Morgunblaðið - 29.06.1944, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Fimtudagur 29. júní 1944
Aðalfundur
bókmenntafjelagsins
A3ALFUNDARDAGUR Bók
meclafjelagsins er samkvæmt
lúgura þess 17. júní, fæðingar-
dagur Jóns Sigurðssonar. Hefir
svo verið síðan deildir fjelags-
iriíj voi'u sameinaðar, um það
leyti, er aldarafmæli Jóns Sig-
urðssonar var haldið. Vegna
lýðvelöishátíðarinnar var aðal-
fundi írestað nú til 21. þ. m.
Vuc hann haldinn þann dag kl.
9 -um kvöldið, í lestrarsal Lands
bókasafnsins, og var tiltölulega
fjölmennur.
Eftir að varaforseti hafði sett
fund og boðið velkomna alla
fundarmenn, en sjerstaklega
prófessor Richard Beck, er var
einu þeirra, mintist hann Jóns
Sigurðssonar með nokkrum orð
um. Síðan stakk hann upp á
landsbókaverði, dr. Þorkeli Jó-
; hannessyni, sem fundarstjóra,
og var sú uppástunga samþykt
í einu hljóði. — Þá skýrði vara
forseti frá því, að síðan á síð-
aato aðalfundi hefði látist 13
fjelagsmenn, sem kunnugt væri
um, og las hann upp nöfn
þeirra. Risu fundarmenn úr
sætum og mintust hinna látnu.
Vrar síðan gengið til dagskrár.
Skýrði varaforseti frá hag fjé-
lagstns, las upp ársreikning
þess fyrir síðastliðið ár og efna
hagsreikning um áramót. Bar
• fundarstjóri þessa réikninga
upp til úrskurðar á fundinum,
og voru þeir samþyktir í einu
hljóði án nokkurra athuga-
semda af hendi endurskoðun-
armanna eða fundarmanna. —■
Höfðu tekjur-fjelagsins af sölu
ýrnissa hinna eldri bóka þess
síðustu 2 ár orðið það. drjúgar,
að unt hafði orðið að greiða nú
að fullu skuld þá, sem fjelagið
bafði orðið að stofna til, er það
gaf út registur yfir Sýslumanna
æfir, og ennfremur hafði stjórn
fjelagsins getað greitt nú þeg-
ar ritlaun fyrir alt handritið í
14. og 15. bindi Fornbrjefasafns
ihs. Hafði útgefandinn, dr. Páll
Eggert 'Ólason, búið það hand-
rit að fullu undir prentun, verð
ur nú hraðað prentun þess svo
sem efni fjelagsins leyfa á kom
andi árum. — Þá voru lesnir
upp reikningar fyrir sjóð
Margr. Lehmann-Filhé og Af-
mælissjóð fjelagsins.
Síðan var lesin fundargjörð
kjdrfundar, er haldinn hafði
verið lögum samkvæmt 16. þ.
m. Höfðu 211 fjelagsmenn tek-
íð.þátt í kosningunum. Varafor
seti. Matthías Þórðarson, hafði
verið kjörinn forseti og prófess
or Sigurður Nordal varaforseti,
báðir til tveggja ára, en full-
, trúar höfðu verið kosnir þeir
_Ein3r Arnórsson ráðherra og
: Sigurður Nordal prófessor til 6
, ára, Arni Friðriksson magister
, til 4 ára og Alexander Jóhann-
es;;on prófessor til 2 ára, báðir
: hiriir síðastnefndu í stað Matt-
: híasar Þórðarsonar og Þorkels
■ Þorkelssonar forstjóra, sem far
ið höfðu úr fulltrúaráðinu áður
í en kjörtímabil þeirra voru út-
jfrunnin. — Endurskoðunarmenn
rþeir Jón Ásbjörnsson hæsta-
jrjettarmálaflutningsmaður og
; Brynjólfur Stefánsson fram-
i kvæmdastjóri, voru báðir end-
urlrjörnir.
Er dr. Guðmundur ljet af rit
stjórn Skírnis um síðustu ára-
mót, hafði stjórn fjelagsins
kjörið Einar Ól. Sveinsson há-
skólabókavörð ritstjóra Skírnis
í hans stað til þessa árs og hins
næsta.
