Morgunblaðið - 01.10.1944, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 01.10.1944, Blaðsíða 14
MOEGUNBLAÐIB Sunnudag-ar 1. október 1944, 14 ,,Farið heim í Van Ryn-hús- ið, við Stuyvesant-götu“, skip- aði hún einum hermannanna. „Segið þeim, sem kemur til dyra, að senda vagninn og þrjá þjóna hingað að leikhúsinu þeg ar í stað“. Hermaðurinn hlýddi orða- laust. Hún gerði sjer ekki grein fyrir því, að þetta var fyrsta skipunin, sem hún hafði gefið síðan hún giftist. Hún fann að- eins til undrunar. Það var þá hægt að særa Nikulás! Hún skildi ekki nákvæmlega, hvað gerst hafði — og hvað enn var að gerast á torginu. Hún gat nú ekki gert annað en beðið við hlið Nikulásar og reynt að af- má úr huga sjer mynd af af- skræmdu, drengjalegu andliti og blóðugu sári. — Andlitið hafði mint hana á Nat bróður hennar. Áciur en hermaðurinn kom aftur, í fylgd með MacNab, ein um þjóni og vagnstjóra, var uppþotinu við Astorleikhúsið lokið. Fimmtíu manns höfðu særst, og tuttugu fallið. Líkin lágu eins og hráviði á götunni og torginu. Á meðal þeirra er fallið höfðu voru lítil stúlka, er stolist hafði að heiraan frá sjer til þess að sjá, hvers vegna her mennirnir væru að skjóta, og gamall maður, sem verið hafði á leið heim til sín. í Jones-götu, frá dóttur sinni, sem átti heima ofar í borginni. —- Hersveitirnar hjeldu aftur til bækistöðva sinna. XIX, Kapítuli. Mánuði síðar, þegar Van Ryn hjónin fluttu aftur að Dragon- wyck, var Nikulás orðinn jafn góður af höggi því, sem hann hafi hlotið. Það höfðu brotnað tvö rifbein, Önnur líkamleg meiðsl.hafði hann ekki hlotið. En hann virtist gjörbreytt- ur. Hann vildi ekki sjá nokk- urn mann. Hann lá dag eftir dag án þess að mæla orð af munni. Enginn vissi um hlutdeild þá, sem Nikulás átti í Astor- blóðbaðinu. En þótt einhver vina hans hefði heyrt söguna, hefði hann áreiðanlega rjett- lætt hegðun hans. Hann hefði hrósað honum fyrir hugprýði. Hvers virði var líf eins vesæls drengs, þegar svo margir höfðu særst og fallið? Og þegar öllu var á botninn hvolft, hafði her liðið hafið skothríð sína um leið. Það var Miranda ein, sem þjáðist. Hún kvaldi sjálfa sig með ótal spurningum. Ef Niku lás hefði ekki haldið fast við, að fara út um aðaldyrnar, nje ruðst þangað, sem allir gátu sjeð hann og eí hann hefði slegið drenginn niður í stað þess að skjóta hann — hefðu þá engar blóðsúthellingar orð- ið? Eða hefðu hermennirnir skotið engu að síður? Eftir nokkurn tíma hafði hún sannfært sjálfa sig um, að Niku lás þjáðist einnig----af sam- viskubiti. En það var ekki beinlínis samviskubit, sem að Nikulási gekk. — í fyrsta sinni á ævinni hafði hann beðið ósigur. Hann hafði misst meðvitund, orðið að treysta á aðra, og það sveið honum sárt. Rjett eftir að þau komu að Dragonwyck lokaði Nikulás sig inni í turnherberginu í þrjá daga. Miranda, sem mundi, hvernig hann hafði hagað sjer, eftir að barn þeirra dó, ljet hann afskiptalausan. Þegar hann kom aftur nið- ur, virtist hann líkari því sem hann var, áður en hann særð- ist. En þegar hann heilsaði henni, tók hún aftur eftir því, að af fötum hans var undar- legur sætur ilmur. Hann tal- aði mjög hægt, og mál hans var svo óskýrt, að það skildist vart hvað hann sagði. Peggy tók einnig eftir þessu. Ef þetta væri einhver annar en húsbóndinn, sagði hún við sjálfa sig, myndi jeg svei mjer halda að hann sæti einn að sumbli þarna uppi. — Mánuði síðar skeði þetta aftur. Miranda reikaði eirðarlaus um húsið, og í rökkurbyrjun annan daginn tók hún ákvörð- un. Hún fór upp turnstigann. Þegar hún var kominn alla leið upp, barði hún að dyrum. Eng- inn ansaði. Hún kreppti hnef- ann, og barði á dyrnar af öllum kröftum. „Hver er þar?