Morgunblaðið - 09.08.1944, Page 2
2
MObGUNBLAÐIÐ
Miðvikudagur 9. ágúst 1944,
Forseti heimsækir Siglu.t\örb,
Flólmavík, ísafjörð,
Patreksfjörb og Stykkishólm
Templarar heimsóttu
Vestfirði í fögrum
sumarskrúða
Helgi Helgason segir frá
SKEMTIFÖR Þingstúku Reykjavíkur til ísafjarðar
tókst svo vel, sem frekast var á kosið, sagði Helgi Helga-
son verslunarstjóri, er blaðið bað hann um að segja ferða-
söguna.
— Lagt var af stað með Esju klukkan 7 á laugardags.
kvöldið. Þátttakendur voru um 300, og komust ekki allir
með, sem vildu. Um kvöldið skemmti Brynjólfur Jóhann-
esson leikari og Lúðrasveit Reykjavíkur, sem var með í
förinni.'
Frá frjettaritara vorum.
| ^ Siglufirði 5. ágúst.
ÆGIR renndi hjer að bæjar-
bryggjunni kl. 4 með forseta
íslands. Karlakórinn Vísir fagn
aði forsetanum með söng. Heið-
urshlið var reist á bryggjunni
ofarlega með áletruninni: „Vel-
kominn forseti Islands", í fána-
litunum, en yfir því merki
Siglufjarðar; þrjár síldar og
lyngsveigur utan um. Bæjar-
fógeti bauð forsetann velkom-
inn með ræðu; sem forseti svar-
aði með stultri ræðu og þakk-
aði, en mikill mannfjöldi, sem
viðstaddur var, hylti forseta.
Forseti fylgdist svo með bæj-
arfógeta og báru íþróttamenn
þrjá fána fyrir, en mikill mann
fjöldi fylgdi eftir í skipulegri
göngu. Bærinn allur er fánum
skreyttur.
Eftir að forsetinn hafði dval-
ist um stund hjá bæjarfógeta,
sýndi bæjarstjóri bæjarstjórn
og verksmiðjustjórnin honum
síldarverksmiðjurnar. — Síðan
fór bæjarstjórn með forseta
á Siglufjarðarskarð.
Forseti snæddi kvöldverð í
boði bæjarsljórnar klukkan 7
ásamt helstu borgurum. Klukk-
an hálf níu safnaðíst mikill
xnannfjöldi við hús Þormóðs
Eyjólfssonar, en þar var snætt.
Kom þá flokkur skáta og hyltu
þeir forseta með fánakveðju.
Stóðu síðan heiðursvörð þar
hjá.
Bæjarstjóri ávarpaði forseta
með stuttri ræðu en forseti
þakkaði með snjallri ræðu, en .
fólkið hylti hann og lítil stúlka
rjetti honum fagran blómvönd.
Vísir söng nokkur lög.
Að því búnu skoðaði forset-
inn kirkjuna og sjómannaheim-
ili Siglufjarðar. Forseti fór hjeð
an kl. 10 með Ægi, en mikill
mannfjöldi fylgdi honum til
skips. Þar kvaddi Vísir forset-
ann með söng, en mannfjöldinn
hylti hann.
Hótmavík.
Til Hólmavíkur kom forset-
inn á sunnudag með varðskip-
inu Ægi. Jóhann Salberg Guð-
mundsson, sýslumaður Stranda
sýslu og sýslunefndin, tóku þar
á móti honum á bryggjunni. —
Skátár stóðu heiðursvörð.
Síðan var farið til sýslu-
mannshússins, og bauð sýslu-
maður forseta velkominn með
ræðu, en forseti þakkaði. For-
seti settist svo að kaffidrykkju
með sýslumanni og sýslunefnd
armönnum. Undir borðum
flutti sjera Jón Guðnason
ræðu.
Forseti skoðaði þorpið að lok
inni kaffidrykkju, en fór svo til
skips. Þar flutti sýslumaður
kveðjuorð, en þorpsbúar hyltu
forseta.
ísafirði í gær. 8. ágúst.
Frá frjettaritara vorum.
