Morgunblaðið - 09.07.1944, Qupperneq 1
31. árg-angur,.
151. tbl. — Sunnudaginn 9. júlí 1944.
Isafoldarprentsmiðja h.f,
ALSHERJARATLAGA BYRJUÐ AÐ CAEN
Þjóðverjar yfirgefa
Það er Shirley
Baranovichi
Rússar við úlhverfi Vilna
London í gær. Einkaskeyti til Morgunblaðsins
frá Reuter.
ÞÝSKA HERSTJÓRNIN tilkynti í dag, að herir Þjóðverja í
Baranovichi, hinni þýðingarmiklu samgöngumiðstöð, sem mjög
hefir verið barist um að undanförnu. hefðu í morgun ýfirgefið
borgina og hörfað vestur ábóginn. Einnig herma frjettir Þjóð-
verja, að Rússar sjeu komnir að úthverfum borgarinnar Vilna.
Þá hafa Rússar að sögn frjetta
ritara, rofið Varsjá-Leningrad
járnbrautina og gerir það lið-
sveitum Þjóðverja í Eystrasalts
löndunum mjög mikið erfiðara
fyrir um alla aðflutninga.
Bardagar eru stöðugt mjög
harðir á orustusvæðunum og
hörfa Þjóðverjar hvarvetna und
an, þó undanhaldið sje ekki
eins hratt og áður.
Flugherir beggja hafa sig
mjög í frammi við árásir á bak
stöðvar og liðflutninga að víg-
stöðvunum. Fyrir sunnan Bar-
anovichi er sögð geysa stóror-
usta.
Sex kérar með 300
fjelaga eru nú í
Barisl við hraðbáta
á hverri nóltu
London í gærkveldi.
Hraðbátar Þjóðverja leggja
nú til atlögu við herskip banda
manna á hverri nóttu, er þeir
reyna að komast að flutninga-
flota bandamanna við Frakk-
landsstrendur. Hafa orðið þarna
margar og harðar viðureignir,
en mjög óhægt að gera sjer
hugmynd um tjón, þar sem all
ar viðureignir fara fram í níða
myrkri. I nótt sem leið voru
einnig slíkar viðureignir víðs-
vegar um Ermarsund og við
Frakklandsstrendur.
— Reuter.
Já, það er sem okkur sýnist.
Þetta er hún Shirley litla
Tcinple, kvikntyndaleikkona.
Ilún er nú byrjuð að leika full-
orðins hlutverk í kvikmyndum
og fyrsta myndin hennar eftir
að hún var orðin stór, heitir
,,Síðan þú fórst í burtu“.
Aðalfundur Leikfjelags Reykjavíkun
Sex leikrit tekin til
meðferðar á árinu
AÐALFUNDUR Leikfjelags Reykjavíkur var haldinn í
gærkveldi. Formaður fjelagsins, Valur Gíslason, gaf bráða-
birgðaskýrslu um störf fjelagsins á leikárinu. Tekin voru
til meðferðar* 6 leikrit, samtals 99 sýningar. Leikritin voru
þessi: „Ljenharður fógeti“, „Jeg hef komið hjer áður,“
„Vopn guðanna“, „Pjetur Gautur“ (í samvinnu við Tón-
listafjelagið), „Paul Lange og Thora Parsberg“ og barna-
leikritið „Óli smaladrengur“.
Aðalfundur Lands-
sambands bland-
aðra kóra og kvenna
kóra:
5. AÐALFUNDUR Landssam
bands blandaðra kóra og
kvennakóra var haldinn í Rvík
dagana 5. og 6. júlí.
A fundinum mættu 8 full-
trúar frá 6 kórum. Einn nýr kór
bættist í sambandið, Samkór
Reykjavíkur. Eru nú 8 kórar í
sambandinu og kórfjelagar als
um 300.
Til söngkenslu hafði verið
varið á árinu kr. 1.650,00 og til
útgáfu sönglagaheftis krónur
750,00 og áður hafði L. B. K.
gefið út annað sönglagahefti.
Áætlað er að á næsta ári
verði kr. 6.000,00 varið til söng
kenslu og til sönglagaheftis kr.
1.800,00.
Allmiklar umræður voru um
eflingu blandaðs kórsöngs og í
þeim umræðum kom meðal ann
ars, hjá sumum fundarmönn-
um, fram nokkur udrun yfir
því að þjóðhátíðarnefndin
skyldi ekki leita til L. B. K. um
einhverskonar aðstoð við söng
Framhald á 8. síðu.
Þegar tekið er tillit til þess,
hve umfangsmikil og dýr leik-
rit voru tekin til meðferðar,
má fjárhagsafkoma fjelagsins
teljast góð, tekjur og gjöld
stóðust nokkurn veginn á.
Endurskoðaðir reikningar
fjelagsins lágu ekki fyrir á
fundinum, en þeir verða lagðir
fram á framhaldsaðalfundi
fjelagsins, sem haldinn verður
í haust.
Tillögur um lagabreytinga1’
konni fram á fundinum, en af-
greiðslu þeirra vhr frestað til
framhaldsaðalfundar.
I fundarbyrjun miniitist
form. Emils Thoroddsens, en
hann hafði verið meðlimur
fjel. frá 1928 og unnið mik-
ið og þarft verk í þágu þess.
