Morgunblaðið - 08.03.1944, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 08.03.1944, Blaðsíða 5
Miðvikudagiir 8. mars 1944 MORGUNBLAÐIÐ 0> Á V ARP Fyrstu lög lýðveldisins Samband ’ ungra Sjálfstæðismanna hefir áður haft til umráða síður í þessu blaði, er birst hafa' öðru hverju. Þessi siður verður nú á ný tekinn upp. Sambandsstjórninni er það ljóst, að sá háttur, að fje- lagssamtök ungra Sjálfstæðismanna eigi þess kost að túlka málefni sín á sjerstökum vettvangi, þar sem ábyrgð- in hvílir á þeirra herðum einum, getur haft veigamikið gildi. Þar skapast einnig sjerstakt tækifæri til túlkunar áhugamálum hinna vngri, er ella kynnu að liggja í þagn- argildi. Sambandsstjórnin mun annast þessa sjerstöku síðu, en væntir þess, auk þess sem allir meðlimir fjelaga ungra Sjálfstæðismanna eiga þar frjálsan aðgang, að hin ein- stöku fjelög geti einnig átt þess kost við og við, að helga síðuna sjerstaklega sínum einstöku fjelagsmálum og hugðarefnum. í stjórn S. U. S. Jóhann Hafstein, formaður. Sig. Bjarnason frá Vigur, varaformaður, Magnús Jónsson frá Mel, ritári, Einar Ingimundarson, Einar Thoroddsen frá Vatns- dal, Guðmundur Guðmundsson, Ragnar Jónsson frá Hellu, Bald- ur Jónsson, Magnús Helgason. IVútíð og framtíð yngri kynslóðar HVER kynslóð, er bíður þess að verða kvödd til að taka við starfi fyrri kyntlóðar, skyldi gjarna gefa sjer nokkurt tóm til þess að hugleiða, hvert hlut- verk muni bíða hennar. Er þá líklegt, að hún myndi í senn verða hæfari til þess að sinna meginhlutverki sinu, er röðin kemur að henni, og þá jafn- framt uppfylla betur ætlunar- verk sitt á biðtímanum eða undirbúningsárunum. Gerir hin upprennandi ís- lenska kynslóð sjer í dag grein fyrir því hlutverki, er hennar bíður, og sinnir hún ætlunar- verki sínu á líðandi stund? íslenska þjóðin hefir háð langa og harða baráttu fyrir endurheimtu frelsis og full- veldis er þessi litla þjóð glataði á löngu liðnum öldum. Nú er svo komið, að þjóðin er aðeins fótmál frá markinu, að endur- reisa þjóðveldi eða lýðveldi í landinu og losa um síðustu formlegu tengslin við gamla yfirráðaþjóð. þess, sem er þjóðlegt og holt í fari þjóðarinnar og verji það spjöllum annarlegra áhrifa. Það, sem á morgun verður að krefjast af hinum yngri, er,i að þeir láti sjer skiljast að lýð- veldið íslenska verður að færa' þjóðinni betri tíma, betra þjóð- fjelag, mikla framþróun. Baráttan er margþætt fyrir höndum, til þess að búa þjóð okkar betra líf í framtíðinni. Það er hlutverk unga fólksins að ná sigursælu marki i þéirri baráttu. Það nægir ekki að nema stað ar í því spori, sem feðurnir mörkuðu. Þar á að ná við- spyrnu til nýs áfanga fram á veginn. Fánamál íslendinga er sjer- stakur þáttur í sjálfstæðisbar- áttu þjóðarinnar. Er sú saga al- kunn, enda verið rifjuð upp við og við á opinberum vettvangi, einkum í seinni tíð. Skal því ekki frekar að þeirri hlið máls- ins vikið. Það er hinsvegar eftir veru- legur þáttur fánamálsins, sem nú á að koma til framkvæmda. Það hafa í seinni tíð verið uppi tímabærar raddir um það, að eflast þyrfti og aukast virð- ing þjóðarinnar fyrir notkun og meðferð íslenska fánans, hins þjóðlega tákns sjálfstæðis og fullveldis. Almenn fjeíágssam- tök í landinu hafa gert álykt- anir þár að lútandi, og má þar sjerstaklega vitna til nýlega framkominnar áskorunar í- þróttasambands íslands til allra fjelaga sinna og annara 'íslend- ingá varðandi notkún ög með- ferð fánans. En þegar þetta tal ber á góma, er augljóst, að van- rækt hefir verið það, sem miklu getur orkað hjer til árjettingar og það sem fáninn á skilið, en það er, að sett sje sjerstök lög- gjöf um íslenska fánann. Hjer á landi eru ákvæðin