Morgunblaðið - 26.10.1943, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 26.10.1943, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ Þriðjudagur 26. okt# 1943, / Útg.: H.f. Árvakur, Reykjavík Framkv.stj.: Sigfús Jónsson Ritstjórar: Jón Kjartansson, Valtýr Stefánsson (ábyrgðarm.) Frjettaritstjóri: ívar Guðmundsson Auglýsingar: Árni Óla Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla, Austurstræti 8. — Sími 1600. Áskriftargjald: kr. 7.00 á mánuði innanlands, kr. 10.00 utanlands í lausasölu 40 aura eintakið, 50 aura með Lesbók. Hinn illi andi j „VIÐ EIGUM EKKI að vera að rífast um sjálfstæðis- málið, full sambandsslit við Dani og stofnun lýðveldis, — um það er allir sammála“. Eitthvað þessu líkt heyrist ekki allsjaldan í umræð- um um þetta mál. Ýmsir mæla eitthvað þessu líkt af fullri einlægni. Engir áhugamenn um sambandsslit og stofnun lýðveldis ljetu sjer hins vegar til hugar koma, að ekki eigi að tala um sjálfstæðismálið. En svo eru loks einstaka menn, sem leggja alla áherslu á, að ekki eigi að tala um sjálfstæðismálið vegna þess hve menn sjeu einhuga um það, af því að einhugur þeirra nær ekki út yfir þögnina. Höfuðkempa undanhaldsmanna í sjálfstæðismálinu, Jón Blöndal, hagfræðingur, endar sína endemislegu máls- vörn í Alþýðublaðinu fyrir rjettleysi okkar íslendinga til sambandsslita. með þessum ísmeygilegu orðum: „ís- lendingar eru í dag meira samhuga en nokkru sinni áður um aðalatriðið í afstöðunni til Dana, að stofna óháð og fullvalda íslenskt lýðveldi, engin hjáróma rödd hefir heyrst um þetta um langan tíma. Þurfum við að rjúfa hina þjóðlegu einingu um málið þegar svo er ...?“ Já, þurfum við að rjúfa hina þjóðlegu einingu? Hvað er það sem hagfræðingurinn skilur til af sinni hálfu, til þess að heltast ekki úr lestinni? Hvað annað en þögn, — þögn um málið, aðgerðarleysi, — bið! Jón Blöndal og hans líkar eru öllum sammála um sjálf- stæðismálið, meðan þagað er um málið. Þeir eru meira en sammála á þeim vettvangi, — þeir eru sjálfstæðishetj- ur þagnarinnar! Jón Blöndal kvartar undan því, að síðan farið var að tala um sjálfstæðismálið nú í seinni tíð með það áform einarðlega framundan, að stofna lýðveldi á næsta ári, sje „eins og illur andi hafi hvílt yfir málinu“. Svo undar- lega vill til, að þegar íslenskir stúdentar tóku þátt í nor- rænu stúdentamóti 1935, og fulltrúi þeirra lýsti þeirri af- stöðu íslendinga í sjálfstæðismálinu, að vilja skilnað eða sambandsslit, þá kom fram á sjónarsviðið í dönsku tíma- riti Jón nokkur Blöndal til þess að mótmæla þeim boðskap Skyldi það vera tilviljun ein, að þegar talað er opið um hug þjóðarinnar í sjálfstæðismálinu, og þegar ein- dregin áform liggja fyrir, þá er það hinn sami „illi andi“, sem gerir vart við sig? Andinn, sem segir: Verum öll sammála------en þegjum! Mikilvægt hlutverk * I Morgunblaðinu fyrir 25 árum Eftirfarandi klausa var um krankleíka Spánarkonungs: 5. okt. „Madrid, 3. okt: Alfons kon- ungur hefir fengið spönsku veik- ina og liggur með hitasótt“. ★ Boris Búlgaríukonungur, sem nú er nýlátinn, hafði ver- ið konungur í nálægt aldar- fjórðung. 6. okt. „Sofia 4. okt.: Ferdinand kon- ungur lagði niður kohungsvöld í gær í hendur Boris syni sínum. Hefir Boris konungur tekið við ríkisstjórn". ★ Um verslunarjöfnuðinn 1915 segir: 7. okt. „í nýlega útkomnum Hagtíð- indum er skýrt frá því, að verð aðfluttrar vöru. hafi numið 26.260.000 krónum árið 1915, en verð útfluttrar vöru 33.633.000 krónum“. ★ Stjórnarskipti urðu í Þýska- landi í fyrri heimsstyrjöld. — ílinn nýi ríkiskanslari, Prins Max von Baden hjelt ræðu í ríkisþinginu, þar sem liann skýrði frá að hann hefði sent Bandaríkjaforseta *friðartil- boð. Sagði hann m. a.: 7. okt. „Vegna hins óviðjafnanlega hraustleika hers vors, er herlína vor að vestan órofin ennþá. Get- um vjer því vongóðir horft fram í tímann, en hitt má oss eigi gleymast, að það er skylda vor, að stríðið standi eigi einum degi lengur en