FORSETI íslands kom hing-
að kl. 10 árd. í gær. — Skátar
stóðu heiðursvörð með íslenska
fána, þegar Ægir renndi að
bryggjunni. Bæjarfófeti bauð
forseta velkominn og síðan var
gengið til húss Jónasar Tóm-
assonar bóksala. Hafði forseta
verið valinn ræðustaður af
svölum hússins. Gengu þeir þar
fram forseti og bæjarfógeti. —
Hyllti mannfjöldinn forseta, en
bæjarfógeti bauð forseta vel- j
kominn. ,
Síðan gekk forseti aftur heim
Mintist hann starfs og forystu
Jóns Sigurðssonar og ýmsra
þjóðnytjamanna, sem átt hefðu
upptök sín hjer, hvatti til sam-
heldni og eindrægni og bað
menn minnast ísafjarðar og
kjördæmis Jóns Sigurðssonar.
Sunnukórinn, stjórnandi
Jónas Tómasson söng þjóð-
sönginn, minni ísafjarðar og Til
fánans. Var síðan ekið í bifreið
um til Birkihlíðar í Tunguskógi,
skólasels Gagnfræðaskólans og
þar sest að te- og kaffiborði.
Bæjarstjóri bauð forseta vel-
kominn. Ræður fluttu sr. Jón-
mundur Halldórsson af hálfu
sýslunefndar Norður-ísafjarðar
sýslu, Ólafur Ólafsson skólastj.
Þingeyri, af hálfu sýslunefnd-
ar V.-ísafjarðarsýslu og Hanni-
bal Valdimarsson skólastjóri,
fyrir bæjarstjórn Isafjarðar,
Halldór Kristjánsson, Kirkju-
bóli, ■ flutti forseta frumort
kvæði.
Viðstaddir hófið fýrir forseta
voru: Bæjarfulltrúar hjer,
sýslunefndarmenn Norður- og
Vestur-ísafjarðarsýslu, ásamt
bæjarfógeta og oddvita sýslu-
nefndarmanna, Sig. Bjarna-
son alþingismaður, bæjar-
stjóri, sóknarprestur og hjeraðs
læknir. Veðurblíða var mikil og
bærinn fánum skreyttur. Frá
húsi Tryggva Jóakirnssonar
þvert yfir Aðalstræti, var fest-
ur hvítur borði áletraður: Vel-
kominn. forseti íslands. Öll
vinna í bænum feld niður um
daginn.
Forseti þakkaði viðtökur með
ítarlegri ræðu. Þegar staðið var
upp frá borðum, skoðaði forseti
skrúðgarð Símons ljósmyndara
og skrúðgarð Blóma- og trjá-
ræktarfjelags ísfirðinga, þeg-
ar í bæinn var komið. Síðan var
ekið til skips. Fór forseti hjeðan
um kl. hálf þrjú.
Patreksfirði 7. ágúst.
Frá frjettaritara vorum
FORSETI íslands kom hing-
að kl. 20 í gærkvöldi í blíðskap
ar veðri. Sýslumaðurinn, Jóh.
Skaftason, tók á móti forseta á
bryggju og var hún öll fánum
skrýdd. Hópur skáta myndaði
raðir lil beggja handa. — Ung
stúlka færði forseta blómvönd.
Eftir þetta fór forseti heim
til sýslumannshjónanna, en það
an var haldið til hins nýja
sjúkrahúss, sem á að fara að
reisa'. Var þar komið saman
afar mikið fjölmenni, sumt lang
leiðis að. Sýslumaður tók fyrst
til máls og skýrði í stuttu máli
frá tildrögum þessarar miklu
byggingar og las hann skjal
með lýsingu á þessu, er látið
var í hornsteininn. Að því búnu
lagði forseti hornstein hússins
og ávarpaði viðstadda.
Síðan gekk forseti aftur heim
til sýslumanns og dvaldist þar
um stund, en heimsótti síðan
aldraða frændkonu sína, Júlí-
önu Jónsdóttur, systur Björns
Jónssonar ráðherra. — Dvelur
hún nú að heimili dóttur sinn-
ar Halldóru og Ara manns henn
ar. Hún er tæplega níræð, en
furðu hress til líkama og sálar.
Hún hafði ekki hitt frænda sinn
í 34 ár.