Risu fundarmenn úr sætum
í virðingarskyni við .hinn
látna.
Þá fór fram stjórnarkosning.
Valur Gíslason, sem verið hefir
formaður fjelagsins í 3 ár,
liaðst eindregið undan endur-
kosningu, en lagði til, að
Frli. á 4. síðu.
Undirbúin og studd
með miklum loftárásum
London í gær. Einkaskeyti til Morgunblaðsins
frá Reuter.
Bretar og Kanadamenn hafa nú hafið allsherjaratlögu að
Caen, að því er fregnritarar á vígstöðvunum halda fram. Var
árás þessi undirbúin með stórkostlegri loftárás á stöðvar Þjóð-
verja fyrir norðan bæinn, en síðan sótti fótgöngulið bandamanna
fram. Hafa þegar verið tekin 4 þorp og eru framsveitir sóknar-
hersins nú um 3—5 km. frá Caen. Bardagar eru mjög harðir,
en talið að sóknin gangi að óskum.
Harðir bardagar
við Aresso
London í gærkveldi:
Orustur á Italíu eru nú hvar
vetna harðar, en magnaðastar
þó við Aresso, þar sem stór-
skotalið Þjóðverja lætur mikið
að sjer kveða. Svo má að orði
kveða, að varla hafi neinar
breytingar orðið á aðstöðunni
á Italíu síðastliðinn sólarhring.
Viðnám Þjóðverja er og
mjög öflugt á Adriahafströnd-
inni og gera þeir þar gagná-
hlaup þar í ákafa. Við vestur-
ströndina eru einnig grimmi-
legar orustur háðar en þar hef-
ir fimta hernum tekist að þok-
ast nokkuð áfram, þrátt fyrir
öflugar gagnárásir Þjóðverja.
Mikið er hvarvetna um stór
skotaliðsviðureignir. — Þjóð-
verjar eru farnir að gera loft-
árásir á næturþeli á stöðvar
bandamanna nærri Adriahafs-
ströndinni, en flugvjelar banda
manna beita sjer nú einkum að
olíustöðvum í Mið-Evrópu. —
Þjóðverjar segja að banda-
menn hafi um tíma komist inn
í Aresso, en verið hraktir það-
an aftur. — Reuter.
Ráðisi að svif-
sprengjustöðvum
London í gærkveldi:
Ráðist var á svifsprengju-
stöðvar í Calaishjeraði í dag og
einnig á ýmsar aðrar stöðvar
Þjóðverja í Norður-Frakklandi.
Voru þarna að verki allstórir
hópar amerískra stórsprengju-
flugvjela, varðir fjölda orustu-
flugvjela.
Að minsta kosti sjö svif-
sprengjustöðvar sáust og var
varpað að þeim sprengjum í
sæmilegu skygni. Sumir flug-
vjelaflokkarnir lentu í slæmu
veðri og þoku. — í nótt rjeðust
einnig breskar flugvjelar á svif
sprengjustöðvar sunnar í Frakk
landi. — Reuter.
450 sprengjuflugvjelar.
Seint í gærkveldi var sókn-
arundirbúningurinn hafinn,
með því að 450 Lancaster- og
Halifaxsprengjuflugvjel. vörp-
uðu 2300 smálestum af sprengj
um á varnarstöðvar Þjóðverja
fyrir norðan Caen. Komu upp
miklir eldar á ársáarsvæðinu.
Síðan hafa flugvjelar Breta
stutt herinn í sókninni og er tal
ið að gerðar sjeu atlögur á
stöðvar Þjóðverja á aðeins
stundarfjórðungs fresti.
Grimmileg stórskotahríð.
Eftir að flugvjelarnar voru
farnar, hóf stórskotalið Breta
mikla skothríð á stöðvar Þjóð-
verja, og er hún hafði staðið
alllengi, ruddist fótgönguliðið
fram. Var mótspyrna lengi vel
ekki mikil, en fór síðan stórum
harðnandi og eru nú háðar meg
inorustur. — Einn fregnritari
segir, að menn skuli varast of-
bjartsýni, oft hafi þegar verið
sótt að Caen án árangurs. Bret
ar hafa gert loftárásir á brýr
yfir ána Orne, til þess að
hindra aðflutning skriðdreka
til Caensvæðins.
Bandaríkjamenn taka þorp.
Bandaríkjamenn hafa tekið
þorpið St. Jean de Daye í sókn
sinni suðvestur af Carentan, en
þar er víglína þeirra handan
árinnar Vire nú um 5 km. breið
og sótt hafa þeir fram lengst
rúma 3 km. — Við La Haye
segjast Þjóðverjar hafa eytt
innikróaðri sveit Bandaríkja-
manna, felt 300 menn, en tekið
70 fanga. — F‘yrir austan Haye
hefir vígstaðan ekkert breytst,
en þar er nú samfelld víglína
suður og vestur á bóginn, en
þungum hergögnum verður
trauðla beitt vegna fenja og
mýra mikilla, sem á þessu
svæði eru.
Flu^íappi fallinn.
London; Þýska útvarpið til-
kynti fyrir skömmu, að Alois
Lechner frægur þýskur flug-
maður, er hlotið hafði miklar
nafnbætur, hafi fallið í loftbar
daga.
Ifa&Ífi: ■