Morgunblaðið - 01.10.1944, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 01.10.1944, Blaðsíða 9
Sunnudagur 1. október 1944. MORGUNBLAÐIÐ 0 REYKJAVÍKURBRJEF Þing og stjórn. UM FÁTT eða ekkert er eins nnikið talað um þessar mundir eins og stjómarmyndun, sem eðlilegt er. Er nú svo komið, að öll þjóðin að heita má krefst Þess, að þingið myndi stjórn. Sem kunnugt er var ennver- andi stjórn ekki mynduð með vilja Sjálfstæðisflokksins. Hjelt flokkurinn því fram frá upp- hafi, að rikisstjórn, sem hefði ekki samband við Alþingi, mvndi reynast máttiaus. Reyndin hefir í þessu efni orðið ennþá verri en spárnar. Máttleysi ríkisstjórnarinnar stafar að miklu Jeyti af því, að hún hefir ekkert samband og mjög takmarkað eða ekkert traust hjá þinginu, eða raun- verulegum umboðsmönnum þjóðarinnar. En sumpart er getuleysi hennar af því sprottið, að þeir menn, sem í desember 1942 tóku við stjómarstifrfum gerðu sjer litla sem enga grein fyrir því, hvað það var, sem þeir tóku að sjer. Þeir gengu þess því duldir, að þeir voru alls ekki vandanum vaxnir. Þá skorti m. a. þrautseigju til þess að leysa jafn flókin mál, eins og þau, sem þeir síðan hafa verið að fást við, eða þykjast hafa verið að reyna að leysa. Hjer verður ekki að þessu sinni rakinn ferill rikisstjórn- arinnar. Nægir að benda á við- burði síðustu daga, til þess að sýna fram á, hve gersamlega hún hefir brugðist þeim, sem upprunalega gerðu sjer vonir um árangur af starfi hennar. Dýrtíðin. EINS OG allir vita tók stjórn in við völdum með þeim eina tilgangi. að leysa dýrtíðina. Hefir hún síðan glímt við þetta vandamáL f tveggja ára glímu hefir dýrtíðin altaf orð- ið ofaná. Að þessum tíma liðnum tekst Sjálfstæðismönnum og Framsóknarmönnum í samein- ingu á Alþingi og á Búnaðar- þingi að stíga hið mikilsverð- asta spor í þessu vandamáli. Hvað gerir þá rikisstjórnin? Hvernig bregst hún við? Og hvernig gátu menn búist við, að hún tæki þessum tíðindum? Engum gat dottið annað í hug en að ríkisstjómin fyrst og fremst tæki þessu vel. En því fór fjarri. Eins og firtinn krakki rýkur stjórnin upp á nef sjer, og læt- ur þá fáu stuðningsmenn, sem hún á, sem að vísu eru ekki annað en ýlustrá í eyðímörku, lætur þá reyna, eftir því sem þeir mögulega geta, að sporna hændur gegn því samkomu- lagi, sem gert var á Búnaðar- þingi um stöðvun dýrtíðarinn- ar. Allir vita þó, bæði ríkis- stjórnin, ýlustrá hennar og öll þjóðin veit, að Búnaðarþingssamþyktin er hin þarfasta ráðstöfun, sem gerð hefir verið gegn dýrtiðinni. En þegar þetta spor er stigið, verð Ur öfundin yfirsterkari öllu öðru hjá þessari veslings ríkis- stjórn, svo hún reynir að eyði- leggja það, sem fengið er og leiðir til bjargræðis fyrir þjóð- ina. Annað dæmi. ANNAÐ DÆMI frá síðustu dögum sýnir, hversu stjórnin gersamlega misskilur hlutverk sitt_ í stað þess að leita sem mestr ar samvinnu við þingið og hina raunverulegu valdhafa hefir stjórnin ekkert samband við Alþingi, en lætur aðalmálgagn sitt, Vísir, sverta og níða þingið og flokkana. Fjárlög eru lögð fyrir þing- ið 3—4 vikum eftir að þing kemur saman. Fyrr fá þing- menn ekki að sjá fjárlagafrum varpið eða neitt, sem því við kemur. Þetta