Morgunblaðið - 09.02.1944, Page 2

Morgunblaðið - 09.02.1944, Page 2
2 MORGUNBLAÐIÐ Miðvikudag’iir 9. febrúar 1944 í '&$ rs Hörð oy skemti- leg sundkepni SUNDMÓT ÆGIS fer fram í kvöld í Sundhöllinni. Alls verð ur kept í 8 sundgreinum og eru * keppendur í þeim 61 frá 4 fje- logum: Ægi, Armanni, KR og ÍR. Yfirleitt má búast við harðri og skemtilegri kepni. 1 50 m. skriðsundi karla eru 7 keppendur: Stefán Jónsson (Á), sem varð hlutskarpastur í fyrra, er ekki með að þessu sinni, en af þeim, sem keppa, má m. a. nefna methafann Rafn Sigurvinsson (KR) og Hörð Sigurjönsson (Æ). I 100 m. skriðsundi drengja eru keppendur einnig 7, þar á meðal Halidór Bachmann (Æ), sem mun einna líklegastur til sigurs, og Hreiðar Hólm (Á), sem sagður er í góðri sefingu. 4 keppendur eru i 200 m. skriðsundi karla. Þar má bú- ast við sjerstaklega harðri kepni milli Guðmundar Guð- jónssonar (Á) og Guðmundar Jónssonar (Æ) og verður engu um úrslit spáð. Keppendur eru 7 í 100 in. bringusundi kvenna. Þar má gera ráð fyrir að bítist um sig- urinn Unnur Ágústsdóttir (KR), Halldóra Einarsdóttir (Æ) og Guðrún Tryggvadóttir (ÍR). í 400 m. bringusundi karla eru keppendur aðeins 3: Sig- urður Jónsson (KR), sem mun líklegastur til sigurs, Einar Ðavíðsson (Á) og Hörður Jó- hannesson (Æ). Keppendur eru 8 í 50 m. bak sundi drengja. Ekki skal spáð rieinu um úrslit þar, en nefna má meðal keppenda Guðmund Ingólfsson (ÍR) og Halldór Bachmann (Æ). I 50 m. bringusundi drengja eru keppendur 8. Má þar nefna Val Júlíusson (Á) og Hannes Sigurðsson (Æ). Síðast skal svo talin rúsínan í' kepninni, en það er 8x50 m. skriðsund karla. Þar keppa þrjár sveitir, ein frá Ægi, ein frá Ármanni og ein frá KR. í fyrra voru sveitir Ægis og Ármanns jafnar og settu nýtt met. Nú er vitað, að bæði fje- lögin skipa sveitir sínar sínum sterkustu mönnum. Má gera ráð fyrir afar harðri kepni og umfram alt nýju meti. En hver veit, nema KR-sveitin komi á óvart. -— Mótið hefst kl. 8.30. Áheit á Útskálakirkju. Frá N. N., kr. 30,00. Frá N. N. kr. 20,00, (sent í brjefi). Frá M. B., kr. 50,00. Frá ónefndum kr. 20,00. Frá ónefndum, kr. 10,00. Frá konu í Garðinum, kr. 20,00. Frá Geirþrúði, kr. 20,00. Frá N. N., kr. 20,00. Frá ónefndum, kr. 50,00. Frá N. N., kr. 20,00. Frá ónefndum, kr. 100,00. — Bestu þakkir. Sóknarnefndin. Samgöngumál Borgarfjarðar Best að auglýsa í Morguflblaðinu UNDANFARIÐ hafa birst nokkrar greinar um þessi mál, sem þó aðallega hafa fjallað um hina svokölluðu Hvalfjarð- arleið. Hafa þeir Haraldur Böðvarsson á Akranesi og J. P. (Jón Pálmason) ritað um þetta í Mbl. og ísafold og Vig- fús Guðmundsson gestgjafi í Tímann. Eftir að hafa lesið allar þess ar ritsmíðar fanst mjer nauð- synlegt að bæta nokkru við, sem fremur en þær gerðu túlk uðu nokkuð þá skoðun, sem al- ment mun vera ríkjandi hjer um Borgarfjörð og Mýrar, þ. e. hjá því fólki, sem á afkomu sína undir því, að vel takist um lausn þessara mála úr því óefni, sem þau nú eru komin í. Það hafa að vonum vaknað ýmsar spurningar viðvíkjandi þessum málum eftir að m.s. Laxfoss strandaði, en meðan þess góða skips naut við þurfti almenningur litlar áhyggjur af þessu að hafa. Ferðir skips- ins voru í föstum skorðum