Morgunblaðið - 05.12.1943, Síða 1
1500 smdiestir af sprengjum d Leipzig
-4
Rússar
nálgast
Slobin
London í gærkvcldi.
Einkaskeyti til Morgunblaðsins
frá Reuter.
RÚSSAR skýra frá því í her-
stjórnaftilkynningu sinni í
kvöld, að þeir hafi tekið 30
þorp og bæi fyrir austan Slob-
ip í Hvíta Rússlandi og að her-
sveitir þeirra sjeu nú aðeins
eina 12 km. frá þessari mikif-
vægu borg við efri Dnieper. Á
milli Slobin og Rogachev hafa
Þjóðverjar enn nokkuð stóran
brúarsporð á eystri bökkum
Dnieperfljóts, en brúarspoi’ður
inn minkar óðum, því að Rúss-
ar sækja nú einnig að Roga-
chev og eru komnir þar að
Dnieperfljóti.
Þá hafa Rússar einnig hald-
ið uppi sókn vestur af Kremen-
,qhug og tóku þar 12 bæi og
þorp í dag.
Vestur af Kiev er ekki getið
um neina bardaga í dag.
Loilárás á Hong Kong.
Reuterfregn frá Chungking í gærkvöldi segir svo frá
því, að amerískar sprengjuflugvjelar, sem bækistöðu
hafa í Kína, hafi í fyrradag gert snarpa loftárás á Hong
Kong, hina miklu borg í Kína, sem nú er í höndum
Japana. Myndin sýnir Hong Kong úr lofti.
5 ára drengur
deyr í bílslysi
■ÞAÐ SORGLEGA SLYS
vildi til í gærdag, að fimm ára
gamall drengur, Jens Kristinn
Þorsteinsson, sonur Þorsteins
Guðmundssonar skipstjóra,
Kaplaskjólsveg 12, varð fyrir
herbifreið og beið bana.
Slysið vildi til um kl. 14.30 í
gær fyrir framan húsið Kapla-
skjólsveg 11. Drengurinn var
þegar fluttur í herbúðir, sem
eru þarna skamt undan, en
þar andaðist hann.
Enn er ekki að fullu rannsak
að, hvernig slysið vildi til.
Þjóðverjar handtaka
kvenstúdenta í Noregi
London í gærkvöldi. — Einkaskeyti til Morgun
blaðsins frá Reuter.
NASISTARNIR þýsku hafa svarað mótmælum þeim,
sem borist hafa hvaðanæfa að úr hinum frjálsu löndum,
út af handtökum 1200 norskra stúdenta og 65 prófessora,
með því, að fyrirskipa Öllum norskum kvenstúdentum
að gefa sig fram á næstu lögreglustöð, en kvenstúdent-
unum var leyft að fara heim á dögunum, er handtökurn-
ar við Osloháskóla fóru fram. Er talið, að Gestapo ætli
einnig að taka kveristúdentana fasta og flytja í fanga-
búðir.
Nýja sóknin á Ítalíu gengur vel
London í gærkvöldi. — Einkaskeyti til Morg-
blaðsins frá Reuter.
SOKN SU, sem fimti her bandamanna á Ítalíu hyrjaði á
fimtudaginn var hefir gengið að óskum þótt við alveg ó-
venjumikla örðugleika hafi verið við að stríða.
í dag er tilkynt að 5. her-
inn hafi sótt fram 3 km. og þó
það sje ekki löng leið að sjá
á pappírnum segja hernaðar-
sjerfræðingar að um mikinn
sjgur sje að ræða.
Handamenn verða að sækja
að Þjóðverjum, sem verjast
í hlíðum Appeninafjalla. Eru
fjallshlíðarnar þama sums-
staðar um 300 fet á hæð.
Fimti herinn hóf sókn sína
með ógurlegri stórskotahríð.
JTefir slík skothríð eklci áður
þekst í hernaðinum á Italíu,
enda seg.ja þýskir fangar, að
það liat'i ekki verið á valdi
mannlegs máttax að standast
Pramh. á hls. 10.
Auk þeirra stúdenta, sem
Gestapo hefir þegar handtekið,
leitax hún um allan Noreg að
þeim stúdentum, sem sluppu
við handtökur á dögunum. —
Feiknarmikil gremja ríkir hvar
vetna á Norðurlöndum og' víð-
ar útaf þessu dæmalausa at-
ferli nazista. Samúðarkveðjur
og mótmæli gegn athæfinu
hafa komið frá fjölda löndum,
þar á meðal eru talin hjer í
London í dag; Danmörk, Finn-
land, Island og Svissland.
Fjöldafundir
í Svíþjóð.
En kröftugust hafa mótmæl-
in verið í Svíþjóð. í hverjum
einasta háskólabæ Svíþjóðar
eru fánar dregnir í hálfa stöng
og víða hafa farið fram mót-
Framh. á 2. síðu.
