Morgunblaðið - 25.03.1944, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 25.03.1944, Qupperneq 6
8 MORGUNBLAÐIÐ Laugardagnr 25. mars 1944. Útg.: H.f. Arvakur, Reykjavík Frainkv.stj.: Sigfús Jónsson Ritstjórar: Jón Kjartansson, Valtýr Stefánsson (ábyrgðarm.) Frjettaritstjóri: ívar Guðmundsson Auglýsingar: Ámi Óla Ritstjóm, auglýsingar og afgreiðsla, Austurstræti 8. — Sími 1600. ÁskriftargjaM: kr. 7.00 á mánuði innanland*. kr 10.00 utanlands í lausasölu 40 aura eintakið, 60 aura með Leabók. Dýrtíðarplata Tímans HANN er ekki hugmyndafrjór, ritstjóri Tímans. En hann er furðanlega iðinn við að nudda á því, sem hann hefir einu sinni lært. Þetta sanna best skrif hans um dýrtíðarmálin. Svo oft er hann búinn að „spila“ þá plötu, sem honum var fengin í hendur fyrir tveim árum, að menn kunna hana orðið utan að. ,,Ef Framsókn hefði fengið að ráða, þá hefði engin dýrtíð verið á íslandi“. Þannig byrjar platan. „En Sjálf- stæðismenn brugðustýog ekki einu sinni, heldur þrisvar í baráttunni gegn dýrtíðinni“. Svona er framhaldið og svo kemur öll romsan, sern við þekkjum svo vel. Þegar Tímaliðið var að biðla til reykvískra kjósenda fyrír bæjarstjórnarkosningarnar síðustu, var eitt helsta meðmælið það, að ef Framsókn fengi að ráða, myndu bæjarbúar geta fengið kjöt, rnjólk og aðrar land- búnaðarvörur fyrir sama verð og þessar vörur kostuðu fyrir síríð. Þetta var kostaboð fyrir Reykvíkinga. En ekki kunnu þeir nú samt að meta boðið; þeir vildu engan úr liði Tímamanna í bæjarstjórn. En hvernig horfir svo þetta mál við frá sjónarmiði bænda? Hefðu þeir getað staðið sig við að selja búsaf- urðir sínar alt fram á þenna dag fyrir hið sama verð og þeir fengu fyrir afurðirnar fyrir stríð, jafnvel þótt kaup- gjaldinu hefði verið haldið niðri á pappírnum? Allir vita að verðið, sem bændur fengu fyrir afurðir sínar fyrir stríð, var langt undir framleiðslukostnaði. Búin gátu ekki borið sig með því lága verði, sem var á afurðunum. Þau söfnuðu skuldum. Var svo komið hjá mörgum bóndanum, að hann sá enga möguleika til þess að halda búrekstrinum áfram. En hvernig er ástandið nú alment hjá bændum? Þann- ig, í stuttu máli, að mikill hluti bænda hefir greitt allar skuldir sínar og margir eiga inni talsvert fje hjá versl- unum eða í sparisjóð. Þetta fje geta þeir notað síðar, þegar hægara verður um vik til ýmiskonar framkvæmda á búunum. Þessa breytingu kallar Tíminn höfuðógæfu fyrir bændastjettina. Eru bændur alment sömu skoðunar? Eru bændur sammála Tímanum um það, að efnahagur þeirra og afkoma væri betri nú, ef fyrirstríðsverð væri á af- urðum þeirra, jafnvel þótt kaupgjald væri „skráð“ hjer hið sama og þá var? Bændur ættu einnig að muna það, að þegar gerðar- dómslögin voru í gildi, þar sem fyrirskipað var að kaup- gjald mætti ekki hækka, var þetta aðeins á pappírnum. Kaupgjaldið í sveitum tvö- og þrefaldaðist á þeim tínaa, sem gerðardómslögin fyrirskipuðu að það skyldi stanaa í stað. Það var vitanlega hægt að hafa slikt ákvæði áfram í lögum, á pappírnum. En hitt var