Morgunblaðið - 25.07.1945, Blaðsíða 4
4
MOKGUNBLAÐIÐ
Miðvikudagnr 25. júlí 1945
íþróltamót Ums. Dalasýslu
HIÐ ÁRLEGA íþróttamót Ung
mennasambands Dalasýslu var
haldið á sunnudaginn var að
Laugum í Sælingsdal. Keptu
að þessu sinni íþróttamenn frá
öllum ungmennafjelögum sýsl-
unnar, en þau eru sex: Ólafur
pá í Laxárdal, Unnur djúpúðga
í Hvammssveit, Dögun á Fells-
strönd, Von í Kloíningshreppi,
Vaka á Skarðsströnd og Stjarn
an í Saurbæ.
Undanrásir fóru fram á laug
ardaginn og var þá slæmt veð-
ur, kalt og mikil rigning. En á
sunnudaginn var besta veður og
þar þá fagurt um að litast í Sæl
ingsdal. Um hádegi fór fólk að
streyma að úr öllum áttum,
bæði á bílum og hestum. Kom
ríðandi fólk í stórhópum hvað-
anæva, þeysandi á úrvalsgæð-
ingum, og voru um 300 hestar
í girðingu öðrum megin hátíð-
arsvæðisins, en fjöldi bíla á
aðra hlið.
Mótið hófst með því að Hall-
dór á Staðarfelli bauð gesti og
keppendur velkomna. Síðan
flutti Þorsteinn Þorsteinsson
sýslumaður skörulegt erindi og
hvatti unga fólkið í sýslunni
til dáða og drengskapar.
Því næst hófst íþróttakepnin
og verður hjer aðeins getið um
þá, sem fræknastir reyndust í
hverri grein.
Sundkepnin fór fram í hinni
ágætu yfirbygðu sundlaug, sem
ungmennafjelögin hafa reist hjá
Laugum, en aðrar íþróttir fóru
f'ram niðri á bökkum árinnar.
Kepni fór þannig:
50 metra drengjasund.
Gunnar Kjartansson.Irá Lang
ey (Von).
25 metra kvennasund.
Sigurborg Helga Jónsdóttir,
Sælingsdalstungu (U. d.).
50 m. sund karla, frjáls aðferð:
Einar Kristjánsson, Leysingja
stöðum (U. d.).
100 m. bringusund karla.
Torfi Magnússon frá Fremri-
Brekku (Stj.).
80 m. drcngjahlaup.
Bragi Húnfjörð frá Víghóls-
stöðum (D.).
100 m. hlaup karla.
Bragi Húnfjörð.
Kúluvarp.
Bragi Húnfjörð.
Hástökk.
Sturla Þórðarson, Breiðabóls-
stað (D).
Þrístökk.
Sturla Þórðarson.
Spjótkast.
Magnús Jónsson frá Gerði
(Stj.).
Langstökk.
Bragi Húnfjörð.
2000 m. drengjahlaup.
Þorsteinn Pjetursson, Ytra-
Felli (D.).
\3000 m. halup.
Gísli Ingimundarson, Hvoli
(Stj.).
Keppendur á mótinu voru alls
25.
j Að íþróttum lokqum skemti
| Ríkarður Jónsson myndhöggv-
\ ari með upplestri,, en Friðgeir
Sveinsson flutti ' kveðju frá
'Breiðfirðingafjelaginu í Reykja
| vík.
j A3 lokum var dans stiginn
í stóru tjaldi.
I Á. Ó.
Sfjómmálafundur
á
Húsavík á þriðjudag.
Frá f”jettaritara vorum.
í gær var að tilhlutun þeirra
flokka, sem standa að núver-
andi ríkisstjórn, boðað til al-
menns stjórnmálafundar í Húsa
vík, og mættu þar þessir að-
komu menn:
Sigurður Kristjánsson, alþm.,
Sigfús Sigurhjartarsson, alþm.,
og Jónas Jónsson frá Hriflu. Af
| heimamönnum töluðu: Þráinn
Maríusson, Arnór Kristjánsson,
Karl Sigtryggsson, Karl Kristj
ánsson og Júlíus Havsteen,
sýslumaður.
i Umræður urðu fjörugar og
j fóru hið berta fram. Fundar-
stjóri var Friðrik A. Friðriks-
son, prófastur.
Höfnin i Danzig opnuð
LONDON: — Höfnin í Danzig
hefir nú aftur verið opnuð fyrir
siglingar.
Hydrautic-pressur
70 tonna, fyrirliggjandi.
Cjcu'kar CjísíaSon
Sími 1500.
>-♦>»«
Stór íbúð
1 Háteigshverfinu er til sölu ný íbúð, 4 herbergi,
eldhús og bað, ásamt 4 smáherbergjum og snyrtiher-
bergi með WC í risi. Sjerinngangur og sjermiðstöð.
