Morgunblaðið - 24.09.1943, Síða 12
12
Sigurði Ein-
arssyni dós-
ent vikið
frá störfum
falið að athuga
KENSLUMÁLARÁÐ-
HERRA Einar Arnórsson,
hefir vikið Sigurði ^ Einars-
syni frá dósentsembættinu
við guðfræðideild Háskól-
ans um stundarsakir. Jafn
framt hefir ráðherrann skip
að þá síra Bjarna Jónsson
vígslubiskup og Jón Ás-
björnsson hæstarjettarlög-
mann til þess að rannsaka
sakir þær, sem á Sigurð eru
bornar af samstarfsmönn-
um hans við guðíræðideild-
ina, prófessorunum Ás-
mundi Guðmundssyni og
dr. Magnúsi Jónssyni.
Ekkert hefir verið látið
uppi um það, hverjar þess-
ar sakir eru, enda hefir á-
kveðnum mönnum utan
Háskólans verið falið að
rannsaka þetta mál alt, og
verður því ekkert látið uppi
opinberlega um það, fyr en
þeirri rannsókn er lokið. —
Þar sem kenslumálaráð-
herra hefir vikið Sigurði
Einarssyni frá starfi
meðan rannsóknin fer fram,
má af því marka, að ráð-
herrann hefir talið sakirn-
ar. sem á Sigurð eru born-
ar þess eðlis, að þær rjett-
lættu brottvikningu frá em-
bætti, ef ’sannar reyndust.
Að lokinni rannsókn máls-
ins tekur ráðherra ákvörð-
un um, hvað gera skuli,
hvort Sigurði skuli vikið
frá embætti fyrir fult og alt,
eða hann taki við starfi sínu
á ný.
Frá Quebec fundinum
Fundir leiðtoga bancl|amanna vekja jafnan mikla
ý.thygli. Mynd þessi er tekin, meðan ráðstefnan í
Quebec stóð yfir. Á myndinni sjást Roosevelt forseti
og lávarðurinn af Athlone , landstjóri í Kanada. Að
baki þeim er Mackenzie King, forsætisráðherra og
Churchill.
Ný útgáfa á kvæð-
Sigurðsm
i i
33 miljónir Brela
vlð hernaðarsförf.
London í gærkveldi.
ERNEST BEYIN verkamála
ráðherra Breta hjelt ræðu í
neðri málstofu þingsins í dag,
og upplýsti í henni, að hvergi
í heimi væru jafnmargir menn
hjá einni þjóð við störx í styrj-
aldarþágu. eins og Bretum,
eða alls o-‘! miljónir manna.
Þetta kvað Bevin þó ekki
nóg, enn þyrfti að herða
framleiðsluna, sjerstaklega á
sijrengjuflugvjelum, og iagði
til að konur, sem komnar eru
yfir fimtugt, yrðu kvaddar til
slíkra starfa.
Þetta mætti nokkurri andúð
í deildinni, og sagði éinn ])ing-
maður þetta fráleitt, lienti á,
að í Þýskalandi væri engin
kona vfir 45 ára vinnu'skyld,
og í Bandaríkjunum yfirleitt
engin kona. Sagði þingmaður
þessi, að stjórnin mætti gæta
sín að ganga ekki of langt.
Gamla Bíó:
„í annað sinn"
CrAMLA BÍÓ sýndi í fyrsta
skifti í gærkvöldi ameríska
myrtd, sem nefnist „I annað
sinn“, en á ensku heitir húu
„Philadelphia Story“, og er
gerð eftir samnefndu leikriti,
sem hlotið hefir miklar vin-
sæklir í Ameríku.
I myndinni segir frá auðugri
stúlku, sem er að gifta sig í
annað sinn. Maðurinn, sem
hún er að giftast, hefir unnið
sig uþp frá því að vera kola-
námuverkamaður í auðugan
kaupsýslumann. Segir síðan
frá því, hvernig fyrri maður
konunnar spilar sínum spilum
þannig, að alt kemst í upp-
náni.
Aðalleikendur eru: Ivathe-
rine Hepburn, James Stuart,
Cary Grant og Rolan Young.
Sjerstaklega mun leikur þeirra
Ilepburn og Stuarts vekja at-
hygli, en Stuart fjekk verð-
laun fyrir leik sinn í þessari
kvikmynd.
„1 annað sinn“ er skemti-
leg kvikmynd,' sem flestir
munu hafa ánægju af að sjá.
Franskar
hersveitir
fil Ifalíu
London í gærkveldi.
de GAULLE hershöfðingi
talaði í útvarp frá Algiers í
kvöld (Radio France).
de Gaulle sagði, að fransk-
ar hersveitir væru tilbúnar að
taka þátt í bardögum á Italíu.
Iíann sagði, að Giraud hers-
höfðingi hefði farið til Kor-
síku til að kynna sjer hvernig
bardagar þar gengju og til að
gefa sjálfur fyrirskipanir um
hertöku eyjavinnar. -— Reuter.
Sexmanna-
nefndin nýja
fullskipui
ST-JÓRN Búnaðarfjelags
íslands hefir nú tilnefnt
menn til viðræðna við
nefnd frá Alþýðusamband-
inu til þess að ganga úr
skugga um, hvort þessir að-
iljar vilja lækka dýrtíðina
með frjálsu samkomulagi.
Þessir eru tilnefndir af
Búnaðarfjelaginu:
Jón Hannesson bóndi,
Deildartungu, Pjetur
Bjarnason bóndi, Grund og
Steingrímur ' Steinþórsson,
búnaðarmálast j óri.
