Morgunblaðið - 06.06.1944, Page 5
/
v
Þriðjudagur 6. júní 1944. ’ MORGUNBLAÐIÐ
Þm ullakongnf
Bergþór Guðjónsson.
Bex-gþór Guðjónsson, skipstj.
á Akranesi, er 31 árs gamall og
hefir verið skipstjóri í 11 ár.
Hefir hann verið einn af afla-
hæstu skipsljórum Akurnes-
inga í mörg ár.
Bátur hans og fjelaga hans,
Siguroar Þorvaldssonar, vjel-
stjóra, var bygður 1939 á
Akranesi fyrir reikning Akur-
neshrepps. Báturinn heitir Sig-
urfari og er 61 smál. að stærð,
með 192 hesta vjel og er fyrsta
flokks skip að öllu leyti. Það er
Akurnesingum til sóma, fyrst
að smíða þetta góða skip og
síðan selja víkingsduglegum
mönnum bátinn á kostnaðar-
verði, í stað þess að láta lrrepp-
inn vera að gera hann út fyrir
sinn reikning.
Eigendur bátsins, Bergþór og
Sigurður eru gamlir kunningj-
ar mínir og er oft hressilegt að
hitta þá. Afli þessa báts er í
vetur rúm 1400 skpd. 1 70 róðr-
um og er hann aflahæsti bát-
ur á Akranesi þej§sa vertíð.
Jeg hitti Bergþór snöggvast
að máli og spurði hann, hverju
hann þakkaði þennan góða afla
í vetur. „Fyrst og fremst er
skip og öll útgerð bátsins í
góðu lagi og meiri fiskur á mið
xmum nú, en var fyrir stríð, góð
beita og löng lína notuð, sem
altaf er að lengjast með hverju
ári og er orðin svo löng, að
varla er við bætandi, því þá
endist ekki sólarhrihgurinn til
að athafna sig á sjónum, kom-
ast til og frá fiskimiðum og Josa
aflann, en þetta þai'f alt að ger-
ast á einum og sama sólarhring
á landróðrabátum eins og við
nolum okkar bát á verlíð“.
— Hvað notuðuð þið langa
línu í vetur? — Við byrjun yer
tíðar um 13000 öngla og þegar
fram á vertíðina kom notuðum
við 16000 öngla, sem samsvar-
ar 38 bjóðum.
— Hvað nolið þiö mikla
beitu á þessa löngu linu? — Við
notuðum í róður frá 450—500
kíló og er verð hvers kílós kr.
1.10. Það er því stór liður í út-
gerðarkostnaðinum. Nú gerir
hvor liður út af fyrir sig, beilan
óg veiðarfærin, eins mikið að
jniinHiiiii>nmiitiniiiiiiiiitiiiiiiinnimfiiiiiii(iii!iiii£
Boston s
| írawlspil |
til sölu. =
= Jónsson og Júlíusson s
= Garðastræti 2. Sími 5430. =
iiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii
verðmæti og allur aflinn var
fyrir nokkrum árum á eymdar-
tímabilinu.
Jeg spurði Bergþór hvað
hann hjeldi um útgerðina í
framtíðinni. Hann hristi höf-
uðið og sagðist búast við að hún
yrði pínd til dauða.
Guðmundur Guðfinnsson.
Guðmundur Guðfinnsson,
skipstjóri á vjelbátnum Guð-
finnur í Keflavík, »hefir um
mai'gra ára skeið verið einn
aflahæsli skipsljóri Keflvík-
inga.
Jeg man efíir því árið 1935,
þegar jeg var búsettur í Kafla-
vík, að 10. mars kom vjelbát-
urinn Guðfinnur nýbygður frá
Svíþjóð, og með bálinn kom
Sigurjón Jónsson skipstjóri, er
léngi var með Faxaflóabátinn
Ingólf. En sá maður, sem vera
átti skipstjóri á bátnum var
Guðmundur, og var hann
einn þeirra sem komu með bát-
inn.
