Morgunblaðið - 11.05.1944, Blaðsíða 1
(hurchill segir írá
aðstoð Breta
við Rússa
■ LONDON í gær: — Churc-
hill forsætisráðherra skýrði í
dag frá því í þinginu, hve hjálp
Breta til Rússa hafi verið um-
fangsmikil. Bretar hafa sent
Rússum rúmlega 5000 skrið-J
dreka, 6.700 flugvjelar, 4000
farartæki allskonar, 2400 vjel-
byssuvagna og mikið magn af
allskonar öðrum hergögnum og
birgðum fyrir miljónir sterl-
ingspunda.
Skipatjónið
í Rússiandsferðum.
Skipatjónið hefir farið stöð-
ugt minkandi í Rússlandsferð-
um. Breska flotamálaráðuneyt-
ið skýrði frá því í dag, að síð-
utsu 6 mánuði hafi verið flutt-
ai' 1 Vi miljón smálestir af vör-
um til Rússa um Norðuríshafs-
leiðina. Skipatjónið þessa mán-
uði hefir verið minna en 10%
og aðeins 16 smálestir af hverj-
um 1000, sem sendar hafa verið
af stað hafa ekki komist á á-
fangastað.
Bretar hafa mist flest her-
skip, sem sökt hefir verið í
Rússlandsferðum, en aðrar þjóð
ir bandamanna hafa orðið fyr-
ir mestu skipatjóni á þessari
leið, einkum Bandaríkjamenn.
Reuter.
Philadelphiu sált-
málinn: Fjelagslegl
PHILADELDHIA í gær: —
Alþ j óðaverkamálaráðstef nan,
sem hjer stendur yfir og sem
41 þjóð eiga fulltrúa á, sam-
þykti í dag einróma ályktun,
sem í framtíðinni mun verða
nefnd ,,Philadelphiu-sáttmál-
inn“ og sem mun hafa mikla
þýðingu fyrir verkalýð heims-
ins.
í ályktuninni er m. a. komist
svo að orði, að tryggja verði
fjelagslegt öryggi fyrir alla
menn, af hyaða kynstofni sem
þeir sjeu, jafnt körlum sem
konum. Á meðan fátækt ríki
einhversstaðar, sje ekki hægt
að byggja upp almenna vel-
gengni. Það verði að sjá öllum
fyrir lágmarkslaunum og mögu
leikum til að sjá sjer og sínum
farborða. Þjóðirnar verði að
vera frjálsar og allir menn
jafnir.
Hámarksverð á notuð
húsgögn í Bretlandi
LONDON í gær: Ákveðið'
hefir verið að setja hámarks-
verð á notuð húsgögn, sem seld
eru í Englandi. Hámarksverðið
gildir, hvort sem húsgögnin eru
seld I verslunum, á uppboði eða
í umboðssölu. — Reuter.
lAltrÁLníni
4 fisincoði luiijuniiiii.
a
99
Enn er ráðist á staði
í Frakklandi og Belgíu |
London í gærkveldi. Einkaskeyti til Morgun-
blaðsins frá Reuter.
Eftir Michael Ryerson.
STÓRAR FLUGSVEITIR bandamannaflugvjela streymdu yfir
Ermarsund í kvöld, eftir að hlje hafði verið á loftárásum meiri
liluta dags. Miklar drunur heyrðust handan sundsins og gáfu
til kynna, að árásir væru byrjaðar á ný. Loftsóknin var ekki
eins mikil í dag og í gær, er 4000 flugvjelar bandamanna fóru
til árása á staði í Norður-Frakklandi og Belgíu.
Landhelgisbrof rælt í breska þinginu:
Eden segir skolárás Ægis
>War Grey44 löglega
Þingmenn klöppuðu er ráð-
herrann sagði engar ráðstafanir
gegn íslensku stjórninni
London í gærkvöldi. — Einkasktyti til Morg-.
nnblaðsins frá Reuter.
ANTHONY EDEN, utanríkismálaráðherra Breta, lýsti
því yfir í breska þinginu í dag, að framkoma íslenskra
yfirvalda, er ráðist var á breska togarann „War Grey“, 28.
mars 1943, hafi ekki verið ólögleg, þó árásin hafi verið
hastarleg.
Þingmaður úr Verkamannaflokknum, George Muff að nafni,
hóf umræður um þetta mál, með því að spyrja utanríkismála-
ráðherrann hvaða ráðstafanir hefðu verið gerðar til að láta
íslensku stjórnina bæta fyrir árás íslenska varðskipsins „Ægis“,
sem með skothríð hefði laskað togarann „War Grey“ á hafi úti
og án þess að varðskipið hafi hafið eftirför sína á eftir skipinu
úr íslenskri landhelgi. ,
Anthony Eden
Ráðist var á að minsta kosti
26 mismunadi skotmörk og
þúsundum smálesta af sprengj-
um var varpað á járnbrautir,
flugvelli, brýr, skipaskurði,
haínarmannvirki og önnur skot
mörk á ströndum Norður-
Frakklands.
Sjerstaklega var ráðist með
miklum þunga á járnbrautar-
stöðvar í Norður-Frakklandi og
Belgíu og mesta árásin, sem
gerð var í morgun, var á Creil,
sem er 40 km. fyrir norðvestan
París. Um 450 smálestum var
várpað á þrjár járnbrautar-
skiftistöðvar og flugvöll hjá
Amiens. Tvær árásir voru
gerðar á járnbrautarstöðvar í
Tournai í Belgíu, 25 km. fyrir
austan frönsku landamærin.
