Morgunblaðið - 07.07.1944, Side 2

Morgunblaðið - 07.07.1944, Side 2
2 MQRGUNBLAÐIÖ Föstudag'inn 7. júlí 1944 Virðuleg útför Guðmundar í GÆR var Guðmundur skáld Friðjónsson frá Sandi borinn til ^grafar, með mikilli viðhöfn, sem við átti, því með honum er til moldar hniginn einh hinn -stórbrotnasti og sjerkennileg- asti andans maður íslensku þjóðarinnar. Verður hans lengi mkist, sem eins þeirra manna, er hæst hjeldu uppi merki ís- lenskrar tungu, islenskrar bændamenningar og íslensks sjáifstæðis í orði og verki, alt frá því'hann ungur hóf ritstörf og þangað tíl ólæknandi sjúk- dómur bugaði hann fyrir ná- lega ári síðan, hafði hann þá lengi kent þeirrar vanheilsu er dró hann til bana. I þessari grein verður eigi gerð nein tilraun til þess, að draga upp mynd af persónu- lfeika skáldsins frá Sandi, eða sjerkennum í skáldskap hans. Mun einn af mikilhæfustu rit- hofundum landsins skrifa um Guðmund innan skamms fyrir blaðið í Lesbók. Guðmundur var fæddur 24. október 1869 að Sílalæk í Aðal- dtií. Faðir hans, Friðjón Jóns- son, flutti síðar að Sandi. Og þsr tók Guðmundur við búskap eftiL föður sinn. Þar var síðan heimili hans alla tíð. — Trygð hans við jörðina, sveitina, stað- iiiu, var alltaf einn sterkasti þátíurinn í skapgerð hans, hugs un hans og ritstarfi öllu. Þar barðist hann við kröpp kjör, við hhð ágætrar konu sinnar, Guðr. Oddsdóttur, og þar ólu þau upp bamahóp sinn, á þann hátl, sem til fyrirmyndar var. Skólamentunar naut Guð- mundur í Möðruvallaskóla árin 1891—1893 og ekki annarar. — En upp frá því gerðist hann um syífamikill rithöfundur og stóð oft um hann mikill slyrr í blöð- um og tímaritum landsins. — í rnörg ár hafði hann þann sið, .aÖTiann tók sig upp frá búi sínu og flutti fyrirlestra um ýms þjóðmál eða þær hugmyndir og hugsjónir, er hann bar fyrir brjósíi sjer, meðan hann sinnti búi sínu. Þótti hann stundum <Wæginn við menn og málefni, enda þannig' skapi farinn, að hatin kunni því best að eiga ekki aðeins í baráttu við óblíða riáfctúru landsins, sem hann uiuii hugástum, heldur varð hann samtímis að heyja bar- áttú á ritvellinum við mann- fóll-íið í landinu. Sá baráttuhugur hans hjelst fram til efri ára. Fyrsta kvæðabók hans kom út árið 1902 og hjet „Úr heima- bögum“. Méð bók þeirri skip- aði hann sjer á bekk með fremstu skáldum samtíðarinn- ar. NæstU ár gaf hann sig mikið að' . sagnagerð; En skáldskapur hans í óbundnu máli náði naum asfc' sv9 almennum vinsældum, a*us kvæðin. En að þessu verð- ur vikið síðar, sem fyr segir. Með Guðmundi er fallinn í vaiinn einn merkasti kvistur- írm á meið íslenskrar bænda- menningar á þessari öld. — En verk hans lifa. 