Um kl. 22 höfðu sýslunefndir
kaffiboð inni í samkomuhúsinu
Skjaldborg fyrir forseta og var
þar saman komið margt manna
af ýmsum stöðum. Sýslumað-
urinn, Jóhann Skaftason stýrði
hófinu og hjelt ræðu, en auk
hans töluðu þar þeir Friðþjófur
Ó. Jóhannsson, varaoddviti, sr.
Sig. S. Haukdal prófastur í
Flatey á Breiðafirði og sr. Ein-
ar Sturlaugsson, sóknarprestur
að Patreksfirði.
Að boði loknu var forseta
fylgt til skips og kom saman
mikill mannfjöldi til þess að
kveðja hann og óska honum
heilla. Kl. 22.30 lagði Ægir frá
bryggju við húrrahróp og árn-
aðaróskir allra viðstadjra.
Stykkishólmur:
Forseti kom til Stykkishólms
í gær kl. 14. Fjöldi fólks hafði
safnast saman á bryggjunni og
skátar stóðu þar heiðurs-
vörð. Sýslumaður bauð for-
seta velkominn með ræðu, en
forseti þakkaði. Kl. 16 ávarpaði
sýslumaður forseta fyrir fram-
an sýsluskrifstofurnar að við-
stöddum fjölda fólks. Síðan
hjelt forseti ræðu. I gærkveldi
sat hann kvöldverð í þarnaskól
anum, sem hreppsnefnd og
sýslunefnd hjeldu honum. —
Sýslumaður setti hófið. Kristj-
án Bjartmar oddviti Sty^kis-
hólmshrepps flutti ræðu. Ald-
ursforseti sýslunefndar, Kristj-
án Þorleifsson frá Grund tal-
aði fyrir minni forseta. Sjera
Jósep Jónsson, prófastur að Set
bergi t^laði fyrir minni íslands.
Aðrir ræðumenn voru: Sjera
Magnús Guðmundsson í Ólafs-
vík og sjera Sigurður Lárusson,
Stykki§hólmi. Milli ræðnanna
var sungið. Að lokum þakkaði
forseli.
■ Fjöldi manns fylgdi forseta
til skips og kvaddi hann með
söng og húrrahrópum. Forseti
flutti stutta ræðu af skipsfjöl.
Forseti mun koma heim úr
ferðalaginu í nótt eða í dag.
Eggerf Sfefánsson
syngur þann 20.
Það hefir nú verið ákveðið,
að söngskemtun Eggerts Stef-
ánssonar og fleiri, fari fram þ.
20. þ. m. í Tripoli-leikhúsinu
svonefnda. Munu hljómleikarn
ir hefjast kl. 8.15, sem er nú
orðið heldur sjaldgæfur hljóm-
leikatími. Sala aðgöngumiða er
þegar hafin og fást þeir í þrem
bókaverslunum, Eymundsson-
ar, Helgafells og Lárusar
Blöndals.
A Isafirði.
Komið var til ísafjarðar kl.
10 á sunnudagsmorgun. — Frá
bryggju var gengið til kirkju
undir Reglufána. í kirkjunni
flutti sóknarpresturinn sr. Sig-
urður Kristjánsson stutt erindi,
en kirkjukótinn söng. — Jónas
Tómasson ljek á hljóðfæriið
mjög fagurt lag, er hann hafði
samið.
Um kl. 14 var liði fylkt á
bryggjunni og haldið af stað
undir Reglufána. Lúðrasveitin
ljek í fararbroddi. Haldið var
að Stórurð, sem er ágætur sam-
komustaður ísfirðinga. Á leið-
inni í gegnum bæinn bættust í
hóginn ísfirskir templarar og
fjöldi annara ísfirðinga. Var
þetta stærsta fylking, sem nokk
uru sinni hafði sjest þar í bæn-
um'
Grímur Kristgeirsson bauð
alla viðstadda velkomna. Þá
flutlu ræður Kristinn Slefáns-
son stórtemplar, Arngrímur Fr.
Bjarnason fyrv. ritstjóri, Þor-
steinn J. Sigurðsson þingtempl-
ar o. fl. Á milli ræðnanna söng
Sunnukórinn undir stjórn Jón-
asar Tómassonar og Lúðrasveit
in ljek undir stjórn Albert
Klahn.