Marauderflugvjelar rjeðust á
járnbrautarstöðvar í Mons, sem
er.. járnbrautarskiftistöð milli
París og Brussel. Þar komu upp
miklir eldar.
Mikil árás var gerð á kúlu-
legaverksmiðjur í Annecy á
landamærum Frakklands og
íaliu.
Flugvjelar, sem bækistöðvar
hafa í Ítalíu, rjeðust á Wienner
Neustadt, skamt frá Vínarborg.
Ennfremur voru árásir gerðar
á stöðvar Þjóðverja í Júgó-
slafiu.
Verður Bevin rekinn
úr Verkamanna-
flokknuml
London í gærkveldi.
Fundur var enn haldinn í
Verkamannaflokknnm breska
í dag til að ræða þá tillögu
framkvæmdaráðs flokksins, að
] >evin atvimmmálaráðherra
væri rekinn úr flokknum
vegna afstöðu sinnar til hinn-
ar nýju ráðstafanna, sem.
ltreska stjórnin hefir gert til
að reyna að koma í veg fyrir
verkföll.
Fundurinn stóð lengi dags,
en enginn atkvæðagreiðsla
fór frarn um tillöguna. Ilins-
vegar var samþykt tillaga frá
Shnuíwell þingmanni þess efn
is, að málinu skyldi skotið til
sameiginlegrar nefndar, sem
kosin væri af framkvæmda-
ráði flokksins annarsvegar og
þingmönnum hinsvegar.
10 l^orðmenn
líflátnir
II/.. II -
ssyi
herra Bandaríkjanna
Washington í gærkveldi.
Roosevelt forseti hefir út-
nefnt James Forrestal Sem
flotamálaráðherra Bandaríkj -
anna í stað Frank Ivnox of-
ursta, sem Ijest fyrir skömmu.
Forrestal er 54 ára að aldri
og hefir verið aðstoðaflota-
málaráðherra síðan 1940.
Ilann hefir gengt stöðu flota-
málastjóra síðan Ivnox ljest.
Frá norska blaða-
fulltrúanum:
UM STOKiaiÓLM hafa
borist frjettir um ný hermd-
arverk Þjóðverja í Noregi.
Þeir hafa tekið af lífi 10
menn, sem dæmdir höfðu ver-
ið til lífláts af þýska lögreglu-
dómstólnum Nord.
Átta menn frá Stavanger,
Georg Osnes, Ferdinand
Tjemsland.Arthur Waldemar
Emanuelsen, Knut Ilaugna-
iand, Magnus Nilsen, Henry
Viktor Larsen, Arnt Andersen
og Georg Ilagbart Nordbö, og
einn maður í viðbót, Martin
Johansen frá Egersund, voru
dæmdir „fyrir aðstoð við ó-
vinaríki". Ennfremur var
Joban Alfred Göransen dæmd
ur til dauða „fyrii’ gei*rffiði
við setulið Þjóðverja".
Dómarir voru staðfestir og
beim fullnægt. eftir að náð-
nnarbeiðni hafði verið vísað
á bug.
Allmargir hafa verið dæmd-
ir til fangelsisvistar, einn í 8
ára, annar í 5 ára og sá
þriðji í 4 ára fangelsi ,,fyrir
aðstoð við óvinaríki". Einn
var dæmdur í 2 ára fangelsi
„fyrir að hafa hlustað á út-
varpsstöð var óvinaríkjanna1 ‘.
Svar Edens.
Eden svaraði, að loka eftir-
förin og taka skipsins „War
Grey“ hafi farið fram eftir að
skipið hafi verið stöðvað og skip
un hefði verið gefin um að tog-
arinn kæmi til Reykjavíkur, fyr
ir að hafa verið að ólöglegum
veiðum í íslenskri landhelgi.
Þegar skipið var tekið, var það
að reyna að komast undan til
Englands. íslenskur embættis-
maður var um borð í togaran-
um. Hafði hann verið settur um
borð í sambandi við ákæruna
um ólöglega veiði í landhelgi.
Það hafði verið reynt að setja
mbættismanninn á land fyr um
daginn, en það hafði ekki hepn-
ast.
Ekki ólöglegt.
„Þegar tekið er tillit til að-
stæðna“, sagði Eden, „er mjer
skýrt svo frá, að íslensk yfir-
völd hafi haft miklar ástæður
fyrir að gera það, sem gert var,
þó hastarlega hafi verið að far-
ið. Og gjörðir íslenskra yfir-
valda eru ekki ólöglegar“.
,,Þó jeg sje ávalt reiðubúinn
til þess að gera ráðstafanir til
að verja hagsmuni breskra tog-
ara, þegar á þá hefir verið ráð-
ist á ólöglegan hátt, þá hefi jeg
komist að þeirri niðurstöðu, eft-
ir að hafa athugað þetta mál
gaumgæfilega, að í þessu tilfelli
þá sje ekki rjettlætanlegt, að
gera neinar kröfur á hendur ís-
lensku stjórninni og það kæmi
engum að gagni að fara að ræða
þetta mál, eftir diplomatiskum
leiðum“ (lófaklapp og heyr-
hróp frá þingmönnum).
Fratnh. á bls. 12