þörf er á og að vorum dómi er hægt að semja frið, án þess að heiður vor sje skertur. Með samþykki allra, sem þar til hafa verið kvaddir í ríkinu og í samráði við bandamenn vora, hefði jeg því að kvöldi hins 5. október sent forseta Bandaríkj- anna ávarp í gegnum svissnesku stjórnina og beðið hann að gang- ast fyrir friðarsamningum og setja sig í samband við allar ó- friðarþjóðirnar í því tilefni“. ★ Austurríki vildi einnig fá frið. FÁTT ER ÞAÐ, sem valdið hefir harðari átökum í þjóðfjelaginu, og þannig, að farið hefir harðnandi í seinni tíð, en hagsmunaátök milli stjettanna. Að sjálfsögðu verða menn að gera sjer ljóst, að slík hagsmunaátök eru í sjálfu sjer eðlileg og að ekki verður komið 1 veg fyrir þau. Kommúnistar tala að vísu um „stjettlaust þjóðfjelag" í hugarórum sínum og „alræði öreiganna“, en bæði hug- tökin gefa til kynna, að í friðarins ríki sósíalismans væri ekki til að dreifa mismunandi hagsmunum stjetta. En við lifum enn á jörðinni, þar sem lífsbarátta er ákaflega raunveruleg og mismunandi hagsmunir einstaklinga og stjetta minna áþreifanlega á sig. Sjálfstæðisflokkurinn hefir markað sjer þá stöðu að vilja og þurfa að sjá til allra átta. Stjórnmálaflokkar, sem ætla sjer lífsviðurværi af því að boða og berjast fyrir kröfum einstakra stjetta, eiga erfitt með að skilja hlut- verk Sjálfstæðisflokksins á þessu sviði og vilja það ekki. En eitt er víst, að sundrungu vantar ekki í okkar þjóðfje-I lag. Og meginorsök þess, að ekki tekst að forðast meiðsli óeiningarinnar, er sú, að hin Víðsýnu sjónarmið Sjálf- stæðisflokksins hafa ekki nægjanleg áhrif, enda þótt flokkurinn sje lang stærsti sjórnmálaflokkurinn í land- inu. Það bíður því flokksins hið mikilvæga hlutverk að vinna hinum víðsýnu sjónarmiðum sínum meiri hluta fylgis með þjóðinni. 7. okt. „Frá Berlín er símað að Aust- urríki hafi farið fram á það við Holland, að það kæmi á friðar- ráðstefnu og hafi Holland þegar snúið sjer til ófriðarþjóðanna í því efni“. ★ Illviðri var þá svo mikið fyrir austao að menn urðu jafn vel úti.. —— 1 frjettaskeyti frá Seyðisfirði sigir: 10. okt. „Hjer hafa verið látlausar stór rigningar síðan 5. þ. mán., en hríð á fjöllum. Er ákaflega erfitt að koma sláturfje til kaupstaðanna og gengur afar illa. Hefir það oft komið fyrir, að rekstrarmenn hafa orðið að yfirgefa fje á Fjarð arheiði, en hafa sjálfir komist til byggða við illan leik, þrekaðir og nær dauða en lífi. Einn mað- ur varð úti á heiðinni, Sigurður Runólfsson frá Viðastöðum. Var komið með lík hans hingað í gærkvöldi". X 1Jílwerji óhrijo % <L aaíeg,a Líjinu ♦***•*♦**♦**♦**♦**♦**•**♦**♦**♦**♦*♦♦♦• „ísland er ekki svo kalt“. TVEIR BRESKIR MENN hafa tekið upp hanskann fyrir íslend- inga í sambandi við greinina, sem birtist í „Edinburgh Even- ing News“ og sem jeg birti hjer í blaðinu s.l. sunnudag. Mjer var ekki kunnugt um þessar svar- greinar fyr en í gær, en sjálfsagt er, að þær komi fram, því þær sýna, að það líta ekki allir sömu augum á okkur og afstöðu okkar til setuliðanna og ástandsins yfir- leitt. Frá blaðinu sjálfu fylgir eftirfarandi formáli. „Sjómaður frá Edinburgh, sem skrifaði blaðinu á dögunum, gagnrýndi ísland og Islendinga. Hann skýrði frá því, að íslend- ingar sýndu breska hernum kaldlyndi og hann ásakaði eyjar- skeggja um gróðabrall. Tveir aðrir sjómenn — annar í kaupskipaflotanum og hinn í hinum konunglega flota — hafa tekið sjer penna í hönd fyrir ís- bréska heimsveldinu heldur en nokkurri annari erleádri þjóð, og er Danmörk þar ekki undan- skilin, en ísland hefir verið und- ir vernd Dana í aldaraðir. Þetta kom fram í hinum góðu móttök- um, sem forsætisráðherra okkar fjekk, er hann kom til landsins. Hver einasti maður með ein- hverja reynslu af Norður-Atlants hafinu síðustu þrjú árin ætti að þakka guði fyrir, að til er ísland, þar sem flugvjelar okkar og floti hafa bækistöðvar í hinu dásam- lega verkefni sínu, að verja skipalestir okkar, bæði sem koma til þessa