Morgunblaðið - 09.08.1944, Blaðsíða 1
BANDAMENN SENDA LIÐ í SVIF-
FLUGUM TIL LEIRUÓSA
Litlar breytingar við
prússnesku landa-
mærin
London í gær. Einkaskeyti til Morgunblaðsins
frá Reuter. •
RÚSSNESKA HERSTJÓRNARTILKYNNINGIN í kvöld
minnist ekkert á bardagana við landamæri Austur-Prússlands,
nje heldur við Varsjá, en kveður Rússa hafa fært út kvíjarnar í
Suður-Póllandi; þar sem rússneskir herir eru komnir yfir Vislu-
fljótið. ,
Þjóðverjar segja í tilkynn-
ingu sinni frá miklum bardög-
um austan landamæranna og
kveðast ennfremur hafa lokið
við að uppræta innikróað rúss-
neskt lið fyrir austan Varsjá.
Sókn í Eystrasaltslöndunum.
Þá kveðast Rússar hafa
hrundið miklum áhlaupum. er
herir Þjóðverja í Leltlandi og
Eistlandi hafi gert til þess að
komast suður á bóginn og hafi
orusturnar staðið í þrjá daga.
Þjóðverjar hafa ekki minnst á
þessar hersveitir sínar um' nokk
uð langan tíma, en lausafregn-
ir segja alltaf að verið sje að
flytja þær á brott sjóleiðis.
Litlar breytingar.
Fregnritarar segja orusturn-
ar nærri landamærum Þýska-
lands mjög harðar, en eins og
herstjórnartilkynningar aðila
bera með sjer, hafa breytingar
orðið litlar sem engar þarna,
og ekki heldur við Varsjá —
Rússar kveðast hafa tekið olíu-
borg eina suður við Karpata-
fjöll.
Engar fregnir hafa borist um
bardaga á finsku vígsíöðvun-
um.
Átta þýskir her-
forragjar dæmdir |
og heugdir í gær |
London í gær. Einkaskeyti til Morgunblaðsins
frá Reuter.
I DAG var upp kveðinn dauðadómur yfir átta þýskum her-
foringjum. Var það þjóðrjettur, sem kvað upp dóminn og voru
allir hinir ákærðu dæmdir til dauða, og skyldu þeir hengjast,
þar sem þeir voru of illir til þess að vera skotnir. Var dómnum
fullnægt tveim klukkustundum síðar. Meðal hinna dæmdu var
von Witzleben marksálkur. Fimm samsærismenn bíða dóms.-
Það hefir komið fram í rjett
arhöldunum, að samsærismenn
byrjuðu að ráða ráðum sínum
seint á árinu 1943. Voru þá að-
al_ forgöngumennirnir Stieff og
Treschow hershöfðingjar, en sá
síðarnefndi stjórnaði þá liði á
Austurvígstöðvunum. Fóru þeir
brátt að athuga, hvernig-koma
mætti Hitler fyrir kattarnef, og
var upphaflega ætlunin að láta
hermann bera tímasprengju
við herskoðun, þar sem Hitler
rannsakaði lið, en þessu var
breytt, og tók þá Steuffenberg
að sjer að koma sprengju í
skjalatösku inn til Hitlers.
Sögðu samsærismenn, að þeir
Japanar smeykir
llinn nýi forsætisráðherra,
Japana flutti ræðu í dag, þar
hann sagði, að hernaðarað-
staða þjóðarinnar væri afar
erfið og hættuleg á ýmsan
hátt og yrðu allir Japanar
að leggja mjög hart að sjer
og margfalda afköst sín, ef
sigur ætti að falla þjóðinni í
skaut í stju’jöld þessari. Þá
drap ráðherrann einnig á það
sem til mála hefir komið, að
alþýða manna í Japan yrði
vopnuð,
DroHning í einn
dag
Þau eru ekki tilvonandi hjón,
þessi ungu hjer að ofan á mynd
unum, nei, síður en svo. Ungi
maðurinn á neðri myndinm dul
bjó sig sein unga stúlku og leit
þá út, eins og efri myndin sýn
ir. Tók hann þátt í fegrunarsam
kepni í Suður-Californíu, en
þegar hann var í þann veginn
að fá verðlaun, nenti hann ekki
að dyljast lengur.
Orustur rjena
á Ítalíu
London í gærkveldi: —
Það er nú ekki hægt að segja,
að bardagarnir á vígsvæðinu á
Italíu geti talist meira en skær-
ur §inar, enda eru nú herirnir
algerlega aðskildir af ánni
Arno, og skiptast aðallega á stór
skotum, bæði nærri Florens og
á öðrum stöðum vígstöðvanna.
