Morgunblaðið - 12.07.1944, Page 12
12
Miðvikudagur 12. júlí 194|
Sfærsfa íþrótfahús
landsins
á LaagarvatBÍ
BYRJAÐ er nú á miklum
byggingarframkvæmdum á
Laugarvatni, í sambandi við
hinn væntanlega íþróttaskóla
íslands, sem þar á að verða.
Blaðið hefir snúið sjer til
byggingarmeistara ríkisins,
próf. Guðjóns Samúelssonar og
skýrði hann blaðinu m. a. svo
frá:
— Þar á að rísa stærsta í-
þróttahús landsins, sem notað
verður við starfsemi Iþrótta-
skóla íslands, og eru bygging-
arframkvæmdir þegar hafnar.
Þá verða reistir búnings- og
baðklefar; þá verður gamla
sundlaugin lagfærð, bað og
fataklefar verða smíðaðir.
Kennaraíbúðir og heimavist
nemenda verða undir sama
þaki, en íbúð kennara verður
í sjer álmu út frá aðalhúsinu.
Gert er ráð fyrir að 20 nem-
endur verði í hverri heimavist.
Ein kennaraíbúð er þegar smíð
uð, en síðar í sumar verður, að
öllum líkindum, ráðisf í að
byggja annað hús fyrir kennara
og nemendur.
Veslman naeyinga r
æfla að koma upp
kúabúi
Frá frjettaritara
vortim í Vestmannaeyjum.
Hjer eru nú um 230 kýr. —
Kúadauði hefir .lengi verið hjer
mjög' mikill og hafa á s. 1. ári
drepist 18 kýr úr þessum bráða
kúadauða. Hjer er nú staddur
Pjetur Sigurðsson frá Rann-
sóknarstofu Háskólans, til þess
að rannsaka þenna kúadauða
og annað, er viðkemur naut-
griparækt.
Bæjarsjóður hefir ráðið Gunn
ar Hlíðar ffá, Akureyri, sem
dýraiækni hjer og á hann jafn
framt að vera heilbrigðisfull-
trúi. Vegna hins mikla mjólk-
urskorts, hefir bæjarstjórn á-
kveðið að reisa í Dölum, jörð,
s'em bæjarsjóður keypti á síð-
asta ári, 50 kúa f-jós með til-
heyrandi nauðsynlegum mann-
virkjum. Teikningu af þessum
mannvirkjum hefir Teiknistofa
landbúnaðarins gert. Byrjað er
á framkvæmdum, en þetta eru
miklar byggingar og ólíklegt að
þær verði tilbúnar að verulegu
gagni fyrr en langt er liðið á
haust. Kostnaður mun vart
verða minni en 200—300 þús.
krónur.
Skipsfjóri frá Vest-
mannaeyjura slasasf
ÓSKAR GfSLASON, skip-
stjóri frá Vestmannaeyjum,
slasaðist á götu hjer í bænum
í fyrradag. Var hann að um-
flýja bíl og fjell við það á göt-
una og meiddist mikið.
Óskar kom hingað í fyrradag
á skipi sínu, ,,Álsey‘‘ frá Vest-
mannaeyjum, og var á leið norð
ur til veiða.
Við skipstjórn á Álsey tekur
Eyþór Hallsson, skipstjóri frá
Síglufirði.
Komungur flugmaður
Drengurinn hjerna á myndinni er ckki nema átta ára og mun
vera yngsti flugmaður í heimi. En kennara hans, sem er með
faonum á myndinni, finst hann fljúga ágaetlega, að sögn. —Þeir
eiga heima í Ameríku.
Ánnar dagur Allsherjarmóts Í.S.Í.
*
Settvoru tvö Islandsmet
og eitt drengjamet
K. R. hefir flest stig
ALLSHERJARMOT I. S. I.
hjelt áfram á íþróttavellinum í
gærkveldi. Gunnar Huseby (K.
R.) setti glæsilegt nýtt íslands-
met í kúluvarpi, varpaði 15.50
metra. Er þetta besta afrek í
frjálsum íþróttum á íslandi,
gefur 977 stig. Ennfremur setti
hann nýtt met. í kúluvarpi
beggja handa, varpaði saman-
lagt 26.78 metra. — Þá setti
Óskar Jónsson (I. R.) nýtt
drengjamet í 1500 m. hlaupi,
hljóp á 4-17.4 mín. — Úrslit
urðu annars sem hjer segirí
Kúluvarp: 1. Gunnar Huse-
by (K. R.) 15.50 m. 2. Jóel Kr.
