Morgunblaðið - 14.06.1945, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
íslensk tónlist á lista-
mannaþingi
Húsmæðraskóla
Reykjavíkur
sagi upp í gær
^ Tvö kvöld listamannavikunn
©• voru helguð íslenskri tónlist.
Tyrri hljómleikarnir voru
fraldnir í Tjarnarbíó, og gafst
t'iustendum þar kostur á að
"ttynnast nýjum tónverkum,
eömdum fyrir strokhljóðfæri
og píanó, eftir Hallgrím Helga-
con, Karl O. Runólfsson, Helga
jPálsson og Jón Nordal.
Undirritaður gengur þess
.okki dulinn, að fjöldi áheyr-
•enda varð fyrir nokkrum von-
fcrigðum á hljómleikum þessum.
Jíefir hann jafnvel haft tal af
eönghneigðum mönnum, sem
töldu efni þeirra fremur reikn-
tingsdæmi í tónum en listaverk.
Slík afstaða er skiljanleg,
ftegar eftirfarandi atriða er
igætt: 1. Stefna su, sem ofan-
igreind tónskáld taka í verkum
siLium, er mjög frábrugðin tón-
Jístarvenjum, sem hjer á landi
hafa verið ríkjandi frá seinni
jbíutá 19. aldar og fram á síðasta
áratug.
2. Sumt af efni slíkra hljóm-
leika hlýtur að vera fremur vís
ir en ávöxtur — fremur tilraun
_«en fcoðskapur.
3. Reynsla tónskáldanna í
}>ví að semja lög fyrir hljóðfæri
oím (Instrumental-musik) hefir
verið af skornum skamti hjer á
landi.
4. Ný verðmæti á vettvangi
listarinnar heimta, hvað sem
•stefnu þeirra líður, nokkurn
tíma til meltingar, ef svo mætti
að orði komast.
Hjer er ekki rúm til að lýsa
•jtium einkennum hinnar nýju
fitefnu — og þeim hættum, sem
-af henni kunna að stafa. Fjör-
•egg hennar er forn-íslenska
þjóðlagið. Var það að þessu
íánni hin óbreytta uppistaða
lagaflokks fyrir strengjasveit
•eftir Hallgrím Helgason. Hall-
grítnur er landsmönnum kunn-
ur sem rithöfundur, fyrirlesari
og gagnrýnandi. Ber tónverk
jpetta mentun hans glögt vitni.
jfím hljómrænu öfl ráða hjá hon
um yfir hinum lagrænu, en
Jtlutvérk hrynjandinn^r er
hverfandi. Sumum mun þykja
evipur þess heldur þungbúinn
og hlýjuvana, og vekur slíkt
íurðu hjá jafn ungum manni og
JEíaligrímur ei. Ekki skal full-
yct, hvort hjer er um skap-
tgerðareinkenni að ræða eða um
•urnabundið fyrirbrigði í ævi-
tferli hins ötula tónskálds.
Forn-íslenska þjóðlagið gæg-
_íst einnig fram í þrem lögum
_rfyrir fiðlu og píanó (,,Systur í
«Grarðshomi“) og tveim dönsum
^d’yrir hljómsveit eftir hinn 18
ára gamla Jón Nordal. í verk-
un'. hans er hrynjandi laglínunn
-ar aðal-orkugjafinn. Má telja
/þau nokkuð einhliða í sniði
(ABA-form), en merkilega
þroskuð — einkum þáttinn
,,Signý“ úr „Systur í Garðs-
Jborni“ og annan dansinn (í dor-
iskum hætti); minnir blær hans
_-í dráttfáa og dráttsterka trje-
sikurðarmynd, sem áhorfandinn
ifetur seint losnað við.
.’ HELGI PÁLSSON átti á þess
um hljómleikum athyglisverð-
ari sírengjakvartett, samin sem
ntef með tilbrigðum og fugu.
