Alþýðublaðið - 12.06.1920, Side 1
Alþýðublaðið
Oefið lít af A-Iþýðuflokknum.
1920
Laugardaginn 12. júní
131. tölubl.
Lög og réltur í Canada.
Fiskbreiðsla
Frá því í dag gefst fullorðnum og unglingum, eldri en 11 ára,
kostui á stöðugri vinnu við fiskbreiðslu, þegar hægt er að breiða.
Verða þeir, er kunna að gefa kost á sér sóttir og fluttir á bifreiðum,
sem hafa fastan áfangastað kvölds og morguns kl. 6l/i á Bergstaða-
stræti 25 og Laugaveg 42.
Fiskistöðin Defensor.
(Niðurl.)
Valerio, ítalskur bakari, var svo
ðheppinn að Ieigja íbúð, sem
handtekinn jafnaðarmaður hafði
búið í óg skilið eftir hyllu fulla
af bókum Marx og annara jafn-
aðarmanna. Auðvitað var hann
dæmdur í þriggja ára fangelsi,
enda þótt hann gæti sannað að
bækurnar komu honum ekki við.
Svona er ástandið I Toronto og
í Montreal og öðrum borgum er
það engu betra.
Stúdent nokkrum, Calgary, var
haldið í fangelsi yfir jólin, fyrir
það að hafa lesið forboðna bók,
og ríkislögregluliðið var látið rann-
saka háskólabókasafnið í Alberta
háskólanum og leita þjófaleit hjá
öllum stúdentum að forboðnum
bókum, og hafði það á burt með
sér allar slíkar bækur, er það
fann þar.
Alþýðubókasafnið í Regína var
einnig rannsakað nákvæmlega.
Það var ákvcðið að ritskoðun-
arlög ófriðaráranna skyldu falla
úr gildi 1. janúar 1920, en ennþá
fer ströng ritskoðun tram á þann
hátt, að nýjum ákvæðum hefir
verið bætt inn í hegningarlög
ríkisins, sem ákveða landræka og
í enn verri hegningu dæmda alla
þá, er setja sig upp á móti Ca-
nadastjórn eða gildandi lögum og
eignarréttarreglum. Þessi lög sam-
þykti þingið siðasta þingtfmabil,
enda þótt aukakosningar hafi Ijós-
lega sýnt, ef marka má af þeim,
að þjóðin er á móti þeirri stjórn,
sem nú situr við völd.
Erfitt hefir stjórnin átt með þá
borgara, er fæddir voru í Bret-
landi, því eigi mátti reka þá úr
landi, eftir að þeir höfðu fengið
borgararéttindi í Canada. En svo
vildi það til, að foringjar verk-
tallsins í Winn'peg voru flestir
fæddir í Bretlandi. En þingið sá
ráð við því og samþykti þá breyt-
ngu, að reka mætti alla úr lzndi,
er ekki væru fæddir í Canada.
Skyldi nú þessu beitt við verk-
fallsforingjana. En stjórnin var
nógu hyggin til að sjá að sér í
tíma; því brezkir verkamenn í
Englandi gáfu út yfirlýsingu í
Southport, svo stjórnin hræddist.
Gagnvart útlendingum átti stjórn-
in hægra um vik. Meðal annars
kvað hún hafa gefið 14 þús,
Ukrainebúum vegabréf heimleiðis,
og svo mætti lengur telja.
Mál hefir verið höfðað gegn 10
af foringjum Winnipeg-verkfallsins
og er einu þeirra, gegn Russel, for-
ingja málmsmiðafél., lokið. Kæruat-
riðin gegn honum voru 7 og var
hann dæmdur sekur um þau öll
og dæmdur í tveggja ára fangelsi
fyrir hverja og skyldi eitt fang-
elsistímabilið taka við af öðru.
Dómarinn, Metcalfe, átti sæti
sitt að þakka pólitfskri hylli frek-
ar en gáfum og réttsýni. Mála-
færslumennirnir brutu þá gömlu
venju, að flytja ekki mál er þeir
voru riðnir við. En þeir höfðu
verið í „Citizens Committee*, er
hafði barist á móti verkfalls-
mönnum.
Dómarinn rakti fyrir kviðnum
æfiferil Russels og hélt há-„kapi-
taliska* ræðu fyrir dómendunum,
þar sem hann kvað nauðsynlegt
að vernda löghlýðni með þvf, að
refsa verkfallsþrjótum. Varaði ræð-
an 31/* klukkutíma. Eftir 12 tíma
dæmdi kviðurinn, eins og áður er
getið, Russell í 14 ára fangelsi.
Dómur þessi þótti hin mesta
Afgreiðsla
blaðsins er í Alþýðuhúsinu við
Ingólfsstræti og Hverfisgötu.
Síml 988.
Auglýsingum sé skilað þangað
eða f Gutenberg f sfðasta lagi kl.
10, þann dag, sem þær eiga að
koma í blaðið.
svívirða og var myndaður sjóður
til að standast kostnað af áfrýjun
málsins.
Hin málin eru komin nokkuð
áleiðis.
Einn af þeim ákærðu er metó-
distaprestur, að nafni Woodsworth,
áhugasamur þjóðfélagsfrömuður.
Aðalákæran á hann er, að hann
skrifaði grein í „Strike Bulletin*,
sem byrjaði á þessum orðum
Jesaja spámanns: „Vei þeim, sem
veita ranga úrtkurði og færa skað-
semdarákvæði f letur.* Sömuleiðis
hafði honum orðið það á að láta
endurprenta útdrátt úr ræðum
verkamannaforingjans enska, Art-
hur Hendersons, fyrv. ráðherra.
Núverandi Canadastjórn a auð-
sjáanlega eigi mikið eftir ólært af
aðferðum rússnesku keisarastjórn-
arinnar sálugu.
(Lausl. þýtt úr „The New
Statesman*). X