Morgunblaðið - 12.03.1946, Blaðsíða 1
16 síður
33. árgangur. 58. tbl. — Þriðjudagur 12. mars 1946 ísafoldarprentsmiðja h.f.
Níu grískir rdðherrar segja af sjer
Þérhildur prinsessa
GUSTAV ADOLF SVÍAPRINS var nýlega á ferð í Dan-
mörku. Friðrik Danaprins íók á móti honum og í för með
honum var Þórhildur dóttir hans, sem sjest hjer á myndinni
á milli prinsanna.
Spaak myndar nýja
stjórn í Belgíu
Briissel í gærkvöldi.
Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter.
. PAUL HENRI SPAAK, utanríkisráðherra fráfarandi stjórnar
í Belgíu, tilkynnti í kvöld, að ný stjórn væri því nær full-
mynduð. Spaak verður fórsætisráðherra. Sósíalistar fá níu ráð-
herra í stjórninni, og voru fimm þeirra í fráfarandi stjórn.
Van Acker, sem var forsætisráðherra fráfarandi stjórnar,
verður fjármálaráðherra í nýju stjórninni.
Marshall (er heim
Chungking í gærkvöldi.
BÚIST er við því, að George
Marshall, sendiherra Banda-
ríkjanna í JCína, fari af stað
áleiðis til Bandaríkjanna í
kvöld. — Hann hefir dvalist
um nokkurt skeið í Kína og
gegnt sérstökum fulltrúastörf-
um fyrir stjórn sína. Einkum
vann hann að því að koma á
sættum með Chungkingstjórn-
inni og kommúnistum.
— Reuter.
Vinson forsijéri
aiþjóðabankans
Savannah í gærkvöldi.
FREDERICK VINSON, fjár-
málaráðherra Bandaríkjanna,
var í dag kosinn forseti ráðs
alþjóðabankans og alþjóða-
lánsstofnunarinnar. Varafor-
seti verður breskur, og er bú-
ist við því, að Keynes lávarður
verði fyrri valinu. — Vinson
var í einu hljóði kjörinn til
starfans. — Reuter.
BORGAÐI SIG EKKI.
NEW YORK: — Bófi nokk-
ur rjeðist á mann, miðaði á
hann bj'ssu, og rændi hann 475
dollurum. Maðurinn reiddist
síðar og elti bófann, sem tók
af honum 2200 dollara hring,
þegar hinn náði honum aftur.
lega!
Skemmdarverk
unnin á Spáni
Madrid í gærkvöldi.
ÞAÐ VAR opinberlega
tilkynnt í kvöld, að 27
skemdarverkamenn hefðu
verið handteknir í San-
tander-héraði á Spáni.
Eru þeir úr hópi 40
skemmdarverkamanna, er
komu til landsins yfir Py-
reneafjöll nálægt Iran.
Þessir menn unnu marg-
vísleg skemmdarverk. —
Þrettán þeirra ganga enn
lausir. — Þessir 27, sem
liandteknir voru, eru
spanskir útlagar, er höfðu
verið búnir undir skemd-
arverkastarfsemina í skóla
einum í Suður-Frakk-
landi, að því er þeir sjálf-
ir segja. Þeir voru vopn-
aðir vjelbyssum, skamm-
byssum og handsprengj-
um. Auk þess höfðu þeir
meðferðis áttavita, ýms
miðunartæki og loft-
skeytatæki. — Reuter.
Alfsherjarverkfall
og óeirðir í Triesle
í GÆRKVÖLDI sló í bar-
daga með lögreglu og múgs í
úthverfi einu í Trieste. Júgó-
slavneskur fáni hafði verið
dreginn að hún á kirkju einni
í þessu hverfi. Þar sem bannað
er að hafa fána uppi í borginni,
kom lögregla á vettvang til
þess að taka fánann niður.
Mikill manngjöldi hafði safn-
ast þarna saman, og einhver
skaut á lögregluna, en hún
svaraði í sömu mynt og drap 2,
en særði 20. — í mótmælaskyni
við aðfarir lögreglunnar stofn-
aði hið svokallaða andfascista-
bandalag Slóvena og ítala til
allsherjarverkfalls í borginni
og kom það til framkvæmda
um miðnætti samdægurs. —
Bresk hernaðaryfirvöld í borg-
inn hafa tekið mál þetta til
rannsóknar. — Reuter.
Stjórnin sennilega skammlíf.
Spaak vonast til, að stjórn-
armyndun
verði lokið á
tnorgun og
stjórnin sverji
embættiseið á
miðvikud. —
Búist er við,
að stjórn Spa-
ak verði skam
líf, því að
h ægrisinnaðir
kristilegir só-
síalistar og
k o mmúnistar
verða í stjórn-
arandstöðu, og frjálslyndir
fylgja henni með margvísleg-
um fyrirvara.
