Morgunblaðið - 08.03.1944, Blaðsíða 12
12
Miðvikudagar 8. mars 1944
Hálf miljón
til Krfsuvíkur-
vegarins
Á FUNDI í sameinuðu þingi
í gær var samþykt með 38:7
atkv. tillaga fjárveitinganefnd
ar um 500 þús. króna viðbótar-
fjárveitingu til Krýsuvikur-
vegar á þessu ári. ,,enda telj-
ist viðbótarfjárveiting þessi til
gjalda ríkissjóðs á árinu 1945“,
eins og segir í tillÖgu nefndar-
innar.
Gísli Jónsson .flutti brtt. um
að þessi viðbótarklausa yrði
feld burtu; taldi að með þessu
væri verið að fela stjórninni
að falsa ríkisréikningana. Brtt.
Gisia var feld með 22:12 atkv.
Bjarni Benediktsson bað
fjárveitinganefnd að upplýsa,
hvort nokkuð fordæmi væri
fyrir slíkum fyrirmælum í sam
bandi við fjárgreiðslur úr rík-
issjóði. Þvi var ekki sint. Krafð
ist þá Bjarni úrskurðar forseta
um þetta atriði, það er með
þessu væri brotið gegn skýlaus
um fyrirmælum stjórnarskrár-
ionar og viðurkend regla um
reikningsfærslu þverbrotin.
Forseti (G- Sv.) kvað hjer
um að ræða heimild til ríkis-
síjórnarinnar, svo að hún
hefði á valdi sínu að gera við
tillöguna hvað sem henni sýnd
4st. Stjórnin hefði hinsvegar
ekkert látið frá sjer heyra um
J’etta atriði. Taldi forseti sjer
þvi ekki fært að vísa tillögunni
frá.
Andstaða danskra
klerka gegn naz-
isfum magnasf
WASHINGTON: — Síra Jam-
es S. Montgomery, þingprest-
tr fulltrúadeildar BandaTíkja-
þings, hefir látið svo um mælt
í sambandi við afstöðu kirkj-
unnar i Danmörku til nazista:
„Sú frjett, að níu ’biskupar
í Danmörku hafa gefið út hirð-
iábrjef, þar sem nazistar eru
víttir, er merki um að mótstaða
prestastjettarinnar í Danmörku
fer harðnandi.
„Hirðisbrjefið var lesið í öll-
um dönskum kirkjum. — Þar
segir: „Vjer vitum, að rjett-
lætishugsjónir þær, sem krist-
indómurinn hefir alið i brjóst-
um fólks vor, Sn að engu hafð-
ur af nazistum. Við komum
saman hryggir í huga, vegna
þess að mætir danskir menn,
þar á meðal vort mikla skáld
og ótrauðí þjónn kirkjunnar,
Kaj Munk, hefir orðið píslar-
vottur þeirra illu afla, er leika
nú lausum hala vor á meðal'*.
„Hin danska kirkjustjett
\ ann sjer ódauðlegt lof, með
því að styðja á allan hátt
dönsku þjóðina í baráttu henn-
ar gegn hinum þýsku niðurrifs
mönnum kristindómsins og
mannkærleikans. Hin trausta
andstaða dönsku klerkastjett-
arinnar gegn óvininum skipar
henni á bekk með hinum hug-
rökku kennimönnum allra her
numdra landa“.
Norskur kafbáfur
Þetta er norski kafbáturinn ULA í breskri höfn. Sjóliðar
eru að flytja vistir um borð í kafbátinn áður en hann leggur
upp í nýja sjóferð.
Frá Islendingum
í Danmörku
Frjettir frá sendiráði Is-
lands í Kaupmannahöfn:
EFTIRTALDIR íslendingar
hafa lokið fullnaðarprófi í
námsgreinum sínum:
Ingvar Ingvarsson í raf-
magnsfræði, Gunnar Tómasson
í verkfræði, Þorvarður J. Júl-
íusson 1 hagfræði, Gunnlaugur
Pálsson, húsameistarapróf frá
Listaháskólanum. Páll Pálsson
í dýralæknisfræði (á þá eflir
hálfs árs varðstofustarf).
