Morgunblaðið - 27.09.1945, Page 12
12
MOKGUNBLAÐIÐ
Fimtudagur 27. sept. 1945
Menningar og minningarsjóður kvenna
ÞEGAR TIL ÞESS var mælst
að jeg skrifaði nokkur orð um
sjóð þenna, rifjuðust upp fyrir
mjer atvík frá löngu liðnum ár-
um. Forgöngukonur flestallra
þeirra kvenfjelaga, er þá voru
starfandi í þessum bæ, voru
samankomnar til þess að ráða
ráðum sínum um það, á hvern
hátt konur landsins gætu best
minst þeirra tímamóta í sögu
íslenskrar kvenþjóðar, er þær
hugðu að mundu markast, þá
er þær fengju kosningarjett og
kjörgengi til Alþingis. Þótti
sjálfsagt að hefjast handa um
að hrinda fram einhverju góðu
og gagnlegu máli, bæta úr ein-
hverjum tilfinnanlegum skorti.
Og hjer vantaði svo margt. All
ir þektu til þess, hve ófullnægj
andi sjúkrahússkostur lands-
ins var, — og var sem sú hug-
mynd, að konur beittu sjer nú
fyrir því, að ráða bætur á þessu
atriði, hefði verið fyrir fram á-
kveðin í hugum flestra þeirra,
sem hjer voru mættar. En ein
þeirra kom fram með aðra
uppástungu. Hún vildi að kon-
urnar gengust fyrir stofnun
sjós, til styrktar ungum konum,
sem stund legðu á háskólanám,
eða aðra framhaldsmentun.
þessi kona var frú Bríet Bjarn-
hjeðinsdóttir.
Tillagan um landsspítalann
var samþykt og starfið fyrir
hann hafið, og tók frú Bríet og
fjelag hennar, Kvenrjettinda-
fjelag íslands, drengilegan þátt
í því starfi. En geymt er eigi
gleymt. Hugmyndin um mentun
arsjóð kvenna, sem frú Bríet
bar fram sumarið ’15 lifði í huga
hennar, og hún misti aldrei sjón
ar á henni. Mun hún hafa vitað,
af eigin reynd, hvar skórinn
kreppti, því að eflaust hafa
efnahagsástæður, ásamt fáum
úrræðum til mentunar kvenna,
á æskuárum hennar verið þess
valdandi, að hún átti sjer þess
ekki kost að afla sjer þeirrar
mentunar, er hugur hennar
hefði kosið, og gáfur hennar
gjört hana rjettbæra að.
En nú er þá sjóðurinn, sem
frú Bríet þráði, orðinn að veru-
leika. Og það varð hennar síð-
asta ráðstöfun í þessu lífi, að
svo skyldi verða. Stofnfje sjóðs
ins, kr. 2000,00 — tvö þúsund
krónur — eru dánargjöf frú Brí
etar, en stofndagur sjóðsins
telst 27. september 1941, en sá
dagur var fæðingardagur henn
ar. 27. sept. skal vera fjársöfn-
unardagur sjóðsins.
Sjóðnum hefir verið sett
skipulagsskrá, og er hann sam-
kvæmt henni orðinn kr. 26,606,
13. — Sjóðurinn er í vörslum
Kvenrjettindafjelags íslands,
og hefir hann aukis’t með gjöf-
um frá 39 kvenfjelögum og
nokkrum einstaklingum, er gef
ið hafa minningargjafir um
stofnanda hans, og gjöfum, er
gefnar hafa verið til minningar
um aðrar konur. Allmargar
gjafir munu enn ekki innkomn
ar og enginn vafi er á því, að
sjóðurinn mun aukast og halda
áfram að vaxa, svo að hann
verði, áður langt um líður, þess
megnugur að vinna það hlut-
verk, sem honum er ætlað að
vinna af hendi. En tilgangur
hans er að vinna að menningar
málum kvenna með því:
1. að styrkja konur til fram
haldsmentunar við æðri menta
stofnanir, hjerlendar og erlend
ar, með náms- og ferðastyrkj-
um. Ef ástæður þykja til, svo
sem sjerstakir hæfileikar og
efnaskortur, má einnig styðja
stúlkur til byrjunarnáms, t. d. í
mentaskóla.
