Morgunblaðið - 30.11.1944, Síða 12
12
Fimtudagur 30. nóv. 1944
Itímmw lundur
sjávarúftvegs-
manna
LANDSSAMBAND ísl. út-
veg- manna boðaði til almenns
úi.vegsmannafundar í Kaup-
f’dnf.'-sainum í gær kl. 10 f. h.
Fort aður Landssambandsins,
TCjarcan Thors, 'setti fundinn og
lýst; tildrögum til stofnunar
fundarins og verkefnum hans.
FUndarstjóri var tilnefndur ÓI-
afur B. Björnsson Akranesi og
fundarritari Sverrir Júlíusson,
Kéftavík og Sugurjón Sigurðs-
son. Reykjavík.
A fundinum mætti forsætis-
ráðherra Ólafur Thors, og flutti
bann glöggt erindí um störf og
verkefni ríkisstjórnarinnar, er
s.jei staklega snúa að sjávarút-
vegi landsmanna.
Fyrir fundinum liggur frum
varp til laga fyrir Landssam-
banciið. en það felur í sjer auk-
ið verkefni fyrir sambandið.
Jakob Hafstein framkv.stj.
fh.rr.t: mjög ýtarlegt og glöggt
erindi um lagafrumvarpið.
Eftirtaldar nefndir voru kosn
ar á fundinum: Laganefnd, for
maður Gísli Jónsson alþm., alls
beriiaiefnd. form. Finnbogi
Guðmundsson, Sambandsgjalda
rrefnd, form. Ingvar Vilhjálms-
sor , Viðskiftanefnd, form. Stef
ári Franklín.
Fundurinn mun haida áfram
í dag kl. 13.30 og munu þá
nefndirnar skila áliti. Gísli
Jónssoh alþm. mun flytja er-
indi á fundinum í dag kl. 16
stdndvíslega. Mun hann ræða
uru: frumvörp þau er liggja fyr
ir Alþingi um beitumál, ný-
byggipgarsjóð útvegsmanna,
breytingu á lögum um atvinnu
við siglingar, breytingar á lög
urn uin oliugeyma og breyting-
ai á fiskveíðasjóðsiögunum.
fm Grieg og áida
Möiier leysíar úi
Frá frjettaritara vorum,
Akureyri 28. nóv.
BRÚÐUHEIMILIÐ var leik-
*ð -ísíðasta sinni sunnudaginn
26. þ. m., fyrir fullu húsi. Var
Jeikr.um að vanda ákaflega vel
tekio, voru leikendur að leiks
íökum mjög hyltir, með ein-
lcegii lófataki og frú Öldu
Möller færðir blómvendir.
Hefir Brúðuheimilið nú ver-
ið sýnt als í 10 kvöla, sem má
leljast vel að verið-, þegar um
jafn vandasamt leikrit er að
ræða.
I gær, 27. þ. m. hafði stjórn
I-Jhkfjelagsins miðdegisverðar-
boð' ínni, að Hótel KEA, fyrir
gí«ti fjeiagsins, frú Gerd Grieg
og Öídu Möller. Voru þar mætt
*i- Ieikendur og aðrir starfs-
*oenti leiksins. Auk þess konsúll
Nórðrnanna hjer J. Jentoft In-
bjö: og nokkrir aðrir. — Sam-
r.ætið fór hið besta fram, voru
fjörlmargar ræður íluttar. Leik
fjelagið færði frú Gerd Grieg
að gjöf einkar vandað eintak af
Jfe imskringlu Snorra Sturlu-
sonar, með skrautáritun og frú
Oldu Möller farða-kassa, er
gert hafði formaður Leikf jelags
ins, Guðm. Gunnarsson, af
ruiklum hagleik.
í Ijósum loga yfir Vínarborg
Logar standa aftur úr vængjum þessarar Liberatorflugvjelar, sem var að ráðast á
oíí’jstöðvar í úthverfum Vínarborgar, og hrapaði vjelin til jarðar, rjett eftir að myndin
var tekin. Það var þýsk orustufiugvjel, sem veitti þessari amcrísku sprcngjuflugvjel slík-
an ávcrka.
Námskeiði frystihúsa
vjeistjöra lokið
43 þátttakendur
I
NÁMSKEIBI fyrir vjel-
stjóra í frystihúsum lauk í
gærkveldi, eftir að hafa staðið
í hálfan mánuð, eða frá 16.
til 29. þ. m.
