Morgunblaðið - 02.07.1944, Side 4
4
MOa. GUNBLAÐIÐ
Sunnudagur 2. júlí 1944
Utg.rH.f. Árvakur, Reykjavík
Framkv.stj.: Sigfús Jónsson '
Ritstjórar:
Jón Kjartansson,
Valtýr Stefánsson (ábyrgðarm.)
Frjettaritstjóri: ívar Guðmundsson
Auglýsingar: Árni Óla
Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla,
Austurstræti 8. — Sími 1600.
Áskriftargjald: kr. 7.00 á mánuði innanland3,
kr. 10.00 utanlands
í lausasölu 40 aura eintakið, 50 aura með Lesbók.
Framtíð íslands
EKKl ÓSJALDAN sjáum við greinar í erlendum blöð-
um, þar sem verið er að fræða okkur og umheiminn á
því, hvað stórveldin hugsi sjer með ísland í framtíðinni.
Þannig birti Morgunblaðið nú alveg nýlega tvo kafla úr
grein amerísks blaðamanns, sem þykist vera gerkunnugur
því, sem leiðtogar bandamanna, þeir Roosevelt, Churchill
og Stalín ræddu um á ráðstefnunni í Teheran á s. 1. ári.
, Segir hinn ameríski blaðamaður, að þar hafi ísland borið
á góma og hafi niðurstaðan helst orðið sú, „að hinar sam-
einuðu þjóðir hefðu þar (þ. e. á íslandi) flota- og flug-
stöðvar — ef til vill styrktar með nokkrum herstyrk
Atiantshafsveldanna“.
Enda þótt við íslendingar tökum ekki slík skrif sem
þessi mjög hátíðléga, er ekki rjett að við látum þau með
öllu afskiftalaus, og það þótt því hafi síðar verið haldið
é.cam í amerískum blöðurn, að blaðamaður þessi hafi ekk-
ert við að styðjast í skrifum sínum.
★
Er þá rjett að segja það hreint út, að það verður aldrei
með viija íslendinga, að hjer á landi verði á friðartímum
hafðar flota- og flugstöðvar og því síður, að erlendur her
verði staðsettur í landinu.
íslendingar hafa hugsað sjer að eiga landið sitt sjálfir
og einir. Þegar þeir á sumrinu 1941 gerðu herverndar-
samninginn við stjórn Bandaríkjanna, voru af íslands
hálfu sett ýms ófrávíkjanleg skilyrði. Og fyrsta skilyrðið
var þetta:
„Bandaríkin skuldbinda sig tii að hverfa burtu af Is-
landi með allan herafla sinn á landi, í lofti og á sjó, undir
eins og núverandi ófrioi er lokið'*.
★
Halldór Stefánsson
læknir, sextugur
Á MORGUN 3. júlí ei' Ilall-
dór Georg Stefánsson lækiiir
60 ára. Ilalldór er sonur hjón-
anna Stefáns Jónssonar og
Margrjetar Eggertsdóttur, er
fæddúr í Litlu-Hlíð í Víðidal.
Ilann varð stúdent í júní 1902
og útskrifaðist úr læknadeild
Iláskóians 1907. —, Að prófi
loknu silgdi Iíalldór til
Kaupmannahafnar til fram-
haldsnáms, en hefir síðan 1908
stundað lækningar hjeriendis.
Ilálfa starfsæfina í erfiðum
hjeruðum Vestfjarða, en síð-
an 1928 starfandi læknir í
Reykjavík. —
Jeg sem þessar línur rita
hefi í öll þau 16 ár, sem Hall-
dór hefir starfað að lækning-
um í Reykjavík, ekið honum
aftur og fram um bæinn, þær
óteljandi nætur, sem hann
hefir vakað yfir lífi og heilsu
Reykvílkinga. — Á þessum
næturferðalögum okkar hefi
jeg kynst. Halldóri sem skemti
legum gáfumanni, fer einatt
hefir reynst auðvelt með
kýmni og fróðleik að stytta
ókkut' stundir á löngum vetr-
arnóttum.
Á Þessum merkisdegi í lífi
Halldórs læknis, óska jeg hon-
um til hamingju með liðna
tímann ög vona að haun vinni
Það er engin tilviljun, að þetta varð fyrsta skilyrðið af
íslands hálfu, er þeir gerðu herverndarsamninginn við
Bandaríkin. Sú þjóð, sem verður að þola erléndan her
í landi sínu á friðartímum, hlýtur fyr eða síðar að glata
sjálfstæði sínu. Og því smærri sem þjóðin er, því fyrr
myndi hún glata sjálfstæðinu.
Þess vegna munu íslendingar halda fast við það loforð,
sem stjórn Bandaríkjanna gaf þeim með herverndarsamn-
ingnum, að allur herinn hverfi úr landinu jafnskjótt og
stríðinu lýkur. Og Islendingar munu aldrei ótilneyddir
gangast inn á það, að annar erlendur her fái aðsetur i
landinu, eftir að he.r Bandaríkjanna er farinn.
