Morgunblaðið - 07.11.1944, Side 2
MORGUNBLAÐIÐ
ÞriSjudagur 7. nóvember 1944
leikfjelagið sýnir
iranska leikinn
„Hann"
LETKF.JELAfr RBYKJA-
iVÍKUR hefir frumsýningu á
■ Teikritinu „Uann“ eftir
fr.anska Iiöfuiuliim Alfred
fítvoir n. k. föstudagskvold.
Ijeikiit ]>etta er í senn gam-
;ai og alvara og hefir feugið
; gótJa dónia erlemlis. Leikstjóri
Jer Indriði Waage og leikur
ihann aðalhhitverkið. Aðrir
ileikendur eru m. a.: Haraldur
• A Sigurðsson, Valur Gíslason,
Ikynjólfur Jóhannesson, Jón
;ASiis, Ilerdís Þorvaldsdóttir,
iGestur Pálsson, Þóra Borg
iKinarsson. Inga Laxness,
fÆvar Kvaran og Valdemar
iITelgason.
; Jólaleyjrit Leikfjélagsins
fer ákveðið. Verður það Álfhóll
• eftir J. L. Tíeiberg. Jlaraldur
|B;jörnsson hefir leikstjórn á
jíi endi.
Um 1000 manns hlýd du á ræðu Ólafs Thors á Varðcírfundi 20. okt. — Ljósm.: Vigfús Sigurgeirsson,
Forsetakosningarnar
Um 1000 ma'nns á
Varðarfundi
Fylkja sjer einhuga um
formann flokksins .
Kvöldið áður en hin nýja ríkisstjórn var mynduð, fösiudag-
inn 20. oki. s. 1., var haldinn fundur Sjálfstæðismanna í lands-
málafjelaginu Verði i Reykjavík.
Fundurinn var haldinn í Sýningarskála myndlistarmanna og
voru öll sæti þjett skipuð og auk þess staðið svo sem húsrúm
frekast leyfði. Mun allt að 1000 manns hafa mætt á fundinum.
Ólafur Thors, formaður Sjálfstæðisflokksins, skýrði þar ýt-
arl.ega frá aðdraganda sljórnarmyndunarinnar og stefnu ríkis-
stjórnarinnar. Var ræðu hans fagnað af óskerðum einhug og
hrifningu fundarmanna.
Auk Ólafs Thors töluðu á þessum Varðarfundi alþm. Gunnar
Thoroddsen og Bjarni Benediktsson cg einnig Sigbjörn Ár-
mann. Eyjólfur Jóhannsson, formaður Varðar stjórnaði fund-
inum, sem fór hið prýðilegasta fram og bar vott um einhuga
fylgi við stefnu hinnar ný.ju ríkisstjórnar.
— Slaliit
Framhald af 1. síðu
Skmóanakannanir.
4
\ Fjögur af fimm skoðanakann
lariarfjölgum, sem taka yfir öll
jBandaríkin, birtu í dag úrslit
Kkoðanakönnunar, sem sýna, að
aRoosevélt hefir nokkru meira
;fylgi en Dewey. Kom fram í
skoðanakönnun þessari, að
Boosevelt hefði 52% á móti
48% , er væru með Dewey. Var
skdðanakönnunin gerð meðal
fólks af öllum stjettum og flokk
úxn.
tt'aJhögun kosninganna.
! Forsetakosningar í Banda-
►íkjunum fara þannig fram, að
jkjóse^Tur kjósa kjörmenn í
hverju fylki, en kjörmenn
kjása síðan forseta. Það er vit-
jað fyrirfram hvaða forsetaefni
kjörmenn kjósa, því þeir bjóða
sig fram fyrir ákveðinn flokk.
FCjörmannatalan er mismun-
an.di í fylkjunum. Hefir hvert
Tylkí jafnmarga kjörmenn og
það hefir þingmenn í fulltrúa-
delidinni, að viðbættum tveim-
ui öldungadeildarþingmönnum
fyrir hvert fylki. Þannig hefir
t d. Néw York fylki 45 full-
trúadeildarþingmenn og 2 öld-
imgadeildarþingmenn, eða sam
jtals 47 kjörmenn í forsetakosn-
Íngurn. Nokkur ríki hafa hins-
vegar ekki nema 3 kjörmenn
(sjá kort hjer að neðan).
Sá flokkur, sem fær hærri
atkvæðatölu í hverju fylki fyr
ir sig fær alla kjörmenn fylk-
isins. Þess vegna er það hugs-
anlegt að forsetaefni nái kjöri
þó það hafi ekki meiri hluta
atkvræða þjóðarinnar á bak við
sig. Hefir það komið fyrir tvisv
ar í sögu Bandaríkjanna (Rut-
herford Hayes og Benjamin
Harrison).
