Morgunblaðið - 16.05.1945, Qupperneq 2
MORGUNBLAÐIÐ
Miðvikudagur 16. maí 1943
a !| I
lerlín verst leikin
nllrn borgn
r Einkaskeyti frá frjetta-
ritara Reuters.
Á MEÐAL þeirra fjölmörgu
kunnu bygginga í Berlín, sem
korfið hafa eða orðið fyrir slík-
um skemmdum, að ekki er unnt
að bæta úr, er höll sú, er keis-
arinn hafði á sínum tíma að-
setur silt í, óperan, franska,
-breska og ameríska sendiráðið,
flugmálaráðuneyti Görings, út-
fcreiðslumálaráðuneyti Göbbels
og Bristol og Adlon hótelin. —
Kanslarahöil Hitlers í Wilhelms
strasse, er eins og geisistór tóm
grafhvelfing.
Nokkrar sprengjur hafa lent
á henni og ógerningur er að
segja um það enn, hvað kann
að- verá* grafið undir rústunum
-— ef til vill Hitler sjálfur.
.,Ef þið viljið sjá, hvað styrj-
o.á er í raun og veru, komið
þá til Berlínar“, sagði Tedder
flagmarskálkui', eftir að hafa
verið fimm mínútur á eftirlits-
ferð og gert uppdrátt af ástand
inu við Brandenborgarhliðið, í
hina frægu teiknibók sína. —
Eina fólkið á straétum Berlínar,
serr. lítur út eins og mannlegar
verur, eru rússneskir hermenn.
Rússnesk yfirvöld hafa skýrt
frá því, að tvær miljónir íbúa
sjeu nú í borginni, en þeir eru
aðallega í útborgunum.
I miðbluta borgarinnar sjást
aðeins konur og börn, sem eru
^ins og liðin lík á svipinn, fara
tu vatnsbólanna til þess að
dæla vatni, en sárafáir karl-
menn.
Allir, sem sjeð hafa útlit
Eerlínar núna, eru á einu máli
vm, að það muni taka mörg ár
■að endurreisa miðhluta borg-
•arinnar, ef hann verður þá
aiokkru sinni endurreistur.
Rauði fáninn, eða rjettara
tu.gt nokkrir rauðir fánar blakta
•á ríkisþinghúsinu, sem er allt
tjcunnið að innan — í þetta
ckiiti var um raunverulegan
fcruna að ræða. Tiergarten, sem
•er beint á móti þinghúsinu. er
teicis og brunninn skógur. Hjer
jgeisuðu harðir götubardagar.
Ef ekið er í bifreið frá Temp-
♦elhof flugvellinum til þinhúss-
tsiis, en sú' ferð tekur hálftíma,
•ec aðeins hægt að sjá sex hús,
eém ekki eru orðin „gagnsæ“ og
eýna nokkur merki um það, að
l»íið sje í þeím.
Ibúar borgarinnar og rúss-
neskir hermenn eru að reyna að
b.reinsa aðallgöturnar, en því
verki má helst líkja við. að
b.reinsa burlu sandinn kringum
egyptsku pyramidana.
Rússneska herstjórnin hefir
Jsegar látið gera geisistóra upp
drætti á öllum torgum og kross
gotum. Án þeirra myndi vera
ómögulegt að rata gegnum eyði
thdrk þessarar úitþurkuðu borg-
a:r
Enginn hávaði er í borginni
rieraa frá hinum rússnesku her
bítum og einum og einum hest-
vagnj, en loftið er full af slein-
ryki.
Eitt lifsmark er þó sjáanlegt,
■exf það er endalausar raðir
Munilislauss fólks af öllum
•eilrópskum þjóðernum, sem
■fiJaaima, um bórgina í ýmsar
■áttir og að því er virðist knúð-
ir áfram af einhverrn eðlis-
ávísun, heldur en að þeim sje
ljóst hvert ferðinni raunveru-
lega er heitið- Rússneska her-
stjórnin er þegar-búin að taka
hundruð þúsunda Berlínarbúa
upp á sína arma og úthlutar
þeim matvælum. Rauði herinn
hefir lagt undir sig matvæla-
birgðar borgarinnar og hefir
bætt við af sínum eigin birgð-
um. Reynt hefir verið að koma
vatnsleiðslu borgarinnar í lag.
