Morgunblaðið - 20.09.1944, Blaðsíða 1
61. árgangur..
211. tbl. — Miðvikudagur 20. september 1944.
Isafoldarprentsmiðjn h.f.
UPPREISN I DANMORKU
Lífverðir konungs berjast við Amalienborg
Kristján konungur við Amalienborg
KRISTJÁN X. DANA KONUNGUR við aðalhlið Amalienborgar, þar sem barist
var í gærdag.
Þjóðverjar setja
dönsku lögregluna af
Gestapo tekur við
London í gær — Einkaskeyti til Morgun-
blaðsins frá Reuter.
UPPREISN BRAUST út um hádegi í dag í mörgum
dönskum borgum gegn Þjóðverjiun. Fregnir hafa borist
bingað um bardaga víða í Danmörku, en skömmu eftir
hádegi í dag var símasambandinu milli Svíþjóðar og
Danmerkur slitið og síðan hafa fáar fregnir borist þaðan.
Vitað er, að til ákafra bardaga kom í Kaupmannahöfn
milli Dana og Þjóðverja. Við Amalienborg, þar sem Krist-
ján konungur, Alexandrine drottning, Friðrik krónprins
og Ingrid krónprinsessa búa, var barist að minnsta kosti
til klukkan 3 í dag (þirðjudag).
DANSKA LÖGREGLAN HANDTEKIN.
Uppreisn og óeirðir brutust út í Danmörku í morgun,
þegar það varð kunnugt, að Þjóðverjar höfðu afvopnað
dönsku lögregluna og handtekið marga lögregluþjóna.
Var þeim ekið í burt frá lögreglustöðinni í vörubílum,
sem voru undir sterkri hervernd.
Bretar sækja norður allt Holland
Tangarsókn
umhverfis Rhur-hjerað
. C '
London í gær. Einkaskeyti til Morgunblaðsins
frá Reuter.
ANNAR BRESKI herinn hefir í dag sótl fram norður eftir öllu
Hollandi og eru vjelahersveitir Breta komnar að stað, sem er að
eins 3—4 km frá Nijmegen á bökkum Waal-árinnar, en það fljót
er ein af neðri kvíslunum, sem renna úr Rínarfljóti. Með þess-
ari leiftursókn hefir Bretum tekist að skifta Hollandi, suður
af Rín, í tvent og þegar Bretar hafa tekið borgina Nijmegen,
eru þýsku hersveitirnar þar fyrir vestan innikróaðar. (
Svo hröð hefir sókn hersveita
Demseys hershöfðingja verið í
dag, ■ að á 5 klukkustundum
hafa þær sétt fram rúmlega 50
km. Bretar eru nú 8 km. frá
þýsku landamærunum á þess-
um slóðum.
Þýska frjettastofan skýr-
ir frá því í kvöld, að nýj-
ar fallhlífahersveitir banda
manna hafi lcnt í Utrecht
og Gelderland hjeruðun-
um í Hollandi. „Barist er
nú á svæííinu fyrir norðan
hin miklu fljót“, segir enn
fremur í hinni þýsku frjett.
Framhald á 8. síðu
Þjóðverjar
berjast í
Finnlandi
London í gærkveldi: — Finska
útvarpið skýrir frá því í kvöld,
að Rússar og Þjóðverjar berj-
ist nú í Oulun-hjeraði.
Byrjað er að. flytja finska
borgara í Vestur-Lapplandi til
Svíþjóðar. — Reuter.
Ðewey forseta-
efni siasast í
járnbrautarslysi
Washington í gærkveldi.
THOMAS DEWEY ríkisstjóri
í New York og frambjóðandi
republikana við forsetakosn-
ingarnar í haust, slasaðist lít—
ilsháttar, en fjekk alvarlegt
taugaáfall, er einkajárnbraut,
sem hann var að ferðast í,
rakst á vöruflutningajárnbraut
hjá Castelrock í dag.
Fyrstu fregnir af slysinu
herma, að enginn hafi farist.
Eimreið sú, er dró lest Deweys,
ók nærri því í gegnum vöru-
flutningalestina.
Castelrock er um 100 km.
fyrir norðan Portland í Oregon,
en þar átti Dewey að halda
ræðu í kvöld. Kona Deweys
var með honum í lestinni, og
einnig hún varð fyrir tauga-
áfalli. — Reuter.
FÖLSUÐU LOFTÁRÁSARHÆTTUMERKI.
I Kaupmannahöfn ljetu Þjóðverjar gefa merki um að .
loftárás væri yfirvofandi og á meðan hættumerkið stóð
yfir, ruddust þýskir hermenn inn í lögreglustöðina í
Kaupmannahöfn og handtóku lögreglumennina, sem þar
\toru fyrir. Á sama hátt var farið að í öðrum dönskum
bæjum. — Á meðan loftárásarhættumerki stendur yfir,
eiga danskir lögregluþjónar og slökkviliðsmenn að mæta
á ákveðnum stöðum.
Dönsku lögregluþjónarnir veittu víða viðnám og dansk-
ir borgarar komu þeim til aðstoðar.
ÞJÓÐVERJAR SETJA HERLÖG f DANMÖRKU.
Þjóðverjar hafa sett herlög í Danmörku og segja, að
þeim verði ekki afljett fyrr en ástandið sje á ný komið í
eðlilegar horfur. Samgöngur' allar við Svíþjóð eru lok-
aðar frá og með deginum í dag og landamærum Þýska-
lands og Danmerkur hefir verið lokað.
ALLS HER J AR VERKF ALL.
Danir hafa svarað með að fyrirskipa allsherjarverkfall.
Átti allsherjarverkfallið að hefjast á morgun, en víða hafa
verkamenn lagt niður vinnu þegar í dag.
FRÁSÖGN ÞJÓÐVERJA AF BARDÖGUNUM
VIÐ AMALIENBORG
í danska útvarpinu í dag hafa að mestu verið leiknar hljóm-
plötur, en þess á milli verið gefnar út auglýsingar og fyr-
irskipanir frá þýsku herstjórninni.
Þjóðverjar hafa gefið sína skýringu á bardögunum við kon-
ungshöllina. Þeir segja, að nokkrir þýskir sjóliðar hafi verið á
gangi fyrir framan Amalienborg, er lífvörður konungs hafi
hafið skothríð á sjóliðana, en þeir svarað í sömu mynt. Danir
hafi því átt upptökin að bardögunum.
Þjóðverjar saka dönsku lögregluna um, að hafa hjálpað
skemmdarverkamönnum í Danmörku.
Framh, á 2. síð'J.