Eigendur vb Guðfinns eru 3
bræður, þeir Guðm. skipstjóri
bátsins, Sigurþór úlgerðarstjóri
hans og Sigui'geir. Tveimur
dögum eftir að hann kom íil
Keflavíkur var hann kominn á
veiðar og mokfiskaði það sem
eftir var vertíðarinnar. Hefir
hann síðan oft flutt Keflavík
metafla á vertíðinni.
S.l. ár reyndist þessi sænski
Guðfinnur, sem er 18 smál. að
stærð, þessum aflasæla manni
of litill og keyplu þá þessir þrír
bræður nýjan bát, smíðaðan í
Njarðvíkum hjá Eggert Jóns-
syni, og hefir nýi Guðfinnur
ekki kafnað undir nafni, því
þessi vertíð er hin hæsta og var
aflinn 1780 skpd. og eru úr því
58311 litrar lifrar. Mun þetta
vera mesti fiskur og lifur, sem
komið hefir á land á landróðra
bát við Faxaflóa á einni vertíð.
Verðmæti þessa afla er Vz milj.
króna.
Jeg vildi hitla formann báts-
ins á annan hvílasunnudag og
tókst það loksins seint um
kvöldið. Vildi jeg fá frjettir og
upplýsingar um útgerð hans og
formensku. En það er ekki eins
Ijett og margur heldur að
„pumpa" þennan mann, því í
daglegri framkomu er hann
dulur og fáskiftinn.
Jeg spvr Guðmund skipstj.
hvað honum sje minnisstæðast
1 frá þessari vertíð.
: — Það er mannskaðaveðrið
i mikla 12. febrúar. Jeg hefi
aldrei lent í eins vondu veðri
og tapaði allri línunni. Sjálfur
hafði jeg það gott á mínum
Frh. á bls. 7.
Anton Björn Bjarnarson,
íþróttakennari
Fæddur 6. júní 1921. — Látinn 26. nóvember 1943
Minniixgarljóð frá móður hans.
I.
Jeg lofa þig, Guð/fyrir lánið mitt
á lífsins farinni braut
og treysti ætíð á almætti þitt
í unaði jafnt og þraut.
Mjer ægja ei lífsins skuldaskil,
því sköpuð vjer erum feig.
Jeg hefi setið við sólaryl
og sopið gleðinnar veig.
1 svip verður dapur hver dagurinn,
* dvínar gleðin um skeið;
höggvið er skarð í hópinn minn,
hált er á allra leið.
II.
Er sjerhvað heima ljek i lyndi
og lukkan var oss. gegn,
jeg vissi, að eitthvað yfir dyndi,
sem yrði oss jafnvel um megn.
Við ber það, að mig drauma círeyrrli,
dagvitund horfin frá.
Aðvörun kom mjer úr öðrum heimi,
er jeg i blundi lá.
Framtíðar svipmyndir fyrir bera,
* sem færa oft litla ró.
Árás mjer þótti 1 aðsigi vera,
og inn til vor sprengja fló.
III.
Er söngvarar fleygir syngja lag
Um sumargleði og ást,
þá munum .vjer þenna merkisdag,
er morguninn fyrsta þú sást.
Við fögnuðum þjer og fólum þig
þeim föður, er líf oss gaf;
og enn breiddi glóey á vorn stig
sitt iðandi geislatraf.
IV.
Þú varst gestur, frá Guði sendur.
Þjer geislaði lífið um hvarm.
Þær læknuðu alt, þessar litlu hendur,
er ljekstu mjer forðum við barm.
þú minnir á blæinn frá blómskrýddu vori,
þá blikandi sólin skín.
það var frelsi í hjarta og flug í spori,
er fjölguðu árin.þín.
V.