Rússar ætla sjer sýnilega
ekki að hefnast á nokkurn hátt
á borgarbúum. Hermenn Rauða
hersins eru hvarvetna glaðir og
góðviljaðir. Þeir höfðu rq.eð sjer
kvenumferðarlögreglu, er gef-
ur merki með rauðum og gul-
um flöggum og heilsar æfinlega
kurteislega eins og þær hafa
gert alla leið frá Volgu • til
Spree.
Aðal-forstjórar gasstóðvanna,
rafmagnsstöðvanna, vatnsleiðsl
unnar og annara stofnana í
þágu almennings, hafa af fús-
um og frjálsum vilja boðist til
að ganga í þjónustu Berzarins
hershöfðingja, og frjettaritar-
inn kveður sjer hafa verið sagt,
verkamenn í Berlín hafi
snúið sjer til rússneskra hern-
aðaryfirvalda og sagt „við er-
um ykkar hermenrlV
Margir særðir þýskir fangar,
sem lágu í neðanjarðarspítölum
hafa verið sendir til Rússlands
á sjerstaka spítala og þeim
er veitt hjúkrun af þýsk-
um læknum og hjúkrunarkon-
u.m.
Á hverjum degi koma þús-
undir Berlínarbúa aftur til
borgarinrrar, en þar er ekki
mikið til að hverfa að.
Rússar búast við að geta
komið neðanjarðarsámgöngum
í lag um miðjan þennan rnán-
uð, en sem stendur eru kol-
brunnir strætisvagnar svo
hundruðum skiftir á* götunum,
og dauðir hestar sjást enn á
sumurn götum og margir hlutar
borgarinnar eru mjög hættu-
legir fyrir alla umferð, vegna
hinnar sífeldu hættu á því, að
þeir hrynji „í síðustu dauða-
teigj unum“.
Edda, blað um
bækur og bóka-
gerð
NÝLEGA hóf göngu sína á
Akureyri blað, sem ætlað er að
fjalla um bókagerð íslendinga.
Nefnist það Edda, og er Árni
Bjarnarson ritstjóri þess ©g út-
gefandi. — Af blaði þessu eru
nú komin út fimm tölublöð, en
það kemur út einu sinni í viku,
4 bls., eða hálfsmánaðarlega, 8
bls. í blöðum þeim, sem út eru
komin, eru ýmsar frjettir af
bókagerð, stuttar frásagnir um
nýjar bækur, greinar um rit-
höfunda og bókaútgefendur og
ennfremur sagnaþættir. Blað-
ið er prentað á vandaðan
pappír og er í fremur litlu foroti.
Aðalfundur Bygginga-
fjelags verkamanna.
40 íbúðir
verða
bygðar
AÐALFUNDUR Bygginga-
fjelags verkamanna var hald-
inn s. 1. sunnudag. Formaður
fjelagsins, Guðmundur I. Guð-
mundsson, las úr ársskýrslu
stjórnarinnar. Var í henni m.
a. greinargerð um byggingu
íbúða í 2. og 3. flokki, sem nú
eru fullgerðar. TaJ.ið er að
þriggja herbergja íbúðir í 2.
flokki muni kosta rúmar 40
þús. krónur. — í þriðja flókki
eitthvað lítið yfir 60 þúsund kr.
Afborgun var áætluð kr. 125
á rnánuði í 2. flokki og kr. 175
á mánuði í 3. flokki. — Upp-
gjör bendir til þess, að á þessu
verði nokkur hækkun. Stafar
hún vegna hækkunar opinberra
gjalda. Er búist við að hækk-
unin nemi kr. 25 á mánuði í
báðum flokkum.
40 íbúðir byggðar.
Hugmundin var að byggja
íbúðir á s.l. ári. Það reyndist
ógerlegt þá, vegna fjárhagsörð-
ugleika. Talið er að úr þessu
sje að rætast. Og muni verða
auðið að byggja 40 þriggja her-
bergja íbúðir. Er undirbúning-
ur verksins þegar hafinn. Ekki
er talið fært, að gera kostnað-
aráætlun í sambandi vjð þess-
ar byggingar. Verður þeim
ekki úthlutað til fjelagsmanna
fyr en þær verða fullgerðar. •—
Verður þá fjelagsmönnum gef-
inn kostur á að kaupa þær í
þeirri röð, sem þeir eru skráð-
ir í fjelagið. í ráði er að hafa
þær allar í Rauðarárholti, en
þar eru hús fjelagsmanna þeg-
:ar fyrir.
