Morgunblaðið - 07.07.1944, Blaðsíða 12
12
Leikvöllum fjölgi.
Borgarsfjéra
falið málið
Svohljóðandi tillaga var sam
þykt á bæjarstjórnarfundi í
gær:
„Bæjarstjórn- felur borgar-
stjóra að láta halda áfram að
koma upp barnaleikvöllum, og
ákveður að leita skuli álits
fræðslufulltrúa bæjarins um
stjórn á daglegum rekstri leik-
vallanna".
Tillaga þessi var borin fram
sem breytingartiltága við til-
lögu frá frú Katrínu Pálsdótt-
ur um sama efni, og samþykt
rneð 8 gegn 3 atkvæðum komm
únista.
, Nokkrar umræður urðu um
málið.
Frú Katrín vildi að sjerstök
stjórnarnefnd yrði sett yfir
leikvællina. En borgarstjóri
taldi tormerki á því, enda hefði
verið horfið frá þeirri skipan á
stjórn bæjarmálanna. að hafa
h'ana í höndum margra ólaun-
aðra nefnda. Vildi heldur að
fræðslufulltrúi bæjarins legði
á ráðin í þessu máli. Ef hann
liti svo á, að sjerstök nefnd
væri æskileg, þá mætti athuga
þ’að síðar.
Frú Katrín Pálsdóttir mintist
•og á það, að fyrir nokkru hefði
kömið til orða, að Sumargjöf
yrði falin umsjón með leikvöll-
unum. En það fjelag mun nú
þegar hafa tekið sjer ærin verk-
efni til úrlausnar.
Borgarstjóri rakti í aðaldrált
um hvað gert hefði verið í leik-
vallamálinu undanfarin ár,
hvaða vellir hafa verið gerðir
eg hvaða velli eigi að gera næst.
Alls eru þeir 8, sem nú eru
starfræktir. En í ráði er að gera
nýjan leikvöll við Hringbraut,
og annan við Freyjugötu. Mest
þorf ér fyrir nýja leikvelli í
norðurhluta bæjarins, nálægt
Vesturgötu og Hverfisgötu. Þar
er bygðin einna þjettust. En þar
hafa ekki fengist enn hentug
svæöi fyrir slíka velli.
Er á það Var minst, hve
mörg börn eru í bænum á þeim
aldri, að þau sæki leikvelli, var
á það bent af borgarstjóra, að
margt af þeim börnum, sem á
heima í þeim hverfum, þar sem
íóðir eru rýmstar, hafi þar svo
mikið svigrúm, að þau þurfa
lítt á leikvöllum að halda.
Frú Katrín Pálsdóttir bar
fram tillögu um það, að hugsað
verði til þess að rúm verði fyrir
barnadagslofur í hinum tilvon-
andi bæjarhúsum, svo mæður,
sem búa í húsum þessum, geti
komið börnum sínum í þessar
barnastofur, meðan þær stunda
ýmsa vinnu á daginn.
Var tiliögu þessari vísað til
bæjarráðs.
Nýju vjelarnar
í Ljósaiossslöðinni
BORGARSTJÓRINN skýrði
frá því á bæjarstjórnarfundi í
gær, að talið væri víst að nýju
vjelarnar í Ljósafossstöðinni
myndu geta komist í notkun í
næstu viku, en um það var
spurt í einu dagblaðanna í gær,
hvað því máli liði.
Er í ráði að bæjarfultrúarnir
fari austur að Ljósafossi, þegar
vjeiarnar verða komnar í lag.
HÚSGÖGN Jóns Sigurðssonár, forseta., Þeim er komið
fyrir líkt og þau munu hafa staðið á heimili hans í Kaup-
mannahöfn. Á veggjunum eru myndir, sem voru í eigu hans.
SNORRI STURLUSON og munkur að skrifa. Myndir,
eftir Jón Þorleifsson úr Þjóðveldistímabilinu á Söguöldinni.
Það verða allir Reykvíkingar að sjá sögusýninguna.
