Morgunblaðið - 23.03.1944, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 23.03.1944, Qupperneq 2
2 MORGUNBLAÐIÐ Fimtudagur, 23. mars 1944, YFIRLIT UM AFLA VERSTÖÐVANNA Ciiður afli í Faxaflóa og í Vcstmannaeyjum Stóraukning á hraðfrystingu fiskjar Sandg*r«5i.: , ÞEGAR þessi fregn er skráð, 21. mars, hafa verið farnir færri róðrar en á sama tíma í fyrra. — Þó er kominn þar um 20—30% meiri afli á bát að mfeðaltali en á sama tíma í fyrra. Aflinn er misjafn og bát- arnir misstórir og nokkrir bát- ar voru síðbúnir á vertíð. Afl- inn er frá 250 skpd. upp í 750 skjxi. á bát og eru þrír hæstu báfearnir með þá veiði hver, er hfrarmagn hvers þessara báta um 29000 lítrar. Róðrafjöldi ■þessara báta er 37—40 róðrar hvers. í gær var aflasælasti dagur vertíðarinnar og eftir upplýsingum frá Karli Jóns- syni, framkvæmdarstjóra í Sandgerði, var 29 skpd að með altali á bát í róðrinum á þeirri stöð, er hann veitir forstöðu. En þar eru 17 bátar. Lægsti báturinn hafði 10 skpd. en sá bæsti 40 skpd., 1 þessum róðri. í Sandgerði hafa verið söltuð aLs iim 400 skpd. af um 30 bát- um eða með öðrum orðum sem næst eins dags veiði bátnna. Síafnes, Hvalsnes, Miðnes. Heita má að þar hafi öll út- gerð á opnum skipum lagst nið- ur undanfarin ár. — Var aðeins •róið einu skipi frá Stafnesi s. ♦ , vertíð. Var það skip Methúsa lems Jónssonar, Stafnesi. Virð- ■ist þessi gamh öldungur og vík- ingur vera seigur við útgerð- ina og er skip hans eina skip- ið sem nú er haldið þar úti. Hafnir. Þaðan efu gerð út þessa ver- tíð 2 þilfarsbátar og 6 trillur. Reitmgsafli hefir verið þar og er vertíð heldur ljeleg sem af er — Hraðfrystihús er þar í byggingu. Aflinr, hefir verið seldur til Keflavíkur og Hafn- arfjarðar. Grindavík. Grindvíkingar hafa aukið talsvert útgerð sína frá því s. 1. ár Ganga þar nú 10 opin vjel- skip og 9 eða 10 þilfarsbátar. Afli hefir verið þar ágætur í vetur og óvenju margir róðrar vérið farnir I þessari brima- sömu verstöð. Byrjað var að róa með línu og aflaðist vel á hana, er langt síðan að lögð voru þar þorskanet sem aflast ágætlega f Fengu Grindvíkingar 9 eða 10 röðrardaga í röð, sem er mjög sialdgæft svo snemma á vertíð. Hæsti bátur hefir 15000 Jítra lifrar og mun það sam- svara um 400 skippund afla. A.líur afli hefir verið seldur nýr í frystihús eða ekið á bíhim yf- ír Reykjanesskaga og látinn í útflutningsskip jafnóðum. Tvo síðustu daga hefir verið þar talsvert brim og eiga menn net sín í sjó og komast ekki að þeim, svo fiskurinn er orðinn skemdur. En mest kvíða menn þó því, ef veiðarfærin tapast, því erfitt er að fá í skarðið aft- ur. KefEavík. Það sem af er hefir verið góð ur afli í Keflavík, og er hann tabvert hærri á bát að meðal- tali en á sama tíma'%.1. vertíð. Haestu bátar eru þar , m.b. HiLmir með um 860 skpd. og m.b. Guðfinnur með um 980 skpd., í 40 róðrum og er lifra- magn hans 37800 lítrar. Mun það vera hæsti afli á mótorbát við Faxaflóa nú á þessum tíma. Loðnu hefir orðið dálítið beitt og er afli á hana svipaður og á frosnu síldina. Verðið á loðnu er hærra en á frosinni síld eða frá 125—150 