Morgunblaðið - 27.09.1944, Qupperneq 16
ns
verkamanna býður
út 2 milj. kr.
í skuldabrjefum
STJÓRN Byggingarsjóðs
verkamanna hefir auglýst út-
boð á 2 handhafaskuldabrjefa
lánum, sem samtals nema 2
milj. kr. Annað lánið er að upp
hæð 1300 þús. kr., það endur-
greiðist á 2 árum og vextir af
því éru 4%. Hitt lánið, að upp-
hæð 700 þús. kr„ endurgreiðist
á 15 árum og vextir af því eru
ZVz%. Skuldabrjef síðarnefnda
lánsins fást ekki nema í sam-
bandi við kaup á brjefum
lengra lánsins. Þeir, sem skrifa
sig fyrir brjefum 42-ára láns-
ins, hafa forgangsrjett að brjef
um 15-ára lánsins alt að helm
ingi þeirrar upphæðar, sem
keypt er af brjefum lengra láns
ins.
Trygging skuldabrjefanna er
eins góð eins og frekast getur
orðið. Á þeim er ríkisábyrgð
og hlutaðeigandi bæjarfjelög
eru í bakábyrgð fyrir þeim. Þar
við bætist, að sjóðurinn átti um
síðustu áramót skuldlausa
eign .3 milj. kr.
Lánin eru tekin vegna bygg
ingarfjelaga á Akranesi og í
Neskaupstað, sem eru nýbyrj-
uð að byggja, en hluti af lán-
UHuni rennur til byggingafje-
laga á Isafirði og í Vestmanna
eyjum, þar sem byggingu íbúð
arhúsanna fer að verða lokið.
Byggingarsjóður hefir 2svar
áður á síðastliðnum 3 árum
boðið lán út opinberlega til á-
.skrifta og hafa skuldabrjefin
selst mjög greiðlega. Má bú-
ast við, að svo fari enn að þessu
sinni. Eftirspurn eftir vaxta-
brjefum eykst stöðugt, bæði
vegna peningaflóðsins og eins
vegna hins, að peningastofn-
anir greiða mjög lága vexti af
innstæðufje. Þegar völ er' á
fulltrýggðum vaxtabrjefum,
sem bera 4% vexti, er eðlilegt,
að mönnum finnist lítið að fá
ekki nema 2% vexti af fje, sem
þeir ávaxta í banka eða spari-
sjóði.
Fyrsti dagur lánsútboðsins er
í dag og er tekið á móti áskrift
uip í Landsbanka Islands, sem
annast lánsútboðið fyrir Bygg-
ingarsjóðinn.
Berklavarnadeild
sfolnuð í Hafnaiiirði
SÍÐASTLIÐINN mánudag,
25. j>. m., var stofnfundur
berklavarnardeildar í Hafnar-
firfti. Deild þessi verður í
Sambandi ísl. berklasjúklinga.
Á stofnfUndi mætti mið-
stjórn S.I.B.S., forseti sam-
bandsins, Andrjes Straum-
Iand og form. Berklavarnar
jhjer í bæ, Daníel Sumarliða-
. son.
Á stofnfundinum innrituð-
ust 70 manns.
Stjórn deildarinnar skipa:
Kristján Arinbjarnarson,
læknir, Bjarnfríður Sigur-
steinsdóttir, Bára Sigurjóns-
dóttir, Björn Bjarnason og
Reinir Guðnmndsson.
_ s
Flugfjelag Islands ,
kaupir flugbát
Getur fiogið milli landa Hifier fær ekkerl
og tekið rúml. 20 far-
þega
FLUGFJELAG ÍSLANDS hefir fest kaup á flugbáti í Amer-
íku. Örn Johnson flugmaður og framkvæmdarstjóri F. I., sem
dvalið hefir í Ameríku til þess að festa kaup á flugbátnum, tók
við honum í fyrrdag. Flugbátur þessi er af Calalinagerð, og er
slærsta flugvjel, sem hingað hefir verið keypt. Örn flugmaður
og Smári Karlsson flugmaður, munu fljúga í flugvjelinni til ís-
lands í byrjun næsta mánaðar. Með þeim verður islenskur vjela-
maður, sem nýlega hefir lokið námi vestra og einn, eða tveir
erlendir sjerfræðingar. m
hæli
London í gærkveldi:
Churchill forsætisráðherra
var spurður um það í neðri mál
stofunni í dag, hvort banda-
menn myndu ekki sjá svo um,
að Hitler fengi ekki hæli í hlut
lausum iöndum, ef hann flýði
Þýskaland. — Kvað Churchill
bandamenn myndu gera alt sem
þeir gætu, til þess að sjá um að
Hitler og hans aðstoðarmenn
Þessi nýja flugvjel Flugfje-
lagsins er það stór, að hægt verð
ur að nota hana til millilanda-
flugs, enda mun það vaka fyrir
stjórn fjelagsins, að taka upp
flugferðir milli landa, strax og
Iþað verður hægt.