lands og sem fara til Rússlands“. „Vingjamlegir og hjálpsamir“. SJÓMAÐURINN í breska flot- anum skrifar: „Jeg dvaldi í höfuðstaðnum þ. 17. júní (sjálfstæðisdag íslands), en þá hefði þjóðernistilfinning- in og hatur í garð „innrásar- land og vjer birtum nokkuð af mannanna" átt að hafa náð há- því sem þeir hafa skrifað. Fyrst sjómaðurinn í kaupskipa flotanum: „Þó jeg sje sammála ýmsu, sem sagt er frá í greininni, þá finst mjer hún gefa ranga hugmynd um ástandið á íslandi. Hvað því viðvíkur, að hermenn okkar mæti andúð þar, má ekki gleyma því, að íslendingar höfðu um margra ára skeið verið að berj- ast fyrir sjálfstæði sínu og voru að því komnir að ná því marki, þegar landið var hernumið. Hver einasti maður með ör- litla virðingartilfinningu myndi hafa á móti því, að land hans væri hernumið af erlendu valdi, hversu góðri meðferð sem þeir sættu, og þó íslendingar geri sjer fyllilega Ijóst, að þeim myndi hafa vegnað ver, ef Þjóðverjar hefðu hernumið landið, þá hefðu þeir vitanlega kosið að vera án fjelagsskapar Breta, Ameríku- manna eða Þjóðverja“. Hjónabönd. „ÞETTA KALDLYNDISHJAL er ekki ávalt eins kalt og það kann að virðast, því jeg þekki mörg dæmi þess, að breskir her- menn hafa gifst íslenskum stúlk- um, sem dvelja nú hjer í landi sem breskir borgarar og leggja fram sinn skerf í hergagnafram- leiðslunni. Hvað við kemur verðlaginu, þá verða menn að skilja, að land- ið á við verðb.ólgu að stríða. Árs- kaup hafnarverkamanna er t. d. kringum 600 sterlingspund (um 16.000 krónur) og búðarstúlka fær 5—6 pund á viku (130—160 krónur). Þegar á þetta er litið, er ekki ósanngjarnt, að silki- sokkar kosti 12—15 shillinga; og þess ber að gæta, að vörurnar eru fluttar inn fyrir íbúa lands- ins, en ekki til þæginda fyrir er- lenda ferðamenn. Það væri gott ef við mintumst þess, að við berjumst í þessu stríði fyrir frelsi og að góð sam- vinna og skilningur á högum annara þjóða og vandamálum myndu gera meira gott heldur en harðorð gagnrýni. Hver með- al íslendingur, sem eitthvað hugs marki. Jeg get aðeins sagt, að jeg varð ekki var við neitt slíkt. Þann dag gengum við um aðal- torg bæjarins og mættum þar skrúðgöngu íþróttamanna. Jeg komst að því, að þeir, sem fram hjá gengú, sýndu mjer þá vel- vild að þýða fyrir mig dagskrána sem jeg hafði keypt. Kallað var á fólk, sem kunni mál mitt og það leið ekki á löngu áður en við vorum umkringdir af ljós- hærðum Islendingum, sem af miklum áhuga skýrðu okkur frá þessum hátíðisdegi og írá Jóni Sigurðssyni og öðrum merkum mönnum, sem myndir eru af á íslenskum peningaseðlum. Það komu líka skemtileg atvik fyrir, er við fórum í búðirnar til að versla. Stúlkur, sem kunnu nokkur orð í ensku, voru afar hjálpsamar. Jeg minnist lítillar sæglgætisbúðar, þar sem brjóst- sykur var seldur, 20 stykki kost- uðu eina krónu — að vísu dýrt, en góðgæti, sem var gaman að koma með heim. Jeg keypti 100 stykki og voru þau talin fram af búðarstúlk- unni. Kunningi minn keypti aðra hundrað, en alt í einu sá stúlkan hina gamansömu hlið málsins. Er hún hafði talið 50 stykki, fór hún að hlæja og helti af handahófi í pokann og gisk- aði á, þegar hundraðinu var náð. Brjefritarinn segir að lokum: „Sumir einkennisklæddir menn éru ljelegir fulítrúar síns lands“. ★ Þetta voru svargreinarnar, sem birtust í „Edinburgh Evening News“ við hinni miður velvilj- uðu og harðorðu gagnrýni, sem birtist í sama blaði nokkrum dög um áður. Það er sannarlega virð- ingarvert af þeim mönnum, sem ekki gátu sjeð illa ritað um ís- land, án þess að mótmæla og þeir eiga okkar þakkir skyldar fyrir. En hjer er enn eitt dæmi þess, að frjettaþjónusta okkar erlend- is er í miklu ólagi. Engu blaði myndi detta í hug að birta grein um vinveitta þjóð, eins og fyrstu greinina, sem birtist í hinu skoska blaði, ef ritstjórar blaðs- ins hefðu haft aðgang að rjettum ar, ber meiri virðingu fyrirupplýsingum um landið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.