(Á hinni prentuðu efniskrá
hafði, því miður, láðst að geta
nánar um byggingu hans). Hið
yfirlætislausa en alvöruþrungna
stef birtist í fjölbreytilegum
myndum; víða ber enn á valda-
streitu kirkjutóntegundanna
fornu og dúr-mollríkisins seinni
tíma — og fullmikið á hermi-
röddum (Imitation), en yfir öllu
verkinu hvílir sjerkennileg heið
ríkja, sem hefir holl áhrif á
hlustandann. Væri gaman að
kynnast fleiri verkum þessa höf
undar.
KARL O. RUNÓLFSSON er
eflaust reyndastur hinna yngri
tónskálda okkar. Hin skapmikla
sónata hans fyrir fiðlu og píanó
ber vott mikillar vandvirkni. —
Trítónus-spennt stef geislar í
gegnum alla þætti hennar, unz
það tekur á sig sitt fyrsta gerfi
í lokakafla síðasta þáttar. Skap
ast þannig, þrátt fyrir eirðar-
leysi sjálfs stefsins, sú innri
heild, sem mun hafa vakað fyr-
ir höfundinum. Undirrituðum
þykir hann reyndar ganga helst
til langt í trítónus-dýrkun
sinni; en það er ekki eins dæmi,
að maður verði ,,skotinn“ í sinni
eigin hugmynd — og ást spyr
ekki að rökum.
BJÖRN ÓLAFSSON og ÁRNI
KRISTJÁNSSON ljeku sónöt-
una og „Systur í Garðshorni11
með kostgæfni, og var hið fyrra
þó engann veginn „hægðarleik-
ur“. Strengjakvartett Tónlistar-
skólans flutti kvartett Helga
Pálssonar, en strengjasveit Tón
listarfjelagsins Ijek, með aðstoð
Jóhanns Tryggvasonar, laga-
flokk Hallgríms Helgasonar og
dansana eftir Jón Nordal undir
stjórn dr. Urbantschitsch. -—
Hefði frammistaða hinnar síð-
ari gjarnan mátt þiggja hluta
af aga þeim, er sjerkennir leik
fjórmenninganna.
Seinni hljómleikar Lista-
mannaþingsins fóru fram í Dóm
kirkjunni. Efnisskrá þeirra var
sundurleit að gæðum, en hún
átti að gefa nokkur sýnishorff
íslenskrar kirkjutónlistár. Flutt
voru verk fyrir orgel og söngv-
ar með orgelundirleik eftir
Björgvin Guðmundsson, Hall-
grím Helgason, Jón leifs, Pál
Isólfsson og Sigurð Þórðarson.
Lagið „Mamma“ eftir Sigurð
Þórðarson hefir þegar hlotið
vinsældir hjá almenningi, og
verður það ekki gagnrýnt hjer.
Hin snyrtilega partíta Björg-
vins Guðmundssonar talar mál
stærri og smærri spámanna 18.
aldarinnar, og er mönnum því
ekki vorkunn að hlusta á hana.
Hallgrímur Helgason, Jón Leifs
og Páll ísólfsson gera sjer lífið
ljett. Kirkjulög Jóns Leifs við
sálma Hallgríms Pjeturssonar
munu með því besta og sannasta
sem þessi mikli forvígismaður
þjóðlegrar tónlistar hefir samið
og á Pjetur Á. Jónsson söngvari
þakkir skildar fyrir hina inni-
legu túlkun þeirra.
Chaconne Páls Isólfssonar
(um stef úr „Þorlákstíðum11),
er unnin með öllum brögðum
orgelsnillingsins og koma mörg
hinna gagnhugsuðu hljómbrigða
hlustendum gleðilega á óvart.
Höfundurinn sjálfur sat við org
Framh. á bl£ 8,
HÚSMÆÐRASKÓLA Revkja-
víkur var sagt upp í gær.
Forstöðukona skólans, frú
Hulda Stefánsdóttir, hjelt ræðu
við það tækifæri, þar sem hún
m. a. gerði grein fyrir starf-
semi skólans á þessu ári.
Námsmeyjar í heimavistar^
deild voru 33, en 6 þeirra urðu
að gista utan skólans. I heim-
angöngudeild var 51, en 80—90
á kvöldnámskeiðum.
