Morgunblaðið - 05.03.1944, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 05.03.1944, Qupperneq 12
Suxmudagur 5. mars 1944. 12 Undsntéi í knatfieik hefsl á morgun ANNAÐ KVÖLD kl. 10 hefst í íþróttahúsi Jón Þorsteinsson- ar 5. landsmót í handknatt- leik innanhúss. 25 lið frá 8 fjelögum, þ. e. Ármanni, F. H., Fram, Haukum, í. R„ K. R., Va3 og Víkingi, munu taka þátt i mótinu. Keppt verður í meist- arafl., I. fl„ II. fl. kaiia og kvenfl., eru 8 lið í meistarafl., C lið í I. og II. fl„ en 5 lið í kvenfl. I karlaflokkunum er út- sláttarkeppni, en venjuleg stiga kepni í kvenfl. I fyrra sigruðu Haukar í Hafnarfirði í meist- arafl., Valur í I. fl. og einnig í II, fl., en Ármann í kvenfl. Annað kvöld fara þessi leikir fram: kvenfl. Ármann og Í.R., .tíómari Sigurjón Jónsson, II. fl. F.H. og í. R„ dómari Anton Er- l.endsson og meistarafl. Valur og Víkingur, dómari Sigurjón Jónsson. Mótið heldur síðan á- fram næstu kvöld og mun fyrstu umferð lokið á föstudags kv'öld. IHeimsókn r í Afengisverslunina TÖLUVERÐAR breytingar 1-afa verið gerðar á áfengissölu Átengisverslunarinnar hjer í Revkjavík. Eins og kunnugt er fá menn ekki selt áfengi nema ineð sjerstökum undanþágum, -en fyrirkomulagi á afhendingu áfengis hefir vei'ið breytt i toetra horf en var og kemur þesi breyting til framkvæmda á morgun. Áður var það svo, að menn, sem kaupa vildu áfengi, fóru í húsakynni nokkur við Lindar- götu og fundu Ólaf Sveinsson, eða aðstoðarmenn hans. Ef þeim var veitt undanþága, fengu þeir þar nótu og þurftu að sækja á- íengið í birgðageymsluna í Ný- borg. Ennfremur fengu sumir inenn undanþágu á skrifstofu Áfengisverslunar ríkisins í Kron-húsinu við Skólavörðu- f-tíg. Framvegis verður á þessu önnur tilhögun. í Nýborg hefir verið komið upp afgreisðluher- bergjum. Þar verður Ólafur Sveinsspn og hans aðstoðar- roenn til húsa og þangað verða e.llir að snúa sjer, sem vilja fá undanþágu til áfengiskaupa. Þar verða skrifaðar nótur og' um leið tekur maðurinn, sem undanþáguna fær, út „skamt“ sinn í næsta herbergi. Blaðamenn voru í gær hoðnir að skoða þessi nýju húsakynni éfengissölunnar og verður ekki annað sagt, en að breytingin er til mikilla bóta. Að því er blaðamenn sáu, virðist Áfengisverslun ríkisins ve;a vel birg af vínum eins og er. M. a. hefir Áfengisverslunin fengið hvítvín og rauðvín frá Argentinu. Á verkstæði Svifflugf.jelagsins. Sumsrdvöl Reykja- a eins 0| ii Á FUNDI Bæjarráðs í fyrra- d.ag var samþykt fyrir hönd bæjarins, að sama fyrirkomu- lag skyldi vera á sumardvöl Reykjavíkurbarna á næsta sumri og verið hefir undanfar- in sumur. Tilnefndi bæjarráð af sinni hálfu sömu menn í nefnd til að annast sumardvöl barna, sem verið hafa, ,en það eru þeir Haraldur Arnason kaupmaður og Arngrímur Kristjánsson skólastjóri. Eins og kunnugt er hefir Mynd þessi er tekin á verkstæði Svifflugfjelagsins viS Rauði Kross íslands annast um Hverfisgötu. Á myndinni eru fjelagar úr Svifflugíjelag'lnu sumardvöl Reykjavíkurbarna að gera við flugu af gerðinni „Grunau Baby“. Á myndinni !