“ var spurt reíðilega. „Það er Miranda“, kallaði hún aftur. „Jeg krefst þess, að þú hleypir mjer inn. Það var þögn dálitla stund, en síðan var lykli snúið í skránni og dyrnar opnuðust. Nikulás stóð á dyraþrepinu og horfði háðslega á hana. „Komdu inn, yndið mitt. I öllum bænum, komdu inn — ef þú krefst þess“. Hann lokaði dyrunum á eftir henni og stakk lyklinum í vasa sinn. Hún starði fyrst á Nikulás og síðan leit hún í kringum sig í herberginu. Þar voru ekki önn ur húsgögn, en borð, stóll og legubekkur. Á borðinu var hrúga af óhreinum bókum og nokkur kerti. Það var ekki fyrr en eftir dá litla stund, að hún tók eftir því, að í herberginu var bláleit móða og römm lykt. „Reykirðu hjerna?11 spurði hún vandræðalega. Hún varð fyrir miklum vonbrigðum. Hún hafði gert sjer miklar hug- myndir um þetta lokaða her- bergi. Hún hafði verið sann- færð um það, að ef hún 'éínu sinni kæmist að leyndardómi þess, myndi hún um Ieið yfir- stíga stálvegg þann, er virtist umlykja sál manns hennar. Nikulás starði stöðugt á hana, svo að hún sneri sjer við og svaraði augnatilliti hans. „Jeg reyki hjer“, svaraði hann. Hann rjetti út hendina og tók utan um hægri úlnlið henn ar. Hann dró hana yfir að legu bekknum. Þar stóð lítið borð og á því var glóðarker, lítið silfur skrín og þrjár undarlega lag- aðar reykjarpípur. Hún starði á pípurnar og glóð arkerið. „Hvað er þetta, Niku- lás?“ Hann sleppti henni og opn- aði litla silfur^krínið. „Þetta er ópíum, ástin mín“. „En það er eiturlyf — er það ekki?“ spurði hún hikandi. Hún hafði aðeins einu sinni heyrt þetta orð áður, — þegar rætt hafði verið um böl kín- versku ópíumsölunnar. „Það er ekki eiturlyf fyrir mig“, svaraði hann, og rödd hans varð að hvísli. „Þetta er ekki eiturlyf — heldur kast- spjót, er rýfur þokuna, sem skil ur okkur frá raunveruleikan- um. Það er þjónn minn. Allir hlutir eru þjónar mínir. Jeg er konungur lífs og dauða. Veistu það ekki ennþá, Miranda?“ Hann sneri höfðinu örlítið og horfði brosandi á hana undan hálfluktum augnalokunum. — Hún hafði ákafan hjartslátt, en henni tókst að svara honum ró lega, „Þú ert ekki frískur, Nikulás. Jeg veit ekki, hverskonar lyf þetta er, en það hefir ekki góð áhrif á þig. Komdu niður með mjer — gerðu það“. Hann hló lágt. Hann tók eina pípuna, lagðist á legubekkinn og andaði reyk hennar djúpt að sjer. Hún tók að mjaka sjer var- lega frá legubekknum, en hann rjetti eldsnöggt út hendina og þreif utan um úlnlið hennar. ,,Nikulás“, sagði hún, og leit á hann. „Jeg skil þig ekki. Hvers vegna gerirðu þetta?“ Hann svaraði ekki. Hann í- hugaði spurningu hennar með þögulli ánægju. Honum leið yndislega. Hugur hans starfaði af sjálfu sjer. Hann gat allt. Honum hafði fyrst komið í hug að nota ópíum, þegar hann heimsótti Edgar Allan Poe. ■— Nokkrum dögum eftir heim- sóknina hafði hann farið í lítið óásjálegt hús í Mott-götu. Fyrstu kynni hans af eiturlyf- inu höfðu verið andstyggileg, því að það hafði ekki lotið vilja hans. Hve hann blygðaðist sín nú fyrir það! Hann sneri höfðinu örlítið og horfði á Miröndu. Hann herti á takinu utan um úlnlið henn- ar. „Slepptu mjer“, hvíslaði hún. „Þú meiðir mig“. Hann sá að hún skalf og leit niður, til þess að reyna að hylja óttanum í augum sínum. „Slepptu mjer —“, endurtók hún. „Þú vilt ekki fara, væna mín. Sál þín og likami eru að- eins spegilmynd vilja míns“. Hann sveigði handlegg hennar aftur á bak svo að hún fjell nið ur á legubekkinn, við ‘hlið hans. Hann kæfði hróp hennar með kossum sínum. Loks sleppti hann henni. Hann ýtti henni frá sjer og teygði sig eftir silfurskríninu. „Láttu mig í friði“, sagði hann. „Þú þreytir mig“. Hann tók lykilinn upp úr vasa sínum og henti honum á gólfið. Undrablómið egyptska Æfintýr eftir H. De Vere Stackpoole. 