Sigurðsson (í. R.), 13.65 m. 3.
Bragi Friðriksson (K. R.) 12.61
m. 4. Sigurður Sigurðsson (í.
R.) 11.93 m. — Fyrra íslands-
metið í kúlunni, 15.32 m., setti
Gunnar á 17. júní mótinu. —
Þetta er besti árangur í kúl-
unni á Norðurlöndum í sumar.
Beggja handa metið var 26.61
m., sett af Gunnari í fyrra.
Gunnar Huseby.
son (í. R.) 18.3 sek. 4. Oddur
Helgason (Á) 18.4 sek. — Tími
Skúla er sami og íslandsmet
Ólafs Guðmundssonar (K. R.),
Hástökk: 1. Skúli Guðmunds
son (K. R.) 1.92 m. 2. Óliver
Steinn (F. H.) 1.75 m. 3. Jón
Hjartar (K. R.) 1.70 m. 4. Bryn
jólfur Jónsson (K. R.) 1.70 m.
200 m. hlaup: 1. Finnbjörn
Þorvaldsson (í. R.) 23.4 sek. 2.
Óliver Steinn 23.8 sek. 3. Kjart
an Jóhannsson (I. R.) 23.9 sek.
4. Brynjólfur Ingólfsson (K.
R.) 24.2 sek.
Sundflokkur K. R,
á Akureyri
Frá frjettaritara vorum.
Akureyri í gær.
SUNDFLOKKUR Knatt-
spyrnufjelags Reykjavíkur kom
til Akureyrar að kvöldi laug-
ardags 8. þ. m. Framkvæmda-
stjóri flokksins er Jón Ingi Guð
mundsson, en í förinni eru auk
hans 24 konur og karlar.
Knattspyrnufjelag Akureyr-
ar tók á móti flokknum og lýsti
ánægju sinni yfir för hans til
Norurlands. Sjer K. A. um dvöl
flokksins, meðan hann er á Ak-
ureyri.
Á sunnudaginn, kl. 16, sýndi
svo flokkurinn sundleikni sína
í sundlaug bæjarins. Fór þar
fram meðal annars innbyrðis
kepni í boðsundi, sundknattleik
og ýmsum öðrum sundíþrótt-
um. Þótti áhorfendum stórmik-
ið til koma.
Á mánudagskvöldið var svo
önnur sundsýning á sama stað.
Keptu þá Akureyringar í boð-
sundi kvenna og karla, og sigr-
uðu Reykvíkingar.
Ennfremur keptu þeir Sig-
urður Jónsson frá Ysta Felli í
Suður-Þingeyjarsýslu, er hjer
var staddur, og Sigurður Jóns-
son, Islandsmeistari, sem sigr-
aði hinn fyrrnefnda með mjög
litlum mun.
Að lokum kvaddi Ólafur
Magnússon sundkennari á Ak-
ureyri sjer hljóðs og þakkaði
hinum sunnlensku sundgörpum
fyrir hina glæsilegu för til Ak-
ureyrar. Var þá hrópað ferfalt
húrra fyrir aðkomuflokknum.
I dag fara sundmennirnir í
boði K. A. í skemtiferð í Vagla-
skóg.
Laitdbúnaður
í Veslmannaeyjum
Vestmannaeyjum í gær. —
Frá frjettaritara vorum.
SLÁTTUR hófst hjer um
Jónsmessu og hefir nokkuð ver
i$5 hirt af heyi. Tún ’mega heita
vel sprottin. Mjög miklir
þurkar hafa verið hjer í vor, en
fyrir nokkrum dögum brá til
úrkomu, sem mikil þörf, var á,
þar eð garðar og tún voru orð
in mjög þurr. — Nú er aftur
sól og blíða.
Nokkuð hefir verið brotið af
landi í vor, bæði í Botninum og
dölum og hefir þegar verið sáð
í 4 ha. í Botni. — Hjer er lítil
trú á hinu ameríska grasfræi,
sem helst hefir verið á boðstól-
um. Hefir það viljað deyja út
þegar á fyrsta ári.
Sjóorusta
á Ermarsundi
1500 in. hlaup: 1. Hörður
Hafliðason (Á) 4:16.6 mín. 2.
Sigurgeir Ársælsson (Á)
4:16.8 mín. 3. Óskar Jónsson
(í. R.) 4:17.4 mín. 4. Haraldur
Björnsson (K. R.) 4:25.4 mín.
— Óskar setti þarna ágætt nýtt
drengjamet. Gamla metið,
4:25.6 mín., setti Óskar í fyrra.