2. að styðja konur til fram-
halds rannsókna að loknu
námi, og til náms og ferðalaga
til undirbúnings þjóðfjelagsleg
um störfum, svo og til sjernáms
í ýmsum greinum og annara
æðri menta.
3. að veita konum styrk til
ritstarfa, eða verðlauna ritgerð
ir, einkum um þjóðfjelagsmál,
er varða áhugamál kvenna.
Meðan sjóðurinil er að vaxa
skulu námsstyrkir sitja í fyrir-
rúmi.
Sjóðurinn er eins og nafnið
lýsir, bæði menningar- og minn
ingarsjóður. Minningargjafir til
sjóðsins hafa þegar verið gefn-
ar að upphæð 5585 krónur, og
hefir sjóðurinn sjerstaka minn
ingagjafa bók, þar sem skráð
eru æfiatriði þeirra, sem minst
er með gjöfum til hans. Má gera
ráð fyrir að þær gjafir aukist,
og að bókin verði, er fram líða
stundir merk heimild um störf
margra þjóðnýtra kvenna.
Sjóðurinn, sem frú Bríet
Bjarnhjeðinsdóttir bar fyrir
brjósti í hálfan þriðja áratug,
er nú orðinn að veruleika, og
til hans standa miklar vonir,
því að árlega fjölgar þeim ungu
konum, sem ljúka hjer menta-
skólanámi og síðan leggja út á
langa og erfiða braut framhalds
náms. Væri vel ef þeir, sem
ráða yfir námsstyrkjum til
stúdenta fylgdu þeirri reglu, að
gera engan mun karls og konu
um veitingu námsstyrkja. En
þrátt fyrir það, að þar er von-
andi gætt fyllsta jafnrjettis, þá
er það nauðsyn konum, að ráða
yfir sjóði sem þessum. Nú eru
að opnast sífelt fleiri vegir til
mentunar, og tíminn heimtar
sjermentunar á öllum sviðum.
Það sýnir framsýni og stór-
hug stofnanda sjóðsins að hon-
um er ætlað víðtækt verksvið.
Og vonandi metur þjóðin þá
framsýni og þann stórhug, sem
skipulagsskrá sjóðsins lýsir, á
þann veg, að hún lætur óslitnar
gjafir streyma í hann, svo að
hann geti sem fyrst og sem best
tekið upp það hlutverk, sem
honum er ætlað.
Að síðustu eru ein fyrirmæli
sjóðsins, sem vert er að vekja
sjerstaka athygli á, þar segir
svo: Komi þeir tímar að konur
og karlar fái sömu laun fyrir
sömu vinnu og stömu aðstæður
til mentunar, efnalega, lagalega
og samkvæmt almenningsáliti,
þá skulu bæði kynin hafa jafn-
an rjett til styrkveitingar úr
þessum sjóði.
Formaður sjóðsins er frk.
Laufey Valdemarsdóttir, Þing-
haltsstræti 18, en aðrir stjórn-
endur: Katrín Thoroddsen,
læknir, Þóra Vigfúsdóttir, Ther
esía Guðmundsson og Matthild
ur Matthíasson. Reiknighald
sjóðsins og gjaldkerastörf ann-
ast frú Charlotta Albertsdóttir.
Inga Lárusdóttir.
| Alm. Fasteignasalan |
= er miðstöð fasteignakaupa. 1
i Bankastræti 7. Sími 6063. 1
Gullbrúðkaup
Akureyri, miðvikudag.
Frá frjettaritara vorum.
GULLBRÚÐKAUP. eiga í
dag, hjónin Anna Tómasdótt-
ir og Jón Helgason, Stóra-
Eyrarlandi við Akiíreyri.
Þau giftust 26. sept. 1895
og fluttust að Eyrarlandi 1896
og hafa átt þar heimili síðan.
Jón stundaði aðallega algenga
verkamannavinnu lengi vel,
en búskap eingöngu á síðari
árum þar á Eyrarlandi. Þau
hjón hafa eignast 4 börn. Eru
þrjfi þeirra á lífi.
Brelar hafa ekki
enn viðurkeni
ungversku sljórnina
LONDON í gærkveldi: — Til
kynnt var í dag, að breska
stjórnin hefði enn enga ákvörð
un tekið um viðurkenningu á
ungversku stjórninni, og er
jafnvel búist við því, að það
geti dregist nokkuð.