ár- ið um kring. Áætlun var gefin út, sem hver maður gat feng- ið, og mun pað vera einasta skipafjelagið hjer á landi, sem það gerði nú um undanfarin ár. Þannig hafði öll viðleitni þeirra manna, er stóðu að út- gerð m.s. Laxfoss, miðast við það, að skapa reglubundnar og öruggar ferðir á þessari leið og jeg fullyrði, að það hafi tekist jafnvel eða betur, en annars- staðar þekkist hjer við land og orðið undirstaða að regluleg- um bifreiðaferðum um alt Vestur- og Norðurland, sem bifreiðum er fært. ★ MJER ER það fullljóst, að þróun samgöngumálanna inn- anlands miðar að því, að ferða lög á landi stóraukist og vegir lengist og batni, og á það ber líka að leggja mikla áherslu. En hitt er og jafnvíst, að þörf- in fyrir heppileg skip til flóa- og strandferða verður síst minni en hún hefir áður ver- ið, því jafnvel þótt þessar tvær miljónir, sem J. P. telur að nýtt skip, sem gengi milli Reykja- víkur og Borgarness, mundi kosta, væru lagðar í endurbæt- ur á veginum innan Hvalfjarð- ar og framan Hafnarfjalls, mundi það lítt hrökkva til að gera leiðina svo örugga á öll- um árstímum, sem skipaferðir væru á milli þessara staða, og er þá slept þeirri staðreynd, að útgerð bifreiða á þessari flutn- ingaleið mundi verða stórmik- ið dýrari fyrir þjóðfjelagið miðað við flutningamagn, sem þarf að afkasta heldur en hent- ugt skip á borð við Laxfoss. Ekki vil jeg letja þess, að ríflegar fjárfúlgur verði veitt- ar til að gera Hvalfjarðarleið- ina góða, en vil hinsvegar vara við, að ekki sje mist sjónar á þeirri nauðsyn, að heppilegt skip sje einnig í förum og haldi uppi reglubundnum ferðum milli Reykjavíkur, Akraness og Borgarness, en mjer finst, að sumir þessara vísu manna, sem um þessi mál skrifa nú, gleymi því, að aðrir hafi ferð- ast eða þurfi að ferðast milli Reykjavíkur og Borgarness en fólk að „norðan“ og „vestan“. Sannleikurinn er þó sá, að mik ill meiri hluti af því fólki, sem farið hefir sjóleið þessa, sem á s 1. ári mun hafa verið tvöfalt fleiri en ferðuðust á vegum Skipaútgerðar ríkisins á sama tíma, er aðeins að fara í Borg- arfjörðinn og út á Mýrar, og væri því alveg eftir að sjá öllu þessu fólki fyrir farkosti, því langferðabílarnir hefðu al- veg nóg með að halda áfram til Reykjavíkur með sitt fólk að „norðan“ og „vestan". Eins og nú stendur um inn- flutning bifreiða, veit jeg ekki I hvernig J. P. og Haraldur j Böðvarsson hugsa sjer að leysa þetta og það því fremur, sem gera má ráð fyrir, að sumar- .ferðalög stóraukist frá>því sem | verið hefir, þegar orlof verka- ^fólks samkv. hinum nýju or- lofslögum kemur til fram- ■i kvæmda á næsta sumri. Jafn- J framt má benda á það, að bessi ^mikli og sívaxandi fólksstraum ,ur frá Reykjavík hingað upp Jeftir kemur mikið niður á (laugardaga og sunnudaga. Folk ið fer úr bænum um helgar og beinist þá oft hugur þess til hins nærliggjandi og fagra hjeraðs og þá ekki síst vegna þess, að þangað hafa verið fljótar og öruggar ferðir með flóabátnum. ★ ANNAR höfuðþáttur þess, að góðar samgöngur sjeu á sjó á milli Borgarness og Reykja- .víkur er nauðsyn hjeraðsbúa að koma framleiðsluvöru sinnt á markaðinn og þörf Reykja- víkur að fá þær helst daglega. Mjólkurframleiðendum