Af þessu leiðir líka það, að þau mannvirki (flugvellir
o. fl.), sern reist 'hafa verið hjer á landi að undanförnu
af hernaðarnauðsyn, en þessi mannvirki má nota á frið-
artímum, verða þau eftir stríðið að vera eign íslendinga >
einna og rekin af þeim. Er nauð -ynlegt að íslendingar;
haldi fast á þessum rjetti sínum og hviki þar hvergi frá.
t*r
Hitt er íslendingum að sjálfsögðu ljóst, að þegar stór-
veidin lenda í ófriði, eru þeir alls ómegnugir að verja
land sitt, ef a það er ráðist af voldugu ríki. Islendingum
er einnig ljóst, að land þeirra er þannig sett, að ef til
ófriðar dregur milli stórveldanna, verði jafnan hætta á j
að ófriðaraðili ásælist landið. Og einmitt þess vegna fóru!
íslendingar inn á þá braut sumarið 1941, að gera her- j
verndarsamning við voldugt stórveldi. Með þeim samn-1
ingi töldu íslendingar sig vera að treysta framtíðar sjálf- J
stæði'landsins. Og íslendingar eru þess fullvissir, að þeir
geta í einu og öllu treyst því, að stjórn Bandaríkjanna
muni halda þann samning.
Á
Smáþjóðunum er nú að sjálfsögðu orðið fullljóst, að
hin svokallaða hlutleysisstefna, sem þær höfðu á oddinum
í fvrri heimsstyrjöld og ætluðu eínnig að fleyta sjer á nú,
er einskis virt af stórveldunum. Þessi stefna er því dauð
og grafin. Þess vegna verða smáríkift, þegar stórveldin
lenda í ófriði, jafnan að vera viðbúin að tryggja framtíðar
sjálfstæði lands síns, hvað sem yfir dynur. Þessa leið fóru
íslendingar nú og þykjast viturlega hafa farið að.
enn um árafjölda aú sínu erf-
iöa æfistarfi. ineú sömu elju
og dugnaði og hingað til.
Gunr.ar Ólafsson.
Sijcöisr ná Eng-
landsbanka
Fyrir skömmu ljet Moníague
Norman, aðalbankastjóri Eng-
landsbanka af störfum sakir
heilsubrests. Eftirmaður hans
sjest hjer á myndinni að ofan,
hann hekir Croft lávarður og
hafði lengi átt sæíi í aðalstjórn
bankans.
Glæsilegur kvenbún-
ingur.
Á HÁTÍÐAHÖLDUM 17. og 18.
júní sáust fleiri konur á íslensk
um skautbúningi, en venja er til
á mannamótum hjer hjá okkur.
Skautið er glæsilegur kvenbún-
ingur og fellegri skrúða getur ís-
lensk kona.ekki klæðst. Tísku-
drotningar stórborganna væru
sem fölnuð blóm við hliðina á
íslenskri konu í skautbúningi.
Það, sem athugulir menn tóku
sjerstaklega eftir í hátíðahöldun
um var, að það eru ekki einungis
eldri konurnar, sem eiga skaut-
búninga. Ungu konurnar höfðu
augsýnilega iíka komið auga á,
hve skautið er fallegur búning-
ur og klæddust margar skauti.
Það ætti að hefja skautið til
vegs og yirðingar hjer á landi og
það ætti að verða takmark hverr
ar íslenskrar konu að eignast
skautbúning og klæðast honum
við hátíðleg tækifæri. Það má
vera, að það sje nokkuð dýrt í
fyrstu að koma sjer upp fallegu
skauti, en það endist lengur en
híalínið, sem konur kaupa nú
fyrir mikið fje og fara í kanske
einu sinni á æfinni.
Það væri sannarlega vel við-
eigandi, einmitt nú, að íslenski
kvenbúningurinn yrði á ný haf-
in til végs og virðingar og þó
einkum skautbúningurinn á há-
tíðlegum stundum.
Þess er að vænta, að þær kon-
ur, sem eiga skautbúning, feli
hann ekki í fatageymslum sín-
um í framtíðinni.
•
Hjálpsemi.
ÞAÐ VAR EKKI fyr en nú
fyrir einum eða tveimur dögum
að jeg frjetti um hjálpsemi, sem
er þess verð að almenningur fái
um hana að vita. Öll þjóðin á
það í rauninni bæjarstjórninni á
Akranesi að þakka, að hægt var
að útvarpa lýsingu á hátíðahöld
unum á Þingvöllum 17. júní.
Þannig stendur á því, að raf-
magnsvjelar, sem búið var að
panta frá Ameríku og setja átti
upp á Þingvöllum fyrir 17. júní,
komu ekki til landsins í tæka tíð.
Var þá úr vanda miklum að ráða,
því ekki hefði vérið hægt að út-
varpa frá Þingvöllum og gera
margt annað, sem gera þurfti, ef
ekkert hefði verið rafmagnið.