Forstöðukonan gat þess. að
hún yrði þess vör, að fólk gerði
nokkuð miklar kröfur til henn-
ar, að hún gæti sjeð þeim fyrir
skólavist er þess óskuðu. En
umsóknirnar væru svo langtum
fleiri, en hægt væri að taka á
móti. I fyrrahaust hefðu t. d.
legið fyrir 300 umsóknir. Þá
var auglýst að endurnýja þyrfti
umsóknirnar fyrir þær náms-
meyjar, er ekki komust að i
það sinn. En nú eru umsóknir
íyrir heimavistardeild 100 fyr-
ir næsta vetur 90 fyrir vetur-
inn 1946—47, 61 fyrir vetur-
inn 1947—48, 30 fyrir veturinn
1948—49. 20 fyrir veturinn ’49
—50 og nokkrr.r umsóknir fvrir
næstu tvö ár,/l950—52.
Síðan mintist forstöðukonan
á ánægjulegt samstarf nem-
enda og kennara skólans og hve
hin nýafstaðna handavinnusýn-
ing skólans hefði borið vott um
mikla ástundun nemendanna,
og góðan árangur af kenslunni.
Formaður skólanefndarinnar
frvi Ragnhildur Pjetursdóttir,
ávarpaði nemendur skólans. —
Hún þakkaði þeim fyrir góða
frammistöðu og beindi til þeirra
nokkrum velvöldum hvatning-
ar orðum.
Sölur togaranna
í s.1. viku
Samkv-æmt upplýsingum, er
blaðið hefir aflað hjá Fjelagi
íslenskra botnvörpuskipaeig-
anda, hafa þessir 10 botnvörp-
ungar selt afla sinn í Englandi
í s. 1. viku. Vörður seldi 202
smál. fyrir 11.995 sterlingspund
Helgafell 180 smál. fyrir 10.666.
íslendingur 107 smál. fyrir
6.322, Baldur 191 smál. fyrir
11.251. Ólafur Bjarnason 111
smál. fyrir 6.1000, Forseti 205
smál. fyrir 11.544, Júní 180
smál. fyrir 10.750, Gylfi 200
smál. fyrir 10.853, Skallagrímur
218 smál. fyrir 12.170 og Kópa-
nes 159 smál., fyrir 8.862.
Gengi pundsins er- nú skráð
krónur 26.22.
Þýsksinnuðum mönn-
um vikið frá í Belgíu.
London í gærkvöldi.
ÚTVARPIÐ í Brússel skýrir
frá því, að innanríkisráðherra
Belgíu, Adolphe van Glabbeke,
hafi vikið úr embætti um 500
háttsettum embættismönnum,
sem höfðu átt samvinnu við
Þjóðverja. Meðal þesgara manna
voru margir háttsettir embætt-
ismenn, borgarstjórar, lögreglu
stjórar o. fl. — Reuter.
Fimtudagur 14. júní 1945,
Vöruskifta-
jöfnuðurinn
hagstæður
VÖRUSKIFTAJÖFNUÐUR-
INN í maímánuði var hagstæð-
ur um 7,0 milj. kr. Nam verð-
mæti innfluttrar vöru 26,8
milj., en verðmæti útfluttrar
33,8 milj. kr. Vöruskiftajöfn-
uðurinn á tímabilinu jan.-maí
þessa árs, er einnig hagstæður.
Verðmæti innfluttrar vöru nem
ur 106.1 milj. og útfluttrar vöru
123,7 milj. kr. Er því vöruskifta
jöfnuðurinn hagstæður um 17,6
miij. kr. á þessu tímabili.
Á tímabilinu jan.-maí 1944,
var vöruskiftajöfnuðurinn einn
ig hagstæður. Verðmæti inn-
fluttrar vöru nam 96,6 milj kr.
og útfluttrar 98.8. Því hagstæð-
ur um 2,2 milj. kr.
3604 amerískir
hermenn fórust í
herflufningum
Washington í gærkvöldi.