um gerð. þjóðfánans og notkun hans í þrem konungsúrskurð- um: Nr. 41 frá 30. nóvember 1918, nr. 1 frá 12. febrúar 1919 og nr. 30 frá 13. janúar 1938. Eru úrskurðimir aðallega um almenna gerð þjóðfánans og um gerð klofna fánans. Akvæðin úm notkunina eru takmörkuð og ófullkomin. Árið 1940 var samþykt á Al- þingi þingsályktunartilaga, fl. af Jónasi Jónssyni, um notkun þjóðfánans og fólst í henni á- skorun frá Alþingi til ríkis- stjórnarinnar að safna heimild- um frá þeim þjóðum, sem eru J. H. Kvöldvaka Heimdallar var með ágætum 2600 kr. samskot til landflótta Dana Þegar dagur lýðveldisins er runninn, verður það hlutverk hinnar komandi kynslóðar að gæta þess ávaxtar, er sjálfstæð isbarátta þjóðarinnar fæddi af sjer. Þess er ekki að dylja, að þeg- ar hin þráðu tímamót bera nú að höndum, er þjóðin af öðr- um orsökum í mésta vanda stödd. Öldur hins mikla styrj- aldaróveðurs hefir bórið hjer að landi. Unga fólkið verður að leggja fram sinn skerf, til þess að verja þjóðina ágjöf þessa óveð- urs og mæta þannig kröfum líðandi stundar, um leið og það verður að horfa með víðsýni og djörfung fram á veginn. Það, sem fyrst og fremst verður að ætlast til af unga fólkinu í dag, er, að það standi ötulan vörð um varðveislu alls KVÖLDVAKA Heimdallar, fjelags ungra Sjálfstæðismanna, er fram fór í gærkvöldi að Hótel Borg, var hin glæsilegasta samkoma og fjelaginu til mikils sóma. Salakynni voru þjett setin og rikti mikil ánægja og fögn- uður meðal fjelaganna og gesta þeirra. Lúdvig Hjálmtýsson, form. Heimdallar, setti kvöldvökuna með ræðu. Kynnir á kvöldvök- unni var Ólafur Sveinsson. Ágæt skemtiatriði voru á dagskránni. Frú Soffía Guð- laúgsdóttir las upp kvæði, og vakti upplestur frúarinnar mikla hrifningu og aðdáun. — Gunnar Kristinsson söng ein- söng með undirleik Gunnars Sigurgeirssonar, og hlaut söng- urinn hinar bestu undirtektlr. Þá ljek Skúii Halldórsson á píanó og vakti sjerstaka at- hygli hið frumsamda lag hans, „Draugadansinn“. en píanó- leikúrinn allur var ágætur. Stuttar ræður fluttu: Geir Hallgrímsson, Baldur Jónsson, Jóhann G. Möller, Sigurður Bjarnason og Jóhann Háfstein. Voru ræður þeirra örfandi hvatningar til fjelagsmanna að j vinna ötullega að málefnum ■ fjelagsins og styrkja það í bar- áttunni fyrir sjálfstæðisstefn- unni og varðveislu frelsis og fullveldis. Uppástunga hafði komið fram um samskot til landflótta' Dana og söfnuðu nokkrar kon- iu- 2600 kr. meðal þátttakenda kvöldvökunnar, áður en dans- - = Pramh. & 8. síðu. Eftir Jóhann Hafstein skyldastar íslendingum og lengi hafa notið fullkomins sjálfstæð- is, um löggjöf og venjur þess- ara landa um rjetta notkun þjóð fánans og að leggja siðan fyrir næsta Alþingi niðurstöðúr þess- ara rannsókna í frumvarps- formi. Á Alþingi 1941 lagði svo þáverandi ríkisstjórn fram frumvarp til laga um þjóðfána íslendinga. Þetta frumvarp dag aði uppi, sem undarlegt má virðist, og síðan var ekki að- háfst í inálinu. Það kom fram í sambandi við athugun máls á Alþingi 1941, að til dæmis. bæði Norðmenn og Svíar hafa fánalög og einnig ákvæði í stjórnarskrám sínum varðandi fánann, þó sjerstak- lega gerð hans. Þegar á það er litið, að mönnum hjer hefir virtst á það skorta, að nægileg virðing og háttví.si væri viðhöfð í meðferð og notkun þjóðfán- ans, er ekki sennilegt, að ann- að yrði frekar til að bæta úr í þessum eínum en sjerstök löggjöf, er mælti fyrir um grundvallarreglurnar, en síðan mætti út frá henni leiða önnur fyrirmæli og reglugerðará- kvæði, eftir því sem þurfa þætti. Á þingi Sambands ungra Sjálfstæðismanna, sem haldið var á Þingvöllum á síðastliðnu sumri, var fánamálið tekið til sjerstakrar meðferðar. Var þá