í fylkingu æskunnar fórstu
framherjí, röskur sveinn,
og heildinni hollustu sórstu,
ef hikað var, hvattirðu einn.
,.Að vinna“ var það, sem gilti.
í vörn og sókn hugurinn brann.
Fjörið og þrótiurinn fyllti
ferðbúinn, lifsglaoan mann.
Til verka þú vjekst úr garði,
vermdi þig ástin hlý,
en bani kom bráðar en varði
og birti þjer áform ný.
VI.
Vjer þökkum þjer allan þann unað,
sem æskan í fyllingu ljær.
Þitt manndómsstarf verður munað,
á minningar Ijómanum slær.
Vor innsýn í árgeislaskini
á ókunnu landi þig sjer;
vjer vonum þú eignist þar vini
og vinnir drottni sem hjer.
VII.
Þótt mannvit og mennt sje í böndum
og margháttuð framkvæmd til tjóns,
verða úrslit í alvaldsins höndum,
er öllu fær snúið til góðs. H. J.
íj
Atiíon B. Bjarnason.
Framh. á 2. síðu
ið vann Valur Jónsson á 45,2
sek. 2. var Pjetur Eiríksson og
3. Vigfús Sigurjónsson.
Einnig var kept í hagnýlum
vinnubrögðum, netaviðgerð og
vírsplæsingu. — Úrslit í neta-
viðgerð voru þessi: 1. Sigfús
Bjarnason : 15:35,7 mín., 2. Hall
freður Guðmimdsson'og 3. Þór-
óifur Sveinsson. — Úrslit í
vírasplæsingu: Haraldur Ólafs-
son á 8:26,0 sek. 2. Magnús
Einarsson og þriðji Trvggvi
Sigfússon.
Skipverjar á b. v. Helgafelli
virtust sjerstaklega harðir af
sjer. Unnu þeir allar íþrótta-
kepnirnar að undanskildu
b j örgunarsundinu.
★
Hátíðahöld Sjómannadagsins
fóru í alla staði mjög vel fram
og virðulega. Settu þau mikinn
svip á bæinn. Fánar voru dregn
ir að hún á fjölda húsa, víðs-
vegar í bænum og öllum skip-
um á höfninni.
Hófið að Hótel Borg.
Allar kvöldskemtanir Sjó-
mannadagsins fóru fram með
mikilli prýði. — Aðalhófið var
að Hótel Borg. Lárus Blöndal,
skipstjóri. setti það og stjórn-
aði því. Ræður íluttu: Sveinn
Jónsson, form. Mótoristafjel.
íslands, Brynjólfur Jónsson,
skipstj. og Bjarni Benedikts-
son, borgarstjóri. Þá söng
Hreinn PáJsson nokkur lög og
Karlakórinn Visir á Siglufirði
sýndi sjómönnum þá sjerstöku
velvild að syngja á hófinu. Hef
ir sjómannadagsráðið beðið
blaoið að færa kórnum innilegt
þakklæti. >
Þá afhenti Henry Hálfdán-
arson, form. Sjómannadags-
ráðsins, f. h. sjómannadagsins,
ríkisstjóra lagran grip, múr-
skeið úr silfri með handfangi
úr filabeini,. fyrir þann vel-
vilja. sem hann sýndi sjóihönn-
um. Á skeiðina var grafið, ann-
arsvegar: „Hornsteinn sjó-
mannaskólans lagður 1944“ og
hinsvegar: „Til ríkisstjóra ís^
lands, Sveins Björnssonar, frá
Sjómannadeginum“. — Ríkis-
stjóri þakkaði gjöfina og heiðr-
aði við það tækifæri tvo sjó-
! menn, Friðrik Ólafsson, skóla-
stjóra, og Guðmund Markús-
son, sliipstjóra.
„Pjetur Gautur" verður sýndur
| í næstsiðasta sinn annaðkvöld.
Aðgöngumiðasala hefsi kl. 4 í dag