krónur mældur strokkur. Hafnarfjörður. Þaðan ganga 5 heimabátar á línu í vetur. Afli þeirra hefir verið góður, eftir því sem þar er venja. Mun meðalafli losa rúm 600 skpd. Einn heimabát- ur gengur þar á tog og annar togbátur frá Grindavík hefir þar viðlegu. Afli þessara báta er enn rýr. Reykjavík. Eins og jeg skýrði frá i afla- frjettum 9. janúar í „Morgun- blaðinu“, var dálítil óvissa þá um hvað mikil bátaútgerð yrði hjeðan. Það hafa gengið hjeðan í vetur 3 vjelbátar á linu og hafa þeir aflað vel. Síðar bætist i linuveiðarinn Sigríður í hóp- inn. Stundaði hún útilegu og saltfiskveiðar á tímabili, en hætti því aftur, vegna ýmissa örðugleika með saltfisk. Skip- ið heldur enn áfram línuveið- um og siglir með eigin afla. — Nokkrir togbátar eru nýbyrj- aðir og hefir afli þeirra verið misjafn. —; Nokkrir smábátar hjeðan eru að útbúa sig á þorskanet, dragnót og handfæri. 5—6 stórir aðkomubátar eru komnir hingað utanaf landi og láta þeir aflann í hraðfrystihús hjer og skip í Hafnarfirði. Breiðafjörður. I verstöðvum við Breiðafjörð er komin góð vertíð. Róðrar byrjuðu um miðjan janúar í Ól- afsvík og voru þá slæmar gæft- ir, en afli hefir verið ágætur og hefir aldrei verið kominn jafn- mikill afli á land þar eins og nú, á þessum tíma. Sama gildir um Sand, Grundarfjörð og Stykkishólm. Allur fiskur á þessum verstöðvum hefir verið frystur. Akranes. Flestir bátar voru tilbúnir til róðra um nýár, og hafa Akur- nesingar fengið góða og afla- sæla vertíð. Er kominn þar mik ill afli á land, og talsvert meiri en í fyrra á sama tíma og var þó fyrri helmingur þeirrar ver- tíðar góður. Hæsti bátur er þar m.b. Egill Skallagrímsson og er afli hans um 800—850 skip- pund og 30 þús. lítrar af lifur. Fiskurinn hefir verið óvenju vel lifraður þessa vertíð og lifr- in bræðst vel. Patreksfjörður. Fyrsti róðurinn á þessari ver tíð var farinn 22. febrúar. Slæmar gæftir hafa vorið og heflr sá bátur, sem er hæstur_ og farið hefir flesta róðra, afl- að 170 skpd. í 12 róðrum. Trillu bátar eru ekki byrjaðir vertíð ennþá. Vestfirðir, Fyrstu dagana eftir nýár var þár mokafli, en dró úr honum fljótlega. Umhleypingasöm tíð hefir verið við Vesturland í vet ur og fáir -róðrar, en aflinn sæmilegúr annað veifið. I fyrra dag var afli þar 3—7 smálest- ir á bát í róðri. Stóru útilegu- bátarnir urðu seint tilbúnir. Voru þeir í viðgerð og verið að skifta um vjelar. Hafa þeir stundað útilegu aðallega í Breiðafirði og Faxaflóa og lagt upp aflann á Patreksfirði, við Breiðafjörð og í Hafnarfirði. Norðurland. Frá Siglufirði , hafa verið stundaðir róðrar í mestallan vetur. Nú síðustu daga hefir verið dágóður afli þar, eftir því, sem venja er um þetta leyti árs. Hafa þilfarsbátar fengið 2 —7 smálestir í róðri. Frá ver- istöðvum við Eyjafjörð eru að byrja róðrar og er sæmilega góður afli. Allur fiskur er hrað- frystur á Norðurlandi. Ilornafjörður. Vertíð byrjaði þar um mán- aðamótin janúar og febrúar og eru róðrar þar fáir, en góður afli er á loðnu nú undanfarna daga og í gær, 20. mars, kom á land um 250 smálestir af slægðum fiski með haus. Var