Varamenn: Bjarni Ás-
geirsson alþm., Stefán Dið-
ríksson bóndi, Minni-Borg,
og Hafsteinn Pjetursson
bóndi, Gunnsteinsstöðum.
JOHANN GUNNAR SIG-
URÐSSON hefir orðið þjóð
inni harla hugstæður,
reyndar miklu framar en
vænta hefði mátt um mann,
er ljest svo ungur og átti
þess því ekki kost að sýna
til neinnar hlítar, hvað í
honum bjó. En hin eina bók,
er honum auðnaðist að gefa
þjóð sinni, hefir náð mikl-
um vinsældum og um langa
hríð verið harla torgæt.
En nú hafa KVÆÐI OG
SÖGUR Jóhanns Gunnars
verið gefið út öðru sinni. —
Bókaútgáfa Guðjóns Ó.
Guðjónssonár hefir ráðist í
að senda bók þessa á mark-
aðinn í prýðilega vönduð-
um búningi, svo sem hæfir
i minningu, vinsældum og
i hæfileikum þessa óvenju-
[ lega efnilega skálds. Og
það er engum vafa undir-
orpið, að mönnum er au-
fúsa á útkomu þessarar bók-
ar. Hún hefir verið gersam-
lega ófáanleg um áratuga-
bil og mjög eftirsótt. Hefir
hún gengið kaupum og söl-
um við háu verði og þó færri
eignast hana en þess hafa
óskað.
Helgi Sæmundsson ritar
formála fyrir þessari út-
gáfu, þar sem rakinn er ævi
ferill Jóhanns Gunnars af
mikilli samúð og hlýhug. —
Gefst mönnum þar kostur á
nokkurn veginn tæmandi
upplýsingum um ævibraut
snillingsins, sem fjell í val-
inn áður en títt er að menn
hafi byrjað starfsdag æv-
innar, en tókst eigi að síð-
ur að láta æftir sig þá arf-
leifð, er halda mun nafni
j hans á lofti, meðan tunga
vor er töluð.
Kviknar í
Kauphöll-
inni
SLÖKKVILIÐIÐ var kvatt
að Kauphöllinni kl. tæplega 6
í gær. Hafði elds orðið vart í
kjallara hússins.
Þegar slökkviliðið kom á
staðinn, var* þar orðinn tölu-
verður eldur og mikill reykur.
Var erfitt um allar slökkviað-
gerðir, en þó tókst auðveld-
lega að stemma stigu við frek-
ari útbreiðslu eldsins og var
hann slöktur á skammri
stundu.
Eldurinn kviknaði út frá
miðstöð. Skemdir urðu litlar
sem engar.
Fyrsiu íónleikar
Tóalisiaiijelags Ak-
ureyrar.
Frá frjettaritara vorum
á Akureyri.
ÁRNI KRISTJÁNSSON hjelt
píanóhljómleika í fyrrakvöld í
samkomuhúsi bæjarins, á veg-
um Tónlistarfjelags Akureyr-
ar.
Tónleikarnir voru eingöngu
haldnir fyrir styrktarmeðlimi
fjelagsins. og gesti þeirra, og
var húsið fullskipað. — Lögin,
sem Árni ljek, voru þessi:
Gluck Friedman: Ballet, Mo-
zart: Tilbriði úr sónötu í A-
dúr, Beethoven: Sonata Ap-
passionata, Chopin: 114 pre-
ludes.
Vakti leikur Árna mikla
hrifningu tilheyrenda og var
listamaðurinn að síðustu kall-
aður fram með miklu lófataki
og ljek hann þá aukalag. Ilon-
um barst fagur blómvöndur.
Föstudagur 24. sept. 1943
Þjóðleikhúsið
verður rýmt
mjöy hráðlega
Upplýsingar
dómsmálaráðherra
EINAR ARNÓRSSON
dómsmálaráðherra kvaddi
sjer hljóðs utan dagskrár í
sameinuðu þingi í gær, og
skýrði frá því, að nú væru
góðar horfur á, að takast
myndi að fá Þjóðleikhúsið
rýmt, og ætti þá brátt að
mega hefjast handa um að
fullgera húsið og gera það
hæft til þeirrar notkunar,
sem því er ætlað.
Ráðherrann mælti á
þessa leið:
„Alþingi skoraði 22.*mars
þessa árs á stjórnina að hún
beitti sjer fyrir því, að Þjóð
leikhúsið yrði rýmt. Dóms-
málaráðuneytið sendi utan-
ríkismálaráðherra þessa á-
skorun Alþingis þann 29.
apríl þessa árs, og sneri ut-
anríkismálaráðuneytið sjer
þegar til hins aðiljans og er
nú loforð hans fengið um
það, að Þjóðleikhúsinu verði
skilað aftur þegar er það
hefir verið rýmt af vörum
þeim, er þar eru nú gevmd-
ar og ný vörugeymsluhús
bygð, en því muni hraðað,
eins og kostur er á. Er smíði
nýrrar vörugeymslu þegar
hafin samkvæmt munnleg-
um upplýsingum flotafor-
ingja Breta“.
GRAZIANI ORÐINN
RÁÐHERRA.
MUSSOLINI hefir nú birt
ráðherralista sinn, og er l»nn
sjálfur forseti hins fascistiska
ítalska iýðveldis, ög ennfrem-
ur forsætisráðherra. Af hinum
meðlimum stjórnarinnar er
enginn kunnur maður, nema
Graziani marskálkur, er
stjórnaði herjum bæði í
Abyssiníustyrjöldinni og nú-
verandi styrjöld. — Reuter.