FLOTAMÁLARÁÐUNEYTI
Bandaríkjanna hefir birt
skýrslu um manntjón Banda-
ríkjamanna í herflutningum á
sjó. 3604 hermenn fórust í árás
um á herflutningaskip í stríð-
inu við Þjóðverja og ítali. Af
hverjum tíu þúsund hermönn-
um, sem fluttir voru á skipum
til Evrópu, fórust fjórir.
Manntjónið er tiltölulega lít-
ið, og er það þakkað því, hve
dugandi skipafylgdin var, og
jafnframt kunnáttu skyttnanna
á skipunum.
Mesta manntjónið varð, þeg-
ar breska herflutningaskipinu
,,Rohna“ var sökt í nóvember
1943 út af Djidelli í Algier. —
Mesta manntjón, sem varð við
það, að amerísku skipi var sökt,
varð, þegar herflutningaskipinu
„Paul Hamilton“ var sökt við
Algier 30. apríl 1944. Þá fórust
504 liðsforingjar og óbreyttir
hermenn. — Reuter.
Lindbergh í París.
London í gærkvöldi.
PARÍSARÚTVARPIÐ skýrði
frá því í dag, að Charles Lind-
bergh, sem verið hefir í borg-
aralegri þjónustu í Þýskalandi,
sje kominn til París. Lindbergh
rannsakaði „Jet“-flugvjelarnar
svonefndu, meðan hann dvald-
ist í Þýskalandi, en nú er hann
ráðunautur fjelagsins „United
Aaircraft Corporation“.
— Reuter.
Ný stjórn í Noregi
mynduð í vifeu-
lofein!
Frá norska blaða-
fulltrúanum.
FYRIR HÁDEGI s.l. þriðju-
dag vár haldinn ríkisráðsfund-
ur í norsku konungshöllinni, sá.
fyrsti, sem þar hefir verið hald.
inn síðan 9. apríl 1940. Á þess-
um ríkisráðsfundi afhenti Ny-
gaardsvold forsætisráðherra
konungi lausnarbeiðni, sem all-
ir ráðherrarnir höfðu ritað und
ir. Samkvæmt venju fór kon-
ungur þess á leit við stjórnina,
að hún gegndi störfum, þar til
er ný stjórn hefði verið mynd-
uð.
Konungur mun eiga viðræð-
ur við leiðtoga stjórnmálaflokk
anna og mótspyrnuhreyfingar-
innar og leita álits þeirra um
myndun nýrrar stjórnar.
Búist er við, að hægt verði að
mynda nýja stjórn í lok þcss-
arar viku, en Stórþingið kemur
saman í dag, 14. júní.
Á þessum sama ríkisráðs-
fundi var ákveðið, -að kosning-
ar til Stórþingsins skyldu fara
fram 8. október n.k. og bæjar-
og sveitarstjórnarkosningar 19.
nóv. n.k.
Fiskimálaráðherra
Breta þakfear sjó-
mönnum á
skipum
(Þann 19. maí s.l. birtist í
breska blaðinu „Fish Trades
Gazette“ eftirfarandi þakkará-
varp til sjómanna, sem stundað
hafa íiskiveiðarnar á stríðsárun
um):
„NÚ, ÞEGAR styrjöldinni í
Evrópu er lokið, langar mig til
þess að senda öllum, sem stund
,að hafa fiskiveiðar á sjónum,
fyllstu þakkir og mestu viður-
kenningu fyrir erfiði ykkar og
fórnir síðustu fimm og hálft ár-
in.
Þegar stríðið braust út, þurfti
breski flotinn óhjákvæmilega
að taka til sinna nota megin hlut
ann af skipum og togurum —-
og þau, sem best voru. — Þrátt
fyrir þetta og andspænis öllum
ógnum óvinarins, þrátt fyrir
mikið manntjón, þá hafið þið
fært til breskra hafna birgðar
af fiski handa bresku þjóðinni,
að magni til meiri heldur en
flestir nokkru sinni bjuggust
við, að mögulegt mundi verða,
— Vel gert!“
| Hin hagkvæma og fullkomna
■>
f Lloyd’s-
w
f ferðatrygging
<4>
I fæst með bestu fáanlegum kjörum hjá oss.
i Carl D.Tulinius&Co.h.f.
V