110 m. grindahlaup: 1. Skúli
Guðmundsson (K. R.) 17.0 sek.
2. Brynjólfur Jónsson (K. ft.)
18.0 sek. 3. Finnbjörn Þorvalds
10 km. ganga: 1. Sverrir
Magnússon (Á) 61:35.6 mín. 2.
Steingrímur Atlason (F. H.)
64:21.2 mín.
Stigin standa þá þannig: K.
R. 64 stig, í. R. 53 stig, F. H.
41 stig og Ármann með 30 stig.
Mótið heldur áfram í kvöld.
Hefst kl. 8.30 e. h. Verður þá
kept í 4x100 m. boðhlaupi,
spjótkasti, 400 m. hlaupi, þrí-
stökki, 5000 m. hlaupi og
sleggjukasti,
London í gærkveldi.
I tilkynningu frá flotamála-
stjórninni í kvöld er skýrt frá
,því, að bresk smáherskip hafi
á sunnudagsmorgun s.l. hitt
fyrir fjóra vel vopnaða þýska
togara, útaf Ilollandsströnd-
um. Tókst þegar orusta milli
bresku og þýsku skipanna.
Einum þýskum togara var
sökt og annar laskaður mikið.
Bresku skipin urðu ekki fyrir
neinu tjóni.
Skemfiferð Heim-
dallar um helgina
SUMARSTARFSEMI Heim-
dallar hefst um næstu helgi,
með því að efnt verður til hóp-
ferðar til Akraness.
Lagt verður af stað með m.b.
Víði frá Loftsbryggju kl. 14 og
18 á laugardag. Á Akranesi
taka bílar við fólkinu'og flytja
það að skemtistað Sjálfstæðis-
manna á Akranesi, Ölveri.
Um kvöldið verður dansleik-
ur á stórum palli. Á sunnudags
morguninn verður aftur ferð
upp eftir klukkan 11 frá Lofts-
bryggju.
Rjett eftir hádegi á sunnudag
hefjast ræður og hljóðfæraslátt
ur að Ölveri. Síðan verður dans
að.
Að Ölveri er mjög skemtileg
ur veitingaskáli, þar sem seld-
ar eru veitingar, matur og sitt-
hvað fleira. Þá geta þeir, sem
koma upp eftir á laugardag,
reist tjöld á staðnum og legið
þar við um nóttina.
Allar nánari upplýsingar um
ferðina eru gefnar í skrifstofu
Sjálfstæðisflokksins, Thorvald-
sensstræti 2, sími 2339.
Sjálfstæðismann ættu að til-
kynna þátttöku sína í förinni
sem allra fyrst.
Slátlur byrjaður
SLÁTTUB mun nú yfii'leitt
byrjaður um land alt, en þó.
ekki af fulum krafti, því að,
ullartaka stendur nú sem,
hæst. Spretta mun þó í rýr-
aralagi víða. Verst mun sprett
an vera á Austur- og Norður-
landi, enda hefir verðráttaa
verið köld þar. Hjer á Suð-
urlandi hafa tún farið mjög
fram síðustu daga og eru víða
orðin sæmileg. Á hinum þur-
lendu jörðum í Skaftafells-
sýslu, austan Mýrdalssands er,
spretta rýr; sumstaðar er jörð
þar kalin grasmaðks hefir þar,
orðið vart. í Mýrdal er spretta
mikið betri, en þó ekki góð«
, Erfiðlega gekk hjá bændum,
nú sem fyr, að fá nægan
vinnukraft um sláttimi. Ráðn-
ingarstofu landbún að a rin s
tókst ekki nándar nærri að
fá ])að kaupafólk, sem um var
beðið.
Veiðimálanefnd fer
til Auslurlands
VEIÐIMÁLANEFND mun
fara austur á land á næstunni
til að leiðbeina veiðifjelags-
skap þar eystra, sem vinnur að
því að koma laxi í vötn um-
hverfis Lagarfljót. Mun nefnd-
in athuga laxastiga og ræða
ýms fiskiræktarmál við fje-
lagsmenn. Fundir munu verða
haldnir að Egilsstöðúm.
Nefndin hefir undanfarin
sumur ferðast um landið til
þess að veita ýmsar leiðbein-
ingar um veiðimál. í fyrra átti
nefndin viðræður við veiðifje-
lagsmenn við Laxá í Þingeyj-
arsýslu.
í nefndinni eiga sæti: Árni
Friðriksson fiskifræðingur,
Pálmi Hannesson rektor og
Steingrímur Steinþórsson bún-
aðarmálastjóri.