á þessu svæði mundi verða það stórum óþægilegra og kostnaðarsam- ara að flytja mjólk og mjólk- urafurðir hjeðan úr Borgar- nesi á bílum heldur að láta hana í skip hjer, því ekki get jeg búist við að bændur óski eftir að flytja mjólkina beint til Reykjavíkur og fram hjá mjólkursamlagi sínu hjer, enda mundi það ekki frapakvæman- legt nema í vissum tilfellum. En þrátt fyrir það, þótt kostn- aðarhliðin á þessu væri lítils- virði eða landleiðin samkepn- isfær í því efni, þá yrði þó aldrei með henni einni samán skapað það öryggi í þessum málum, sem bæði framleiðend- um og neytendum er svo nauð- synlegt, því undanfarnar vik- ur hafa sýnt og sannað, að beinn voði getur verið fyrir dyrum í Reykjavík, ef þangað berst ekki nægileg mjólk dág- lega, en það er algengt, að dög- um saman er ófært „austur yf- ir fjall“ vegna snjóa, þótt veg- ir um Borgarfjörð og Mýrar sjeu fullfærir, en hinsvegar er það hrein undantekning, að ó- fær sjór sje milli Reykjavíkur og Borgarness, ef heppilegt skip er til staðar. Við megum ekki gleyma því, að við búum við óblíð kjör hvað veðurfar snertir og að ekki þarf að bera nema lítið út af svo að samgöngur á landi torveldist eða verði ófærar með öllu um lengri eða skemri tíma. En þar sem hafnarskil- yrði eru sæmileg, verður sjó- leiðin svo að segja aldrei ófær, ef góð skip eru til staðar, og hægara er að halda tiltölulega stuttum flutningaleiðum inn- anhjeraðs opnum í snjóavetr- um en langleiðum milli hjer- aða, sem eins og t. d. Hval- fjarðarvegur liggur um lands- lag, sem er mjög snjóþungt og auk þess stórhættulegt vegna skriðuhlaupa og jafnvel snjó- flóða (Þyrilshlíð og Múlafjallþ ★ HJERAÐSBÚAR verða nú sem fyr að taka djarflega á þessum málum. Við höfum orð ið fyrir þungu áfalli að missa Laxfoss og ekkert nema öflug samtök geta bætt okkur það tjón. Um þessi samgöngumál hcfir æíinlega verið friður og samkomulag og eru þau ef til vill einustu samtökin, sem nokkuð hefir kveðið að, sem ekki hafa verið lituð „pólitík“ eða hagsmunastreitu vissra stjetta. Fyrverandi ríkisstjórn og Alþingi hafa sýnt þeim full- an skilning og metið gildi þeirra fyrir samgöngurnar í þessum landshlutum og'styrkt þau myndarlega með því að gerast hluthafi þegar fyrirtæki þetta var stofnsett, og væntum •;ið, að sú vinsamlega afstaða sje óbreytt ennþá þrátt fyrir það, þótt afskifti núverandi fjármálaráðherra af þessum málum á s.l, hausti væru ekki á þann veg, að auka samhug eða samstarf og enda þótt sjálf óhöppin verði ef til vill ekki beint til þeirra afskifta rakin, þá kann það að verða öllum ó- höppum afdrifaríkara, ef sam- stilling kraftanna innanhjeraðs bilar. Takmark hjeraðsbúa er að fá aftur skip, sem hentar í þess ar ferðir og undirbyggja fjár- hagslegan grundvöll þess þann ig, að það skapi hvorki ríki nje hjeraði byrðar umfram nota- gildi. En enginn má skilja okk- ur Borgfirðinga eða Mýramenn svo, að við sjeum á móti bætt- um vegum úr hjeraðinu til Reykjavíkur, þvert á móti tel j um við það mikla nauðsyn, því við höfum þá skoðun, að sjálf- sagt sje, að fólk hafi sem frjáls ast val um tilhögun ferða sinna og höfum trú á, að- framtíðin beri í skauti sínu þá atvinnu- og framleiðslumöguleika