Getur tekið 24 farþega.
Flugbáturinn er notaður lít-
ilsháttar. Var áður í vöruflutn-
ingum. Vjelinni verður talsvert
breytt vestra, að ýmsu leyti,
en ætlunin er að setja í hana
sætin hjer heima. Gert er ráð
fyrir, að flugvjelin geti tekið
24 farþega. Flugvjelin vegur
um 15 smál. fullhlaðin og get-
ur flogið 6400 km án viðkomu.
Hún hefir 2 hreyfla og fram-
leiðir hvor þeirra 1200 hestöfl.
Vjelin getur flogið á öðrum
hreyflinum ef með þarf. Ben-
Síngeymar flugvjelarinnar
rúma samt. um 7000 lítra, og
nægir það til 24 klst. flugs.
Á hénni verður 3—4 manna
áhöfn, tveir flugmenn og vjela
menn.
Hraðinn er um 225 km á klst.
Hagkvæmur —■ en fullur hraði
rúmlega 300 km á klukku-
stund. Báturinn getur aðeins
lent á vatni. Þótti of þungt að
hafa á honum hjól til að lenda
á landi.
í vjelinni eru tvö loftskeyta-
móttökutæki og eitt senditæki.
Auk þess sjálfvirk miðunar-
stöð.
JVIjög hentug vjel.
Bergur G. Gíslason, formað-
ur Flugfjelags íslands, skýrði
blaðamönnum frá þessum síð-
ustu flugvjelakaupum Flugfje
lagsins í gær. Taldi hann fje-
lagið hafa verið mjög heppið
að hafa fengið þessa vjel. Hún
sje af mjög hagkvæmri gerð
fyrir Flugfjelag íslands.
Flugfjelagið á nú fjórar vjel
ar, sagði Bergur. Einá amer-
íska og tvær breskar, sem fyr-
ir voru. Fjelagið hefir nú ein-
göngu tveggja hreyfla vjelar.
Hefir það sýnt sig, að þær hafa
mikla kosti fram yfir einhreyfla
vjelar, eins og fjelagið notaði
áður.
Það hefir komið fyrir tvisv-
ar sinnum, að vjelar íjelagsins,
sem það á nú, hafa komið heim
úr flugferð á einum hreyfli.
Sýnir það besl, hverl öryggi er
í því, að vjelarnar skuli hafa
tvo hreyfla.
Að lokum gat Bergur þess,
að Flugfjelag íslands hefði á
prjónunum ýmsar ráðagerðir,
en fjelagið hefði jafnan haft
það fyrir reglu, að fara sjer að
engu óðslega, enda ekki tímar
til "þess, t. d. hefði liðið ár frá
því, að fjelagið pantaði flug-
vjelar í Englandi og þar til þær
komu hingað.
Mjög rómaði Bergur hjálp-
semi Bandaríkjamanna og
Breta/ sem hjer dvelja nú. —
Sagði hann, að foringjar setu-
liða Bandaríkjamanna og Breta
og sendiráð þeirra hjer í Rvík
hefðu gert allt, sem í
þeirra valdi stóð fyrir Flug-
fjelagið- Væri það í sannleika
merkilegt, hve margir úr þess-
um hópi hefðu sýnt mikinn á-
huga. Það væri ekki oflof þó
notuð væru sterkustu orð til
að þakka þessum mönnum
stuðning, sem þeir hefðu veitt
Flugfjelaginu.
Er Bergur hafði skýrt blaða-
mönnum frá hinum nýju flug-
vjelakaupum, var boðið upp á
flugferð.
Flugferðin.
Flogið var í Beechcraft-flug-
vjel fjelagsins og verið um
hálfa klukkustund á flugi yfir
bænum og umhverfi hans, en
áður skoðuðu rhenn verkstæði
fjelagsins, sem eru allvel byrg
að varahlutum, og þar sem
margháttaðar viðgerðir eru
framkvæmdar.
Jóhannes Snorrason stýrði
flugvjelinni og fannst gestum
mikið til um hæfni hans og ör-
yggi allt, bæði á flugi og í lend
ingu. Sanhfærðust gestir bet-
ur en áður um það, að flug-
vjelin er farartæki framtíðar-
innar.
Miðvikudagxtr 27. sept. 1944,
Þingi iðnnema lokið
SEINNI þingfundur Iftn-
nemasambands Islands. var
haldinn í Góðtempla raliúsinui
sunnudaginn 24. þ. m.
Umræður urðu um lausn
þessara mála: Skólahúsmálið,
launakjör iðnnema og sam-
ræming kaupgjalds, samstarf
við sveinafjelögin og loks
var rædd stofnun nýrra iðn-
nemafjelaga og önnur mál.
Fundurinn gerði ályktanin
um þessi mál og fleiri.
Mikill áhugi og eining ríkti
me'ðal fulltrúanna. — Að lok-
um sagði formaður sambands-
stjórnar, Óskar Hallgrímsson
þingi slitið.