Kl. 17 var haldin skemmtun
í Alþýðuhúsinu. Flokkur úr
Lúðrasveit Reykjavíkur og
Brynj. Jóhannesson skemmtu,
og tókst þeim mjög vel. Fullt
hús var áheyrenda.
Klukkan 8 var fundur hald-
inn í Þingstúku ísafjarðar, og
var húsið þjettskipað Reglufje-
lögum frá Vestfjörðum og Suð-
urlandi. Gerðar voru á fund-
inum ýmsar ályktanir.
ísfirðingar eru yfirleitt and-
vígir vínnautn og ísfirskir
templarar eru ötulir og ótrauð-
ir til starfa fyrir bindindismál-
ið. Lúðrasveit Reykjavíkur'
ljek fyrir bæjarbúa kl. 9,30 um
kvöldið, öllum til mikillar
ánægju.
Kl. 11.30 voru dansleikir í
tveim stærstu samkomuhúsum
bæjarins. Lúðrasveitin ljek þar.
Þriðja húsið hefði þurft til þess
að allir kæmust að, sem vildu.
Veðrið á sunnudaginn var
eins gott og framast varð á kos-
ið. Allir voru mjög ánægðir
með daginn og í sólskinsskapi.
Á Þingeyri.
Klukkan 5 árdegis á mánu-
dag fór Esja í ágætu veðri og
var ákveðið að koma við á Þing
eyri, þareð margir álíta Dýra-
fjörð ,fegurstan Vestfjarðanna.
Þangað var komið klukkan 8,30
Gengið var á land fylktu liði
með Reglufána og lúðrasveitina
í broddi fylkingar til samkomu-
hússins. Þar bauð Nathanael
Mósesson okkur velkomna. Ein-
ar Björnsson flutti þar snjalla
ræðu fyrir hönd gestanna.
Síðan skoðuðum við kirkj-
una, hið nýja samkomuhús, sem
er stórt og myndarlegt, og kaup
túnið yfirleitt. Lúðrasveitin
Ijek nokkur lög þarna á staðn-
um. Síðan var haldið af stað.
Gott var í sjóinn, og var dans
að af miklu fjöri um borð. •—•
Brynjólfur Jóhannesson skemti
um kvöldið með upplestrí og
söng.
KI, 10 um kvöldið var skips-
höfn og farþegar beðin um að
mæta á framþiljum. Þar ávarp-
aði fararstjóri, Þorsteinn J. Sig
urðsson þingtemplar. skipstjóra
og skipshöfn og þakkaði þeim
lipurð og velvild. Var hrópað
fyrir þeim öflugt húrra. Skip-
stjóri þakkaði og óskaði Regl-
unni blessunar.
Stórtemplar talaði þarna
einnig og var Lúðrasveit
Reykjavíkur og Brynjólfi Jó-
hannessyni þökkuð skemmtun-
in. ,
Kl. 10.30 um kvöldið var
lagst að bryggju hjer í Reykja-
vík. Lúðrasveitin hafði leikið
öðru hvoru allan daginn, en
síðustu lögin voru: Allir heilir,
uns vjer hittumst næst og Ó,
Guð vors lands.
Þar með var ferðinni lokið.
Við þökkum.
— Við, sem vorum í farar-
nefndinni, sagði Helgi að lok-
um, þökkum svo mörgum og
svo innilega fyrir aðstoð, beina
og óbeina, sem leiddi til þess,
að þessi'ánægjulega ferð var
farin. Við viljum aðeins nefna
Pálma Loftsson framkvæmda-
stjóra, Ásgeir Sigurðsson skip-
stjóra, Sigurð Guðbjartsson
bryta og aðra skipsmenn á
Esju, Lúðrasveit Reykjavíkur
og Brynjólf Jóhannesson. Þess-
ir menn stuðluðu að því, að
við gætum farið förina og að
því, að hún varð svo ánægju-
leg sem raun bar vitni.
Þá er að geta Reglufjelaga
okkar á ísafirði, sem, undir
stjórn Jónasar Tómassonar,
Gríms Kristgeirssonar o. fl,
gerðu okkur dvölina þar ó-
gleymanlega. Svo að síðustu
þökkum við ferðafjelögunum
innilega fyrir samveruna, bæði
Templurum og þeim, sem með
Framhalcl af bls. 10^