'Frá útförinni. Húsavík, fimtudag. ÞAÐ LEYNDI sjer ekki, að sý.slungar Guðmundar lögðu á- herslu á, að útför hans yrði sem viröulegust. Á mánudaginn var lík hans á Sandi 8 synir hans báru kistuna úr garði flutt af sjúkrahúsinu í Húsavík- urkirkju. Söng þar karlakórinn Þrymur á Húsavík sálminn „Drottinn vaki“. í kirkjunni flutti Jóhann Haf stein lögfræðingur ræðu og las upp kvæði Guðmundar, „Brjef til vinar míns“, sem er eitt af fyrstu kvæðunum, er birtist eft- ir hann. Jakob Hafstein söng einsöng í kirkjunni: „Friðarins Guð“, en Friðrik A. Friðriksson flutti bæn. Að lokum söng kirkjukór Húsavíkur, Hærra minn Guð til þin. Þá var lík hins framliðna flutt frá Húsavík heim að Sandi. Nokkru fyrir hádegi í gær byrjaði fólk að safnast að Sandi. Þar kom saman um 600 manns, til þess að fylgja skáld- inu til grafar. Voru þar kaffi- veitingar fyrir alla sem að garði komu, áður en húskveðja fór fram. I upphafi húskveðjunnar var sungið ,,Hin langa þraut er lið- in“. Þá flutti sr. Friðrik A. Frið riksson prófastur húskveðjuna. Talaði hann m. a. um.raunsæ- ismanninn og trúmanninn Guð- mund Friðjónsson. A eftir ræðunni var sungið kvæðið Páskadagsmorgunn, eft ir hann. Þá flutti Júlíus Hav- steen sýslumaður ræðu, þar sem hann m. a. þakkaði hinu látna skáldi fyrir áhrif hans á menningarsögu Þingeyinga. En síðan var sungið: „Þú bláfjalla geimur“. Síðan flutti Steingrím ur Baldvinsson í Nesi kvæði, þá Arnfríður frá Skútustöðum annað kvæði, þá söng kirkju- kórinn kvæði eftir Valtý son Guðmundar heitins. Þá var hús kveðjuathöfninni lokið. ★ Átta synir Guðmundar heit- ins báru nú kistu hans úr garði að bíl, er slóð við túngarðinn. ★ Síðan hjelt líkfylgdin til Nes- kirkju í Aðaldal. Kirkjan var fagurlega skreytt. Hafði kven- fjelag Aðaldæla annast skreyt- inguna. Kirkjuathöfnin hófst með því að kórinn söng „I hendi Guðs er hver ein tíð“. Því næst flutti Karl Kristjánsson ræðu. Talaði hann-um skáldskap Guðmund- ar frá fyrstu tíð og fram til síð- ustu daga. Þá var sungið kvæðið ,,Þing- eyjarsýsla", eflir Guðmund, undir laginu „Eitt er landið ægi girt“. Því næst flutti Sigurður á Arnarvatni kvæði. Þá var sung inn sálmurinn „Lýs milda ljós“. Þá flutti sr. Þorgrímur Sig- urðsson aðal kirkjuræðuna. — Lagði hann út.af fyrra korinthu brjefi, 13. kap., 11.—12. versi. Þá flutti Þóroddur Guðmunds- son kveðju frá konu og börn- um skáldsins. En að endingu frá las Konráð Vilhjálmsson Hafralæk kvæði. Síðan var sungið ,,Alt eins og blómstrið eina“, er kistan var borin úr kirkju. Nágrann- ar Guðmundar og aðrir kunn- ingjar báru hann úr kirkju. Sr. Þorgrímur jarðsetti. En meðan fólkið var að ganga frá gröf- inni, söng kórinn í kirkjunni „Faðir andanna“. Kirkjukór Húsavíkur annað- ist allan sönginn. ★ Blómsvgigar bárust margir, m. a. frá ríkisstjórninni, Rithöf- undafjelaginu og Mentaskóla Akureyrar. Áletrun á þeim blómsveig var: ,,Þökk fyrir ís- lenskuna“. Frá sambandi norð- lenskra kvenna og frá kvénfje- lagasambandi þingeyinga. Með- an húskveðjan fór fram á Sandi, var þoka og rigning, og rigndi óvenjulega mikið um tíma. En á meðan líkfylgdin var á leiðinni lil kirkjunnar, birti til og var komið skínandi sólskin er þangað kom. Yfir allri útför þessari var mikill hátíðablær, og verður hún öll- um viðstöddum minnisslæð. Í.R.