ógerningur, að ætla að telja bændum trú um, að kaupið stæði í stað, þegar það tvö- og þrefaldaðist. ★ Nei, Tími sæll. Dýrtíðarplata þín er löngu útshtin. Bændur vita, að það er fyrst nú síðustu árin, sem þeim er trygt sannvirði fyrir afurðir sínar. Þeir vita einnig hitt, að ef þeir hefðu átt að búa áfram við sama afurðaverð og var fyrir stríð, væru þeir nú allir gjald- j þrota og búskaþurinn í kaldakoli. Fyrir þá gat það aldrei j neitt bjargráð verið, að hafa lögfest kaupgjald, sem aðeins var til á pappírnum. Það kann að verða einhver hnekkir fyrir Framsóknar- flokkinn, að bændur losni af skuldaklafanum. En það er sama að segja um þetta mál og kjördæmamálið, að ekki fara saman hagsrnunir bænda alment og pólitískir hags- munir Framsóknarflokksins. En þetta getur Tínainn ekki skilið og er því best að láta útrætt um þaö mál. í Morgunblaðinu amm Þrumuveður með eldingum gerir usla hjer í bæ. Einkum varð loftskeytastöðin grátt leikin. Um það segir: 16. mars. ,,K1. tæpl. 8 í gærmorgun kom hjer hið allra mesta þrumu veður, sem menn muna eftir. Var ein skruggan svo mikil og gekk svo nærri, að likast var því sem alt ætlaði' ofan að ríða. í sumum húsum, sem hafa raf- ljós, kviknaði sem snöggvast á þeim og brak og brestir heyrð- ust í öllum leiðsluþráðum. Á Vesturgötu hafoi eldingu sleg- ið niður í götuljós, og víðar mátti sjá vegsummerki þess, að eldingin hafi farið bísna nærri. Hvergi gerði þrumuveðrið jafn tilfinnanlega vart við sig eins og í loftskeytastöðinni. Laust eldingu niður í loftnet stöðvarinnar og brendi sundur tvo þræðina af fjórum. En eigi var þar með búið. Eftir tengsl- unum milli loftnetsins og jarð- leiðslunnar fór sraumurinn gegnum sveiflubreytirinn (os- cillatorinn) með svo miklum krafti, að hann sprakk í smá- mola. Þeyttust þeir eins og byssuhögl víðsvegar um vjela- herbergið, mölvuðu rúður og skemdu ýmislegt, sem inni var. Hrökk vírbútur í gegnum hurð ina á stofunni og var kringlótt gat eftir, líkast því sem kúlu hefði veriö skotið á hurðina. Ampére-mælir á jarðleiðslunni evðilagðist algjörlega og leiðsl- ur kubbuðust í sundur. Var víða sót að sjá á veggjunum, sem leiðslurnar lágu um. Yfir- leitt hefði maður getað ímynd að sjer að líil sprengikúla hefði sprungið inri! í herberginu. Rit síma- og talsímasambandið við landsímastöðina slitnaði og raf~ ljósalamparnir brunnu í surid- ur. Vjer áttum í gær tal við stöðvarstjórann, hr. Frb. Aðal- steinsson. Kvað hann undir- ganginn hafa verið ferlegan, er eldingunni laust niður, og taldi hann líkastan því, sem að loft- ske.ytamastrið væri að falla yf- ir húsið. Dyravörðurinn var al- veg nýfarinn út úr vjelaklef- anum, er atburðurinn varð, og skall þar hurð nærri hælum, því að engum mundi hafa orð- ið lífs auðið þar inni“. Stúlka ferst í snjóflóði á Austurlandi. Auk þess urðu miklar skemdir og tjón. 17. mars. „Eskifirði í gær: Snjóflóð j eyðilagði í nótt íbúðarhús ( Kristjáns Eyjólfssonar á Strönd í Reyðarfirði. Dóttir Kristjáns fórst, hitt fólkið bjargaðist naumlega. Á Eskifirði tók snjó- flóð hlöðu og fjós Friðgeirs Hall grímssonar. 