Morgunblaðið - 24.09.1943, Blaðsíða 8
MOEGUNBLAÐIÐ
■ • 1 ' . » . I í i j r r i I : i
Föstudagur 24. sept. 1943
<Sigfús Baldvinsson
útgerðarmaður fimtugur
STGFÚS BALDVINSSON er
fæddur á Grund í Svarfaðar-
dal 24. september árið 1893.
Foreldrar hans eru þau hjónin
Bahlvin Jóhannsson og Gpð-
iaug Sigfúsdóttir. Fram að 10
ára aldri ólst Sigfús upp hjá
foreldrum sínum, en fluttist þá
að Tjörn í Svarfaðardal til
sjera Kristjáns Eldjárns Þór-
arinssonar og konu hans frú
Petrínu Hjörleifsdóttur. Dvald
ist Sigtus þar til 14 ára aldurs,
en tók þá að stunda sjó-
mennsku á þilskipum, og var
háseti á þeim í nokkur ár. 22
ára garnall tók hann hið
r.iinna fiskimannapróf. Varð
þegar stýrimaður næstu 2 ár
og }>ar næst skipstjóri, og var
það til ársins 1929 er hann
hætti skipstjórn. Var hann öll
þessi ár skipstjóri á útveg Ás-
geirs heitins Pjeturssonar að
einu ári undanteknu.
Eftir árið 1929 hefst nýtt
tímabil í æfistarfi Sigfúsar
Sigfúsar Baldvinssonar. ITann
byrjar þá að reka síldarverk-
un og sildarverslun og nokkru
síðar útgerð skipa, og hefir
haldið þessari starfsemi áfram
til þessa tíma, og heldur sjálf-
sagt lengi enn áfram, ef líf og
heilsa endist vel, og' aðrar
kringumstæður leifa, sem þessu
starfi heyra til. ,
Með árunum óx þessi at-
vinnu Sigfúsar svo vcl, að á
síðustu árum, áður en núver-
andi heimsstyrjöld braust út,
var hann orðinn með stærstu
útflytjendum síldar. Til dæm-
is nam útflutningur hans á ár-
inu 1937: 10000 tunnum, 1938:
15000 og 1939: 18000 tunnum.
Sýnir þetta að Sigfús hefir ver-
ið býsna athafnamikill í „Síld-
arbransanum", og að mikið fje
hefir gengið gegnum hendur
hans, öll þau ár er hann hefir
fengist við síldarverslun. Ilef-
ir þetta komið þjóðinni til
mikils gagns, þar sem á þessu
tímabili krefti mest að henni
fjárhagslega, og gjaldeyris-
skorturin n tilfinnanlegastur.
Alt útflutningsverðmæti skap-
aði gjaldeyri. Auk þessa hafði
fjöldi fólks mikla atvinnu í
sambandi við þessa starfsemi
Sigfúsar, og hefir það að sjálf-
sögðu komið fólki vel, þar sem
kreppuástandið olli gífurlegu
atvinnuleysi, eins og kunnugt
er. Eru slíkir athafnamenn mik
ils virði frá þjóðhagslegu sjón-
armiði. sjeð.
Sigfús hefir tekið mikinn
þátt í fjelagsmálum manna.,
lijer á Akureyri og verið trún-
aðarmaður ýmsra fjelaga, ým-
ist verið formaður eða stjórn-
arstarfsmaður þeirra. Við síð-
ustu bæjarstjórnarkosningar,
var hann kjörinn bæjarfulltrúi
fyrir Akureyrarkaupstað. Gef-
ur þetta allt glöggt til kynna
hve mikið traust er til hans
borið.
Sigfús er vel meðalmaður
að vexti, vel vaxinn og fríður
sýnum. Dökkhærður og dökk-
brýndur, augun dökkblá,
greindarleg og um leið mild.
Svipurinn hreinn og drengi-
legur. Festu og ró er þar í senn
að sjá. Hreifingar og látbragð
allt látlaust. Hógværð og at-
hygli virðist einkenna mann-
inn bæði í sjón og reynd. Má
því með sanni seg.ja að maður-
inn beri með sjer hver hann er.
Enda hefir traust það er til
hans hefir verið borið sannað
þetta allt.
Fyrir 26 árum síðan kvænt-
ist Sigfús hinni ágætustu konu
Ölöfu Guðmundsdóttur, einni
af þeim konum, sem er svo
ljúf og mild, að hún má ekkert
aumt sjá, án þess úr að bæta
ef unnt er. Hjónaband þeirra
hefir verið hið ástúðlegasta,
eins og að líkum lætur, þar
sem saman hafa valist hjón
með slíka ágæta skapgerð,
sem þeirn er báðunf gefin. Þau
eiga 3 uppkomin börn, 1 son og
2 dætur, er sonurinn Snorri að
nafni, giftur og búsettur á Ak-
ureyri, en dæturnar Guðlaug
og Guðrún, dvelja ungar og
ógiftar enn í föðurgarði.
Eins og að framan er getið,
er Sigfús hversdagslega hóg-
vær og prúður maður í fram-
komu allri. í vinahóp er hann
glaður og reyfur, og skemtir
sjer og öðrum þá vel. Oft er
gestagangur mikill á heimili
hans o.g þykir þar mörgum
gott að koma, sem eðlilegt, er,
þar sem viðmótið er bæði hlýtt
og alúðlegt, af hendi þeirra
hjóna við hvern sem að gerði
ber.