Samkomulag í deilu
vörubílstjóra
SAMKOMULAG náðist í gær í kaupdeilu vörubílstjóra. Hafði
sáttasemjari ríkisins, Jónatan Hallvarðsson, unnið að því að
koma á sættum í deilunni og tókst honum að ná samkomulagi
í gær milli Vinnuveitendafjelags íslands og vörubílstjórafje-
lagsins Þróttar.
Samkvæmt áður gildandi
samningi var kauptaxti vöru-
bíla miðað við núgildandi vísi-
tölu, sem hjer segir:
Bílar án afhleðsluvjela kr.
17.04 pr. klst. En bílar með
afhleðsluvjelum kr. 18.65 pr.
kl.st.
En samkvæmt hinum nýja
samningi verður kauptaxtinn
þessi, miðað við sömu vísitölu
(268):
Bílar án afhleðsluvjela, alt
að tveggja tonna stærð, kr.
17.04 pr. kl.st. n bílar með
afhleðsluvjelum, 2 og 2 V2 tonna,
kr. 19.45 pr. kl.st.
Washington í gærkveldi: De
Gaulle hershöfðingi kom hing-
að í kvöld og mun ganga á fund
Roosevelts forseta á morgun.
— Reuter.
Fimlelkasýning K. R.
á íþróttavellinum
í KVÖLD verður fimleikasýn
ing á íþróttavellinum hjer í
Reykjavík.
Eru það fimleikaflokkar úr
K. R., sem ætla að sýna þar. —
Hefst athöfnin með skrúðgöngu
frá Austurbæjarskólanum suð-
ur á völl, en Lúðrasveitin Svan
ur leikur í broddi fylkingar. —
Sýningarnar á vellinum hefjast
kl. 9 e. h. Verður fyrst sýning
drengjaflokks undir stjórn
Vignis Andrjessonar, íþrótta-
kennara. Hefir flokkur þessi
þegar getið sjer hins besta orð-
stírs. Sýndi hann m. a. s. 1.
sunnudag á Akranesi við ágæt-
ar undirtektir áhorfenda.
Bæjarsfjórnarfundur
kvikmyndaður
Þegar bæjarfulltrúarnir komu
upp í Kaupþingssal í gær, til
að sitja fund, var Loftur Guð-
mundsson þar fyrir með stóra
rafmagnslampa og kvikmynda-
tæki.
Erindi hans var það, að taka
Ikvikmyndir af fundinum. Verða
| þessar fundarmyndir feldar inn
1 í kvikmynd sem hann vinnur
! að og sýna á fyrst og fremst
i ýmiskonar starfsemi bæjarfje-
j lagsins.
Færeyskl liskiskip
strandar í Seyðisfirði
Seyðisfirði í gær. — Frá
frjettaritara vorum-
FÆREYSKA fiskiskipið „At
lantic“ frá Fuglafirði strandaði
hjer í Seyðisfirði í nótt.
Rendi skipið á land í Skála-
nesbjargi og brotnaði í spón. -—
Orsök slyssins var blindþoka,
svo ekki sá handa skil. Sjór var
ládauður og tókst því skipbrots
mönnum auðveldlega að bjarga
sjer á skipsbátnum í land, en
það hefði getað orðið mjög erf-
itt, ef eitthvað hefði verið að
sjó.
,,Atlantic“ var 82 smálestir
að stærð. Var skipið á útleið
með fullfermi af ísfiski. Skip-
stjóri þess var Peter Dahl.
Dokforsvörn Sigurð-
ar Þórarinssonar
Frá utanríkisráðuneyt-
inu, 5. júlí.
Föstudaginn 26. maí s. 1.
varði M. Sigurður Þórarinsson,
fil. lio., doktorsritgerð um Þjórs
árdal og eyðingu hans, við
Stokkhólmsháskóla. Viðstaddir
doktorsvörnina var herra Vil-
hjálmur Finsen sendifulltrúi ís-
lands og nærri allir Islendingar
í Stokkhólmi, auk fjölda ann-
ara. Andmælendur voru próf.
Lennart von Post, Sven Jan-
son, sem áður var sendikennari
í Reykjavík, og norski rithöf-
undurinn Sigurd Boel.
Bók dr. Sigurðar heitir á
sænsku „Thjorsárdalur och dess
förödelse“ og fjallar um rann-
sóknir norrænna fornfræðinga
og náttúrufræðinga í Þjórsár-
dal sumarið 1939.