^^'in ^tríð3Sumur hef talið frá vinstri: Árni ÓlafSson, næstur honum Gunnar Pálma- son og við sögina, Magnús Norðdal. Svifflugfjelagið gengst fyrir flugsýningu 17. jiíní LONDON —: Svissneskur liðsforingi hefir verið sekur fundinn um njósnir í þágu er- lends ríkis og verið dæmdur tii dauða og skotinn. Fjórir rnenn, samsekir honum, þar af e'nn hermaður, voru dæmdir í raargra ára íangelsi. — Reuter. SVIFFLUGFJELAG ISLANDS hjelt aðalfUnd sinn í janúar- mánuði s. 1. Blaðamaður Mbl. fór til fund ar við flugstjóra fjelagsins, Björns Jónssonar í gær og bað hann að segja frá helstu áhuga- málum fjelagsmanna, þar er starfsemi fjelagsins árið 1944 er um það bil að hefjast. ,Nú á næstunni verður nýjum fjelögum gefinn kostur á að ganga í fjelagið, það verður að teljast með því merkilegasta, en ástæðan fyrir því er, að þeir, er áður notuðu byrjunarfluguna eins og við köllum hana, eru nú komnir það langt, að þeir koma ekki til með að nota hana. Þessir nýju fjelagar hafa verið á biðlista um nokkura ára skeið Þeir eru 40—50 talsins. Fyrir þá, er lengra eru komnir, höf- um við til umráða tvær svif- flugur. Auk þess á fjelagið í smíðum tvær flugur, sem ekki hefir verið hægt að fullgera isakir efnisskorts. Við gerum okkur þó miklar vonir um að okkur takist að fullgera þær fyrir sumarið, þar er fjelagið hefir fengið leyfi fyrir efni, og er það nú á leið til landsins. Þá er best að snúa sjer dá- lítið að aðalfundinum. Skýrslur voru gefnar sem í stuttu máli voru: Á s. I. ári voru als flogin 714 flug, flest í apríl 1943. Lengst var flogið í einu flugi 5.5 klst., var það Helgi Filipus- son, flugkennari, hæst var flog ið 1200 metra. Þá er starf það, er bíður fje- lagsmönnum í sumar. Við erum búnir að fá mjög traustan grundvöll, hvað við- víkur starfskröftum við fjelagið Við leyfum okkur, með tilliti til þessara manna, að líta fram- tíðina - björtum augum. T. d. hafa þeir, er stunduðu flugnám í Kanada, tekið aftur til starfa í þágu fjelagsins, svo má auð- vitað ekki gleyma hinum, er hafa verið hjer á landi allan tímann, þeir hafa unnið órnet- anlegt starf í þágu fjelagsins. 1 Þá þykir mjer rjett að geta þess hjer, að á aðalfundinum var |þetta samþykt: Stofnun lýðveldis á Islandi | Aðalfundur Svifflugfjelags ís ^lands ákveður að kjósa þriggja jmanna nefnd, sem starfar á- ^sarnt stjórn fjelagsins að und- irbúningi að þátttöku í hátíða- höldum þeim, sem íyrirhuguð eru í tilefni af lýðveldisstofnun inni í sumar Nefndin skal í samráði við stjórn fjelagsins, athuga og und irbúa, ef fært þykir, flugsýn- ingu, ennfremur láta búa til j fjelagsfána og fleira, sem gæti gert þátttöku Svifflugmanna jsem glæsilegasta i þessari hátíð. . Undirbúningur á að hefjast strax. Nefndina skipa, Agnar Koe- fed -Hansen, lögreglustjóri, Björn Jónsson, flugstjóri fjelags ins og Sigurður H. Ólafsson, verslunarmaður. Þetta eru þó aðeins framtíð- ardraumar, skal jeg segja þjer, cn hitt þori jeg að fullyrða, að allir fjelagar Svifflugfjelags- ins munu vinna að þessu máli af alhug, að flugsýningin geti farið fram með þeim sóma, er sýna ber þe$sum merkasta degi í sögu þjóðarinnar. Þá fór fram á aðalfundinum kosning stjórnar. Bent Bendt- sen, formaður fjelagsins, baðst undan endu.rkosningu, en hann hefir verið formaður fjelags- ins um 5 ára skeið, Hefir hann starfað af miklum áhug'a fyrir framfaramálum fjelagsins. í hans stað var kosinn Sigurður Ólafsson, flugmaður (hann stundaði nám í Kanada). ‘Að öðru leyti var stjórnin endur- kosin. Hana skipa þessir: Vara- form. Björn Jónsson, gjaldk. Þorsteinn Þorbjarnarson, rit- ari Guðbjartur Heiðdal og með stjórnandi-Sigurður B. Finn- bogason. — Kennarar fjelags- ins eru 5, þeir Helgi Filipus- son, Sigurður Steindórsson, Hafliði Magnússon og Kjartan Guðbrandsson. Skemdir á raf- magnsiínum álftanesi ÞANN sama dag og kúlna- brotum rigndi yfir Álftanes, urðu skemdir á háspennulínu og tveim lágspennulínum á Álftanesi. Slitnaði háspennu- línan, er hafði í för með sjer, að bæir allir á Álftanesi, Garða hverfi og ríkisstjórabústaður- inn að Bessastöðum, urðu