Arstillag til fjelagsins þetta
ár hafði verið ákveðið hið
sama og síðastliðið ár. Er ráð-
gert, að á þessu ári komi út,
auk Skírnis, hefti af Annál-
um 1400—1800 og rit um sótt-
arfar og sjúkdóma hjer á landi
á sama tímabili, samið af Sig-
urjóni Jónssyni lækni. Dr. Páll
Eggert Ólason vinnur stöðugt
að hinni fyrirhuguðu ævisagna
bók fjelagsins, og verður út-
gáfa hennar hafin svo fljótt sem
kostur verður á.
Loks var borin upp á aðal-
fundinum og samþykt í einu
hljóði sú einróma tillaga fje-
lagsstjórnarinnar, að hinn frá-
farni forseti, dr. Guðmundur
Finnbogason yrði kjörinn heið-
ursfjelagi.
★
Nú munu vera um 1300 menn
í Bókmentafjelaginu. Telur
stjórnin æskilegt, að þeim f jölg
aði og að nýir fjelagsmenn snúi
sjer sem fyrst til forseta þess,
sem er venjulega til viðtals í
Safnahúsinu. Mörg hinna eldri
rita fjelagsins eru enn fáanleg
hjá honum ,en þau, sem eru nú
að öllu eða nokkru leyti út-
seld, eru komin í mjög hátt
verð meðal bókasafnara. Út
um land geta nýir fjelagsmenn
gefið sig fram við umboðsmenn
fjelagsins.
Skærur í Noregi
ÍTá norska blaðafull-
trúanum:
Fregnir frá Noregi hernia,
,að komið hafi tii viðureigna
jnilli Norðmanna og þýskra
.hermanna á Fágernes í Vald-
res. Urðu viðureignirnar við
Bvarthammer í Östre Sliclre.
Jlerma fregnir þessar að nokk-
ur þúsund Þjóðverjar hafi
barist þar við 1G0 Norðmenn.
Fjellu þrír Norðmenn og 7
Þjóðverjar. Margir særðust,
og allmargir Norðmenn voru
teknir höndum. Sagt er að
mikil umsvif sjeu á þýska hern
,um uni þessar slóðir.
— Innrásin
Framh. af bls. 1.
göngumiðstöðvar Þjóðverja víðs
vegar um Frakklana.
Fórust aðeins fáar af flug-
vjelum þeim, sem í þessa leið-
angi'a fóru.
Herstjórnartilkynningin.
I herstjórnartilkynningu banda
manna í kvöld seint er sagt, að
sókn bandamanna nærri Caen
haldi áfram og verði sóknar-
hernum nokkúð ágengt, þrátt
fyrir mikla mótspyrnu og ill-
viðri.
Þá segir, að harðlega sje sótt
að þeim virkjum nærri Cher-
faourg, þar sem Þjóðverjar verj
ist enn. — Tveim vopnuðum
togurum þýskum var sökt af
tundurspillum nærri Jersey.
Prestastefnan
PRESTASTEFNAN hjelt áfram
í gær. Hún er venju fremur fjöl
sótt, enda liggja mörg og mikil
mál fyrir henni að þessu sinni.
í gær hófst fundur með
morgunbænum í Háskólakapell
unni kl. hálf tíu, er sr. Árelíus
Níelsson á Eyrarbakka annað-
ist. Að lokinni bænagjörð flutti
biskupinn skýrslu um messu-
gjörðir og altarisgöngur á s.l.
ári. Alls voru fluttar á landinu
hátl á 4. þúsund guðsþjónustur
og koma um 40 guðsþjónustur
á hvern þjónandi prest til jafn-
aðar. Altarisgestir voru á sjö-
unda þúsund.
Þá gerði biskup grein fyrir
úthlutun styrks til uppgjafa
presta og prestsekkna. En að
því loknu var tekið fyrir höf-
uðmál þessarar synodu, en það
er Kirkjan og Iýðveldishug-
sjónin. Framsögu um það mál
höfðu sr. Björn Magnússon,
prófastur á Borg, og sr. Magn-
ús Jónsson prófessor. , Fluttu
þeir athyglisverð erindi um af-
stöðu kristindpmsins til lýð-
veldishugsjónarinnar og þau
verkefni, sem einkum bíða
kirkjunnar á komándi tímum.
