Morgunblaðið - 13.08.1944, Blaðsíða 8
Forsetinn
Vestmannaeyjum
FORSETI ÍSLANDS kom til
Vestmannaeyja í gær með varð
Skipinu Ægi. Þegar skipið
lagði upp að bryggju um kl. 11
árdegis; var þar þegar saman-
kominn mikill mannfjöldi( sem
fagnaði honum.
Bæjarfógeti, Sigfús Johnsen,
og bæjarstjóri Vestrnannaeyja;
Hinrik Jónsson; buðu forseta
velkominn, en hann svaraði
með stuttri ræðu. — Bærinn
var allur fánum skreyttur sem
og öll skip og bátar, sem lágu
á höfninni, Vestmannakórinn
söngt en síðan var gengið heim
til bæjarfógeta og dvaldi for-,
setinn þar nokkra hríð. Fyrir
göngunni gekk lúðrasveit og
Ijek göngulög.
Forsetanum var síðan boðið
til hádegisverðar í samkomu-
húsi bæjarins óg sátu þar að
borðum um 50 manns. Þar
fluttu ræður Guðlaugur Gísla-
son, settur fors. bæjarstjórnar,
Olafur Lárusson, læknir og fl.
Forseti svaraði með ræðu.
Eftir borðhaldið gekk forset-
in út á svalir samkomuhússins
og hjell ræðu fyrir þann mikla
mannfjölda, sem hafði safnast
saman fyrir uían. — Að því
loknu var farið inn í Herjólfs- |
dal og var þar sýnt bjargsig.
Því næst fór forseti aftur um
borð í Ægir, en mikill mann-
fjöldi kvaddi hann með húrra-
hrópum. Vestmannakórinn söng
þjóðsönginn og ættjarðarljóð.
Þjóðverjar téfeu
Gullfoss
GULLFOSS okkar gamli og
góði varð innlyksa í Höfn; þeg-
ar Danmörk var hernumin. —
Atti að fara þaðan einum eða
tveim dögum eftir 9. apríi. En
skipshöfnin kom, sem kunnugt
er, með Petsamóferð Esju.
Síðan hafði Xlullfoss verið
geymdur í einhverri skipakví
Hafnar og sjeð um að honum
væri vel við haldið.
Nokkru eftir síðustu áramót
tók þýska herstjórnin skipið
traustataki. En orðsending mun
hafa komið um það hingað, að
þýska herstjórnin taki á sig á-
byrgð á skipinu, og gi'éiði fyrir
skemdir, sem á því kynnu að
verða. 1
Lofleiðir h. f. á von
á tveim flugvjelum
á næsfunni.
tttiWa
Sunnudagnr 13. ágúst 1944,
Viðureignirnar á Græniandsjökium
Eins og getið hefir verið um í fr jettum, höfðu Þjóðverjar bækistöð á Austur-Grænlandi og
lentu þar í skærum við ctanska veiðimenn, sem voru í þjónustu ameríska hersins. Að lokum
cyðilögðu Bandaríkjamenn stöð Þjóðverjanna og tóku tvo þeirra höndum, eftir að Þjóðverj-
arnir höfðu felt nokkra Dani. — Efsta myndin sýnir Bandaríkjahermenn sækja fram að
stöð Þjóðverjanna. Að neðan er teikning af handíöku þýska heimskautafarans dr. Rolf Senn-
se og mynd af honum eftir handtökuna.
§t 1. flokfes
og hauslmót 3. fl.
LANDSMÓT 1. flokks í knatt
spyrnu hefst n.k. þriðjudag kl.
7 e. h. á íþróttavellinum. — Þá
keppa Víkingur og Akurnes-
ingar. Dómari Hrólfur Bene-
diktsson og strax á eftir I. R.
og Haukar, dómari Óli B, Jóns-
son. Á miðvikudag keppa svo
Fram og K. R,, dómari Al-
bert Guðmundsson. Valur situr
hjá.
Þetta er útsláttarkeppni og er
það fjelag, sem tapar einum
leik úr keppninni.
Haustmót 3. flokks hefst n.k.
mánudag klukkan 6.30. Keppa
þá fyrst Víkingur og Fram, dóm
ari Guðbjörn Jónsson óg strax
á eftir K. R. og Valur, dómari
Eiríkur Bergsson.
