Morgunblaðið - 29.06.1944, Page 7

Morgunblaðið - 29.06.1944, Page 7
Fimtudagur 29. júní 1944 MORGONBL' MÐ LNDIRSTAÐA FRIÐARINS A KYRRAHAFI LANDFRÆÐILEGA er mikill munur á hinum ýmsu þjóðum Austur-Asíu og Kyrrahafseyj - anna, en stjómmálalega eru hagsmunamál þeirra svo ná- skyld, að það verður tæpast heppilegt að gera mikinn mun á þeim við skipulagning- una eftir stríð. Fárviðri það, sem nú geysar um Kyrrahafs- eyjar, á beinlínis rætur sínar að rekja til átakanna í Austur- Asíu. Öll verða lönd þessi að horfast í augu við sameiginleg- an óvin og öll bera þau sömu þrá í bi'jósti varðandi framtíð- ina — að fá að njóta friðar. Myndun raunverulegs banda lagsráðs þjóðanna í hinum fjar- lægu Austurlöndum er fyrsta skrefið, sem nú þarf að stíga hernaðarrekstrinum til efling- ar og framtíðarfriðnum til trygg ingar. Reynslan af þjóðabanda- laginu sýnir, að heimsbandalag er ekki ætíð heppilegt til þess að ráða fram úr vandamálum, • sem aðeins snerta afmörkuð svæði. Skeytingarleysi þjóða- .bandalagsins um atburði þá, sem gerðust þar eystra árið 1930, er of augljóst til þess að verjendur bandalagsins geti þrætt fyrir það. Hagsmunamála Asíu myndi betur gætt af banda • lagi, sem einungis næði til Asíu þjóðanna, en þjóðabandalagi, sem fyrst og fremst væri tengt við Evrópu. Menn virðast því hneigjast að því fyrirkomulagi nú, að hver heimsálfa hafi sitt eigið öryggisskipulag í sam- ræmi við aðstæður hverrar um sig, en þó undir yfirstjórn alls- herjarheimsskipulags. Fyrst í stað yrði þeim þjóðum einum veitt inntaka í Asíubandalagið, sem nú eiga í styrjöld við Jap- ani. Bandalagið yrði þó ekki fullkomnað án þátttöku Rússa, en ef þeir væra enn utan við styrjöldina við Japani, þeg- ar bandalagsráðið kemur sam- an, verða þeir að standa utan ráðsins, þar til aðstæður breyt- ast. Starfsemi ráðsins mun ná yfir þrjú tímabil: Vopnahljes- tímabilið, millibilstímabilið og að lokum friðartímabilið. Vopnahljestímabilið. AÐALVIÐBURÐIR og við- fangsefni þessa tímabils munu verða lok allra hernaðarað- gerða, framkvæmd fyrstu að- gerða friðinum til tryggingar, hjálparstarfsemi og endurreisn arstarf. Á þessu tímabili mun sú skylda einnig verða lögð ráð inu á herðar að innræta jap- önsku þjóðinni lýðræðisanda, koma fótunum undir Kína, svo að það verði sterkur aðili í Asíu og hafa eftirlit með myndun nýrra þjóðríkja. Tímabil þetta mun sennilega standa yfir í um það bil fjögur ár. Alger afvopnun Japana verð- ur að sitja í fyrirrúmi fyrir öll- um öðrum aðgerðum, og banda menn verða að hafa setulið á öllum hernaðarlega mikilvæg- um stöðum í Japan. Síðah verð ur að fela alþjóðlegri nefnd í hendur að stjórna landinu. Yrði nefnd þessi útnefnd af Kyrra- hafsráðinu. Nefnd þessari mun verða falið að leýsa upp alla flokk'a, stofnanir og leynisam- tök, sem þjást af ofstækisfull- um hernaðaranda, endurskipu- EFTIR WU NAN-JU Eftirfarandi grein er eftir austurlenska blaðamann- inn Wu Nan-Ju, er ásamt fjölmörgum öðrum blaðamönn- um stendur að útgáfu tímaritsins „Free World“, sem gefið er út á mörgum tungumálum. Setur hann hjer fram skoðanir sínar á því, hversu best verði auðið að tryggja framtíðarfrið á Kyrrahafssvæðinu. Fyrri grein leggja skólakerfi landsins og fella úr kenslubókunum allan hernaðaráróður, láta japanska hernaðarsinna og herforingja, sem hermdarverk hafa framið, sæta verðskuldaðri refsingu, sjá um stjórn japanskra fyrirtækja og iðjuvera og beita framleiðslu þeirra til endurreisnar hinum eyddu hjeröðum í Kína. Öll fyr irtæki og mannvirki Japana í Manchuriu og öðrum hertekn- um hjeruðum Kínaveldis, skulu fengin