-ingar á Vestfjörðum í sólskini og sumarblíðu ÍÞRÓTTAFLOKKUR í. R„ sem ferðast hefir um Vestfirði, kom til bæjarins s. 1. miðviku- dagskvöld eftir 16 daga ferða- lag. Blaðamenn áttu í gær tal við formann fjelagsins, Þorstein Bernharðsson, og fararstjóra flokksins, Gunnar Andrew, um «íþr þessa, sem er önnur fjöl- mennasta íþróttaför, sem far- in hefir verið hjer innanlands. í förinni tóku þátt 38 manns, þar af 20 stúlkur. Stjórnandi fimleikanna var Davíð Sigurðs son, íþróttakennari. Á Vestfjörðum sýndu í. R.- ingarnir fimleika og kepptu í frjálsum íþróttum og hand- knattleik kvenna. Á Isafirði var sýnt tvisvpr sinnum og far ið í sýningarferðir til Bolunga- víkur, Hnífsdals, Suðureyrar, Flateyrar og Þingeyrar. — Auk þess ætlaði flokkurinn að sýna í Súðavík, en gafst ekki tími til þess. — Keppni í frjálsum íþróttum við ísfirðinga unnú í. R.-ingar, en biðu algeran ó- sigur í handknaítleik. — Als- staðar, þar sem flokkurinn kom fjekk hann mjög ánægjuleg- Framh. á 4. síðu- Fjölbreyfit úfiiskemt- un Hrings n lnugnr- dng og sunnudng NÆSTKOMANDI laugardag og sunnudag mun Kven- fjelagið Hringurinn halda útiskemtun í Hljómskálagarð- inum til ágóða fyrir barnaspítalasjóð sinn. Fjelagið hefir haldið slíkar skemtanir á undanförnum árum og bæjar- búar sýnt skilning sinn á starfi þess með því að fjölsækja skemtanirnar. Svo mun enn verða. Formaður fjelagsins, frú Ingibjörg Þorláksson, mun setja skemtunina, en síðan leikur Lúðrasveitin Svanur þjóðsönginn. Þá mun ungfrú Katrín Thoroddsen læknir flytja stutt erindi. Lúðrasveitin Svanur mun og leika í garðinum. Á sunnudaginn heldur skemt unin áfram kl. 14.00. Þá mun Valdemar Björnsson sjóliðsfor ingi flytja ávarp, en kl. 17.00 talar sjera Jón Thorarensen. Auk þess, sem talið hefir ver ið, verður margt annað til skemtunar. I gríðarstóru tjaldi verða margskonar leikir (veð- hjól og fleira), og geta tugir manns í einu tekið þátt í þe.im. Mestan hluta beggja dagana verður dansað á stórum palli. Kl. 20.30 bæði kvöldin verða sýndir norskir þjóðdansar með fiðluundirleik, á danspallin- um. Ekki þarf að taka það fram, að dynýandi músik verður í há- vegum höfð. Þá má ekki gleyma kvenfjelagskaffinu og heima- bökuðu kökunum, sem menn geta fengið keypt í rúmgóðum tjöldum. Merki Hringsins verða seld á götunum og auk þess í sjer- stökum tjöldum í garðinum. í sumum þeirra verða eingöngu seld merki, en í öðrum jafn- framt alskonar sælgæti. í tjöid um þessum muriu einnig fást happdrættismiðar. Dregið verð ur um marga ágæta muni, m. a. Singer-saumavjel, en sauma vjelar eru nú algerlega ófáan- legar, og sumarhús, sem flytja má á bíl, hvert sem er. Er það aðallega ætlað börnum til leiks. Snorri Halldórsson húsa- smíðameistari hefir gefið fje- laginu hús þétta. Hefir hann ætíð reynst fjelaginu frábæri-. lega vel. Húsið verður til sýnis í garðinum, og