BÚIST er við, að tveggja
hreyfla flugvjelinni, sem Loft-
leiðir h. f. hefir fest kaup á í
Ameríku, verði flogið hingað til
lands nú alveg á næstunni, en
ekki er nákvæmlega vitað, hve
i;ær vjelin kemur, því að búast
iná við, að hömlur sjeu lagðar
á skeytasendingar um slík efni.
Flugvjel þessi er af Druman-
tegund og tekur 8—9 farþega í
sæti.
Þá er og á leið hingað til
Iands í skipi önnur flugvjel, til
Loftleiða h. f. Er það eins hreyf
ils Stimson-flugvjel, sem tek-
ur 3—4 farþega. Er hún eigin-
lega sjóflugvjel, en henni mun
verða breytt hjer í landflugvjel.
Stríðsfangar skotnir.
Washington; Flotamálaráðu-
neytið tilkynnir, að frá alþjóða
Rauða krossinum hafi því bor-
ist sú fregn, að þrír Bandaríkja
menn, sem voru herfangar í
höndum Japana, hafi verið
skotnir af Japönum í Manc-
huriu, eftir að hafa gert tilraun
til þess að strjúka úr fang^búð
unum. — Reuter.
Bagdad: Stjórnin í Iraq hef-
ir ákveðið að auka her landsins
að allmiklum mun, og verður
sjerstök áhersla lögð á að eign-
ast sæmilegt fluglið og stór-
skotalið. — Einnig verður fót-
gönguliðinu fjölgað og á að búa
það hetri tækjum.
Rússar
sækja inn
í Eistland
London í gær; —
Mikill rússneskur her sækir
nú inn í Eeistlandi sunnan
Úskov-vatnsins, að því er fregn
ritari vor, Duncan Hooper, sím
ar í dag. Þjóðverjar senda
þarna varalið á vettvang og eru
bardagar harðir.
Þýska herstjórnin segir, að
Rússum hafi með miklum tli-
kostnaði tekist að sækja nokk-
uð fram á þessum slóðum.
Orustur munu nú liggja niðri
að mestu fyrir austan þýsku
landamærin, eftir hina miklu
bardaga að undanförnu, en þar
sem Rússar eru komnir yfir
Vislu, gera Þjóðverjar enn hörð
gagnáhlaup, einkum nærri
Sandomierz. — Reuter.
Ætlaði að flýia til
Danmerkur.
Stokkhólmi: Danskur flótta
maður var handtekinn við
Ven, nærri Landskrona í Sví-
þ.jóð, er hann var að stela bát,
sem hann hugðist flýja aftur
heim til Danmerkur á. —
lívaðst maður þessi ekki leng-
ur-hafa þolað að vera í Sví-
þjóð, er f.jölskylda hans væri
hinumegin sundsins.
— Reuter.
Randolph Churchill
lendir í flugslysi
London: Randolph Churchill,
sonur forsætisráðherra Breta,
sem nýlega slapp nauðuglega,
er Þjóðverjar náðu aðalstöðv-
um Titos marskálks, sem
Churchill yngri þá dvaldi hjá,
hefir nú aftur lent í æfintýri.
Var hann meðal þeirra, sem
komust lífs af, er farþegaflug-
vjel hrapaði til jarðar einhvers
staðar í fjöllum Jugoslavíu fyr
ir skömmu.
Öll áhöfn flugvjelarinnar
fórst, en farþegar björguðust.
Voru þeir, *auk Randolph Churc
hills, tveir rússneskir Jiðsfor-
ingjar, blaðamaður breskur og
jugoslavneskur lögreglumaður.
Þegar flugvjelin kom niður,
mistu allir, sem í henni voru,
meðvitund, en röknuðu við aft-
ur nægilega snemma til þess að
komast út úr flugvjelinni, sem
kviknað hafði í.
Sundflokkur
Ægis á Fáskrúðs-
firði
SUNDFLOKKUR úr Sund-
fjelaginu Ægi hafði sund-
sýningu á Fáskrúðsfirði á
fimtudagskvöld og var sýnt
í sjó. Var hann 9 stiga heitur.