í hjer aðinu, að greiðar samgöngur á sjó og landi sjeu jafn nauðsyn- legar og því betri sem þær eru, því meiri lyftistöng fyrir alt athafnalíf. Borgarnesi 2. febr. 1944 Friðrik Þórðarson. iiiiiiiiiimiiiiiiiiiiniiiiiiiiiniiiiiiimiiiiiiiiniiiiiiifiiiw I þúsundir I mnnnn = lesa Morgunblaðið á hverj- = 3 um degi. Slík útbreiðsla er S 3 langsamlega met hjer á| 3 landi, og líklega alheims- s 3 met, miðað við fólksfjölda 5 í landinu. — Það, sem birt- = s ist í Morgunblaðinu nær s = til helmingi fleiri manna = | ení nokkurri annari útgáfu = 5 hjer á landi. áiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiinnniiminiiiiniiiinniiu Fiskiþingið í GÆR var vöruvöndun fyrst á dagskrá Fiskiþingsins. Hafði forseti framsögu 1 mál- inu. Urðu allmiklar umræður um málið, en síðan var því vísað til sjávarútvegsnefndar. Næst á dagskrá voru orlofs- lögin. Var í því máli samþykt svohljóðandi tillaga frá fjár- hagsnefnd: „Fiskiþingið samþykkir, að fara þess á leit við Alþingi, að orlofslögunum verði breytt þannig, að orlofsfje verði ekki greitt af aflahlutum sjómanna við fisk- og síldveiðar, og lækkað til^annara í 2% úr 4%, sem nú er. Ennfremur að ekki verði greitt orlofsfje til þeirra manna, sem hafa haft 20 þús, króna tekjur eða meira næsta ár á undan. Einnig telur Fiski- þingið sanngjarnt og eðlilegt, að alt orlofsfje sje skattfrjálst1' Mikil skriffinska og mis- skilningur hefir orðið út af lagasetningu þessari. — Vilja margir, jafnvel líka margir or- lofsþiggjendur, að lögin yrðu afnumin nú þegar. En rjett þykir, að fara ekki lengra en gert var í undanfarinni álykt- un, þangað til full reynsla er, fengin um þessa nýsettu lög- gjöf. Meðferð veiðarfæra, fram- sögumaður Óskar Halldórsson. í því máli samþykt svohljóð- andi tillaga frá fjárhagsnefnd: „Fjárhagsnefnd er því ein- huga samþykk, að veitt verði1 fje, þegar á þessu ári til þess að halda námskeið í Reykjavík næsta haust um meðferð veið- arfæra, og hefja nú þegar und- irbúning um útvegun húsnæð- is og páðningu kunnáttu- manna í tilbúning, viðgerð og hagnýting þorsk- og síldveið- arfæra. Jafnframt skorar Fiskiþing- ið á stjórn fjelagsins að láta ráðunauta þess halda áfram með og auka tilraunir með lit- un, endingu og þol veiðarfæra, þannig, að sem mestur fróð- leikur og upplýsingar í þess- um málum liggi fyrir næsta haust, þegar væntanlegt veið- arfæranámskeið byrjar. Þar sem síldarverksmiðjuir ríkisins hafa ákveðið að koma í sumar upp stöð á Siglufirði til aðgerðar á síldveiðarfærum samþykkir Fiskiþingið, að leggja fyrir stjórn Fiskifjelags ins og útvega kunnáttumanrt um meðferð og aðgerð síld- veiðifæra, er dveldi í Siglu- firði yfir mestan hluta síld- veiðitímans, til leiðbeiningap fyrir útgerðarmenn.“ Meðmæli með hafnarnefnd á Skagaströnd. Svohljóðandi til- laga frá fjárhagsnefnd sam- þykt: „Fiskiþingið mælir með því, að haldið verði áfram hafnar- gerð á Skagaströnd, þar sem lögákveðið hefir verið að reisa þar síldarverksmiðju, og höfn á þessum stað, getur haft mikla þýðingu fyrir síld- og fisk- veiðar í Húnaflóa“. Næsti fundur Fiskiþingsing verður kl. 2% í dag. AUGLÝSING ER GULLS ÍGILDI J

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.