Morgunblaðið - 28.09.1944, Side 1

Morgunblaðið - 28.09.1944, Side 1
16 síður Bl. árgangu*. 218. tlb. — Fimtudagur 28. september 1944. Isafoldarprentsmiðja hJ. FALLHLÍFAHERDEILD BRETA HJÁ ARNEM HÖRFAR VESTUR YFIR RÍN Varsjábúar verða að borða hundakjöt LONDON 1 gærkvöldi: — Varsjábúar, sem nú hafa barist við Þjóðverja í 7 vikur neyð- ast nú til að leggja sjer hunda- kjöt til munns, til að deyja ekki úr hungri ,eftir því, sem segir [ fregn, sem barst í dag frá Vai'sjá til pólsku stjórnarinnar hjer í London. Segir í sömu fregn, að birgð- ir þær, sem borist hafi með flugvjelum til borgarinnar, sjeu alveg ónógar. —Reuter. Bandamenn ssekja yfir Rubico á Ífaiíu Róm í gærkveldi. Hersyeitir iir 8. hernum haida áfram sókn sinni frá Rimini og eru komnar til hæ.jar eins um 12 km. frá Rimini. Hersveitir banda- manna hafa sótt norður yfir Rubico ána á nokkrum stöð- um og náð öruggri fótfestu á norðurbokkum árinnar. Þjóð- ver.jar verjast af miklu kappi. Á miðvígstöðvunum í Italíu hafa bandamenn sótt fram lít- ilsháttar. — Reuter. Manntjón Þjóð- verja 900 þúsund á Vestur-vígstöðv- unum LONDON í gær: — Frjetta- ritari Reuters, sem er með 1. hernum ameríska í Frakklandi símar í dag, að í aðalstöðvum hersins sje talið, að frá því bandamenn gerðu innrás sína í Frakkland í sumar, hafi mann tjón Þjóðverja numið um 900 þúsund manns; fallnir, særðir og leknir höndum. Stormur hindrar kosn- ingar. London: Nýlega áttu þing- kosningar að fara fram á eynni Jamaica, en kjördaginn var svo mikill stormur, að engum manni var fært úr húsi allan daginn. Voru greidd fáein at- kvæði, en gerð ógild og kosn- ingum frestað fram í febrúar næst komandi. Forsefi Fitippseyja SERGIO OSMENA heitir forseti Filipseyja, eftirmaður Manuel Quezon, sem nýlega er látinn í útlegð í Bandaríkj- unum. Myndir hjer að ofan var tekin er hinn nýji forseti var að vinna eið að stjómarskránni, eftir að hann hafði tekið við forsetaembættinu. Rússar fara inn í Ungverjaland LONDON í gærkveldi: Rúss- neskar hersveitir og rúmensk- ar hafa sótt fram inn í Ung- verjaland og tekið þar nokkra bæi. í þýskum fregnum er tal að um sókn Rússa inn í Júgó- slafíu, en þær fregnir hafa ekki verið staðfestar af Rússum, sem ekki hafa getið um sókn inn í Júgóslafíu síðan fyrir alllöngu, að þeir sögðu frá sókn hjá Turno Severin. í Eistlandi hefir enn verið um framsókn að ræða hjá Rúss um, en litlar breytingar virð- ast hafa átt sjer stað á öðrum vígstöðvum í dag. Slys við skotæfingar. Zurich: Sex hermenn og einn liðsforingi fórust, er fallbyssa sprakk við æfingar svissnesks stórskotaliðs fyrir skemstu. Er talið að þetta hafi verið að kenna skeytingarleysi þeirra, sem hreinsuðu byssuna. Flaug undir Eiffelturn- inn. París: Amerískur orustuflug maður flaug nýlega Thunder- bolt-orustuflugvjel sinni gegn- um neðsta boga Eiffelturnsins fræga og það með 320 km. hraða á klukkustund. Þykir þetta djarft afrek. LoHárásir á borgir í Ruhr-hjeraði LONDON í gær: — Um 1100 amerísk flugvirki og liberator Sprengjuflugvjelar fóru í dag til árása á borgir í Ruhr-hjer- aði- Voru gerðar harðar árásir á samgönguleiðir og verk- smiðjur. Til allsnarpra bardaga kom við orustuflugvjelar Þjóðverja og voru að minnsta kosti 41 þýsk flugvjel skotin niður. — Bandamenn misstu 42 sprengju flugvjelar og 7 orustuflugvjel- ar. —Reuter. Úthluiun matvæia- seðla hefst í dag ÚTHLUTUN matvælaseðla fyrir næsta úthlutunartímabil hefst í dag. Afgreiðslan verður í Hótel Heklu og verður opin kl. 10—18 í dag og á morgun, en kl. 10—12 á laugardag. Seðlarnir verða aðeins af- hentir gegn stofnum núgildandi matvælaseðla, greinilega áletr- uðum. ítölum bannað aðgangur London: Borgarstjórinn í bænum Saffron Walden í Essex, hefir lagt blátt bann við því, að ítalskir stríðsfangar fái að vera á dansleikjum, sem haldnir eru í þessum bæ. Lið þetta bjargaði brúarsporði Banda- manna við Nijmegen London í gær. Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter. BRESKA FALLHLÍFADEILDIN, sem send var til Arnhem í Hollandi fyrir sunnudaginn 17. september í þeim tilgangi að ná brúm yfir Lek-fljót (Neðri-Rín) og sem varist hefir þar ein- angruð í 9 sólarhringa, hefir verið flutt vestur yfir fljótið aft- ur. Upphaflega voru sendir 6—7 þúsund manns til svæðisins hjá Arnhem. Rúmlega 2000 komu aftur, en um 1200 særðir her- menn voru skildir eftir ásamt hjúkrunarliði. Hinir hafa fallið í einhverjum mestu orrustum, sem um getur í styrjöldinni. Bandamenn senda lið fil Albaníu LONDON í gær: — Tilkynt er í aðal^Jöðvum banda- manna við Miðjarðarhaf, að bandamenn hafi sent lið sjó- leiðis til Albaníu og eyjanna við Dalmatíuströnd. — í liði þessu eru bæði hermenn banda manna og föðurlandsvinir. Nokkuð lið hefir einnig ver- ið sent loftleiðis og sviíið til jarðar í fallhlífum. Liðsflutningar þessir hafa staðið yfir undanfarna 10 daga og hafa bandamenn allmikið af strandhjeruðunum á sínu valdi. —Reuter. Pjetur Gautur leikinn í London LONDON: Nýlega hófust hjer sýningar á Pjetri Gaut. — Er hann sýndur í The New Theatre. Hákon Noi’egskonung u.r var viðstaddur frumsýning- una, ásamt sendiherra Norð- manna í London. — Eftir sýn- inguna var Ralph Richardson kyntur fyrir konungi, en hann ljek aðalhlutverkið, Pjetur Gaut. Lávarður ákærður LONDON: Lávarður nokkur hefir verið tekinn fastur, fyrir að ná peningaávísun af konu nokburri undir fölsku yfir- skyni. •— Avísunin nam að verð mæti um 900 krónum. Situr lávarðurinn nú í varð- haldi. Björguðu brúarsporðinum hjá Nijemegen. Það var þetta fallhlífarlið, er gerði Bretum mögulegt að ná á sitt vald brúnni miklu yfir Waal, sem er um 16 km vestar og stækka yfirráðasvæði sitt á brúarstæðinu fyrir austan brúna. Með vörn sinni við Arnhem hefir þetta fallhlífar- lið unnið bandamönnum ómet- anlegt gagn í sókninni til Þýskalands. Upphaflega var ætlanin, að hersveitir úr öðr- um her Breta sæktu fram milli ánna Waal og Lek og kæmi fallhlífaliðinu við Arn- hem til hjálpar, en Þjóðverjar veittu svo öflugt viðnám, að það tókst ekki og á mánudag var gefin skipun um að liðið skyldi hörfa vestur yfir Lek. Mikil hetjudáð, Frjettaritarar, sem voru með fallhlífaliðinu breska við Arn- hem róma mjög hetjuskap fall hlífaliðsins, sem þarna barðist gegn úrvalssveitum Þjóðverja í níu daga. Liðið var matar- laust og hafði ekki nema riffla og önnur smávopn gegn skrið- drekum og vjelahersveitum Þjóðverja. Fallhlífaliðið náði á sitt vald brúnni yfir Lek hjá Arnhem um tíma, en misti hana aftur. Rigning var á þess um slóðum og lágskýjað allan tíminn. sem liðið barðist við Arnhem og var það ein aðal- orsökin til þess, að ekki var hægt að flytja birgðir loftleiðis til liðsins. Brúin yfir Waal, hjá Nije- megen var miklu þýðingar- meiri en brúin yfir Lek, því Waal er miklu meira vatns- fall og erfiðara yfirferðar en Lek. Pramh. á bls. 12

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.