Jón Eiríksson læknir tekur
nú þátt í námsskeiði fyrir em-
bættislækna og mun ekki hafa
nein læknisstörf á hendi fyrst
um sinn.
í októbermánuði s. 1. var Jon
Helgason prófessor kosinn
deildarstjóri heimspekideildar
Hafnarháskóla.
Jón Stefánsson málari hefir
haldið sýningu á málverkum
sínum. Seldi hann nokkur mál-
verk, eitt þeirra kenslumála-
ráðuneytinu.
Bresk herskip gera
árás við Hollands-
strendur
London í gærkveldi.
Flotamálaráðuneytið til-
kynnir, að smáherskip hafi í
dag farið til árása á skip
Þjóðver.ja við llollandsstrend-
ur og siglt uppundir Ymuid-
en höfða í Hollandi. Þar gerðu
herskipin árás á strandvarna-
skip, 8 eða 9 tundurskeyta-
báta og fjóra vopnaða togara.
J stuttri, en harðri viðureign,
kom up]> eldur í þýskum tog-
ara og eintun tundurskeyta-
báti. Togarinn var að því
komimi að sökkva er síðast'
sást til hans. Er bresku her-
skipin hjeldu á brott, var skot
ið á þau tir strandvirkjum,
en það sakaði ekki bresku
herskipin.
Síðar gerðu hresk herskip
árás á lítil ]>ýsk hirgðaskip,
sem ý> tundurskeytahátar vorn
í fvlgd - -,ð. Einu hirgðaskipi
var sökt með tundurskeyti.
011 hresku herskipin komusfc'
til hafnar, en manntjón varð.
— Iíeuter.
mótið
Handknattleiksmótið hjelt
áfram í gærkveldi. Leikar í'óru
sem hjei' segir:
Meistaraflokkur, karla:
K.K. vann Ármann 24 : 2'i
(Ármann úr leik).
1. fl. karla:
F.II. vann l’íking 20 : 17
(Víkingu.r úr leik),
Kvennaflokkur:
líaukar unnu K.R. 17 : 12.
Mótið heldur át'ram í kvöld.
Þá keppa: Kvennaf'Iokkur:
Ármann, F.II., dómari, Sigur-
páll Jónsson. — Meistaraflokk
ur: Í.R.. Ilaukar, dómari. Hig-
urjón Jóusson. — 2. flokkur:
Yahu', Ármann, dómari, Big-
ui'])áll -lónsson.
Skáfafjelagið Ein-
herjar á ísafirði •
16 ára
29, FEBRÚAR s.I. hjelt skáta
fjelagið Einherjar á ísafirði
hátíðlegt fjórða afmæli sitt, en
var þá 16 ára; stofnað 29. febr.
1928. Gamlir Einherjar, sem
staddir og búsettir eru hjer í
Reykjavík, mintust afmælisins
með glaðri skátastund og sendu
fjelaginu silkifána að gjöf.
Á afmælinu ákváðu Ein-
herjar að herða fjársöfnun til
húsbyggingar fyrir starfsemi
sína.
Stjórnarskráin:
Atökin um
forsetn-
valdið
LÝÐVELDISSTJÓRNAR-
SKRÁIN er á dagskrá neðri
deildar í dag — ein umræða.
Fram eru komnar tvær brtt.
við 26. gr. (synjunarvald for-
seta), en um þá grein er risinn
ágreiningur milli deildanna.
Onnur brtt. er frá forsætisráð-
herra’, samhljóða og hann flutti
áður og deildin þá samþykti.
j Hina brtt. flytja þeir Jón
1 Pálmason og Jóh. Jós., þess
efnis, að þjóðaratkvæðagreiðsla
skuli ekki viðhöfð, er forseti
synjar lagafrv, staðfestingar,
! heldur skuli í þess stað málið
j lagt fyrir sameinað þing. Nái
í það þá samþykki 2/3 atkvæða
| allra þingmanna, öðldst það
lagagildi, án staðfestingar.
j/\rsfundur
Landsbanka-
nefndar
LANDSBANKANEFNDIN
hjelt ársfund sinn í gær. Fyrsti
varaforseti nefndarinnar, Gísli
Sveinsson stjórnaði fundinum
í forföllum forseta, Einars
Árnasonar fyrv. alþm.