★
Göteborgs-Posten birti föstu
daginn 26. maí grein, sem nefn
ist „Island blir republik“, eftir
Sölva Blöndal, fil. kand.
Svifsprengjurnar
falla slöðugl
London í gærkveldi:
Svifsprengjur hafa haldið á-
fram að falla hjer á borgina
í allan dag og hafa orðið af því
skemdir og manntjón, eins og
að undanförnu. Nokkrum svif-
sprengjum hefir verið grandað,
sumum af orustuflugvjelum og
einstaka skotin niður. Orustu-
flugvjelar eru stöðugt á verði
gegn vágestum þessum, bæði
nætur og daga. — Reuter.
Föstudaginn 7. júlí 1944
Sundflokkur K. R.
fer til Norðurlands
Sundflokkur úr K. R. leggur
af stað á morgun í sundför til
Norðurlands. Þátttakendur í
förinni eru 25. Þar á meðal
bestu sundmenn og sundkonur
fjelagsins. Fararstjóri er Jón
Ingi Guðmundsson, sundkenn-
ari.
Fyrst verður farið til Akur-
eyrar og hafðar þar sundsýn-
ingar og sundkeppni og síðan
til Siglufjarðar. Verður senni-
lega sýnt á Akureyri á mánu-
dagskvöld og á miðvikudags-
kvöld á Siglufirði. Sýndur verð
ur sundknattleikur og fleira,
en keppt í ýmsum sundgrein-
um. — Sennilega ferðast flokk
urinn eitthvað um Eyjafjörð og
sýnir þar ef til vill. A heim-
leiðinni kemur hann við x
Varmahlíð og sýnir þar. Hann
kemur svo aftur til bæjarnis
á sunnudagskvöld í næstu viku.
Kveðjur fil Háskóla
íslands frá amerísk-
um háskólum
FULLTRÚI Vestur-íslend-
inga á lýðveldishátíðinni, pró-
fessor Richard Beck, hafði með
ferðis hingað til lands kveðjur
frá þremur háskólum vestan
hafs: Cornell-háskóla í Ithaca,
N. Y„ ríkisháskóla Norður
Dakota í Grand Forks, þar sem
Beck er prófessor, og Maniloba
háskóla í Winnipeg. Senda há-
skólar þessir Háskóla íslands
vinsamlegar kveðjur og árnað-
aróskir og minnast tengsla
sinna við íslendinga vestan hafs
og við Háskóla íslands.
í brjefi Manitobaháskóla er
þess getið, að í Winnipeg sjeu
fleiri íbúar af íslensku kyni en
í nokkurri annari borg í heimi,
að Reykjavík undanskilinni. Af
þeim ástæðum og til eflingar
rannsóknum í samanburðarmál
fræði ætlar háskólinn að setja'.
á stofn kennarastól í íslenskri
tungu og íslenskum bókment-
um. 1
Próf. Beck flutti rektor há-
skólans kveðjur þessar ásamt
kveðju frá Þjóðræknisfjelaginu
s. 1. miðvikudag í hátíðasal há-
skólans, að viðstöddum biskupn
um, dr. Sigurgeir Sigurðssyni,
kennurum háskólans og nokkr-
um gestum.
Sóknin hægari
á Ífaiíu
London í gærkveldi.
Sókn bandamanna á Ítalíu
var hægari í gær en dagana á
undan. Hafa Þjóðverjar hert
varnir sínar víðasthvar, en þó
hefir verið sótt nokkuð fram,
einkum á vesturhluta vígstöðv-
anna. ÁRundi herinn nálgast
Aresso, en heldur hægt, því
Þjóðverjar hafa mjög hert vörn
sína fyrir sunnan borg þessa og
einnig fyrir norðan Sienna, sem
Frakkar tóku á dögunum. — Á
strönd Adriahafsins hefir lítið
verið barist tvo síðustu daga og
víglínan ekld breyst sjerstak-
ega. •— Flugvjelar bandamanna
gera margar atlögur að stöðv-
um Þjóðverja víða um Balkan-
skagann. — Reuter.