raf- magnslausir. Eftir tvo tíma tókst að gera við bilunina, til bráðabirgða, en daginn eftir fór fram fullnaðar viðgerð og tók hún sex klukkustundir. Laxfoss bjargað UM HADEGI í gær tókst að ná m.s. Laxfossi af skerinu við Örfisey. Var komið með skipið inn á innrihöfn og því lagt við hafnargarðinn, þar sem garð- urinn og eyjan mætast. Vjelsmiðjurnar Hjeðinn og Hamar hafa unnið að björgun- inni að mestu, en björguninni stjórnaði Bjarni Jónsson, verk- stjóri í Hamri. Fyrir nokkrum dögum tókst að koma skipinu á rjettan kjöl, á skerinu! Voru þá settar járnplötur fyrir stærstu götin á því og skipið þjettað á annan hátt. Ekki er unt að segja hversu langan tíma það tekur að gera skipið, eða hversu kostnaðar- samt það verður. [fri deild breitti stjórnarskránni EFRI DEILD samþykti í gær breytingu á lýðveldisstjórnar- skránni, svo að nú verður hún að fara aftur til Nd. Var lýðveldisstjórnarskráin til 2. umr. í Ed. Stjórnarskrár- nefnd flutti breytingartillögu við 26. gr. (um synjunarvald forsetans), þess efnis, að grein- in yrði aftur færð í það horf, sem hún var í frumv. milliþinga nefndarinnar. En eins og áður hafði verið frá skýrt samþykti Nd. þá breytingu á nefndri grein (samkv. tillögu forsætis- ráðherra), að lagafrv., er for- seti synjar staðfestingar, öðlist fyrst lagagildi, er þjóðin hefir goldið lögunum jákvæði. En samkv. tillögu milliþinganefnd- ar skyldi slík lög strax öðlast lagagildi, en falla úr gildi, ef þjóðin synjaði þeim. Stjórnarskrárnefnd lagði nú til, að þessu ákvæði yrði breytt í sitt fyrra form. Talsverður á- greiningur var meðal deildar- manna um þetta atriði, en svo fór að lokum, að brtt. stjórnar- skrárnefndar var samþ. með 9:8 atkv. Brynjólfur Bjarnason hafði framsögu f. h. stjórnarskrár- nefndar. Hann flutti ítarlega ræðu um málið alment og gerði grein fyrir þeim breytingum, sem frv. hafði tekið. Að lokum komu ræðum. inn á samkomu- lagið, sem gert var við Alþýðu- flokkinn og ágreininginn sem reis við það, að gildistökudag- urinn 17. júní var tekinn burt. En að slðustu sagði ræðum. að nú riði mest á þjóðareiningu í málinu og hvatti þjóðina til þess að standa saman. Því næst var lýðveldisstjórn- arskráin samþ. til 3. umr. Þriðja umr. um málið í Ed. verður á morgun. Svo verður Nd. að taka stjómarskrána til meðferðar á ný, vegna breyt- ingarinnar, sem gerð var í Ed. leshókin í dag I Lcshók í dag eru þessar greinar: Kai Munk og nasism- inn, merkilegt brjef, Pjetur Zophoníasson cg ættfræðin, eft ir Brynleif Tobíasson, Bláber sannleikur frá Nýju Guineu eftir L. J. Swerdrup og frá upp- vaxtar- og námsárum Guðm. Guðmundssonar, skálds. S. í. B. S. berasl stórgjafir Nýlega hafa þessar gjafir borist í Vinnuhælissjóð Berkla sjúklinga: Ragnhildur og Kristján Sig- geirsson kr. 10,000. P. H. Mog- ensen kr. 1,000. G. Á. Björnson & Co. kr. 1,000. Starfsmenn Landssímastöðvarinnar kr. 1,885. Starfsmenn hjá Agli Vil hjálmssyni kr. 911. Starfsmenn versl. Edinborgar kr. 805. Starfsmenn Garðyrkjustöðvar- innar, Reykjum, Mosfellssveit, kr. 585. Starfsmenn Álafoss kr. 610. Frá Sauðárkróki kr. 551. Starfsmenn Síldar- og Fiski- mjölsverksmiðjunnar á Akra- nesi kr. 480. Starfsmenn Bif- reiðarstöðvar íslands kr. 300, Minningargjöf um Hrefnu Al- bertsdóttur, frá systkinum hennar, kr. 1,000. Frá Gígí kr. 50. Prófessorsembættið í sögu við heimspekideíld Háskóla íslands er laust frá 3. mars n. k. Um- sóknarfrestur er til 1. maí n. k„ en embættið verður veitt 1. sept. n. k. Ríkisstjóri veitir embættið.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.