Ibúðin er sólrík og útsýni vítt.
CCasteijna (ÍC ^Jer&lrjejaSa L
(LÁRUS JÓHANNESSON, hrm.)
an
Suðurgötu 4.
Símar 4314 og 3294.
AF SJÓNARHÓLI SVEITAMANNS
„GERÐ sje áætlun um hvaða
atvinnutæki þurfi að fá til þess
að sem flestir landsmanna geti
á venjulegum tíma haft vinnu
við sem arðbærastan atvinnu-
rekstur. Og ennfremur hvaða
framkvæmdir aðrar skuli gerð-
ar með hliðsjón af því, að at-
vinnuleysi:1 skapist ekki í land-
inu.
Ríkisváldið hlutist til um að
nauðsynleg atvinnutæki verði
keypt utanlands eða gerð inn-
anlands svo fljótt sem fært
þykir. Skulu atvinnutæki þessi
seld einstaklingum fjelögum
eða rekin af ríkinu, ef starf-
semi þeirra er þýðingarmikil
fyrir þjóðarheildina eða mik-
inn hluta hennar. Skulu fjelög
til þess að reka atvinnutækin
stofnuð að tilhlutan hins opin-
bera, ef þörf reynist.
Að svo miklu leyti sem fjár-
magn til þeirra framkvæmda
fæst ekki með venjulegum
sköttum og eðlilegri eignajöfn-
un, skal það fengið með lán-
tökum, ef til vill skyldulánum
eða eftir atvikum skylduhlut-
töku í atvinnutækjum“.
★
ÞIÐ MUNUÐ líklega ekki
vera í miklum vafa úm það,
lesendur góðir, hvaðan ofan-
greind klausa sje. Hún er nátt-
úi’lega úr samningnum, sem
stjórnarflokkarnir gerðu í
haust, þegar ríkisstjórnin var
mynduð. En þó undarlegt sje,
þá er það nú ekki. Þetta er úr
brjefi, sem Frs.fl. sendi hinum
flokkunum í haust, þegar hann
ætlaði sjer að verða með í stjórn
armynduninni. Þetta vöru nú
hans skilyrði fyrir þátttökunni.
Þetta ætlaði hann sjer að gera,
ef hann yrði í stjórn.
(Raunar var ekkert af þessu
hugsað af Framsóknarmönnum,
því það er tekið orðrjett upp
úr brjefi, sem ‘Sjálfstæðismenn
sendu hinum flokkunum og í
samræmi við það, sem fram
hafði komið í 12 manna nefnd-
inni. En Framsóknarmenn end-
urtaka alt í brjefi sínu og ætl-
uðu því hiklaust að ganga að
því).
★
OG ÞETTA er einmitt það,
sem stjórnin er að gera. Hún
hefir látið gei-a áætlun um það,
hvaða atvinnutæki þurfi að fá
svd að landsmenn . geti stund-
að arðsama vinnu. Sú aukning
atvinnutækjanna á að koma í
veg fyrir að okkur hendi
þyngsta og sárasta bölið af öllu:
Atvinnuleysi í okkar auðuga
og litt numda landi.
★
RÍKISSTJÓRNIN hefir unn-
ið ósleitilega að því,,að vjelar,
skip og , verkfæri verði keypt
utanlands og smíðuð í landinu.
Þau munu yfirleitt verða seld
einstaklingum eða fjelögum,
því nógir virðast ætla að verða
til að kaupa. Fjármagns til þess
ara framkvæmda verður aflað
með sköttum og lántökum, ef
með þarf, alveg eins og Tíma-
flokkurinn ætlaðist til.
★
NÚ, ER ÞÁ EKKI „alt í lagi“?
Er þá ekki Tíminn með stjórn-
inni? Vill hann ekki vinna að
framgangi þeirrar stefnuskrár,
sem hans eigin flokkur hefir
sett fram? Nei, það er nú eitt-
hvað annað. Iljer er nefnilega
10. júlí
einn hængur á og hann meiri
en lítill fyrir sjónum Tímaklík-
unnar: Hermann er ekki forsæt
isráðherra. Hann hafði sagt:
„Þið skuluð fá að velja milli
mín og „upplausnarinnar“. Her
manni var hafnað. Þess vegna
verður ,,upplausnin“ að koma.