Námskeið þetta var haldið
að tilhlutun ööiumiðstöðvar
Ilraðfrystihúsanna. 43 frysti-
húsvjeistjórar sóttu námskeið-
ið. er haldið var í húsakynn-
um Vjelsmiðjunnar Hjeðinn,
sem jafnframt lagði til aliar
vjelar, svo og aðgang að verk
stæðum sínum.
Á námskeiðinu var vjel-
stjórunum kenndar eftirfar-
andi greinar: Gæsla mg hirð-
ing írystivjela, disselvjela, raf
vjela og hjálparvjela í frysti-
húsum. Eðli frystikerfisins,
Gassuðu, Rafsuðu, Hjálp í
viðlögum og Öryggisútbúnað-
ur, svo og annað því tilheyr-
I andi.
Kennarar námskeiðisins,
voru 17 talsins, þeir: Elías
Þorsteinssou, fonuaður Sölu-
miðstöðvar Hraðfrystihnsanna
Sveinn Guðmundsson forstjóri
Vjelsmiðjunnar Iljeðinn, eu
Sveinn Guðmundsson stóð
janframt fyrir námskeiðinu,
Einar Sigurðsson, forstjóri
Hraðfrystihússins í Vest-
mannaeyjum, Gísli Halldórs-
son, vjelaverkfræðingur, Jón
Oddsson, vjelaverkfi'æðingur,
hjá VjeLsmiðjunni Iljeðni,
Kjartan Jónsson, rafsuðumeist
ari, Jón Oddgeir Jónsson, fulL
trúi Slysavarnafjelags íslends
Ilöskuldur Baldvinsson, A'erk-
fræðihgur hjá Kafmagnseftir-
liti ríkisins, Þorsteinn Lofts-
son, FiskifjeLagi Islands, Jó-
hann Pjetursson, vjelfræðing-
ur, Björgviu Fredriksen, vjel-
virkjunarmeistari, Jakol) Gísla
son, forstöðumaður Rafmagus
eftirlits ríkisins, Þórður Run-
ólfsson, vjelaeftirlitsmaður,
Axel Kristjánsson, vjelaveilc-
fræðingur hjá Rafa, Halldór
Einarsson, Rafmagnseftirliti
ríkisins, * Ólafur Þórðarson,
Rafmagnseftirliti ríkisins,
og Bergsteinn Bergsteinsson,
fiskimatsmaður.
Sölilmiðstöð Ilfaðfrystihús-
anua kostaði nám allflestra,
þar eð þeir sátu námskeið:
þetta á vegum hennar, en
nokkrir menn er sátu nám-
skeiðið voru starfsmenn hrað,
fiystihúsa .S.Í.S. og mun það,
kosta nám þeirra.
Ilraðfrystiliúsin vænta góðs
af þessu námskeiði, en þetta
er í fyrsta skifti sem slík
kensla hefir farið fram í
frystivjelafræði. — Þörfin fyr
ir slík námskeið sem þetta,
var orðin mjög brýn og eiga
Vjelsmiðjan Iljeðinn og Sölu-
miðstöð Ilraðfrystihúsanna
þakkir fvrir framtaksemi sína
Námskeiðinu sleit f. h. Sölu
miðstöðvarirmar, Ólafur Þórð-
arson, forstjóri, með nokkr-
um orðum, en ýmsir nemend-
ur tóku til máls og bar þeim,
öllum saman um hversu allt
hefði verið gert til þess að,
þeir gætu notið sem allra best
þeirrar kennslu er notið varð,
á svo skömmum tíma.
Sátu nemendur í góðu yf-
irlæ.ti með forráðamönnum og
kennnrum námskeiðsins, fram
eftir kvöldi í liinum vistlega
samkomusal starfsfólks VjeL-
smiðjunnar Iljeðins.
London: Orðrómur hefir
gengið hjer í þá átt, að Montgo
mery marskálkur hafi í hyggju
að bjóða sig fram til þings, en
er leitað hefir verið til þeirra,
sem hann þekkja best, eru þeir
allir á einu máli úm það, að
Montgomery hafi aldrei fyllt
neinn stjórnmálaflokk og sje
afar frábitinn flokkastjórnmál
um yfirleitt.
Ollum verslunum
verður lokað á
morgn kl. 12 á hád.
ÖLLUM VERSLUNUM bæj-
arins, vefnaðar- og nýlendu-
vöruverslunum, kjöt- og mjólk
urbúðum bæjarins verður lok-
að kl. 12 á hádegi á morgun,
1. des. — Rákarastofura verður
lokað kl. 1 e. h.