Rússar tilkynntu stjórn Ung
verjalands aftur á móti í gær,
að þeir væru reiðubúnir til
þess að taka upp stjórnmálasam
band við hana og Bandaríkja-
menn tilkynntu henni litlu
seinna, að þeir vildu taka upp
samninga um sama efni svo
fremi að kosningar þar í landi
færu fram á lýðræðisgrundvelli.
Ákveðið hefir verið, að kosn-
ingar fari fram í Ungverjalandi
4. nóvember.
Var sendisveinn fyrst.
LONDON: — Nýlega hefir
hr. Bullock verið skipaður
borgarritari í Hull, en hann
byrjaði sem sendisveinn í bæj-
arst j órnarskr if stof unum.
700 í verkfalli.
LONDON: — Sjö hundruð
verkamenn hafa gert verkfall
í járnbrautarvagnasmiðjunum
í Derby, vegna þess, að einn
maður var rekinn þaðan fyrir
óstundvísi.
BEST AÐ AUGLYSA I
MORGUNBLAÐINU.
- Alþj, veffv.
Framhald af bls. 8
sannleika. Vísindaþrá þess er
mjög mikil. — Prestunum kemur
saman um að mesta hættan hjer
sje andlegt stjórnleysi. Fjöldinn
allur hefir orðið fyrir djúpum
vonbrigðum við hrun nasismans
og hættir því fólki til að verða
kaldhæðið og gjörsneytt hæfileik
um til þess að trúa á nokkurn
skapaðan hlut. Það er þreytt og
vonsvikið, og skal sannan kristin
dóm til að gefa því trúna á lífið
og framtíðina aftur.
— Franco
Framhald af 1. síðti
átt heima í samvinnu við aðrar
þjóðir.
Við höfum allir vinsamlegar
tilfinningar í garð spænsku
þjóðarinnar og vildum að góð
samvinna gæti tekist með Spán
verjum og öðrum þjóðum. Það
er margt, sem við gætum gert
á fjármálasviðinu til þess, að
sánna þessar tilfinningar okkar.
En slíkt er óhugsandi á meðan
tilfinningar Bandaríkjamanna
eru eins og þær eru í dag í garð
spænsku stjórnarinnar.
Það er því innileg von mín,
að sá tími megi brátt koma, að
Spánn geti tekið þátt í alþjóða-
samvinnu“.
Þetta brjef hefir vakið geisi-
mikla athygli um allan heim og
getgátur eru uppi um það, hvort
birting brjefsins sje undii'bún-
ingar að því, að bandamenn
ætli að láta til skarar skríða
gegn. Franco.
Samkomur bannaðar.
LONDON: — Til þess að
reyna að hindra útbreiðslu
máttleysisveiki, hafa yfirvöld-
in í Belgíu banfiað allar sam-
komur og skemtanir í landinu
um óákveðinn tíma. Veikin
hefir verið all skæð í Belgíu.
iiiiiiiiiiuimimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiin
i 1
Herhergi
til leigu fyrir unga, ein-
hleypa stúlku gegn hús-
hjálp hálfan daginn. Uppl.
á Njálsgötu 1, eftir kl. 4.
iiiMiiiiiimm/imiiiiiiiiiamiiinniiiiiiiiimimiiiiiimii
u
Efllr Roberl Storm
EANWWILE
LOOK AT TNAT M03
AROUNP THE /N~ r
FOKMAT/ON 0OOTH,J
„ K-9 ! rOv-n-^
„ NEW yORKS
OKAY, 3UT I FEEL LONESOME
FOK WAOH/N6TON, CH/EF.
1) Gullskalli: — Nú skulum við strákar, fá fólk
til þess að veðja um það, á öllum járnbrautarstöðv-
um í landinu. En fyrst þurfum við að fá allar áætl-
anir, sem til eru. Glæpon: — Við.getum fengið
þær þarna fyrir handan, Gullskalli góður.
2—3) Gullskalli: — Jeg vil ekki láta ykkur alla
fara saman. Dreifið ykkur nú, piltar. Á meðan ger-
ist þetta í New York: — X-9: — New York er
að vísu ágætis borg, en mig langar nú til Washing-
ton. Yfirmaðurinn: — Líttu á allan mannfjöldann
umhverfis upplýsingastöðina, X-9.