgreiðenda og þá
einkum þeirra er sjóinn
stunda. Að vísu er flas sjald
an til fjár, en vonlaus biðin,
dáðlaus biðin, bítur bak-
fiskinn úr hverri fram-
kvæmd.
Svo heppilega vill nú til,
að á Alþingi því, sem nú
situr að störfum. hafa a. m.
k. þrír fulltrúar þjóðarinn-
ar heyrt „tímans lúður
kalla“ og lagt fram frum-
varp til laga um hafnar-
bótasjóð, en tilgangur sjóðs
ins er að stuðla að bættum
hafnar- og lendingarskil-
yrðum í kauptúnum og sjáv
arþorpum, þar sem aðstaða
er góð til sjósóknar og fram
leiðslu sjávarafurða.
I greinargerðinni segir:
„Frv. það, sem hjer er flutt,
miðar að því að skapa stöð-
um, sem sjerstaklega vel
liggja við fiskimiðum, en
lítið fjárhagslegt bolmagn
hafa til þess, að hefjast
handa um hafnarbætur á
grundvelli hafnarlaga eða
laga um lendingarbætur,
aukna möguleika. Með því
er lagt til, að stofnaður
verði sjerstakur hafnarbóta
sjóður með allmiklu fje til
þess að fullnægja þeirri
þjóðfjelagslegu nauðsyn,
sem á því er, að bæta að-
stöðu ýmissa sjávarþorpa til
þess að hagnýta sjer að-
stöðu sína og auka þar með
útflutningsverðmæti þjóð-
OOOOOO<OO<O<OOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOO
Verkfærastál
a
11
fyrirliggjandi.
Birgðir talsverðar.
tÞðlSIEINSSBNtJÍINSONI
-OÖOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOO<
Hús til sölu
i
l
Laus íbúð og verkstæði.
Uppl. gefur
Pláss í kjallar.
GUNNAR ÞORSTEINSSON hrm.
Sími 1535.
Rafmagnsmótorar
ýmsar stærðir fyrirliggjandi.
V|eismið|an Jötunn
(verslunin) sími 5761.
*****^***«*'***«**»%**i**«*4t'* *:* ‘t**:**:**:**:**:**:**:**:**:**:**:**:* •** *:• x*4:*4:**:*4^^:**:**:**:**:**:**:**:* *#*****i**i**t**i4
AUGLÝSING ER GULLS ÍGILDI
arinnar. Meginútflutnings-
verðmæti þjóðarinnar koma
frá sjávarútveginum“.
Sjálfsagt má treysta því,
að Alþingi sje skipað þeim
fulltrúum í öllum flokkum,
að frumvarp sem þetta nái
þegar fram að ganga sem lög
frá þessu Alþingi og þykist
jeg hafa rökstutt það með
því sem hjer að framan er
sagt og með greinum þeim,
sem jeg áður hefi ritað um
afstöðu Húsavíkurkauptúns
til síldar og fiskimiða Norð-
urlands. að ekkert kauptún
getur frekar og fyrr komið
til greina við framkvæmd
laga um hafnarbótasjóð en
Húsavík.
Það er nú viðurkent, að
austan Eyjafjarðar liggur
engin höfn betur við síldar-
miðin en Húsavík og í því
sambandi þykir rjett að taka
það sjerstaklega fram, að
góð og fullkomin höfn í
Húsavík er fyrir síldveiði-
flotann tengiliður milli
Siglufjarðar og Raufarhafn-
ar, því ósjaldan leita skipin
til Húsavíkur í von um af-
greiðslu, þegar þau sökum
vjelbilunar eða leka kom-
ast ekki með síldarfarm sinn
alla leið austur eða vestur
til stóru verksmiðjanna.
Þá er það og vitað, að
hvergi í verstöðvum norðan
lands er þorskafhnn meiri
en í Húsavík og róðurinn
þaðan stuttur á hin fiski-
sælu mið hjá Mánarevjum,
Rauðaunúpum og kringum
Grímsey.
Á þessu vori hófu menn
„spánýja veiðiaðferð“ á
nefndum miðum, en auð-
vitað utan landhelgi; með
því að nota botnvörpur á
vjelskip og gafst sú veiði
ágætlega.
Má nærri geta hvílíkt ör-
vggi það er fvrir slíkan
flota að geta horfið til ör-
uggrar hafnar í Húsavík, ef
skyndilega skellur á veður.
Þá má ekki gleyma því,
að sjómennirnir þurfa vatn
og vistir þegar að landi
kemur, en þetta hvoru-
tveggja lætur Húsavík og
sveitir þær, sem að kaup-
túninu liggja, af mörkum
rakni úr gnægtarhorni, að
vísu ekki gjöfulu, því nú er
ekki lengur til siðs að gefa
nema í guðsþakkarskyni, en
vissulega ekki dýrar en
annarsstaðar hjer á landi.
Því segi jeg við þá sem
yfir fjársjóðunum sitja og
’i völdin hafa; 11.
Grípið síldina þegar húh
'gefst, látið ekki'gull sjáv-
arins ykkur úr greipum
ganga ár eftir ár. Hefjist
þegar handa um að fullgera
Húsavíkurhöfn á næsta
sumri eða sumrum og stillið
um leið svo til, að ekki
standi á verksmiðjunni
strax og upp er kominn
hafnargarðurinn við Höfð-
an.