það veiði 25 báta, í byrjun mars var vond tíð og gaf ekki á sjó 9 daga í röð. Talsvert meiri afli er kominn þar á land nú, en á sama tíma í fyrra. Allur fiskur er þar látinn í útflutn- ingsskip. Ekkert salt er þar til á staðnum og ekki kvað vera hægt að salta þar fisk vegna húsplássleysis í landi. Stokkseyri og Eyrarbakki. Frá Stokkseyri ganga 6 bát- ar með línu. Vertíð byrjaði þar um s. 1. mánaðamót og hafa 8 róðrar verið farnir. Afli hefir verið góður, eða um 10—11 skpd. í róðri á bát. — Fiskur- inn hefir verið seldur í hrað- frystihús og nýr til sveita- manna. — Frá Eyrarbakka geng ur aðeins einn dragnótabátur og hefir hann aflað vel í þau skifti sem hann hefir komist á sjó. í Þorlákshöfn rær aðeins eitt tveggja manna far og hefir það aflað vel. Vestmannaeyjar. Afli á línubáta hefir verið mjög mikill í vetur, eftir venju þar, kanske aldrei aðra vertíð betri Hæsti bátur þar hefir á línu 350 smálestir af fiski inn- anúrteknum með haus, sam- svarar það 700 skpd. — Veiði togbáta er misjöfn og veðrátta hefir verið erfið fyrir þá, bestu togbátar hafa um 300 skippund á landi, en þeirra besti tími er nú eftir og var mjög góð veiði á tvo togbáta í gær. Segja sjó- menn togfisk enn mjög mishitt an. — Dragnótabátar eru að byrja veiðar, en engir bátar hafa enn lagt þorskanet. — Afli er mun meiri nú en á sama tíma í fyrra. Heildarmagn lifr- ar er nú 1.100.000 kg., en var um sama leyti í fyrra 700.000 kíló. — Loðna hefir lítilshátt- ar gengið yfir fiskimiðin tvis- vár sinnum, en lítið hefir verið aflað af henni, þar sem eins vel hefir veiðst á frosna síld. Allur fiskur hefir verið lát- inn nýr í skip og frystihús, en ekkert saltað. Saltfiskur hreiddur í næturvinnu og tekinn saman í eftirvinnu. Utgerðarmenn og sjómenn hafa forðast að framleiða salt- fisk. — Búist var við hækkun á saltfiskverði, en óvissa er enn þá um endanlegt verðlag hans. Sjómenn á útilegubátum hafa verið tregir til að taka þátt í kostnaði ög vinnu við losun fiskjarins úr skipi, akstri, sahi, stöflun, úmstöflun, húsa- leigu og annari umönnun. Þeim þykir bílar og landvinnan dýr. — Þess má geta, að s.L ár var sólþurkað lítilsháttar af fiski hjer í nágrenninu og þegar fisk verkunarmaðurinn kom með reikninginn til eiganda fiskj- arins, skýrði hann svo fra, að fiskurinn hefði verið breiddur fyrir kl. 8 að morgni og ekki tekinn saman fyr en eftir kl. 5 á kvöldin, svo að hann gæti notið sólarinnar sem lengst. En venjulegir dagvinnutímar væru frá kl. 8 að morgni til kl. 5 síð- degis. Með öðrum orðum, hann hafði breitt fiskinn í nætur- vinnu (fyrir kl. 8 að morgni) og tekið hann saman í eftir- vinnu. — Fiskverkun mun kostna nú um 100 krónur á skippund, en kostaði um 20 kr. fyrir stríð. Það virðist erfitt eins og nú standa sakir að framleiða saltfisk, nema hluta- sjómenn vinni sjálfir að því og kaupi litla vinnu að við hann. Vciðarfæri. Miliið veiðarfæratjón hefir orðið í vetur, aðallega vegna áhlaupaveðra, þegar allur al- menningur hefir verið á sjó og bátar þurft að fara frá línunni. Löngu fyrir vertíð, eða í nóv- ember, var komin veiðarfæra- ekla, og