Sundmönnunum var tekið með
miklum fögnuði.
t Fáskrúðs’firði ríkir mikill
áhugi á að ljúka byggingu
handlaugar sem fyrst.
oóuaL i
>óte
225. dagnr ársins.
'/ Árdegisflæði kl. 1.40.
SíðdegisflæSi kl. 14.23.
Næturlæknir er í læknavarð-
’ stofunni, sími 5030.
Næturvörður er í Laugavegs-
Apóteki.
Næturakstur annast Bs. Hreyf-
ill, sími 1633.
Næturakstur á morgun annast
Bs. Bifröst, sími 1508.
Hjónaband. Nýlega voru gefin
saman í hjónaband ungfrú Katr-
ín Pálsdóttir, hjúkrunarkona og
Hlöðver Sigurðsson, skólastjóri,
ísafirði.
Sjötugsafmæli á f'dag frú Sig-
ríður Ámadóttir frá ísafirði til
heimilis á Fjölnesveg 6.
Fimtugsafmæli á á morgun þ.
14. þ. m., frú Jóhanna Einarsdótt
ir, Baldursgötu 23.
Hestaþing og kappreiðar verða
í dag (sunnudag 13. ág.) kl. 2 e.
h. að Landlæk í Gnúpverja-
hreppi. Reyna hreppamenn þar
gæðinga sína og veita verðlaun
þeim, er framúr skara. — Mun
margan físa að koma á mót þetta
því að hestar þeirra hreppa-
manna eru annálaðir og hrossa-
ræktarstarfsemi þeirra með því
besta á landinu.
ÚTVARPEÐ I DAG:
8.30 Morgunfrjettir.
11.00 Messa í Dómkirkjunni (sr.
Friðrik Hallgrímsson).
12.10—13.00 Hádegisútvarp.
14.00 Miðdegistónleikar, (plötur)
a) Scheherazade eftir Rimsky-
Korsakoff. b) Burlesque eftir
Rich. Strauss. c) 15.00 Söngv-
ar eftir Foster. d) 15.30 Þætt-
ir frá Kákasus eftir Ippolitow
Ivanoff. e) Strauss-valsar.
19.25 Hljómplötur: a) Tintangel
eftir Bax. b) Cinderella eftir
Coates.
20.20 Einleikur á fiðlu (Oskar
Cortes): Sonata í F-dúr eftir
Handel.
20.35 Ferðasaga um Vestfirði og
Barðaströnd, fyrri þáttur (Her
steinn Pálsson ritstjóri).
21.00 Hljómplötur: Norðurlanda-
söngvarar.
21.15 Upplestur: Úr kvæðum
Guðmundar Frímanns og
Kristjáns Einarssonar frá
Djúpalæk (Jakob Kristinsson
fræðslumálastjóri).
21.35 Hljómplötur: Comes-dans-
sýningarlög eftir Purcell.
21.50 Frjettir.
22.00 Danslög.
23.00 Dagskrárlok.
ÚTVARPIÐ Á MORGUN:
(Mánudag).
8.30 Morgunfrjettir.
12.10—13.00 Hádegisútvarp.
15.30—16.00 Miðdegisútvarp.
19.25 Hljómplötur: Þjóðdansar.
20.30 Þýtt og endursagt: (Bárður
Jakobsson lögfræðingur).
20.50 Hljomplötur: Lög leikin á
kornett.
21.00 Um daginn og veginn (Vil-
hjálmUr S. Vilhjálmsson, blaða
maður).
21.20 Útvarpshljómsveitin: ís-
lensk alþýðulög. — Einsöngur
(frú Sigríður Sigurðardóttir
frá Akranesi): a) Dalvísur eft
ir Árna Thorsteinsson. b) „Ljúf
ur ómur“ eftir Bortniansky. c)
„Þú ert móðir vor kær“ eftir
Lenge-Möller. d) Lofsöngur
eftir Beethoven.
21.50 Frjettir.
Dagskrárlok.
SJÁLBOÐALIÐAR
FALLA
sænskirl
Stokkhólmi: Þrír
sjálfboðaliðar í finska hern-
um hafa nýlega fallið á Kirk-
jálavígstöðvunum.