Morgunblaðið - 05.03.1944, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ
Sunnudagur 5. mars 1944,
Talsímaþjónusta í verstöðv-
m vegna slysavarna
JOHANN JOSEFSSON og
Eysteinn Jónsson flytja svo-
hljóðandi þingsályktunartil-
lögu í Sþ.:
,,Alþingi ályktar að skora á
ríkisstjórnina að koma á fót í
sambandi við starfrækslu lands
simans sjerstakri slysavarna-
þjónustu í verstöðvum landsins
ó aðalvertíðum utan hins á-
kveðna talsímaþjónustutíma,
sem er á bverjum stað fyrir sig,
Jpannig að þar, sem því verður
við komið, sje hlustað á tal-
stöðvar fiskibátanna á öllum
tímum sólarhringsins, og að
sjeð verði fyrir því, ef þörf
krefur vegna slysavarna, að
imt sje að ná í símasamband
við Reykjavík hvaða tima dags
■eða nætur, sem er“.
I greinargerð segir:
Það liggur í augum uppi, að
svo mikilsverð ráðstöfun til
öryggis, sem talstöðvar bát-
anna eru kemur því aðeins að
notum, að trygt sje, að á þær
sje hlustað úr landi, og er hjer
gert ráð fyrir, að það sje gert
í sambandi við starfrækslu
landssímans, eftir þeim regl-
um, er um það kunna að vera
settar, meðan hver talsimastöð
fyrir sig er opin hvern dag.
Reynslan hefir svo leitt hitt
I ljós, að utan hins reglulega
starfstíma stöðvanna er engu
minni þörf á því, að hlustað sje
eftir bátatalstöðvum, og hefir
þetta leitt til þess í stærstu
verstöð landsins, Vestmanna-
eyjum, að á fót hefir verið kom
ið þjónustu utan stöðvartím-
ans, sams konar og í þessari
þá.l.tillögu er farið fram á að
gert verði yfirleitt í verstöðv-
unum.
Var þetta fyrst gert frá miðj
um febrúarmán. 1943 og til
loka maímánaðar s. á. Hefir
kostnaðurinn verið borinn uppi
að nokkru leyti af Landssím-
anum og að nokkru leyti af
V estmannaey ingum sjálfum.
Er hinn sjerstaki símavörður
að starfi á þeim stað frá kl. 9
að kvöldi til kl. 8 að morgni.
Eftir því hefir verið leitað, að
Landssíminn kostaði einn þessa
vörslu, en hann hefir færst
undan því og telur að vísu á-
litamál, hvort kostnaðurinn
eigi að berast upp af símafje
eða slysavarnafje, og þó sje
hið síðara ekki ósanngjamt,
þar eð tekjur þær, er síminn
hefir af slíkum störfum, eru
sem engar.
Landssíminn heldur þvi fram
og með rjettu, að hjer sje nær
eingöngu um slysavarnarráð-
stöfun að ræða og rjett sje, að
Alþingi og ríkisstjórn taki á-
kvörðun um tilhögun hennar
og um það, hvort síminn sjálf-
ur beri kostnaðinn eða hann
sje veittur með sjerstakri fjár-
veitingu til slysavarna eða á
annah hátt.
Hjer er um mikilvæga örygg
isráðstöfun að ræða, sem er
nauðsynleg í sambandi við tal-
stöðvar bátanna í hvaða veiði-
stöð, sem er. Hún hefir reynst
mjög vel í Vestmannaeyjum, og
mundi það líka vei'ða annars
staðar, þar sem líkt er ástatt.
Hjer er því farið fram á það,
að þessari sjqrstöku símaþjón-
ustu vegna slysavarna verði
komið á í verstöðvum landsins
yfirleitt og henni haldið uppi
þá tíma árs, sem brýnust er
nauðsynin, en hana teljum við
vera á þeim tímum, sem sjór
er mest sóttur, eða á aðalver-
tíðum hvarvetna.
Þá er enn fremur fram á það
farið í tillögu þessari, að allar
verstöðvar eigi aðgang að því
að ná símasambandi við Rvík,
þegar þörf krefur veg'na slysa-
varna. Það er vitanlegt, að nú
um hríð hefir það verið og verð
ur víst framvegis einnig siður
að leita aðstoðar Slysavarna-
fjelags íslands til hjálpar bát-
um í neyð, einkum frá þeim
stöðum, þar sem ekki er neitt
björgunarskip við höndina, og
að aðalstöðvar Slysavarnafje-
lagsins eru í Reykjavík, er líka
fullkunnugt.
Þess vegna er það einkum á-
ríðandi, að unt sje að ná til
Reykjavíkur tafarlaust frá
hvaða verstöð, sem er, þegar
leita þarf aðstoðar handa bát-
unum.