Var málinu vísað til nefndar,
en umræður munu halda áfram
í dag í kirkjunni á Bessastöð-
um, en þangað munu synodus-
prestar fara upp úr hádegi í
boði forseta Islands.
Að loknum hádegisverði
hafði herra biskupinn fram-
sögu um prestssetrin. Astandið
í .byggingarmálum prestssetr-
anna er óviðunandi og hefir þó
biskup ekki legið á liði sínu
síðan hann tók við embætti
sínu, til þess að ráða bót á því.
Mörg prestaköll eru þannig
sett, að þar er ekkert þak yfir
höfuð prestinum, eða sama sem
ekkert, og er það eitt ærin or-
sök þess, hve erfilt er að fá
mnn til þess að þjóna þeim. —
Lagði biskup fram tillögur um
þetla mál.
Þá heilsaði synodan virðu-
legum gesti, próf. Richard
Beck, og bauð biskup hann vel-
kominn. Flutti prófessorinn síð
an ræðu og var góður rómur
ger að máli hans. Færði hann
biskupi og prestum kveðjur frá
forystumönnum kirkjumála
vestan hafs, með sjerstöku
þakklæli fyrir komu biskups
íslands í vor. Hann gaf yfirlit
yfir starf kirkjunnar meðal
landa vestra. Komst hann svo
að orði, að feðratrú og þjóð-
erni hefði verið þau tvö fjör-
egg, sem Vestur-íslendingar
hefðu gert sjer mest far um að
varðveita.
Síðar um daginn voru um-
ræður um fundarsköp presta-
stefnunnar og loks um kvöldið
flutti sr. Páll Þorleifsson á
Skinnaslað opinbert erindi í
Dómkirkjunni.
Erindinu var útvarpað.
X.
Húsaleiguvísiialan
137 stig
HAGSTOFAN og kauplags-
nefnd hafa reiknað út húsa-
.leiguvísitöluha fyrir ársfjórð-
unginn 1. júlí til 1. október,
(og reyndist hún vera 137 stig,
eða einu stigi tægri en næsta
ársfjórðunginn á undan.
Veðurkortum útvarpað
frá Sjómannaskólanum
Frá aSalfundi Fjelags íslenskra
loftskeyfamanna
AÐALFUNDUR Fjelags ís-
lenskra loftskeytamanna var
haldinn þann 24. júní síðastlið-
inn. Ályktanir og samþyktir, er
gerðar voru á fundinum voru
þessar:
Fjelagsheimili.
Aðalfundur Fjelags íslenskra
loftskeytamanna 1944 ályktar
að fela fjelagsstjórninni að at-
huga möguleika fyrir samvinnu
við önnur fjelög sjómanna í
Reykjavík um sameiginlegt fje
lagsheimili, og samþykkir, að
leggja til hliðar kr. 5000.00 af
handbæru fje fjelagsins til fram
kvæmda í því skyni, og verði
því fje ekki öðru vísi ráðstaf-
að nema samþykki aðalfundar
komi til.
Farmanna- og fiskimannasam-
bandið.
Aðalfundur Fjel. ísl. loft-
skeytamanna lýsir ánægju sinni
yfir störfum 7. þings Farmanna
og fiskimannasambands íslands
og heitir á hin fjelögin innan
sambandsins að fylkja sjer um
framkvæmdir á þeim samþykt-
um, sem þar voru gerðar, svo
sambandið fái komið á fram-
færi sem fleslum umbótum
hvað snertir sjávarútveg og sjó
mensku, sjerstaklega í fram-
fara- og örygismálum.
Fullkomnari loftskeytastarf-
ræksla í millilandasiglingum.
Aðalfundur Fjelags ísl. loft-
skeytamanna samþykkir að
fela fulltrúum sínum á þingi F.
F. I. S. að beita sjer fyrir því
við þingið, að endurskoðuð
verði löggjöf um loftskeyta-
stöðvar í íslenskum skipum og
loftskeytaþjónuslu alment, og
sjerstaklega með tilliti til þess,
að þingið beiti sjer fyrir auknu
öryggi skipshafna í millilanda-
siglingum.
