Morgunblaðið - 27.02.1945, Side 8

Morgunblaðið - 27.02.1945, Side 8
8 MORGUNBEAÐIÐ í’riðjudag'ur 27. febrúar 1945. Mimning€sr®r8 um i Margrjeti Yaldimarsdóttur 1 yfirhjúkrunarkonu I DAG verða jarðsettar frá Fríkirkjunni í Reykjavík jarð- neskar leifar Margrjetar Valdi- marsdóttur yfirhjúkrunarkonu við sjúkrahúsið á Sólheimum, en hún Ijest þar 15. febr. s.l. eftir stutta legu, að nýafstöðn- um holskurði, er á henni var gerður. Margrjet Valdimarsdóttir fæddist að Hlaðhamri í Hrúta- firði í Strandasýslu 16. júlí 1897. Foreldrar hennar voru Guðbjörg Jónsdóttir og Valdi- mar Jónsson, er þá bjuggu á nefndri jörð. Fór Margrjet úr foreldrahúsum stuttu eftir ferm ingu, og mun eigi hafa fengið önnur fararefni þaðan en heil- brigt uppeldi og góðar fyrir- bænir ræktarfullra en fátækra foreldra. Með þetta að vegar- nesti lagði hún, unglingurinn, einmana en örugg út í heiminn og farnaðist ætíð vel. Eftir að Margrjet fór að heim an dvaldi hún í vist hjá vanda lausu fólki á Suður- og Austur- landi til ársins 1922, er hún fór til Danmerkur til hjúkrunar- náms. Lauk hún námi sínu á tilskyldum tíma, en dvaldi að því búnu á ýmsum sjúkrahús- um þar í landi, til ársins 1931, er hún fluttist til íslands og : ge|ðist hjúkrunarkona við ' sjúkrahúsið í Vestmannaeyj- um. Snemma í febrúar 1934 varð hún yfirhjúkrunarkona | við sjúkrahúsið á Sólheimum og gegndi því starfi til dauða- dags. Jeg, sem þessar línur rita, kyntsit Margrjeti fyrst þau ár, sem hún var vinnukona á Hafra nesi við Reyðarfjörð, en þang- að kom hún, að jeg hygg, 17 ára að aldri. Varð hún brátt uppáhald _alls helínilisfólksins þar og hjelt þeim sessi ætíð síð- an, bæði meðan hún dvaldi þar, og eins eftir að vegir skildust, er hún fór þaðan. Margrjet Valdimarsdóttir var með afbrigðum greind kona og fróðleiksfús. Var og um margt betur að sjer en títt er um ungl inga þá, er eigi hafa notið ann- arar mentunar en lítillar heimafræðslu í æsku. Hún var mjög ljóðelsk og kunni mesta sæg kvæða og lausavísna, eftir Kalkipappír kvart og fólío góður og mjög ódýr. Pappirspokar allar stærðir. A. J. Bertelsen & Co. h.í. Hafnarstræti 11 — Sími 3834. öll íslensk skáld. Var og sjálf vel hagmælt, þó lítið ljeti hún á því bera. Hafði stálminni á alt, sem hún las eða heyrði og sagði prýðisvel frá. Var að jafnaði glöð í lund og skemtin í viðræðum. Hafði ágæta kýmni gáfu og ætíð á reiðum höndum hnitmiðuð hnyttinyrði og græsku lausa gletni, sem öllum var til gamans, er á hlýddu, og eigi síst þeim, er til var talað hverju sinni. En þrátt fyrir alt vissi jeg það vel, að djúp alvara og skörp athugun var sterkasti þátturinn í eðli Margrjetar. Valdi hún sjer og æfistarf í samræmi við það. Verður eigi skrifað um það hjer. Það verð- ur gert af þeim, sem betur eru til þess hæfir en jeg. En þess er jeg fullviss, að eigi mun hún þar fremur en annarsstaðar hafa