6. finna túlipanann. Jeg skal gefa yður þessa baun, og ef blóm vex upp af henni, þá er það góðs viti. Svo skulum við fara til Egyptalands, finna þar túlípanann og sjá myndina af Carmian dóttur konungsins eða faraósins. og' við skulum sanna undrandi heimi, að hefðarmeyjar þeirra tíma báru höfuðbúnað þann er Tokki nefndist, en þetta er staðreynd, sem jeg hefi verið að reyna að sanna síðastliðin 30 ár, og' sem erkióvinur minn, hann Scwaffle- dammerung í Leyden er að reyna að afsanna”. „Umm, umm”. „Hvað ertu að tauta, stelpa. Talaðu heldur, jeg leyfi þjer það í þetta eina skifti”. „Hvað er Tokki”. „Æ, jeg veit það nú ekki almennilega, — það er . . . það er Tokki og skrifað með stórum staf. Jæja, skiftu þjer ekki af því, — en hann herra van Dunk sat og hlustaði á rausið í gamla fræðaþulnum, þar til hugmynd gamla mannsins fór allt í einu að hafa áhrif á hann, hann blátt áfram fuðraði upp”. „Kviknaði í honum, pabbi?” „Jeg fyrirgef þjer þessa spurningu, og það, að þú skyld- ir taka þetta bókstaflega, en það var hugur hans, sem allt í einu logaði upp, — þetta er skáldamál, skilurðu’, og van Dunk sagði: „Ef þessi baun vex upp, þá sel jeg túlípanagarðinn minn og húsið mitt og myndina af kúnni, sem hann van Gogh málaði svo dásamlega, og sem jeg keypti af manni, sem vantaði peninga til þess að fá sjer í staupinu fyrir. Svo förum við til Egyptalands að ná úr pýramidanum, sem þú varst að tala um, þessum túlípana, sem liggur í hendi garðyrkjumannsins hans Ramsesar annars.” Og svo settu þeir baunina í jörð og að lokum óx upp af henni fögur jurt, en það varð ekki fyrri en mánuðum síðar. Þegar jurtin blómstraði, hjelt van Dunk öllum hinum túlípanaræktunarmönnunum veitslu og sagði þeim frá ferðalagi því, sem hann væri nú að leggja upp í og einnig um hinn dásamlega túlípana, og þeir gerðu allir gys að EITT SINN í mjög miklum þrengslum í strætisvagni í London stóðu þeir hlið við hlið Edmund Gosse og fjelagi hans W. M. Rossetti. „Hvernig er það, ertu ekki stjórnleysingi?“ spurði Gosse. „Jeg er guðleysingi“, svaraði Rossetti. „Það er dóttir mín, sem er stjórnleysingi“. Allir þeir, sem næstir þeim stóðu og heyrðu samtalið, flýttu sjer út úr vagninum, svo þeir urðu eftir það ekki fyrir neinum átroðningi. ★ í VEISLU nokkurri sat ung- ur lávarður, sem var heldur leiðinlegur, á móti Whistler. 'Þeir töluðust ekkert við, en loks sneri lávarðurinn sjer að listamanninum og sagði: „Á jeg að segja yður, herra Whitsler, jeg ók framhjá bú- garði yðar í gær“. „Þakka yður fyrir“, sagði Whistler, „þakka yður kærlega fyrir.“ „Nei, sko, gamli maður“, sagði Englendingurinn, „þessi limgirðing .... æ, jeg sje, að gamli Georg hefir fengið lim- girðingu sína frá Englandi“. Gamli maðurinn leit rann- sakandi augum á Englending- inn, var þögull nokkra stund, en sagði síðan: „Já, sannarlega gerði hann það. Og það er ekki það mesta. Hann fjekk alt þetta blómlega land frá Bretum“. „Þjer munið ekki, hvað jeg heiti“, sagði ung kona eitt sinn, er hún hitti Henry Clay. „Nei“, svaraði hann hrein- skilnislega, „því að þegar við hittumst fyrir nokkrum árum, var jeg viss um, að fegurð yð- ar og ágæti myndi fá yður til þess að skifta um nafn mjög bráðlega". ★ ★ FJÖLDI MANNS kemur ár- lega til Mount Vernon, bústað- ar Georgs Washington. Dag nokkum kom þangað spjátr- ungslegur, ungur Englendingur Hann hitti gamlan mann, Shep Wright að nafni, sem hafði í | langan tíma sjeð um hirðingu garðsins kringum búgarðinn. Fátækur Þjóðverji, ættingi Jahn Jacob Astor, bað hann eitt sinn um ölmusu. Astor gaf honum fimm dollara. „Hvað“, sagði sá fátæki móðg aðúr, „sonur yðar ljet mig fá tíu dollara“. „Gerði hann það?“ hrópaði gamli maðurinn. „Þessi þorpari á ríkan föður“.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.