Byggingarfjelag verkamanna
var stofnað árið 1939. — Hefir
fjelagið látið byggja 124 íbúðir,
sem nær allar eru þriggja her-
bergja- í fjelaginu eru 520
manns. Af þeim eru á biðlista
396.
I stjórn Byggingarfjelagsins
eiga þessir menn sæti: Guð-
mundur í. Guðmundsson, er
:hánn stjórnskipaður formaður.
Aðrir meðl'imir stjórnar eru
kosnir hlutfallskosningu og eru
þeir þessir: Bjarni Stefánsson,
‘Magnús Þorsteinsson og Grím-
ur Bjarnason. Þessir menn hafa
altir átt sæti í stjórn þess frá
byrjun. Auk þess var nú kos-
inn Alfreð Guðmundsson í stað
Sveins Jónssonar, er baðst und
an endurkosningu.
r
Oðinn lekur
fogara
Frá fi’jettaritara voruai,
Eyjiuu, mánudag':
VARÐ15ÁT UR JNN Óí) INN
kom hingað í morgun raeð
breskan togara er hann tók að
veiðnm í landhelgi út af Hjör-
íeifshöfða. — Togari þessi er
frá London. — Rjettarrann-
ókn í máli hans er þegar liafin
að
Hannyrða- og
teiknisýning
Kvennaskólas
í Reykjavík
UNDANFARNA DAGA hefir
hin árlega hannyrða- og teikni
sýning Kvennaskólans í Reykja
vík staðið yfir. Var síðasti sýn-
ingardagurinn s. 1. mánudag. —
Er sýning þessi í alla staði mjög
athyglisverð, og næsta furðu-
legt, hve miklu námmeyjar
hafa afkastað í hannyrðum jafn
hliða bóklegu námi sínu.
Hannyrðakennslukonur skól-
ans eru þær Sigríður Briem og
Jórunn Þórðardóttir, er báðar
kenna fatasaum, og Sigurlaug
Einarsdóttir, sem kennir út-
saum.
í fyrsta bekk er áskilið, að
■námsmeyjar saumi koddaver,
náttkjól og prjóni vesti. í öðr-
um bekk ber þeim að sauma
slopp og blússu, í þriðja bekk
náttföt og kjól og þar læra þær
að auki að bæta og stykkja, og
hafa margar hverjar náð mik-
illi leikni í því. I fjórða bekk er
svo áskilið að þær saumi undir-
kjóla, og læra þær þá að sníða,
og býr hver námmær til snið af
sjálfri sjer, sem hún sníður síð-
an kjólana eftir.
Auk þessarar skylduvinnu eru
kendar hannyrðir i þrem fyrstu
bekkjunum, sem þyngjast eftir
því, sem ofar dregur, og enda í
fínustu hvítasaúmsvinnu, í III.
bekk. — Á sýningunni getur að
líta ótal púða, veggteppi, saum
uð með glitsaum, krosssaum og
forníslenskum saum, kaffidúka
o. fl. o. fl. Eru munir þessir all-
ir vel gerðir, snilldarhandbragð
á sumum þeirra, þegar þess er
gætt, að námsmeyjar eru flest-
ar kornungar.
Teiknikennari skólans hefir
í vetur verið frú Vigdís Kristj-
ánsdóttir. Eru teikningar náms
meyja fjölbreyttar og skemti-
legar, og hafa vakið almenna
athygli. Sýningin hefir verið
mjög fjölsótt.