Reikningar Landsbankans
fyrir s.l. ár voru lagðir fyrir
Landsbankanefndina og sam-
þyktir.
Úr bankaráði skyldu ganga
þeir Ólafur Thors og Jónas
Jónsson, en voru báðir endur-
kosnir. Varamenn þeirra voru
kosnir Jakob Möller og Stein-
grímur Steinþórsson. Endur-
skoðendur voru einnig endur-
kosnir, þeir Guðbrandur
Magnússon og Jón Kjartans-
son. Sömuleiðis varamenn, þeir
Magnús Björnsson og Páll
Steingrímsson.
Giraud leiddur
sem vitni.
Senda bæjarráði
áskorun
ÍBÚAR í Rauðarárholti hafa
skrifað undir skjal, er þeir
munu senda bæjarráði. I skjali
þessu fara íbúarnir þess á leit
við bæjarráð, að það komi upp
reglulegum ferðum strætis-
vagna þangað, að götulýsing-
unni verði komið í lag, en þar
munu Ijósker vera teljandi fá.
Loks að göturnar verði lag-
færðar.
ALGIERS í gær: — Henri
Giraud hershöfðingi og yfir-
maður franska hersins, sem
berst með bandamönnum, var
í dag leiddur sem vitni í máli
Pierre Pucheu, fyrverandi inn-
anríkisráðherra. Giraud lýsti
því yfir, „að hann teldi þá
menn ærulausa, sem hefðu
ekki gefið franska hernum
skipun um að verjast 10. nóv-
ember 1942, en ábyrgðina á-því
bæri Vichy-stjórnin“. (10. nóv.
1942 rjeðust Þjóðverjar inn í
óhernumda hluta Frakklands).
— Reuter.
Hjörvarður Árnason flylur háskóla-
fyrirleslra um málara.
VESTUR ÍSLENDINGURINN Hjörvarður Árnason listfræð-
ingur mun á næstunni flytja nokkra háskólafyrirlestra um mál-
aralist. Hann ætlar um leið að sýna skuggamyndir í eðlilegum
litum til skýringar. Fyrsti fyrirlesturinn verður haldinn næst-
komandi föstudag, annar þriðjudaginn 14. þessa mánaðar og sá
þriðji fimtudaginn 16. mars. Fyrirlestrarnir verða allir fluttir
á íslensku.
í fyrirlestrum sínum mun
Hjörvarður ræða um listastefn
ur í Evrópu og Ameríku frá 14.
öld til vorra daga og skifta efn-
inu niður á þessi þrjú fyrir-
lestrakvöld. — Til mála hefir
komið að hann hjeldi einn fyrir
lestur um nútímalist, en ekki er
það að fullu afráðið ennþá.
Þegar fyrsta listsnýingin var
haldin í Listamannaskálanum í
fyrra ljet Hjörvarður taka
litmyndir af nokkrum listaverk
um.. Nú er hann að reyna að
útvega skuggamyndir af þess-
um litmyndum og ef það tekst,
hefir hann í hyggju að flytja
einn fyrirlestur um íslenska
list.
Hjörvarður flutti þrjá fyrir-
lestra í haskólanum í marsmán-
uði í fyrra. Var mikil aðsókn
að þeim fyrirlestrum. í fyrstu
var ákveðið að hann hjeldi fyr
irlestrana í einni kenslustofu
háskólans, en aðsókn var svo
Hjörvarður Árnason.
mikil að þeim, að þeir voru
J íluttir í hátíðasalnum. — Að
þessu sinni flytur Hjörvarður
einnig fyrirlestra sína í’hátíða-
salnum. Þeir hefjast allir kl.
8,30 að kvöldi og hafa allir að-
gang að þeim.