2 kýr, 1 kálfur og 2 kindur drápust, en hey bjarg aðist að mestu. Ennfremur hljóp flóðið á íbúðarhús Vil- helms Jensen, er skemdist í nokkuð. Á Svínaskálastekk | eyðilagði snjóflóð sjóhús m§ð: ýmsum áhöldum og drap hest. Á Fáskrúðsfirði urðu minni háttar skemdir“. * 'UíbuerjL ókripar: % ~ U daaie acýiecjci tnu Göturnar. Um gatnagerð skrifar Jón Ol- afsson, Laugaveg 126, og virðist vera málum kunnugur af eigin reynd, enda er hann starfsmaður bæjarins: Kæri Víkverji! Mikið og margt er skrifað í dagblöð bæjarins um göturnar í bænum. Og er það ekki nema eðlilegt, þó borgararnir geri sann gjarnar kröfur um lagningu þeirra og viðhald. En nú langar mig til að leggja orð í belg. Sjer- staklega nú, eftir lestur smá- pistils í Visi þann 22. þ. m. Það er ekki rjettiátt að ásaka bæjarvcrkfræðing, verkstjóra bæjarins, eða gatnagerðarmenn, þó ekki sje hægt að helluleggja gangstjettir, eða rr.albika í holur eða skurði, sem allstaðar eru i götum eftir hitaveitu-gröft. Allir jjessir menn hafa fullan vilja á að framkvæma þessi verk. En blaðamenn og borgarar verða að muna, að þó snjó taki af götum dag og dag, þá ríkir vetur enn, og klaki er fleiri þumlunga þykk ur í götum og gangstjettum. En bæði fyrnefnd verk er tilgangs- laust að láta vinna, fyr en klaki er farinn úr jörðu, og frosta er ekki von á hverri nóttu. Þetta Vitum við best, sem fleiri ár höfum starfað að þessum verk- um, og jafnvel brent okkur á því áð vera of fljótfærir í þessum efnum. Og að endingu þetta: Okkur finst víst öllum nægi- lega há útgjöld bæjarfjelagsins, þö peningurri sje ekki hent í þau verk nú, sem fyrirsjáanlega yrði að láta vinna aftur eftir 1—2 mánuði. Aldur íslenskra blaða. Á LAUGARDAGINN var birt- ist grein í Tímanum um vestur- íslensku blöðin, vinsamleg og rjettmæt grein í þeirra garð, þar sem m. a. er sagt frá því, að Björn Guðmundssori, Reynimel 52 hjer í bæ, taki á móti nýjum áskrifendum þessara blaða. Væri vel að sem flestir sýndu mál- efnum Vestur-íslendinga rækt- arsemi, með því að kaupa blöð þeirra, Lögberg og Heimskringlu. En þegar höf. Tímagreinarinn- ar snýr máli sínu að nokkru leyti til íslensku blaðanna, þá fer hann ekki rjett með, þar sem hann segir, að vestur-íslensku blöðin sjeu elst allra íslenskra blaða, sem nú koma út, en Heims kringla byrjaði að koma út 1886 og Lögberg 1888. Enn segir grein arhöf, að Þjóðólfur hafi orðið elstur allra íslenskra blaða, og telur aldur hans hafa orðið 66 ár. En út kemur blað hjer á landi nú, sem verður 70 ára á þessu ári. Og það er okkar gamla og góða ísafold, er Björn Jónsson stofnaði þjóðhátíðarsumarið 1874. Það kann að vera að höfundur Tírnagreinarinnar vildi helst að Isafold væri ekki lengur við lýði. En slíkt breytir ekki sögulegum staðreyndum. Kenna má honum það í leiðinni, að ísafold var stofnuð á sínum tíma fyrir áeggj an og að undirlagi Jóns Sigurðs- sonar forseta, enda voru þeir forsetinn og stofnandinn alda- vinir, þó aldursmunur væri mik- ill milli þeirra. Einkennileg tímaroð. EN ÚR ÞVÍ jeg mintist á þjóð- hátíðarárið, dettur mjer í hug að minnast um leið á einkennij lega tímaröð í ís.lenskum stjórri- málum og frelsismálum næst- liðna öld. Árið 1844, fyrir rjettum 100 árum, fóru fram fyrstu kosn- ingar til hins endurreista Al- þingis. 