Sjerleyfishafar
sfofna með sjer
fjelag
ÞANN 20. sept. og 8. okt. síð
astliðinn, stofnuðu sjerleyfis-
hafar með sjer fjelag. Fjelagið
var nefnt „Fjelag sjerleyfis-
hafa“. Tilgangur þess er sam-
kvæmt 2. gr. fjelagslaganna, að
vinna að sameiginlegum hags-
munamálum sjerleyfishafa.
I stjórn fjelagsins voru kosn-
ir: Sigurjón Danivalsson, for-
maður, Helgi Lárusson, ritari,
Sigurður E. Steindórsson, gjald
keri.
Á fundinum voru rædd
helstu framtíðarhagsmunamál
fjelagsins, meðal annars nauð-
syn á hentugri farkost á leiðun
um, sjerstaklega þó um þörf á
betri snjóbifreiðum til vetrar-
flutninga. Vöntun á nauðsynleg
um varahlutum til áætlunar-
bifreiðanna. Hinn geysi háa
stofnkostnað, sem fólginn er í
yfirbyggingum bifreiðanna, og
fleira.
Samþykt var að fela stjórn
fjelagsins að reyna að afla upp-
ljrsinga erlendis frá um verð á
yfirbyggingum á áætlunarbif-
reiðir. Ennfremur að útvega
leyfi fyrir nauðsynlegustu vara
hlutum.
Lög um nýbyggingarráð
staðfest.
Forseti Islands staðfesti á rík
isráðsfundi á mánudag, lpg um
nýhyggingarráð. A sama fundi
veitti hann Birni Sigurðssyni
lausn frá hjeraðslæknisembætti
í Miðfjarðarhjeraði.
Vjelbáfur sfrandar
við Snæfellsnes
Nannbjörg
Frá frjettaritara vorum.
Ólafsvík 29. nóv.
VJELBÁTURINN Hafaldan,
RE 71, Reykjavík, strandaði
austan við Öndverðarnes, mánu
daginn 27. nóv. kl. 10.30. Þrír
voru á bátnum og björguðust
þeir allir.
Bálurinn var á leið frá Ól-
afsvík til Beruvíkur. Er bát-
urinn var siaddur undir Svörtu
loftum, kom að óstöðvandi
leki. Var bátnum þegar snúið
við og var honum hleypt upp
í urðina. Þegar er báturinn
kendi grunns, varpaði formað-
ur bátsins, Sigurður Pjeturs-
son, frá Reykjavík, sjer í sjó-
inn og synti hann með streng
til lands. Á strengnum bjarg-
aðist annar háisetinn, Lárentín-
us Dagobertsson, bóndi að
Hellu I Beruvík, en hinn há-
seetinn, Maríus Guðmundsson,
frá Görðum í Beruvík, komst
hjálparlaust lands. Bátur-
inn liggur nú mölbrotinn í urð-
inn. — Skipverjar munu hafa
mist töluvert af dóti sínu.
Togarlnn „Faxi"
seldur
ÓSKAR HALLDÓRSSON og
dætur hans hafa selt togarann
Faxa (áður Arinbjörn hersi),
Kaupandi er nýstofnað hluta-
fjelag, Faxaklettur í Hafnar-
firði. Aðalhluthafar í þessu fje
lagi eru þeir Sigurjón Einars-
son skipstjóri og Jón Gíslason
útgerðarmaður, báðir til heim-
ilis í Hafnarfirði.
Heimilisfang skipsins verður
áfram hjer í Reykjavík og ekki
verður breytt um nafn á skip-
inu, sem heldur sömu einkenn-
isbókstöfum, R. E. 17.
Ameríkumönnum
hófað hefndar-
vopnum
London: Þýsku blöðin eru nu
altaf að gefa í skyn, að skotið
muni verða rakettusprengjum
á Bandarikin bráðlega. Þannig
sagði Völkischer Beobachter
fyrir skömmu: „Það var ekkert
kraftaverk, þótt hægt væri að
skjóta V—1 mörg hundruð míi
ur til Bretlands, og verður ekki
heldur kraftaverk, þótt einhver
önnur V-vopn fljúgi þúsundir
mílna og komi niður í öðru
landi“.
Aðalfundur Versl-
unarmannafjelags- .
ins
AÐALFUNDUR Verslunar-
mannafjelags fslands verður í
kvöld kl. 8.30 i húsi fjelagsins.
Helstu mál, er liggja fyrir funol
inum, eru skýrsla formanns,
kosning stjörnar og nefnda, svo
og lagahreytingar. Einnig munu
önnur inál, er fram kunna a<S
koma, tekin til umræðu.