Þjóðverjar halda stöðugt
uppi skothríð á bandamenn af
hæðunum fyrir norðvestan Flor
ens, en víðar á vígstöðvunum
er þ^að einkum stórskotalið
Þjóðverja, sem lætur til sín
taka, enda hefir það góða að-
stöðu. — Reuter.
Gagnsókn Þjóðverja ú Hortain
gengur hægt
London í gærkveldi. Einkaskeyti til Morgun-
blaðsins frá Reuter.
EINN af frjettamönnuxn þýsku frjettastofunnar á víg-
stöðvunum í Frakklandi, segir frá því í kvöld, að banda-
menn hafi sent allmikið lið-í svifflugum til Leiruósa, til
þess að aðstoða skriðdrekaliðið í sókninni, — og eru þarna
miklar bardagar.
Gagnsókn Þjóðverja, sem stefnt var vestur til sjávar,
til þess að einangra skriðdrekalið Bandaríkjamanna á
Bretagneskaganum, hefir ekki borið tilætlaðan árangur.
Þjóðverjum tókst að sækja nokkuð fram í byrjun og ná
borginni Mortain, en svo gerðu bandamenn gagnáhlaup
og eru enn háðir miklir bardagar þarna.
Stjórnarskifti
í Finnlandi
London í gærkveldi: —
Þýska frjettastofan flytur í
kvöld þá fregn, að fyrrverandi
utanríkismálaráðherra Finna,
Anti Hackzell hefði í dag mynd
að nýja ríkisstjórn, þar sem ann
ar fyrrverandi utanríkisráð-
herra, Carl Enckell fer með ut-
anríkismálin.
Það var Enckell, sem fór með
Paasikivi í síðustu samninga-
umleitanaferðina til Moskva.
— Ekki var skýrt frá nöfnum
fleiri ráðherra. — Reuter.
Fiotaforingi fyrirfer
sjer
Washington í gærkveldi:
Einkaskeyti til Morgunblaðsins
frá Reuter.
Pardee Moon flotaforingi í
Bandaríkjaflotanum, sá er
stjórnaði flotadeild þeirri, er
tók þátt í innrásinni í Frakk-
land, andaðist á laugardaginn
var. Að því er virðist fyrirfór
hann sjer vegna mikillar stríðs
þreýtu. Þetta var tilkynt opin-
berlega í Bandaríkjunum í dag
af James Forrestal, flotamála-
ráðherra. Það var í orustunum
um Charbourg-skagann, sem
flotadeild Moon ljet aðallega til
sín taka.
Lissabon: Fyrir skömmu síð-
an brann stærsta seglskip, sem
smíðað hefir verið í Portúgal.
Var það 1600 smál. að stærð og
hjet Marianele. Var það á leið-
inni frá Bandaríkjunum til
Lissabon, er eldur kom upp í
því úti á miðju Atlantshafi.
Enn sókn við Caen.
Kanadamenn byrjuðu einu
sinni enn í morgun sókn fyrir
suðvestan Caen og urðu orust-
ur harðar. Sóknin var undirbú
in með miklum loftárásum
breskra sprengjuflugvjela, en
síðar um daginn komu amerísk
ar flugvjelar til skjalanna
þarna. Lengst hafa Kanada-
menn sótt fram um 7 km. á
þessum slóðum og er harkan
mikil í orustunum.
Á Bretagneskaga.
Hafa breytingar ekki orðið
miklar í dag. Bardagar eru háð
ir um 9 km. frá St. Malo, þar
sem Þjóðverjar verjast af
hörku. Einnig er barist í sömu
fjarlægð frá herskipalæginu
Bretst, og Bandaríkjamenn
nálgast Lorient. Hafa sjest
merki þess, að Þjóðverjar eyði-
leggi mannvirki í þeirri borg.
I áttina til Parísar.
Bardagar eru og harðir hjá
borgunum Laval og Mayenne,
en aðstaða herjanna þar hefir
lítt breytst. Eru báðir aðilar að
endurskipuleggja sveitir sínar,
eftir miklar orustur undan-
farinna daga.
Fólk flutt úr tyrk-
neskum borgum
Tyrkneska þjóðþingið sam-
þykti í dag að veita stjórinni
fult vald til 1 ess að láta flvtja
fólk á brott ú öllum stærstu
borguni landsins, Konstanti-
nopel, Ankara, Smyrna og
fleiri 'borgum. Reuter.
Svört herfylki.
London: Tilkynnt hefir verið
í Höfðaborg, að yfir 30 þúsund
innbornir Afríkumenn sjeu í
herþjónustu fyrir Lreska heims
veldið, undir stjórn breskra
liðsforingja.