verða í því seld ir happdrættismiðar. — Dregið verður 1. ágúst. Skemtun í Tripolileikhúsinu. Kl. 20.15 verður haldin skemtun til ágóða fyrir barna- spítalasjóðinn í Tripoli-leik- húsinu við Melaveg. Verða skemtiatriði þessi: Hljómsveit ameríska flugliðsins leikur nokkur lög. Sgt. Reino Luoma leikur á flygel. Ljek Luoma á amerísku sýningunni í Sýning- arskála myndlistarmanna í vet ur. Er hann afbragðsgóður pía nóleikari, sem marga mun fýsa að heyra. Þá syngur einsöng sgt. Albert Basso. Nína Sveins dóttir og Lárus Ingólfsson syngja tvísöng úr óperettunni „í álögum“ með undirleik Fritz Weisshappel. Valdemar Björns son sjóliðsforíngi talar. Cor- poral Webster leikur á pianó. Að lokum verður dans úr revýunni „Alt í lagi, lagsi“, ungfrúrnar Herdís Þorvalds- dóttir og Guðrún Guðmunds- dóttir. Tripoli-leikhúsið er prýðis- vel fallið til tónleika, og er ekki að efa, að hvert sæti verður skipað á skemtuninni. Menn ættu að tryggja sjer aðgöngu- miða í tíma, en þeir fást í Bókaverslun Sigfúsar Eymunds sonar til hádegis á morgun, en eftir þann tíma í merkja- og sælgætistjöldunum í Hljóm- skálagarðinum. Árangur af fjársöfnuninni til barnaspítalans hefir orðið mjög góður, og hafa hinar árlegu skemtanir gefið mikinn arð, enda hefir velvild Reykvíkinga Verið með afbrigðum mikil í garð þessa þjóðþrifamálefnis, svo sem raunar hefir komið fram gagnvart öðrum góðum málefnum. Hringurinn hefir notið fá- dæma velvildar og hjálpsemi margra aðilja, fyrst og fremst Bandaríkjahersins hjer á landi og æðstu yfirmanna hans. Yf- irmafeur flughersins, Tourtellot hershöfðingi, lánaði Tripoli leik húsið endurgjaldslaust og leyfði auk þess ýmsum ágætum skemti kröftum úr ameríska flughern- um að koma þar fram á skemt- un. Mr. Williams, yfirmaður ameríska Rauða krossins, sýndi þá rausn auk margskonar að- stoðar annarar, að gefa þi'jú veðhjól, sem höfð verða í sjer- stöku tjaldi. Er ekki að efa að að þeim verður mesta skemtun. Valdimar Björnsson sjóliðsfor- ingi ætlar að halda ræðu í Hljómskálagarðinum á sunnu- dag og koma fram á skemtun- inni í Tripoli leikhúsinu um kvöldið. Bæjarstjórn Reykjavíkur hef ir lagt fjelaginu hinn mesta stuðning og sýnt því velvild eins og áður, með því að ljá því afnot Hljómskálagarðsins. Alþingi sýndi á sínum tíma þá rausn að undanþiggja gjafir í barnaspítalasjóðinn skatti, og hefir sú ráðstöfun aflað fjelag- inu mikilla tekna. Innan fjelagsins starfar fjár- öflunarnefnd til barnaspítala- sjóðsins, og mun hún senda fjársöfnunarlista til atvinnurek enda úti á landi. Vafalaust mun söfnun einnig ganga vel þar, því að allír vita, að barnaspít- alinn er ekki einkamál Reyk- víkinga, heldur mál allra lands manna. Hjúskapur. Nýlega voru gefin saman í hjónaband Guðríður Guðmundsdóttir píanóleikari, Barónsstíg 11 og Kári Sigurðs- son, bankafulltrúi. — Heimili ungu hjónanna er á Hverfisg. 41.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.