I stærstu verstöðvunum, t.
d. Vestmannaeyjum, Akranesi
og Keflavík, hefir afgreiðslu-
verið lengdur frá því, sem upp
haflega var ákveðið, og er þar
afgreitt sums staðar til kl. 10
að kvöldi og sums staðar til
miðnættis. En þetta mun ekki
gilda fyrir hinar smærri stöðv-
ar, og yfirleitt er það ófullnægj
Frti Ingibjörg Sigurðardóttir
frá Búðardal sjötug á morgun
Á MORGUN verður sjötíu
ára frú Ingibjörg Sigurðardótt-
ir frá Búðardal, ekkja Boga
heitins Sigurðssonar kaup-
manns, einhver fremsta kona
við Breiðafjörð á þeim árum,
er hún dvaldi þar.
Ingibjörg er fædd á Kjalar-
landi á Skagaströnd 6. mars
1874 og ólst upp heima hjá
foreldrum sínum. Ung stund-
aði hún nám við Kvennaskól-
ann á Ytriey; síðar var hún á
vetrum við barnakenslu (heim
iliskennari) í Húnavatnssýslu
og í Borgarfirði, en vann að
heyskap á sumrum og annari
sveitavinnu. Um skeið var hún
kenslukona við Kvennaskól-
ann á Blönduósi.
Árið 1913 giftist hún frænda
sínum Boga kaupmanni í Búð-
ardal. Hjónaband þeirra -var
barnlaust, en dótturson Boga
tóku þau kornungan til fóst-
urs og hefir frú Ingibjörg geng
ið honum í móðurstað. Bogi
andaðist 1930. Tók hún þá við
stöi'fum þeim, er hann hafði
áður gegnt, póstafgreiðslu og
forstöðu símastöðvarinnar í
Búðardal, en slepti þeim störf-
um 1. júlí 1942, og fluttist þá
um haustið til Reykjavíkur og
dvelur nú á Frakkastíg 6 A.
Það þótti ekki lítið í fang
færst, er frú Ingibjörg tók að
sjer húsfreyjustörfin á kaup-
mannsheimilinu í Búðardal.
Hún var lítt kunnug umhverf-
inu og hjeraðsháttum. Heimili
Boga hafði verið hið mesta
rausnar- og myndarheimili og
gestagangur eins og á veitinga
stað, en það sást brátt, er hús-
freyjan nýkomna tók til starfa,
að þar mundi engu aftur þoka
um heimilisbrag. Stjúpbörnum
sínum var hún hin nákvæmasta
og varð mjög ástsæl af þeim.
Þau hjón voru mjög samhent
um að líkna þeim, sem erfitt
'áttu, og gleðja fátæka. Það
var venja Boga, meðan hann
verslaði, að taka frá snemma
vetrar eitthvað af þeim vör-
um,.t. d. kaffi og sykur, sem
mest hætta var á að þrytu fyr-
ir jól, ekki handa auðugustu
viðskiftamönnunum, — sem oft
Framh. á 8. síðu.
•S—I So zi—01 T4
T00S ‘Z0Z2 ‘S098
’l ijæajsjnisny
•uossi[,bíio4 anSn'Bigng
•uosspunmgnf) s JBuia
BJOJSJUÍJS
-SSUIUjnjJBlBJ\[
Eggert Claessen
Cinar Ásmundsson
hæstarjettarmálafhitningsmenr.,
— Allskonar lögfrœðistörf —
Oddfellowhúsið. — Sími 1)71.
<miimiminiiflnnnimnniiimnnuiiiiiiimnmiiiimn
= E2
B. P. Kalman
§ hæstarjettarmálafl.m. jl
= Hamarshúsinu 5. hæð, vest s
|j ur-dyr. — Sími 1695. j|
uiuniiiiiiiiiiiiiiuniimiiiiiiininmiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii
4u0hh Jeg hvili
me8 fleruuKam
frá
Týlihl
Rýmingarsala
í Kápubúðinni Laugaveg 35.
verður næstu daga á Samkvæmiskjólum,
Eftirmiðdagskjólum, Kventöskum. Hönsk-
um og Kvenkápum.
Einnig seljum við nokkra PELSA með
miklum afslætti.
Sigurður Guðmundsson.
<»3>'$>@K£<JxSxS>3>^<$xSxSx$x$x8x$>3x$xe*$>^>^KSx^<íx$x^<íxíx^a*$*$Kex$>^KexSK3xíxSxSxe>3xS>
MYNDIR
Heimskringla Snorra Sturlusonar. hið sígilda forníslenska listaverk, er að koma út. — Skreytt 300
teikningum eftir 6 frægustu listamenn Noregs. Myndirnar gefa verkinu margfalt menningarlegt
gikli — ekki síst fyrir börn og unglinga. —
Alt verkið kemur út í 2 bindum, 700—800 síður að stærð, og mjög vandað að öllum frágangi.
Gerist áskrifendur að Heimskringlu. —
Útfyllið þenna miða — og skrifið nafn yð-
ar og heimilisfang greinilega — og merkið
Box 2000 — Reykjavík. — Má sendast ófrí-
merkt.
Látið ekki þetta einstaka tækifæri renna
yður úr greipum.
Gerist áskrifendur að Heimskringlu strax
í dag.
Jeg undirrit.....gerist hjer með áskrif-
andi að Heimskringlu ..................
Box 2000 — Reykjavík.