Umferðabann í
þýskum borgum
LONDON: Allir Þjóðverjar
eru nú raunverulega fangar, og
er þeim bannað að vera á ferli
frá kl. 10 að kvöldi til þess er
tajart er að verða að morgni. —
Enginn má gefa út blöð, nje
starfrækja útvarp, það lætur
herstjórn bandamanna gera. —
Nökkuð af herföngum hefir ver
ið látið laust til ýmsra starfa,
aðalléga landbúnaðarstarfa. —
Engir nasistar verða látnir
lausir, og reynist þeir sem látn
ir eru vinna, ekki trúir banda-
mönnum í verkum sínum, eru
þeir þegar settir inn aftur. •—
Uppskeruhorfurnar eru taldar
þolanlegar í Þýskalandi, en á-
kaflega mikið vantar á að þjóð
in sje sjálfri sjer nóg með mat
væli eins og stendur. I landinu
eru als 6 milj. herfanga, eins
og stendur, og er ákaflega
miklum örðugleikum bundið, |
að fæða þá alla. Talið er að það
auðveldist þó mikið, er hafni-r
landsins fara að komast í betra
lag. Ákaflega mikið er og af
bágstöddu flóttafólki víðsvegar
um landið.
Svar til „Svövu
Hannesdóitur"
SVAFA HANNESDÓTTIR
lánar nafn sitt yfir og undir
langa grein í Alþýðublaðið
þann 4. maí s. 1. Grein þessi
er svar við hinni marg um
ræddu „Reykjanes“-grein, um
kvennaskortinn í Keflavík um
það mál ætla jeg ekki frekar
að ræða, því að i því hefi jeg
gert það sem mjer bar, sem
frjettaritara Morgunblaðsins,
að leiðrjelta missagnir, sem í
,,Reykjanes“-greininni voru og
Morgunblaðið birti í góðri trú.'
Leiðrjettingar mínar voru bygð
ar á upplýsingum, er ungfrú
Inga Ingimundar bar mjer frá
þeim yfirmönnum hersins, sem
með þessi mál hafa að gera. Á
þær upplýsingar hafa engar
brygður verið bornar, en þó
finnur höfundur „Svöfugrein-
arinnar“ ástæðu til að senda
mjer frekar ósmekklegan skæt
ing undan pilsfaldi ’ungfrú
Svövu.
Jeg veit, Svava, að þjer þyk-
ir leiðinlegt hvernig nafn þilt
er misnotað, þú hefir enga á-
stæðu til að ausa mig skömm-
um og jeg veit að þú hefir ekki,
og getur tæplega gert þjer
grein fyrir því, hvort, eða
hvenær, skrif mín eru bygðar-
laginu til skaða eða ekki. Jeg
veit líka vegna þinna pólitísku
skoðana, að þú berð enga um-
hyggju fyrir Morgunblaðinu,
þjer hlýtur að slanda á sama,
hvort það blað verður sjer t-il
minkunar í Keflavík eða ekki.
Ef til vill finst þjer það leitt að
jeg skuli draga rithöfundar-
hæfileika þina svo berlega í
efa, greinin ber altof glögg æll-
areinkenni Sjúkrasamltagsfor-
stjórans og aðsloðarmanna
hans, til þess að annað sje
hægt. Það er einkaeign Faxa-
manna að nota gæsalappir um
frjettaritaratitil minn, þjer
hefði ekki hugkvæmst það hjálp
arlaust, og svo, ef þú hefðir
sjálf athugað alla málavexli,
þá hefðirðu sjeð að minn þáll-
ur í þessu máli var aðeins sá,
að leiðrjetta missagnir um hið
nýstofnaða Verkakvennafjelag
þitt, þjer og fjelaginu í vil. Jeg
veit það að hjer í Keflavík eru
nokkrir Framsóknar- og Al-
þýðuflokksmenn, sem umfram
alt viija fá mig til að þegja, en
þeim tekst ,það nú ekki að
sinni, og mjer er það óblandið
gleðiefni að þeir eru ekki á-
nægðir með mig, því ef svo
færi, þá væri jeg sannarlega
illa kominn. Mjer þykir leitt
Svava, að þurfa að senda þjer
þessa kveðju, en skuldir falla
oft á ábyrgðarmennina, en sá.
sem lánið fjekk, brosir að ófö: -
um hins.
Helgi S. Jónsson.
Doolittle fær nýtt
starf.
LONDON: — Doolittle flug
foringi, sem stjórnað hefir
áttunda flughernum ameríska
er nýfarinn til Washington,
og hefir annar verið iskipaður,
eftirmaður hans. Mun Doo-
Jittle taka við öðru starfii
vestra. Ilann var sá, semi
stjórnaði fyrstu árásinni áj
Tokio. j