Óstjórnlegir eldar
í borginni 12 klst.
eftir árásina
London í gærkvöldi. — Einkaskeyti til Morg-
blaðsins frá Rentér.
ÓSTJÓRNLEGIR eldar loguðu í Leipzig í kvöld. 12 klukku-
stundum eftir hina miklu loftárás, sem flugvjelar breska
flughersins gerðu á borgina í nótt. Reykurinn frá eldunum.
í borginni steig 8 km. í loft upp og flugmaður, sem sendur
var til eftirlitsflugs yfir borgina síðari hluta dags í dag,
sagðist hafa sjeð eldana er hann var kominn 350 km. frá
borginni á heimleið til Englands.
Þjóðhátíð Finna
á morgun
Á MORGUN, þann 6. des-
ember, heldur ein af Norður-
landaþjóðunum, Finnar, þjóð-
hátíð sína til þess að minnast
26 ára sjálfstæðis síns, sjálf-
stæðis, sem nú er að vísu svip-
ur hjá sjón, eins og hjá svo
mörgum öðrum þjóðum nú, í
þeim hamförum, sem yfir heim
inn ganga. Finnar áttu að baki
sjer langa og harða og oft óg-
urlega þjáningafulla sjálfstæð-
isbaráttu, en eftir hið fyrra
heimsstríð birti skyndilega fyr
ir þeim og þeir sáu sína dýr-
ustu óskir um frelsi og sjálf-
stæði rætast.
TyrklandsSorseli
í Kairo með Roose-
velf og ChurchilO
ANKARA í gærkveldi —: Ó-
staðfestar fregnir eru hjer á
lofti um, að Inönu forseti sje
farinn til Kairo til að ræða við
þá Roosevelt forseta og Churc-
hill forsætisráðherra, en þeir
eru nú taldir vera komnir
þangað frá Teheran.
Undanfarið hefir mikið verið
bollalagt um, að Tyrkir myndu
fara í stríðið með bandamönn-
um. Telja margir, að Tyrkir
vilji vera með í ráðum, þegar
Miðjarðarhafsmálin verða á-
kveðin, en þeir hafa mikilla
hagsmuna að gæta þar eins og
á Balkanskaga. — Reuter.
SKIPATJÓN SYÍA
SVÍAR hafa alls mist 211
skip af ófriðarvöldum í þessu
stríði. Voru þau samtals 864,-
785 smálestir og ljetu við þessa
skiptapa 1.176 manns líf sitt.
Göbbuðu Þjóðverja.
Bresku flugmennirnir göbb-
uðu Þjóðverja. Þeir ljetu líta
svo út, sem ferðinni væri heit-
ið til Berlínar. Fóru Mosquito-
flugvjelar á undan sprengju-1
flugvjelasveitunum og stefndi
hinni mikli flugfloti í áttina til
Berlínar. Þýsku orustuflugvjel
arnar komu á móti árásarflug-
vjelunum og sló fljótt í bar-
daga í loftinu. En alt í einu
breyttu sprengjuflugvjelarnar
um stefnu og hjeldu til Leip-
zig. En MosqUitovjelarnar íóru
yfir Berlín. Þegar Þjóðverjar
loks áttuðu.sig á þessu, var það
orðið um seinan. — Bresku
sprengjuflugvjelarnar voru bún
ar að losa sprengjufarma sína
á hinu fræga Leipzigborg og
komnar á leið heim aftur.
Mikið tjón í borginni.
Flugvjelar, sem hafa það
hlutverk að leita uppi skot-
mörk fyrir sprengjuflugvjel-
arnar, fóru á undan aðalárásar
flotanum og sleptu niður blys-
um, sem lýstu upp skotmörk-
in. Segir einn flugmaðurinn, er
þátt tók í árásinni, að það hafi
ekki verið hægt annað en að
sjá skotmörkin þrátt fyrir að
lágskýjað var yfir borginni. —•
Bretar vörpuðu samtals 1500
smáléstum af sprengjum á
borgina og er þetta því ein af
mestu loftárásum styrjaldar-
innar. (Talið var, að Þjóðverj-
ar hefðu varpað niður 450
smálestum á Coventry).
Þjóðverjar .• viðurkenna í
frjettum sínum, að mikið tjón
hafi orðið í Leipzig.
Þýðingarmiklar
verksmiðjur.
Leipzig er ein af stærstu borg
um Þýskalands. íbúar voru fyr
ir stríð um 700.000. Þar eru
miklar flugvjelaverksmiðjur.
Hafa Þjóðverjar flutt þangað
verksmiðjur, sem áður voru í
Rínarhj eruðunum.
Bretar mistu 23 sprengjuflug
vjelar í árásinni og eina orustu
flugvjel. Bresku flugvjelarnar
Framh. á bls. 10.