Sjálfsagt minnast margir
Sigfúsar Baldvinssonar á fimt-
ugasta afmælisdegi hans, því
að hann er þektur víða umi
land, og hans er ætíð að góðu
getið.
Sigurjón Ólafsson.
RÆÐA GUNNARS
THORODDSEN.
Framh. af bls. 7.
kvæmur skilningur og sann
girni. Það er meginstefnu-
mál og aðalsmark sjáifstað-
isstefnunnar, að leysa á-
greiningsmál og hagsmuna-
árekstur stjettanna með
skilningi og samstarfi, en
ekki með hnefarjetti stjetta
baráttunnar. í þeim skiln-
ingi er Sjálfstæðisflokkur-
inn hinn sanni sameining-
arflokkur alþýðu og einlæg-
asti samvinnuflokkur þessa
lands.
Hallgrímskirkja
í Reykjavík
„Hin almenna fjársöfn-
unarnefnd“ biður þess get-
ið, að gjöfum til kirkjunn-
ar sje veitt móttaka diag-
lega frá kl. 2—6 e. h. á
skrifstofu Hýartar Hans-
sonar Bankastr. 11 (mnð-
hæð).
Sjötugir:
Tveir bændur í Rangárþingi
HNN 17. sept. s. 1. var
■ Guðmundur Guðmundsson,
bóndi í Fíflholti, 70 ára.
Guðm. ólst upp að Uxa-
hrygg á Rangárvöllum og
var stoð móður sinnar með-
an hún lifði.
Guðmundur keypti Fífl-
holtið árið 1907 og hefir
búið þar rausnar og mynd-
arbúi síðan.
Jón Þorsteinsson, bóndi í
Holtsmúla var 70 ára 18.
ágúst s. 1. Hann hefir búið á
eignarjörð sinni, Holtsmúla,
um 40 ára skeið. Búskapinn
hefir hann rekið með hag-
sýni og ráðdeild, enda ber
heimilið þess vott.
Þessir öldruðu bændur,
sem hjer eru nefndir, eiga
það sameiginlegt, að hafa
int af hendi mikið lífsstarf.
Báðir hafa þeir alla tíð unn-
ið að sínum áhugamálum
með þeirri orku, sem þeir
áttu. Báðir hafa þeir skapað
góð og myndarleg heimili,
sem eru í mörgu til fyrir-
myndar. Báðir hafa þeir
komið börnum sínum vel til
manns, svo líklegt má telja
að þau verði nýtir borgar-
ar í þjóðfjelaginu. — Báðir
hafa þeir eytt kröftum sín-
um í þágu þjóðfjelagsins og
unnið að því að gera landið'
betra og byggilegra en áður
var, með jarðabótum og
öðrum framkvæmdum.
Það má því segja, að þeir
hafi í alla staði uppfylt
skyldur sínar við þjóðfjelag
ið, enda ættu þeir skilið, nú
þegar ellin rekur þá heim,
að hafa góða og rólega daga.
En bóndinn fær ekki eft-
irlaun, þótt hann hafi unn-
ið trúlega starf sitt. Því
verður hann oft að vinna
sjer brauð lengur en sann-
gjarnt er, með tilliti til
heilsufars og aldurs.
. Bóndinn þarf því að eiga
varasjóð, sem hann getur
gripið til í ellinni. Slíkan
sjóð vona jeg að öldungarn-
irð sem hjer er um rætt
eigi, og geti þeir þessvegna
áhyggjulitlir horft til ell-
innar.
Það er ósk mín, að þeir
megi enn lengi lifa með
góðri heilsu og starfsþreki.
Vinur.
ooooooooooo<c>oooooooooooooooooooo
I STIJLBCA |
6 • Stúlka vön afgreiðslu í búð, getur feng- s>
X ið atvinnu í einni stærstu sjerverslun bæjar- ð
Y ins nú þegar. Tilboð ásamt mynd leggist $
ó inn á afgr. blaðsins, merkt „Vön 1943“. §
oooooooooooooooooooooooooooooooo
! Húsnæði til iðnnðnr i
eða vörugeymslu, er til leigu í nýju húsi.
Gólfflötur um 200 ferm.
Upplýsingar í Trjesmiðjunni h. f.,
Hverfisgötu 30.
X - 9
>000000000000000000000000000
>0000000000000000000000000000000000000000/
-!- Eftir Robert Storm
ooooooooooooooooooooooooooo)
I
—-------------------------v"7------v
yoi' FOOL9/ Tt-IE AMBO/CAMOf VCCj
DtPN'T VANtCH /NTO TH/N / SBNOZA
At/Z yVHBN HEr JUMPED i PAO.
THPOUGH IHE lA/lNDOIAfl /\ /
— Asnarnir ykkar, það kemur ekki til að Ameríkan-
inn hafi horfið er hann fór út um gluggan. Farið út
í garð og leitið hans. — Já, senora Pao.
— Ekki að kalla, senora. Það verður síðar tími til
þess fyrir yður. Þjer skuluð fara í þessa kápu, við
ætlum saman í smá göngutúr.
— Leiðið mig. Verið brosandi og gleymið ekki, að
jeg er með byssu í vasanum. — Senora Pao: Doni.