10 árum síðar, 1854, var verslunin gefin frjáls. 20 árum siðar, 1874, fengum við stjórn- arskrána og aðskilinn fjárhag. 30 árum síðar, 1904, innlenda þing- ræðisstjórn og 40 árum síðar, 1944, verður lýðveldi stofnað. Einkennileg regla á árabilum milli helstu viðburðanna. Ef hún heldur áfram, ætti næsta tíma- bilið að verða 50 ár. Hvað'skyldi gerast árið ' 1994? Hvað segja spámennirnir? © Vatnsskorturinn við Langaveginn. Bjarni Tómasson skrifar m. a. um vatnsskortinn við Laugaveg- inn: Hr. Víkverji! Eins og fleiri, sem eiga við ein- hver vandræði að búa, sný jeg mjer til yðar, ekki vegna þess að jeg geri ráð fyrir að þjer get- ið leyst vandræði mín, enda ekki í yðar verkahring, heldur til að grenslast um nokkur atriði í sambandi við þau, sem jeg gjarnan vildi fá upplýst og þar sem að þetta snertir marga fleiri íbúa þessa bæjar, vonast jeg til að þjer, Víkverji, útVegið þessar upplýsingar og birtið í dálkum yðar. Vandræði þau, sem jeg á við, er vatnsleysið, sem við hjer við Laugaveginn (og víðar) verðum að búa við. Það stendur nú svo á, að jeg rek atvinnu, i húsa- kynnum við Laugaveginn, sem útheimtir mikla vatnsnotkun og síðastliðin 3 ár hefir næstum hvern einasta virkan dag verið vatnslaust frá hádegi til kvelds í kjallara hússins, þar sem vinnu stofurnar eru. Af þessu leiðir að nokkur hluti starfsfólks hefir verið verklaus meiri og mirrni hluta dags þenna tíma. Uppi í húsinu hefir oft verið vatnslaust allan daginn og ætla jeg ekki að minnast á öll óþægindin í sam bandi við það. Eins og þjer vit- ið, er þetta ekkert einsdæmi um þetta eina hús, því það sama á sjer stað um flest hús hjer um kring og mörg fleiri hverfi í bænum. En tvo til þrjú hundruð metra hjeðan stendur fjögra hæða hús, sem að vísu fær vatn úr annari æð, þar þrýtur vatn ekki á efstu hæðinni allan daginn. Hvernig stendur á því að sum hús, sem þó standa meira áð segja hærra en hjer, eru aldrei vatnslaus, ekki einu sinni á efstu hæð? Það hefir mikið verið skrifað um vatnsleysið í blöðin og aðal- ástæðan fyrir því talin aukin notkun (vegna hersins o. fl.) En ef fólk sparaði vatn, þá myndi þetta lagast, sjerstaklega eftir að Hitaveitan kæmist í notkun. Nú er Hitaveitan komin, en samt er vatnsskorturinn engu minni en áður. Hvernig stendur á þessu? Eins finst mjer vera korninn tími til að skýra bæjarbúum frá því, hvað gert hefir verið til að lagfæra þetta, því að svona get- ur þetta ekki gengið lengur. • Hvað veldur? Jeg er sammála brjefritaran- um um það, að bæta þarf úr hin- um tilíinnanlega vatnsskorti, sem menn hafa haft við að búa í ýrrisum hverfum bæjarins. Marga hefir furðað á því, eins og brjefritarann, að vatnsskortJ Framhald á 8. síðu.-

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.