svikist undan skyldum sín um. Margrjet var nokkuð skap- mikil, en stilti þar ætíð vel í hóf. Hún var mjög vinsæl og trygglynd, dul í skapi, og sagði eigi hug sinn allan hverjum, sem hafa vildi. Okkur vini hennar setti hljóða, er við frjettum lát henn j ar. Það var svo stutt milli þess, að við hittum hana, að því er Jvirtist alheila, þar til helfregn- ^in barst okkur. Þykir okkur of ^snemt að kveðja hana nú hinsta sinni, á besta aldri, þó svo verði að vera. En minning- in um hana verður okkur ætíð sólskinsblettur í heiði, er við munum oft setjast við og gleðj- jast. Við fráfall Margrj.etar er sár j harmur kveðinn að nánustu ást- j vinum hennar, systkinum og jbörnum þeirra. Þeim reyndist I hún ætíð alt í öllu, að svo miklu jleyti, sem í hennar valdi stóð. Sparaði hún aldrei neitt það, er hún mátti í tje láta þeim til aðstoðar, ef með þurfti. En það er þeim harmabót, að þeir eiga um hana svo margar og fagrar minningar, sem aldrei getur slegið fölva á. Vertu sæl, Margrjet. Friður Guðs sje með þjer. , Einar Friðriksson. Rýmingarútsala hefst í dag og stendur yfir í 4—5 daga. Það, sem selt verður, er: íyrir döimir: Dömukjólar Dragtir Pils Élóssur 1 Silkisokkar á kr. 4,00 parið. Taubútar og margt fleira. Komið og gerið góð kaup. KJÓLRBÚÐIN Bergþórugötu 2. Fyrir börn: | Teipukjólar ÍTelpukápur 2—5 ára Samfestingar Drengjabuxur UHarpeysur ÍUllarsokkar 5 kr parið. Tilkynning Samkvæmt heimild í lögum nr. 34, 12. febr. 1945., tim breytingu á lögum um útsvör nr. 106, 1936 hefir bæjarstjórn Ilafnarfjarðar sahiþykt, að upp í útsvar yfirstandatidi árs beri gjaldskyldum útsvarsgreiðend- um að greiða fyrirfram sem svarar 40% af útsvari 'þeirra 1944 með gjalddögum 1. mars, 1. apríl, 1. maí og 1. júní n. k., sem næst 10% af útsvörum 1944 hverju sinni, og að allar greiðslur skuli staitda á hálf- um eða hoilum tug króna. Hafnarfirði, 26. febrúar 1945. Bæjarstjóri Endurskoðarastarf Ungur maður, með bólcfærslukunnáttu og sem hefir áhuga fyrir að læra endurskoðun, getur nú þegar feng- ið atvinnu h.já löggiltum endurskoðanda. ■— Umsókn merkt „Endurskoðun" sendist blaðinu f. 3. mars n. k. AUGLÝSÍNG ER GULLS IGXLDI X-9 I PMiL COPF.iCAM (X-9) j VJRSCK5 KROPPSR'5 A77BMP7 TO TAK6 Oöé. CN A!*MJK6 A GPBZDiHÓ MOTOF BOA7 AT THE PLANE’ð PONTOONS... CORRISAN LEAPe PROM TME BOAT JU5T B6FORE TME CRASH... Eflir Robert Slorm CATAPUí-TEO r-RO* VÆ J-AANE. A9 fT NOSEö CVER, i<J\t> BADVJ INJURED HQ\<' SVlNf i N [ vc boju M CCFFI6AN TRIEo D="A-CR\P 3REAK "VC U VATEk'v OP | JSfc OVEf? THE X-9 kom í veg íynr ao Arupper kærnisl undan hann, en þá greip Krupper hann heltaki og þving- í flugvjelinni. Þeim skaut upp nálægt hvor öðrum. aði honum niður með sjer. Krupper hrópaði á hjálp og ætlaði X-9 að aðstoða Hraöbátuiinn siglir mannlaus með ofsa hraða rjett hjá j. ;n.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.