samþykt eftirfarandi ályktun varðandi fánann: „Sambandsþing ungra Sjálf- stæðismanna, haldið á Þingvöll- um og Reykjavík 18. til 20. júní 1943, ályktar að skora á Alþingi að setja þegar á næsta þingi lög- gjöf til verndar íslenska fánan- um, sem meðal annars mæii fyrir um alla meðferð og notkun fán- ans í samræmi við þá virðingu og helgi, sem samboðin er hinu þjóðlega tákni sjálfstæðis og freis is ísiensku þjóðarinnar. Jafn- framt lýsir þingið þeim ein- dregna vilja ungra Sjáifstæðis- manna, að ákveð'in gerð og lög- un íslenska fánans eins og hún er nú, verði löghelguð í stjórnar- skránni þannig, að aldrei geti orð ið breytingar þar á, án þess að þjóðin í heild geti tekið afstöðu til þess við almennar kosningar. Skorar þingið á þingmenn Sjálf- stæðisflokksins og fulltrúa í milli þinganefnd í stjórnarskrármálinu að beita sjer fyrir l’ramkvæmd þessa, þegar hin víðtækari end- urskoðun stjórnarskrárinnar, sem nú er ráðgerð eftir stol'nun lýð- veldisins, kemur til fram- kvæmda". I þessari ályktun felst tvent, að sett sje sjerstök fánalöggjöf um meðferð og notkun fánans og einnig að. núverandi gerð fánans sje löghelguð og fyrir mæli þar um einnig sett í stjórnarskrána, er tækifæri til þess gefst. Sambandsstjómin ritaði þing flokki Sjáífstæðisflokksins ný- lega.brjef, þar sem hún mælt- ist til við hann, að flutt yrði á yfirstandandi þingi þingsálykt- unartillaga, er feli sjerstakri þingnefnd, eða ríkisstjórninni í samráði við þingflokkanna að hafa undirbúið fyrir væntan- legt sumarþing, fánalöggjöf, er sett yrði samtímis því, er gild- istaka lýðveldisstjórnarskrár- innar fer fram. Nú hafa þeir alþingismenn- irnir Gunnar Thoroddsen, pró- fessor, og Sigurður Bjarnason frá Vigur, flutt á yfirstandandi þingi tillögu til þingsályktun- ar um notkun islenska fánans. Samkvæmt tillögunni ályktar Alþingi að lýsa yfir þeirri ósk og áskorun til allra lands- manna, að efld sje og aukin notkun íslenska fánans og virð ing fyrir honum, sem tákni hins íslenska þjóðemis og fullveldis. Jafnframt er rikisstjóminni falið að gera ýmsar ráðstafan- ir, er miða að því, að senf flestir geti eignast fána og notað þá með þeim hætti, sem viðeigandi er, gefnar út tilkynningar um fánadaga o. s. frv. Þá er ríkis- stjórninni falið, samkvæmt þingsályktuninni, að vinna að undirbúningi löggjafar um ís- lenska fánann. Fánamálið er alþjóðarmál og allir eiga hjer að leggjast á eina sveif. Það er að vísu svo, að því hefir aðeins verið fleygt, að ástæða væri til að breyta um gerð fánans og taka upp aftur bláhvíta fánann. Úr því sem nú er komið, virðist það hvorki heppilegt nje viðeigandi og væri rjettara að láta allan á- greining um gerð fánans eins og hún nú er, sem mótuð er orðin í hugskoti þjóðarinnar og kynt iiefir fuilveldi hennar frá 1918, niður falla. Þegar íslenska lýðveldið verð ur endurreist á Þingvöllum á vori komandi, á að fylgja þeirri athöfn ný hvatning til þess að hefja frelsistákn þjóðarinnar til vegs. Fyrir væntanlegt sumar- þing, í sambandi við stofnun lýðveldisins, ætti að vera búið að semja frumvarp að fánalög- gjöf, sem trygt sje, að engurn ágreiningi valdi. Þegar lýðveldið hefir verið stofnað á fyrsta íöggjöf þess að vera fánalög. Það eru miklar vonir við það tengjandi, er sjálfstæðismálið hefir náð því marki, að búið er að stofna á ný islenskt lýðveldi, að þá verði þau merku tímamót til þess að skapa nýjan anda méð þjóðinni, anda meiri sam- einingar og þjóðlegrar hvatn- ingar. Islenski fáninn er okkar sameiningartákn, þjóðartákn, frelsistákn. Aukin fæktarsemi og virðing við þetta tákn er efling þess anda, sem að beki því býr.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.