En sem betur fer hefir hún enn
ekki komið fram nema í herbúð
um Tímamanna sjálfra. Sigl-
firskir Framsóknarmenn og
Jónasarsinnar, þeir munu nú
orðið kannast við hvað upp-
lausn er. En sú „upplausn“ er
af öðrum toga spunnin'heldur
en venjulega er skrifað um i
dálkum Tímans og Dags
★
FRAMSÓKNARFLOKKUR-
INN hefir lengi af því gumað,
að hann væri sáttasemjari í
þjóðmálum, hann hefði löng-
um staðið milli hinna stríðandi
flokka og borið klæði á vopn-
in, þegar sýnt- var að síga
mundu saman fylkingar. En nú
skeði það ,,undarlega“, að sjálf-
ir „óvinirnir" sættust. Andstæð
ir flokkar með ólíkar skoðanir
á ýmsum pólitískum grundvall
aratriðum sáu að þáð var þjóð-
arnauðsyn að hefja samstarf og
gerðu það. Og flokkurinn, sem
áður var hinn blíði og hógværi
friðflytjandi, hann gerðist nú
hinn argasti friðarspillir, ber-
andi róg milli samstarfsflokk-
anna og gerði sjer við það síst
minna ómak heldur en rang-
æski Hofsbóndinn forðum daga
við bræðurna á Bergþórshvoli.
★
EN HVAÐ ER nú orðið um
klæðið góða, sem maddama
Framsókn lagði áður á brugðna
branda hinna stríðandi flokka?
j Nú kom það í góðar þarfir til
I annara hluta. Svo sem kunnugt
j er, telur Hermann sig sjálfkjör-
jinn eftirmann Þorgeirs heitins
i Lj ósvetningagoða, sem stóð á
j þingi, er við trúnni var tekið
af lýði, fyrir löngu síðan. Áður
en Þorgeir kvað upp þann skyn
samlega úrskurð, að íslending-
ar skyldu vera kristnir menn,
er sagt að hann hafi legið heil-
an sólarhring í búð sinni, breitt
feld yfir höfuð sjer og hugsað
málið. Þegar hið fyrra hlutverk
Framsóknar — sættagerðin —
var úr sögunni, þurfti H. J. að
finna nýja „rullu“ handa flokki
sínum. Hugðist hann nú fara að
eins og Þorgeir, lagðist fyrir
uppi á Tímaskrifstofu og dró
yfir höfuð sjer klæðið góða, sem
fyr getur.
★
EFTIR LÖNG heilabrot og
miklar ígrundanir hafði spek-
ingurinn fundið alveg nýja
tefnu handa Framsóknarflokkn
um. Hún hljóðaði eitthvað á
þessa leið: Hjer eftir á FramL
sókn að gegna hlutverki aftur-
haldsins í landinu. Hún á að
boða hrun og öngþveiti, eymd
og örbirgð á tímum velmegunar
og framsækni. Hún á að boða
kauplækkun og rýrnun á lífs-
kjörum almennings, þégar út-
flutningsverðmæti landsmanna
eru í hámarki. Hún á að halda
fast við úrelta atvinnuhætti og
lítt byggileg landssvæði, svo
hægt sje að halda áfram
styrkjapólitík síðustu áratuga.
★
JÁ, svona hafa tímarnir stund
um undarlega endaskifti á hlut
unum — framsóknin er orðin
að afturhaldi. Flokkurinn, sem
einu sinni hafði að orðtaki: Alt
er betra en íhaldið; flokkurinn,
sem einsetti sjer að vinna til
vinstri; flokkurinn, sem hafði
það á stefnuskrá sinni að mynda
róttæka umbótastjórn, hann
mundi nú þurfa að snúa sig úr
hálsliðnum, til þess að koma
auga á sanna og djaríhuga um-
bótaviðleitni. Svo gjörsamlega
hefir hann snúið baki við allri
framsækni og mist trúna á
möguleika almennings í land-
inu til batnandi lífskjara.
★
ÞAÐ ER AÐ VISSU leyti
skiljanlegt, að yfirmenn Fram-
sóknarflokksins hafa tekið þessa
stefnu. Þeir hafa um alllangt
skeið verið forrjettindastjett í
þjóðfjelaginu og það er eðli
slíkra manna að verja sjer-
hagsmuni sína af atorku ’ og
ákafa. Hitt er aftur á móti
næsta ömurlegt, að sjá heið-
virða, vinnandi bændur, sem
ekki mega vamm sitt vita, setj-
ast niður og skrifa blaðagrein-
ar til varnar þeirri „helstefnu“,
sem Framsóknarflokkurinn hef
ir nú tekið. En það er svo sem
ekki í fyrsta sinn, sem íslensk
alþýða hefir safnáð hrísinu í
vendina handa sínum eigin
böðlum.
Vegna sumarleyfa
verður skrifstofu niinni og vörugeymslu lokað til .6. ágúst %
Paul Smith I
Þurkuð epli
fyrirliggjandi.
Eggert Kristjánsson & Co. h.f.