bátar, sem seint var á- kveðið að gera skyldi út, urðu nokkrir að kaupa veiðarfæri á „svörtum markaði“, eða fyrir yfirverð, og var skýrt frá þessu hjer í blaðinu 9. janúar s.l. Eftir því sem jeg hefi feng- ið upplýst í verstöðvunum, hef ir hvergi stöðvast veiði ennþá vegna veiðarfæraleysis, en það mun láta nærri á nokkrum stöðum. — Fyrir 3—4 vikum kom til landsins til Veiðar- færagerðarinnar 700 dúsin fiskilínur, og var þeim skift á milli viðskiftamanna hennar. Heildsalar hafa fengið lítils- háttar af veiðarfærum, sem aðallega hafa komið frá Eng- landi, en það litla, sem komið hefir frá Ameríku af línum, er miklu dýrara. Veiðarfæragerðin, ríkisstjórn og aðrir, sem vinna að útveg- un veiðarfæra, geta ekki gefið neinar vonir um útvegun veið- arfæi'a. Fyrir þá, sem eru ókunnug- ir þessu máli, skal það upplýst, að það er viss skamtur árlega, eða magn, sem um er samið í verslunarsamningum, sem til landsins má flytja. Er það mið- að við innflutning nokkurra fyrri ára. En gallinn er, að þau línuveiðarfæri, sem til landsins flytjast, eru mjög endingarlítil, svo sem sisallína. Þetta er stríðsvara, sem aðeins er hægt að nota í um 30—35 sjóferðir, þá er hún ónýt, en góðar fiski- línur úr hampi má nota um 50 —60 -• sinnum. Þessvegna þarf helmingi meira innflutnings- magn af ónýtu línunni, en með an við höfðum góðu línuna. •—• Einnig er nú notuð lengri lína en áður og bátarnir yfir- leitt stærri og fara fleiri sjó- ferðir. Á önglum og taumum hefir ekki verið ekla. Lítið er af dragnótatógi, köðliim og tog- tvinna. Það sem vantar tilfinn anlegast er línan í ás og nið- urstöður. Hraðfrystur fiskur. Frá því s.l. ár hefir mjög' aukist hraðfrysting fiskjar. Öll útflutt ársframleiðsla árið 1943 á hraðfrystum fiski og hrognum var um 14—15 þús- und smálestir og andvirði þess- ara afurða var um 31 miljón króna, en nú, 21. mars, er bú- ið að frysta síðan á nýári um 12 þúsund smálestir og mun andvirði þess fiskjar vera um 25 milj. kr. Þess má geta til samanburðar, að söluverð allra síldarafurða s.l. ár, lýsis, mjöls og saltsíldar var um 38 milj. króna. Má reikna með, að hrað frysti fiskurinn fari nú fram úr þessari upphæð og verði næst stærsti útflutningsliður- inn á eftir nýfiskinum, sem siglt er með til Englands, en hann nam á s.l. ári um 100 milj. krónum. Frystiskip. Til vandræða horfir með skip til þess að flytja út hrað- frystan fisk, en verið er að vinna að því að greiða úr því. Fari svo, að skip fáist ekki og útflutningurinn teppist, verða nokkuð mörg frystihús að hætta móttöku fiskjar nú um næstu mánaðamót vegna þess, að þau eru full af fiski og öll geymslupláss full. Þegar öll hraðfrystihús eru starfandi og afli er, mun fryst- ing vera um 80 þúsund kassar á viku eða 2000 smálestir. Má til samanburðar geta þess, að Brúarfoss hleður um i 1100 smálestir. Saltbirgðir eru litlar í verstöðvunum, Þar sem best er mun vera til salt í um 150 skpd. á bát í ver- stöð. Annarsstaðar er lítið salt; og nokkrar verstöðvar eiga ekki saltkorn. Framhald á 8. síðu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.