er bæði óskilj- anlegt og óafsakanlegt, þegar þess er gætt, hve langt er liðið á árið, haustþing, en fjárlaga- frumvarp venjulega lagt jyrir þing snemma á ári. Þetta er fyrir sig. En svo er hitt, hvernig fjárlagafrum- varpið er úr garði gert. Þar eru útgjaldaliðirnir áætlaðir á þeim grundvelli, að vísitalan sje 250, þó hún sje í dag 272, og það með því, að kostað er 20 milj- ónum til' þess að greiða vísi- töluna niður. En í fjárlagafrum og einlægni. Meðal annars og ekki síst á þann hátt, að sjá um, að mynduð verði starfhæf stjórn í landinu. Verkföllin. ANNAÐ aðalumræðuefni manna um þessar mundir eru verkföllin, og hvernig þau muni leysast. Lang mesta verkfallið, sem hjer hefir staðið yfir, Iðju- verkfallið, leystist í gær, eftir að það hafði staðið í nákvæm- lega 2 mánuði. Er þetta með lengstu verkföllum, sem hjer hafa átt sjer stað. Þingflokkarnir hafa sín á milli rætt um möguleikana á því að fastákveða alt kaupgjald í landinu í tvö ár. Hafa forráða menn Alþýðusambandsins ver- ið því máli hlyntir, a. m. k. í orði kveðnu. Þeir hafa þó tal- ið. að áður en slík ákvörðun yrði tekin, þyrfti að gera nokkr ar breytingar á núverandi kaupi ýmsra stjetta, og hafa menn jafnvel litið svo á, að fyr ir þeim vaki að framkvæma samning þenna á þann hátt, að hækka kaupgjald yfirleitt í landinu upp i það hæsta, sem nú er greitt. En eins og horfir nú meo allan atvinnurekstur í landinu, varpinu er ekkert gert fyrir þá yrgj slíkt ekki til annars en því, að þær niðurgreiðslur eigi sjer stað. Til þess að færa fjárlaga- frumvarpið til samræmis við veruleikann og gera úr því þá rjettu mynd af staðreyndum, sem hver maður sjer, þyrfti að færa öll gjöld til samræmis við vísitöluna 272 og bæta í frum- varpið þeim 20 milj. útgjöldum, sem þurfa til þess að vísitalan sje ekki hærri en hún er. Það væri hverjum manni ætlandi, sem tekur að sjer að vera fjármálaráðherra, að finna minna gróm í mat sín- um en þessar skekkjur eru. En þrátt fyrir þessar nokk- uð áberandi misfellur er frum- varpið afgreitt frá ríkisstjórn- inni með reksturshalla. Engin furða, þó heimtuð sje ný stjórn. Því öll von, sem ein- hverntíma var til um, að hún kæmi einhverju nytsömu í framkvæmd, er gersamlega kulnuð út. Vjelbátur til sölu f 20 tonn með 110 hk. dieselvjel. Bátur og vjel | í góðu standi og vjelin sparneytin. Vjelin | er tveggja ára og fylgja vai'ahlutir fyrir ca. X, <♦> 8000,00 kr. — Sanngjarnt- verð, ef samið er t strax. — Semja ber við f . Guðlaug Þorláksson N, Austurstræti 7. — Sími 2002. _ I | '>^<$x$x&<?><»<S*Sx$x®>^<$x@K§x$xfc<®KSx®>3><^<§x3x^<$x£<íx$«g«§x§xSxJ><§x§x$xí>^<$x$x$>3>@>^K$«ÍKfc Mýfa brauða- og kökubúð opna jeg í dag á Bræðraborgarstíg 1, (geng- gengið inn frá Vesturgötu. Virðingarfyllst Sveinn M. Hjartarson Bræðraborgarstíg 1. Sími 3234. &*Sx®«®<$x®«$x8>^> Stjórnarmyndun. FÁTT EITT er enn hægt að segja um það, hvernig horfir um stjórnarmyndun. En með- al þingmanna eru taldar mikl- ar líkur til, að takast muni að mynda þingræðisstjórn. Sjálfstæðisflokkurinn hefir altaf beitt sjer fyrir því, að( stjórn yrði mynduð í samræmi við þá samþykt, er síðasti landsfundur gerði í því máli í júní 1943, að stjórn yrði