MINKAÐUR KOLASKAMTUR
LONDON: Vegna kolaskorts
í Skotlandi hefir kolaskamtur
sá, sem skotskum togurum er
ætlaður, verið minkaður mikið,
sumsstaðar allt að helming. Hef
ir þetta vakið mikla óánægju
meðal fiskimanna.
Telja kosningar ekki
tímabærar 31. mars
London í gærkvöldi. Einkaskeytl til
Mbl. frá Reuter.
NÍU RÁÐHERRAR grísku stjórnarinnar hafa sagt af sjer,
vegna þeirrar ákvörðunar Sophoulis, forsætisráðherra, að
iáta almennar kosningar fara fram í landinu 31. mars n. k.
Byggja ráðherrarnir þessa afstöðu sína á því, að á þeim tíma
muni ástandið í landinu ekki verða komið í siíkt horf* að
tíltækilegt sje að láta fara fram lýðræðislegar kosningar. —
í dag fóru fram umræður í neðri málssfofu breska þingsins
um þessi mál.
Lie til Bandaríkjanna
á fimiudag
London í gærkvöldi.
TRYGVE LIE, aðalritari
bandalags sameinuðu þjóð-
anna, hefir verið sjúkur und-
anfarna daga og legið í sjúkra-
húsi í London, en búist er við,
að hann geti tekið til starfa á
morgun. Ha'nn mun leggja af
stað áleiðis til Bandaríkjanna
á fimtudag, þar sem hann mun
þegar hefja undirbúning að
skipulagningu framtíðaraðset-
urs bandalagsins. — Reuter.
Ekki hætiuleg fyrir
heimsfriðinn
London í gærkvöldi.
BANDARÍKJASTJÓRN hef-
ir svarað frönsku stjórninni við
víkjandi orðsendingu hennar
um Spán og Francostjórnina.
Segir í svarinu, að Bandaríkja-
stjórn líti ekki svo á, að Franco
stjcrnin sje hættuleg fyrir
heimsfriðinn, og telji stjórn
Bandaríkjanna að ekki beri að
skjóta þessu máli til hinna
sameinuðu þjóða. Líklegt er að
Bretar líti eins á þetta mál, eins
og Bandaríkjamenn, og er talið
að aðgerðir í Spánarmálum
muni ekki verða neinar eins
og stendur. — Reuter.
Úrslit nálgast í ensku
bikarkeppninni
London í gærkveldi:
ÚRSLIT fara nú að nálgast
í ensku bikarkepninni. Eru
aðeins fjögur fjelög eftir, og
fara næst síðustu leikirnir fram
þann 23. þ. m. Fjelögin sem
eftir eru keppa þannig saman
þá: Bolton kepþir við Charlton
og Derby County keppir við
Birmingham. Þau tvö, sem
vinna þessa leiki, mætast svo
í úrslitaleiknum. — Reuter^
Ágreiningur er mikill, og
er vitað, að fjöldi af þing-
mönnum Verkamannaflokks-
ins eru á því, að ekki sje tíma
bært, að kosningar fari svo
snemma fram í Grikklandi,
sem ráð er fyrir gert, og hafa
margir þeirra látið í ljós and-
úð sína á orðsendingu Bevins.
utanríkisráðherra, til forsætis
ráðherra Grikklands, þar sem
Bevin leggur áherslu á, að
kosningar fari fram 31. mars.
Mac Neill fyrir svörum.
Mac Neill, aðstoðarutanrík
isráðherra Bretlands, gerði
grein fyrir sjónarmiðum
bresku stjórnarinnar í þess-
um málum. Svaraði hann ræð
um tveggja þingmanna, sem
látið höfðu þá skoðun í ljós,
að kosningar væru ekki tíma
bærar 31. mars, auk þess sem
allir vinstri flokkar og mið-
ílokkar í Grikklandi hefðu
lýst því yfir, að þeir vildu,
að kosningunum yrði frestað.
EAM rær undir.
Mac N'eill sagði það stað-
leysu, að konungssinnar ein-
ir myndu taka þátt í kosning-
um 31. mars. Hann sagði, að
nokkrir flokkar hefðu, að
undirlagi EAM-sambandsins,
lýst því yfir, að þeir myndu
ekki taka þátt í kosningun-
um. Bevin, utanríkisráðherra
hefði samt lagt til, að kosn-
ingarnar færu fram 31. mars,
aðallega af þrem ástæðum: í
fyrsta lagi vegna þess. að sjer
stök eftirlitsnefnd stórveld
anna myndi líta eftir því,-að
kosningarnar fari fram á lýcf
ræðislegan hátt. í öðru lagi
vegna þess, að allir helstu
flokkarnir hefðu komið sjer
saman um að 31. mars sem
kosningadag í nóvembermán-
uði síðastliðnum. Og í þriðja
lagi vegna þess, að brýna
nauðsyn bæri til, að styrk
stjórn komist sem fyrst á í
landinu. — Mac Neill sagði,
að breska stjórnin myndi
veita grísku stjórninni að-
stoð til þess að- halda uppi
reglu í landinu, ef þörf krefði.