Morgunblaðið - 09.08.1944, Side 12

Morgunblaðið - 09.08.1944, Side 12
12 islendinpr dósenl við Siokkhólms- háskóla NÝLEGA hefir dr. Sigurð- ur Þórarinsson verið útnefnd- ur dósent í landafræði við 'háskólann í Stokkhólmi. Ilanu halði seni kunnugt er orðið, varið doktorsritgerð í jarð- íræði þann 26. maí s. 1. og hlotið lofssamlega dóma fyrír ritgerð sína, en hún fjallaði um öskuliig og var meðal annars stuðst við rannsóknir, sem gerðar voru í Þjórsárdal árið 1939. Er þessi dósentsút- nefning Sigurðar mikill heið- ur fvrir hann. Drengjamet seit á íþróitamófi Anstur- lands Frá frjettaritara vor_ um Ilúsavík, þriðju- dagskvöld. Á ÍÞRÓTTAMÓTI Austur- lands. sem haldið var á Eiðum síðasl. sunnudag var sett eitt íslenskt drengjamet og f.jög- ur Austurlandsmet. Ólafur Ólafsson frá Iþrótta fjelaginu Huginn á Seyðis- firði setti drengjamet í þrí- stökki, stökk 13,29 m. Þetta er þá um leið nýtt Austur- Jandsmet. Þá setti Þorvaldur Árna- sou frá íþróttafjel. TTuginri nýtt Austurlandsmet í kringlu kasti, kastaði 39,85 mv LokS setti Björn Magnússon frá U. MF. Hróar ný Austurlands- met í hástökki, 1,70 m. og atangarstökki, 3,12 m; Þjóðhátíi Vesl- mannaeyja tókst mjðg vel Frá frjettaritara vorum. Vestmannaeyjum í gær. Síðari dagur þjóðhátíðar Vestmannaeyja var í gær. Hófst þá hátíðin með leik Lúðrasveit ar Vestmannaeyja, kl. 2 e. h., en að því búnu kepptu flokkar kvenna úr Tý og Þór í hand- knattleik. Varð þar jafntefli, Því næst var skemt með í- þróttasýningum, pokahlaupi og handknattleik í pokum, en þá flutti sr. Jes Á. Gíslason ræðu um íþróttir. Svo sýndi flokkur karla úr Knattspyrnufjel. Tý leikfimi undir stjórn Karls Jónssonar. Milli atriða söng Vestmannakórinn undir stjórn Brynjólfs Sigfússonar. Um kvöldið hófst dans á tveim pöllum og var dansað alt til morguns. Er það rhál manna, að hátíðin hafi farið prýðilega fram. Vantar bækur og blöð. London í gærkveldi: Alex- ander hershöfðingi hefir skor- að á fólk heima í Bretlandi, að senda hermönnum bandamanna á Ítalíu miklu meira að lesa, bæði af bókum og blöðum, en gert hafi verið hingað til. Seg- ir hershöfðinginn, að lestrar- efni sje jafnnauðsynlegt og her gögn. — Retuer. Notaðir í innrásinni. Eins og kunnugt er, notuðu bandamenn mesta fjölda af flutningaflugvjelirtn og svifflugum við innrásina í Evrópu. Sjást nokkrar af vjelum þessum á flugvöllum hjer á myndinni að of- Tvö met í stangar- stökki settá Þjóðhátíð Vestmannaeyja Frá frjettaritara vorum. ÚTLITIÐ var langt frá því gott með þjóðhátíðarveðrið, þegar árrisulustu Vestmanna- eyingarnir risu úr rekkju. dynj andi rigningj en von bráðar stytti upp og kom besta veð- ur. Það var skýjað loft, en and- vari af suðri. Hjelst þetta allan dagimy hin mesta blíða, og þeg ar jeg fór heim úr dalnum kl. 6 um morguninn, var veðrið orðið svo dásamlegt. að varla var hægt að fara að sofa. Jeg hefi oft sjeð fleiri tjöld í dalnum( en engu að síður