Þingmaður íhaldsflokksins
breska, Ramsay kapteinn, sem
fangelsaður var af öryggisá-
stæðum í meira en fjögur ár,
var látinn laus í dag úr Brix-
ton-fangelsi, að því er Herbert
fengju hvergi athvarf. tilkynnti í neðri málstofu þings
— Reuter. ins í dag. — Reuter.
1/ \\ 'I* f 'Ji '
Verðlaqsma m atqreidd i sam-
ræmi við ályk íj tanir Búnaðar-
þii (
Sjúklingar á Kópavogshæli
hafa beðið blaðið að færa þeim
Alfreð Andrjessyni, Sigfúsi Hall
dórssyni og Jóni Aðils, kærar
þakkir fyrir skemtun þá, er þeir
veittu sjúklingunum með komu
sinni í fyrradag.
Á FUNDI, er haldinn var í
Sþ. síðdegis 1 gær var útbýtt og
rædd svohljóðandi þingsálykt-
unartillaga:
„Sameinað Alþingi felur rík
isstjórninni að halda óbreyttu
útsöluverði á landbúnaðaraf-
urðum með ríkisframlagi, þar
til frumvarpið á þingskjali 367
hefir fengið afgreiðslu í þing-
inu“.
Fylgdi till. svohljóðandi
greinargerð:
Frumvarp það um breyting-
ar á dýrtíðarlögunum frá 14.
apríl 1944, sem fram er lagt á
Alþingi í dag og byggt er á
samþykkt um verðlagsmálin á
búnaðarþingi, felur í sjer á-
kvarðanir um verð á landbún-
aðarafurðum til 15. sept. 1945.
En þar sem gera má ráð fyri£,
að afgreiðsla á frumv. í þinginu
taki nokkra daga, er óhjá-
kvæmilegt að gera bráðabirgða
ráðstafanir til að afstýra hækk
un á verðlagi á þessum vörum,
meðan á meðferð málsins
stendur. Er því tillaga þessi
fram borin.
Tillagan var flutt af þrem
fjárhagsnefndarmönnum Nd.,
þeim Jóni Pálmasyni, Skúla
Guðmundssyni og Ásg. Ásgeirs-
syni.
Jón Pálmason fylgdi tillög-
unni úr hlaði, en umræður urðu
sem engar um hana. Var tillag
an því næst afgreidd í skyndi
gegnum tvær umræður og
samþykkt með 32:1. atkv.
Breyting á
dýrtíðarlögunum.
Á þessum sama fundi í Sþ.
var útbýtt frv. um breyting á
dýrtíðarlögunum (nr. 42, 1943)
í samræmi við ályktanir þær,
er Búnaðarþing gerði. Frv. er
flutt af sömu nefndarmönnum
fjárhagsn. Nd., er stóðu að
þál.till. í Sþ. Frv. er svohljóð-
andi:
Aftan við lögin bætist svo-
hljóðandi:
Bráðabirgðaákvæði.
1. Hækkun sú á verði land-
búnaðarafurða eftir verðlags-
vísitölu samkvæmt lögum um
dýrtíðarráðstafanir frá 14. apríl
1943, sem ganga átti í gildi 15.
sept. 1944, skal falla niður og
verð landbúnaðarafurða á tíma
bilinu 15. sept. 1944 til jafn-
lengdar 1945 reiknast eftir vísi
tölu næsta tímabils á undan,
sbr. þó 2. lið.
2. Verði hækkun á kaup-
gjaldi á tímabilinu 15. sept.
1944 til 15. sept. 1945, sem á-
hrif hefir á vísitölu landbúnað-
arafurða eða vinnslu- og sölu-
kostnað þeirra samkvæmt út-
reikningi hagstofunnar, skal
verðlagið hækkað í samræmi
við það. Breytingar þessar skal
hagstofan reikna út mánaðar-
lega, og koma þær til fram-
kvæmda næsta mánuð á eftir.
3. Ríkisstjórnin leggur fram
fje úr ríkissjóði, eftir því sem
með þarf, til þess að halda ó-
breyttu útsöluverði á landbún
aðarafurðum á innlendum mark
aði til 15. sept. 1945. Fjárfram
lag ríkissjóðs í þessu skyni
greiðist mánaðarlega og að
öðru leyti á sama hátt og verið
hefir.
4. Ríkisstjórnin greiðir verð-
uppbætur á útfluttar landbún-
aðarafurðir á tímabilinu 15.
sept. 1944 til jafnlengdar árið
1945, eftir því sem með þarf,
til þess að framleiðendur fái
verð fyrir þær samkvæmt 1. og
2. lið þessara laga. Verðuppbæt
urnar greiðist útflytjendum,
um leið og kaupendur borga
vörurnar.
5. Bráðabirgðaákvæði . þessí
halda gildi sínu til 15. sept.
1945 þrátt fyrir ákvæði 3.
málsgr. 4. gr. laganna.