Kínverjum í hendur. Stjórnarnefndinni bæri einnig að örfa frjálsa hugsun og lýð- ræðisanda meðal japönsku þjóðarinnar, sem kúguð hefir verið um svo langan aldur. I lok þriðja árs þessa tíma- bils ætti síðan að kveðja saman þjóðþing til þess að undirbúa þjóðaratkvæðagreiðslu um það, hvort þjóðin vildi fremur lýð- veldisstjórn eða þingbundna konungsstjórn. Örlög Japans- keisara skyldu ákveðin við þessa þjóðaratkvæðagreiðslu. Keisarinn ætti að vera inni- luktur eins og forfeður hans voru alt fram á miðja nítjándu öld, frá hinni skilyrðislausu uppgjöf japanska hersins og þar til þjóðaratkvæðagreiðslan færi fram. Veldi þjóðin lýðveldis- skipulagið, ætti hann þegar í stað að afsala sjer keisaratign. Ef þjóðin aftur á móti kysi þing bundna konungsstjórn, skyldi hún um leið ákveða, hvort hún vildi hafa núverandi keisara — sem ekki verður með öllu auð- ið að hreinsa af því að bera ábyrgð þessarar styrjaldar — eða einhvern annan af keisara- ættinni sem þjóðhöfðingja sinn. Afnema yrði þá keisaratitilinn og allar þær margvíslegu kredd ur og trú, sem við hann hefir verið iengd. Þjóðþingið ætti einnig að velja fulhrúa til stjórnlaga- þings. sem semja skyldi stjórn- arskrá innan þess ramma, er ákveðinn væri af þjóðþinginu. Alþjóðanefndin getur ekki af- hent Japönum stjórn lands þeirra aftur, fyrr en sett hefir verið á stofn í landinu lýðræð- isstjórn með stjórnskipulegum hætti. Vegna fylgispektar Thailend- inga við Japani í þessari styrj- Skift um husbónda Hundurinn, sem sjest hjer á myndinni að ofan, var einu sinni varðhundur japanskrar hersveitar einhversstaðar á Kyrrahafs- svæðinu. En hersveitin var sigruð og nú er hundurinn í þjón- ustu Bandaríkjamanna. Hinn nýi húsbóndi hans er með honum á myndinni. old, verða þeir að sæta sömu meðferð. Endurreisn Kína. •. KÍNA má styrkja svo, að það verði jafnvægiskraftur í Asíu. En hið nýja Kína verður þá að fá aftur öll sín lönd og sjálf- stæði. Kairoráðstefnan samþykti að mestu leyti rjett þess til fyrri landeigna. Landaendurheimtan getur þó ekki orðið fullkomin, nema Kínverjar fái aftur Hon- kong, sem Bretar fengu árið 1842, og Macao, sem Portúgalar hafa lengi ráðið yfir. Enda þóít Portúgal sje hlutlaust í þessari styrjöld og Bretar bandamenn Kínverja, ætti þó að leiðrjetta þetta misrjetti, til þess að forð- ast ágreining síðar meir. Samningar Breta og Banda- ríkjamanna við Kínverja, sem undirritaðir voru í janúar 1943, voru stórt skref í þá átt að tryggja Kínverjum óskoruð yf- irráð yfir landi sínu. Alt fyrir það hefir breska stjórnin ekki sýnt nein merki þess, að hún ætlaði að láta af hendi Kowlun hjeraðið, sem Bretar ióku á leigu til 99 ára k nóvember 1898 undir því yfirskini, að þeir þyrftu að vernda Honkong og vega upp á móti áhrifum Frakka, sem mánuði áður höfðu trygt sjer Kwang-Chow-Wan. Leiga þess var ásamt öðru átak anlegt dæmi um takmörkun á sjálfstæði Kína. Varnarleysi Kowlon kom glögt í Ijós, er hún varð að gefast upp fyrir Jap- önum innan tveggja vikna frá því er árás þeirra hófst, og gat þannig ekki varið sig sjálfa, hvað þá Honkong. Ásamt með þessum landsvæðum ætti einnig að afhenda Kínverjum járn- brautir þær, sem erlendar þgóð ir hafa lagt um land þeirra til hernaðarþarfa, og skal þar fyrsta telja Suður Manchuriu- járnbraulina. Það greiddist að nokkru úr vandamálinu varð- andi Austur-kínversku járn- brautina, þegar Rússar seldu ,.Manchukuo"-ána árið 1934. Þegar fulltrúar kínversku stjórnarmnar mólmællu sölu þessari við stjórnina í Moskva fengu þeir það svar, að þegar Kínverjar fengju Manchuriu,1 myndu þeir einnig eignast járn