var hátíðarsvæðið tilkomumikið og fallega skreytt. Hátíðin hófst svo kl. 1,30 með því að Lúðra- sveit Vestmannaeyja Ijek og var síðan hátíðin sett af for- manni íþróttafjelagsins Þórs, Ingólfi Arnarsyni. Síðan rak hvert skemtiat- riðið annað, en það sem mesta athygli vaki, var handknatt- leikur miUi stúlkna úr Knatt- spyrnufjelagi Akureyrar og í- þróttafjelagsins Þór, og svo stangarstökkið. Handknattleik- urinn fór þannig, að stúlkurnar úr K. A. sigruðu með 4 mörkum gegn einu. Jeg hitti fararstjóra þeirra Akureyrarstúlkna, Hermann Stefánsson að máli sem snöggv- ast: „Hjer er himneskt að vera“ sagði hann. );Móttökurnar eins góðar og frekast er unnt, og við höfum það öll eins gott og mögulegt er. — Jeg er líka full- ur þakklætis fyrir allt“. Þá er komið að stangarstökk- inu, en eins og kunnugt er, ’hafa Vestmannaeyingar löngum verið slyngir í þeirri íþrótt, enda sönnuðu þeir það áþreifan lega, því að tvö íslenskt met voru sett. } Annað metið setti Guðjón Magnússon úr Knattspyrnufje- laginu Tý. Hann stökk 3,55 m. Fyrra metið var 3.53 og átti Guðjón það sjálfur. Jeg spurði Guðjón, á rheðan á stökkinu stóð, hvort hann ætlaði ekki að reyna við metið sitt núna. — Ekki hafði jeg nú hugsað mjer það, en maður sjer nú til. — Veðrið er hagstætt, svo að segja logn og jeg er vel upp- lagður. Svo stökk Guðjón og flaug yfir 3.55 og fagnaðarlát- unum ætlaði aldrei að linna. Hitt metið í stangarstökkinu setti Torfi Bryngeirsson úr Þór. Slökk hann 3.33 og er það nýtt íslenskt drengjamet. Um kvöldið skemtu skátarnir með varðeldasýningu. — Urðu flestir viðstaddir hrifnir, þegar þeir röðuðu sjer í kringum bál- ið og sungu sína fjörugu skáta- söngva og dreymandi lög, á milli þess sem þeir höfðu alls- konar skemtilega leiki og þraut ir. Varðeldasýningunni stjórn- aði Arnbjörn Krislinsson af myndarskap. Hámarki náði fögnuðurinn, er eldur var tendraður í bálkesti miklum og fluggldum skotið, dansinn dunaði á tveim pöll- um, bálið lýsti upp dalinn allan og sló á hann einhverjum ann- arlegum töfraljóma. Og ungir elskendur sátu dreifðir út um allar brekkur. en ættjarðarsöngvar hljómuðu úr hverju tjaldi. Bj. Guðm. Einar Jónsson gai ómakslaun sln Blaðið „Norsk Tidend“, sem út er gefið í London, flytur ný- lega þá fregn frá norska sendi ráðinu hjer í Reykjavík, að Ein ar Jónsson myndhöggvari hafi gefið styrktarsjóði Hákonar konungs 7. þá þóknun, sem hann fjekk fyrir líkan af Ing- ólfsstyttunni, sem Norðmenn hjer á landi og íslenskir vinir Noregs gáfu konungi á sjötugs afmæli hans. Sundsýningu Ægis tekið vei á Akureyri FLOKKUR manna úr siuid- fjelaginu „Ægi“, sem nú er í sundför um NorSur- og Aust- urlands, h.jelt sundsýningu á Akureyri á föstudagskv.ld. Fjöldi manns var viðstadd- ur og þótti mikið til sýningar- innar koma. Einkum vakti sýningin á þróun sundsins ó- skifta athygli. Á slunnudag hafði flokk- urinn sýningu að Litluá í Ivelduhverfi. Miðvikudagur 