Veðurkortum útvarpað frá sjó-
mannaskólanum.
Aðalfundur Fjelags ísl. loft-
skeytamanna fagnar byggingu
hins veglega sjómannaskóla og
samþykkir að beina þeim til-
mælum til rjettra hlutaðeig-
enda að beita sjer fyrir því, að
þessi stofnun geti orðið öllum
sjómönnum og sjávarútvegin-
um stoð og stytta í framtíðinni
og að sjerstök áhersla verði
lögð á hagnýtingu hinnar full-
komnuslu tækni, svo sem að
komið verði upp myndsending-
arstöð, er í framtíðinni sendi
veðurkortin þráðlaust til skipa
og flugvjela.
Frjettasending til skipa.
Aðalfundur Fjel. ísl. loft-
skeytamanna samþykkir að fela
fjelagsstjórninni að vinna að
því við Ríkisútvarpið og Lands
síma íslands að frjettasending-
ar á stuttbylgjum til skipa á
hafinu verði aflur hafin, ef ekki
hamla því óviðráðanlegir örð-
ugleikar.
25 ára afmælisrit.
Fjelag íslenskra loftskeyta-
manna samþykkir að skipa nú.
þegar þriggja manna ritnefnd
til að undirbúa útgáfu á vænt-
anlegu afmælisrili í tilefni af
25 ára , afmæli fjelagsins og
kappkosti nefndin að gera rit
þetta þannig úr garði að það
ekki einungis verði gott heim-
ildarrit í sögu fjelagsins, heldur
og einnig öllu því er varðar loft
skeytafræði og framfarir á því
sviði.
Forseti íslands hyltur.
Fjelags íslenskra loftskeyta-
manna lýsir yfir fögnuði sínum
vegna hfhs endurreista lýðveld
is á Islandi og sendir hinum ný
kjörna forseta þjóðarinnar hlýj
ar kveðjur ásamt hinum bestu
árnaðaróskum.
Kappreiðar í Fló-
anum
SUNNUDAGINN 25. þ. mán.
hjelt Hestamannafjel. Sleipn-
ir kappreiðar á Hestaþingsflöt
hjá Hróarstungu í Flóa.
Þar kepptu 9 hestar á 300
metra hlaupabraut og komust 5
þeirra í úrslitasprett. Fyrstur
varð Skúmur, Sigurjóns Krist-
jánssonar, Forsæti í Flóa, rann
hann skeiðið á 23 sek. 2. varð
Brúnn, Ólafs Jónssonar, Hlöð-
um við Selfoss á 25 sek. 3. Bald
ur, Guðjóns Sveinbjörnssonar,
Uppsölum, einnig á 25 sek.
Þá fór fram folahlaup á 250
metra hlaupabraut og tóku 5
folar þátt í hlaupinu. Fyrstur
varð Bragi, Eiríks Björnssonar,
Grímsstöðum á 21.2 sek., — 2.
Skjóni, Páls Jónssonar, Hlöðum
á sama tíma, 21.2 sek. og þriðji
Toppa, Guðm. Guðleifssonar,
Langstöðúm í Flóa.
í dómnefnd áttu sæti: Jón
Pálsson, dýralæknir, Björn Sig’
urbjörnsson og Sigurður Gísla-
son, lögregluþjónn í Reykjavík,
Veður var hið ákjósanlegasta,
enda voru áhorfendur margir.
Einn knapana fjekk verðlaun
fyrir besta ásetu og var það
Gísli Jónsson, Loftsstöðum.
— Dewy
Framh. af bls. 1.
þegar í gær, er Bricker þing-
maður, sem mjög vel gat komið
til mála sem forsetaefni, dró
sig í hlje, sem forsetaefni, en
verður í kjöri sem varaforseti
flokksins.
Er Dewey hafði verið út-
nefndur, hjelt einn af forsprökk
um flokksins ræðu og sagði, að
Dewey hefði unnið mikið afrek,
er hann forðurn sigraðist á
sambandi spiltra stjórnmála-
manna og glæpamanna. „Þessi
þjóð þarfnast hreingerningar
og hjer er rjetti maðurinn til
þess verks“, sagði hann