En ]>á kom bæjarstjórnin á
Akranesi til hjálpar. Hún hafði
nýlega fengið vjelasamstæður tii
landsins frá Ameríku, sem nota
átti til að auka við rafstöðina á
Akranesi. Þurfti bærinn mjög á
þessum vjelasamstæðum að
halda. En er farið var fram á við
bæjarstjórnina, að hún lánaði
vjelasamstæðurnar til Þingvalla,
var það mál strax auðsótt.
Það hefðu ekki allir gert það,
sem bæjarstjórnin á Akranesi
gerði í þetta sinn. Hún gat átt á
hættu að verða fyrir gagnrýni
frá bæjarbúum fyrir tiltækið, én
Ijet það ekki á sig fá.
Hafi' bæjarstjórn Akraness
þökk fyrir hjálpina.
•
Einkennileg síma-
afgreiðsla.
ÞAÐ IIEFIR nokrum sinnum
verið á það minst hjer í dálkun-
um, hve mjög skortir á háítvísi
manna, þegar þeir nota síma. Erf
iðlega gengur að útrýma „hainu“
i símanum. Margir símanotendur
virðast hugsa þannig, að það sje
alveg óþarfi að vera kurteis í
síma, vegna þess að þeir sjáist
eliki.
En allra verst er ])ó þegar
símastúlkur hjá fyrirtækjum og
á opinberum stofnunum kunna
ekki að hegða sjer. Það kemur
oft fyrir að mönnum er svarað út
í hött og heyrnartólinu síðan
fleygt á, þegar hringt er til fyr-
irtækja, eða opinberar skrifstofu
og sjálfur hefi jeg- orðið fyrir því,
að vera látinn bíða von úr viti
í símg, eftir því hvort maðurinn,
sem jeg ætlaði að tala við væri
viðlátinn. Síminn, sem jeg not-
aði, „stóð í sambandi“ og gat jeg
því ekki hringt aftur og þurfti
að fara í annan síma til að fá
sambandinu slitið. Er jeg náði
loks í stúlkuna aftur fjekk jeg
þá skýringu, „að hún hefði
gleymt mjer“.
En það einkennilegasta fyrir-
brigði kom fyrir núna í vikunni.
Heilan morgun reyndi jeg að ná
sambandi við opinbera skrifstofu
hjer í bænum, en í hvert sinn,
sem síminn hringdi, var sam-
bandið rofið með því að heyrnar
tólið var tekið upp í númerinu,
sem jeg hringdi í, en ekki svarað
í símann! Það var hámark dóna
skapar, sem jeg hefi orðið var
við og kann jeg þó frá mörgu
misjöfnu að segja í þessum efn-
um.
Bók, sem allir ættu að
lesa.
SKÖMMU FYRIR 17. júnl
kom út bók á Akureyri og hjer í
bænum, sem jeg vil eindregið ráð
leggja mönnum að lesa. Er það
„Jón Sigurðsson í ræðu og riti“.
Vilhjálmur Þ. Gíslason skóla-
stjóri hefir annast val á efni í
bókina, en það er eins og nafnið
bendir til, úrval af verkúm Jóns
Sigurðssonar forseta. Sjálfur
skrifar Vilhjálmur formála að
bókinni. og inngang að köflum
bókarinnar.
Það hafa allir íslandingar gott
af að lesa rit Jóns Sigurðssonar,
en margir hafa ekki lagt út í það
vegna þess, hve óaðgengileg þau
hafa verið. En þarna fá menn í
einni bók alt það helsta, sem Jón
Sigurðsson skrifaði og ræddi. —•
Margar hugmyndir hans og fyrir
ætlanir eiga við enn þann dag í
dag og ættu að vera okkur Islend
ingum leiðarljós.
•
Maðurinn, sem undi\-
aðist.
KUNNINGI MINN, sem stund-
um hefir litið inn í skrifstofuna
til mín, en, sem jeg hafði ekki
sjeð lengi, kom til mín á dögun-
um. „Það er langt síðan jeg hefi
hitt þig“, sagði hann. „En það,
var einu sinni í fyra sumar að
þú birtir fyrir mig athugasemd
út af sóðaskapnum við Kalkofns-
veginn, þar sem gengið qr upp á
A.rnarhól, Núna undanfarið hefi
jeg verið að lesa lofgerðir í blöð-
unum um það, hve bæjarbúar
hafi brugðist vel við og gert
hreint hjá sjer fyrir þjóðhátíð-
ina. Þetta gladdi mig eins og
fleiri, því jeg hjelt, að rjett væri
farið með hjá blöðunum.“
„Jeg varð því ekki lítið undr-
andi í morgun er jeg gekk eftir
Kalkofnsveginum og sá allan
sóðaskapinn, alveg eins og var í
fyrrasumar.
Hvernig stendur á því, að ekki
skuli vera hreinsað til á þessum
stað?“
Því miður get jeg ekki svarað.
Afgreiðsla Heyrnarhjálpar,
Ingólfsstræti 16, verður lokuð
5.—12. þ. m. Notcndur Sonotone-
heyrnartækja eru vinsamlega
beðnir að athuga þetta og kaupa
þær rafhlöður, sem þeir kunna
að þurfa fyrir þann tíma.