9. ágúst 1944< Skemtiför um Snæfeilsnes Breiðfirðingafjelagið gekkst fyrir skemtiför um Snæfellsnes núna um verslunarmannahelg- ina. Var lagt á stað eftir hádegi á laugardag í 5 langferðabíl- um og voru ferðalangarnir rúm lega hundrað als. Ekið var þá um kvöldið vestur í Olafsvík og gist þar. Voru sumir í tjöld- um, aðrir í samkomuhúsinu og sumir í skólahúsinu. A sunnudagsmorgun var ek- ið inn undir Drápuhlíð. Lengra verður ekki komist þeim megin. Þar skildu flestir við bílana og gengu fyrir Búlandshöfða, inn Eyrarsveit að Grafarvogi. En bílarpir sneru suður yfir heiði aftur og óku svo norður Kerl- ingaskarð og þaðan vestur yfir Berserkjahraun um Hrauns- fjörð, Kolgrafafjörð og vestur að Grafarvogi í Grundarfirði. þar sem fólkið beið. Þá var snú ið við og farið um kvöldið inn að Berserkjahrauni og tjaldað við hraunjaðarinn. Þarna gistu menn þessa nótt. Á mánudag var svo ekið inn í Stykkishólm og síðan gengið á Helgafell. Þar útskýrði Krist- ján Hjaltason i kennari sögu- staði og örnefni úr landnáms- sögu hjeraðsins, svo vítt sem yfir sá. Margir gengu nú á Helgafell í fyrsta sinn og reyndu víst flestir að fara eftir þeim helgireglum sem settar eru, til þess að menn skapi sjer óskastund uppi á fellinu. Veð- ur vár dásamlega fagurt og sá yfir alt landnám Þórólfs mostr arskeggs. Frá Helgafelli var svo haldið heimleiðis til Reykjavíkur. Á nokkrum stöðum var stutt við- dvöl til að njóta útsýnis og fá sjer hressingu. Til Reykjavíkur var komið kl. IY2 á þriðjudags nótt. Hafði ferðin öll gengið mjög að óskum, engin óhöpp komið fyrir, aðeins nokkrir erfiðleikar, sem eru jafnan nauðsynlegir til þess að setja meiri svip á ferðalög og gera þau ævintýralegri. Vfmf. „Hlíf“ samþykkir að segja upp samningum I VERKAMANNAFJELAG INU „IIlíf“ í Hafnarfirði hef- ir farið fram atkvæðagreiðsla um það, liA'ort segja skuli upp samningum fjelagsins við vinnuveitendur frá 10. sept. n. k. 283 fjelagsmenn tóku þátt í atkvæðagreiðslunni. Talningu atkvæða lauk í gær kvöldi. 231 vildu segja samn- ingunum upp, 51 ekki, #en 1 seðill var ógildur. Hálíðahöld verslun- armanna á mánudag VERSLUNARMANNAFJE- LAG REYKAVÍKUR mint- ist frídags verslunarmainiaj með kvöldskrá í útvarpinu og skemtun 'að Hótel Borg. Utvarpsskráin hófst með á- varpi formanns Verslunar- fjelags Reykjavíkur. ITjartan Hanssonar. Baldur Pálmasonj verslunarmaður flutti ræðit fyrir minni verslunarstjettar- innar, en Konráð Gíslason, kaupmaður fyrir minni ís- lands. Frú Elísabet Einai’s- dóttir söng og útvarpshljóm- sveitin ljek. Skemtunin að Hótel Borg hófst kl. 22 með ávarpi Hjarti ar ITanssonar. Lúðvík Hjálm- týsson flutti ræðu. Jakob’ Hafstein framkvæmdastjórij og Ágúst Bjarnason skrifstofuí stjóri sungu einsöng og tví- söng. Lárus Ingólfsson leikarjj skenrti. Skúli Halldórsson ljelc á píano. Síðan var dans stig- inn til kl. 3 um nóttina.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.