Alls eru kjörnir 531 kjör-
menn í öllum fylkjum Banda-
ríkjanna og þeir kjósa síðan
forseta. Fái ekkert forsetaefni
meiri hluta atkvæða í kjör-
mannakosningunni, kýs full-
trúadeild þingsins forseta með-
al þeirra forsetaefna, er fengið
hafa flest atkvæði.
Geta liðið margar vikur
þar til úrslit verða kunn.
Venjulega eru úrslit í forseta
kosningum í Bandaríkjunum
kunn seint sama kvöld sem
kosningar fara fram. Kosninga
vjelar eru í flestum stærri borg
um, sem telja sjálfkrafa at-
kvæði um leið og þau eru
greidd og flýtir það mjög fyrir
talningu.
En að þessu sinni eru um 4
miljónir amerískra hermanna,
sem kosningarjett hafa erlend-
is og atkvæði þeirra verða ekki
talin í sumum fylkjunum fyrr
en eftir nokkrar vikur. Hvert
fylki fyrir sig hefir sínar eigin
kosningareglur og venjur. T. d.
hefir Nebrspká-fýlki ákveðið
a£ tekið verði á móti atkvæð-
um hermanna úr því fylki til
7. desember og í Kaliforníu-
fylki verða hermannaatkvæði
ekki talin fyr en 24. hóvember.
Verði lítill munur milli at-
kvæða republikana og demo-
krata í sumum fylkjum, geta
hermannaatkvæði ráðið úrslit,-
um. Þetta er mögulegt, en ekki
líklegt.
Varaforsetakosningar og
þingkosningar.
Það verða 40—50 miljónir
kjósenda, sem ganga til kosn-
inga í dag í Bandaríkjunum.
Auk forsetakosninganna verð-
ur kosin varaforseti og þing-
menn bæði til fulltrúadeildar
og öldungardeildar og auk þess
embættismenn í mörgum fylkj
um. Til fulltrúadeildarinnar
verða kosnir þingmenn, en kjör
tímabil þeirra er tvö ár og 35
öldungardeildarþingmenn, af
96 þingmönnum deildarinnar,
sem kjörnir verða til sex ára,
en hinir eru kjörnir til tveggja
ára.
Framh. af bls. 1.
Dumbarton Oaks, þá hefði það
lagast furðanlega. En á hinni
nýafstöðnu ráðstefnu hans og
Churchills í Moskva, kvað
hann hafa verið algjört sam-
komulag.
Þá kvað Stalín að algjörlega
yrði að afvopna Þjóðverja, bæði
hernaðarlega, fjárhagslega og
stjórnmálalega. Kvað hann
Þjóðverja þegar vera farna að
undirbúa nýtt stríð, sem koma
yrði í veg fyrir. Stalín lagði til
að vopnað vald yrði látið koma
í veg fyrir styrjaldir í fram-
tíðinni.
Slalín kvað Rússa eiga í
höggi við 200 þýsk og ung-
versk herfylki, en Brela og
Bandaríkjamenn við 74 að vest
an. Og hvorugum hefði gengið
eins vel, sagði hann, ef Þjóð-
verjar hefðu ekki þurft að berj
ast á Iveim vígslöðvum.
„Það er nú ekki“, sagði
Staljn, „annað eftir en að gefa
Þjóðverjum rothöggið í sínu
eigin landi. Og það mur\ rauði
herinn gera. Rauði fáninn skal
blakta yfir Berlín“. — Reuler.
AðaKundur Sjálf-
slæðisfjelsgs Vesf-
mannaeyja
Yestmannaeyjum, mánu-<
dag. Frá frjettaritara,
vorum.
AÐALFUNDUR Sjólfstæö-.
isfjelags Yestmannaeyja var,
haldinn s. 1. sunnudag.
1 stjórn fjelagsins voruj
kosnir eftirgreindir menn. 5
Tómas M. Guðjónsson útgrn.^
formaður, en meðstjórnendui)
Einar Sigurðsson forstjóri*
Ingimundui? Bernharðsson,
verkam., Ársæll Sveinsson út-<
gerðarm. og Gnðjón Scheving
málarameístari. Einnig fói*
fram kosning í fulltrúaráð:
flokksins.
Á fundinum mætti þingmað
ur • kjördæmisins, Jóhann Þj
Jósefsson og flutti erindi umi
stjórmálaviðhorfið.
Kvenfjelag Hallgrímssóknar
heldur fund í kvöld kl. 8.30 í
Bröttugötu 3 A. — Rætt verður
um vetrarstarfsemina, en á eftir
verður sameiginleg kaffidrykkja.
K @®sevélt fjekk meiri hluta síðast í þeim virkjum, sem eru gr á á kortinu.