mynduð á sem víðtækustum grundvelli. En ef eltki tekst myndun 4 flokka stjórnar, þá verður af hendi Sjálfstæðismanna unnið eindregið að þvi að mynd- uð verði þingræðisstjórn á öðr- um grundvelli. Því Sjálfstæð- ismönnum er það ljóst, að það þarf annað og meira en að stofna lýðveídi. Stofnendur þess hafa skyldur við hið unga ríki. Þeim verður að sinna og þær að rækja af fullri alvöru að auka á aðsteðjandi erfið leika fyrir atvinnurekendur og þá um leið verkafólkið- Iðju-deilan. HÁTT í 1000 manns hafa tek ið þátt í Iðju-verkfallinu. En um 70 fyrirtæki hafa vegna verkfalls þessa verið stöðvuð síðan í ágústbyrjun. Vegna þess hve kaup kven- fólks, er við iðnaðinn vinnur, hefir verið lágt, var búist við því, að ef einhver ,,samræm- ing“ færi fram, sem talað var um, þá myndi hún t. d. koma þar til greina. Var altaf búist við því, að einhver kauphækk- un ætti sjer stað þarna, enda- þótt öllum sje það Ijóst, að margt fyrirtækið í íslenska iðn aðinum stendur ótryggum fót- um. Nú var deilan leysl með því, að kvenfólk fjekk 6.1% kaup- hækkun. Að vísu var hækkunin nokkuð meiri. En á móti henni kom svo t. d. það, að atvinnu- rekendur eru leystir frá þeirri skyldu, er þeir áður höfðu, að greiða verkafólki kaup 10 veik indadaga á ári. Kauphækkun karlmanna í iðnaðinum eftir þetta tveggja mánaða verkfall nemur 114 %. TILKYNNING Frá og með 1. okt. og þar til öðravísi verð- ur ákveðið, er leigugjald fyrir vörabíla í inn- anbæjarakstri, sem hjer segir: Dagvinna kr. 17,16 með vjelsturtum kr. 19,66 Eftirvinna.— 21,24 með vjelsturtum — 23,74 Nætur og helgid. — 25,32 með vjelsturtum — 27,82 Vörubílastöðin Þróttur Ráðsfefnunni í Dum barion Oaks er Washington í gærkveldi. BRESKA utanríkisráðuneytið hefir birt yfirlýsingu formanna bresku, bandarisku og rússn- esku sendinefndanna á Dum- barton Oaks ráðstefnunni, sem nú er lokið. Hermir yfirlýsing þessi, að árangur ráðstefnunn- ar hefði orðið mikill. Var sagt, að umræðurnar hefðu einkum snúist um aðíerðir til að varð- veita friðinn. <^3x$x$x$><Sk.>3><®><$x$xS><$x®xS><íx$x$x$xS>3x$kS><S><S><$xSxS><íx^$^xSxS><SxSx$3x$><$^x$x$x$x^<$kS> Sauðfjáreigendur Þeir, hjer nágrenninu, sem hafa beðið mig um hrúta af skoska fjárkyninu og blendinga, verða að gefa sig fram fyrir 10. þ. m., annars verða hrútarnir seldir öðrum. ENGILBERT HAFBERG, Viðey. Símar 1949 og 3700. <®X®X$X$X$X^<$><$><$X®<$«$X$X$X$><$<$X$X$X£<$><$>^<$><$<^<$X$X$X$X$>^$X$<$K$><$X$><$X$X$X$>^«$X$«$X$>3>. <*>^®x$x$>3x$x$>^><$>3x$x$x$«$x$x$x$«$x$x$^$«$><$>4x$><$«$<$>@«$x$^x$x$^><$x$,<$>4>$«$x$x$x$>3>® ' TILKYMNING % um kartöfluverð Ráðuneytið hefir ákveðið samkvæmt heim- ild í lögum nr. 42, 1943, um dýrtíðarráðstaf- anir að smásöluverð á I. flokks kartöflum skuli ekki vera hærra frá 30. september þ. á. að telja en kr. 1,10 hvert kg. í smásölu og kr. 88,00 hver 100 kg. í heildsölu. Jafnframt hefir Grænmetisverslun ríkis- ins verið falið að kaupa eða semja við aðra um að kaupa þær kartöflur, sem framleið- endur í landinu kunna að vilja selja, eftir því sem markaðsástæður leyfa og hún ákveður. Atyinnu- og samgöngumálaráðuneytið, 30. september 1944.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.