braulina. Gæfu Rússar því Kín verjum raunverulega járnbraut ina, en Ijetu Jápani borga brús- ann. "* Erlent fjármagn nauðsvnlegt. ÞEGAR árið 1921 benti Dr. Sun Yat-sen á það í bók sinni um „efling Kína á alþjóðlegum vetlvangi'-, að æskilegt væri að erlendu fjármagni yrði beint lil Kína, bæði’’ Kinverjum og fjáreigendum til hagnaðar, en þó með þeim takmörkunum, að það hefði ekki i för með sjer neina skerðingu á sjálfsákvörð unarrjetti þjóðarinnar. Kín- verska stjórnin hefir einnig um margra ára skeið talið slíka að- stoð bráðnauðsynlega fyrir þró- un viðskiftalífsins í landinu. Kinverjar yrðu að sjálfsögðu að halda landi sínu opnu til þess að örfa straum erlends fjármagns til landsins, en það gæti þó ekki útilokað kínversku stjórnina frá því að veita kín- verskum rikisborgurum nokk- ur sjerrjettindi í landinu fram yfir erlenda ríkisborgara. Kín- - verjar hafa enga tilhneigingu til þess að hindra frjáls alþjóða viðskifti, en þeir telja sig þó til neydda að leggja smávægi- lega tolla á erlendan varning til þess að vernda hinn unga og óþroskaða iðnað sinn gegn sam kepni erlendis frá. Kínverjar munu þó aðeins beita verndar- tollum fyrir smáiðnað sinn, sem hún vonast til að geti fullnægt þörfum þjóðarinnar. Varðandi allan þungaiðnað munu þeir þarfnast mjög mikils innflutn- ings erlendis frá. Það mun kosta feikilegt fjármagn að skapa fulla nýtingu á auðlind- um landsins og framleiðslugetu þjóðarinnar, og i sumum heim- ildum er áætlað, að taka muni að minsta kosti fimmtíu ár að hagnýta til fulls auðlindir lands ins. Um fimmtíu ára skeið mun því Kína með sínar 450.090.000 manna og 4.900.000 fermílna landsvæði, verða sem flói, sem þungaiðnaðarframleiðsla heims ins mun streymg í. Sjálfstæði Filippseyja, sem Bandaríkjamenn hafa hvað eft ir dhnað lofað þeim, er nú end- anlega ákveðið. Strax og styrj- öldinni lýkur, munu verða gerð ar ráðstafanir til þess að Fil- ippseyingar geti valið sjer það stjórnarfar, sem þeir helst óska eftir. Ef til vill verða Filipps- eyjar fyrsta Kyrrahafslýðveld- ið, sem velkomið verður boðið í fjölskyldu þjóðanna. Enginn vafi er á því, að fallisí mun verða á þá ósk Bandaríkjanna, að fá að hafa flotastöðvar á eyjunum. Umræðurnar um framtíðar- stöðu Indlands hafa ekki gengið eins hljóðalaust og æskilegt hefði verið. Indverskir þjóð- leiðlogar höfnuðu Crippstillög- unum, en sennilegt er, að breska stjórnin leggi þær aftur fram með einhverjum breyting- um við haganlegra tækifæri. Vonast er eftir því, að Indland vilji eiga hlut í hinni nýju frið- arskipan í Austur-Asíu, að minsta kosti með samveldis- landsaðstöðu, eins og loforð Cripps fólu í sjer. Á ráðstefnunni í Kairo var rætt um framtíð Koreu. Þannig var að orði komist í hinni sam- eiginlegu yfirlýsingu: ,,Áður- nefnd þrjú stórveldi eru minn- ug þess, hversu Kóreubúar hafa verið þrælkaðir, og ákveð- in í því, að Korea skuli verða frjálst og sjálfstætt riki, þegar tækifæri gefst“. Æskilegt væri þó, að Austur-Asíu- og Kyrra- hafsráðið yrði beðið að útnefna alþjóðlega nefnd Kcreustjórn til leiðbeiningar um stjói-nmála- leg og fjármálaleg vandamál, sem óhjákvæmilega hljóta að skapast á byrjunarstigum end- urreisnarinnar í landinu. Frjálslynd alhugun á því, hversu ráðstafa beri nýlendum þeim á Suðvestur-Kyrrahafi, sem Evrópuríkin áður áttu, en eru nú á valdi Japana, bendir helst á þá' lausn, að stofnað verði Indonesiaríki — sem nái yfir bresku Malaya, hollensku Austur-Indíur, portúgalska Timor, franska Indo-Kína og Thailand.— og væri því stjórn- Framhald á 8. síðu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.