Morgunblaðið - 12.03.1946, Blaðsíða 2
s
MORGDNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 12. mars 1946
Stræti s va gnadeilan
og Þjóðviljinn
STRÆTISVAGNA-VERKFALLIÐ er enn óleyst. Frá því
að það hófst hefir naumast liðið nokkur dagur svo, að Þjóð-
viljinn hafi ekki reynt að spilla samkomulagi með rang-
færslum, blekkingum og ósannindum um afstöðu bæjar-
.stjórnar. Sjálfsagt gerir Þjóðviljinn einhvern skaða með
þessum skrifum sínum, en þau hagga ekki því áliti borgar-
anna, að bæjarstjórn hafi sýnt fylstu sanngirni í málinu
Af hálfu bæjarstjórnar hafa
verið boðin mörg og mismun
andi boð. En strætisvagnstjór
arnir hafa ekki viljað sinna
neinu þeirra. Það hefir aldrei
verið gert að skilyrði af hálfu
bæjarstjórnar að vagnstjór-
arnir yrðu fastir starfsmenn
bæjarins. Væri það þó eðli-
legast, að sá háttur væri hafð
ur á starfi þeirra og eru bæj-
arbúar því fyllilega sammála
að sjálfsagt hafi verið að
bjóða þeim þetta. En þrátt
fyrir .það hefir bærinn aldrei
gert það að skilyrði fyrir
samningum og eru fullyrð-
ingar Þjóðviljans, sem á slíku
eru bygðar, uppspuni frá rót
ura,
Samningarnir hafa þess
vegna ekki strandað á þessu,
heldur á hinu að bæjarstjórn
hefir ekki viljað hækka kaup
við þessa starfsmenn langt
um fram það, sem kaup hef-
ir hækkað hjá öðrum starfs-
greinum. Þrátt fyrir óþæg-
indi þau, sem stafa af stöðv-
un vagnanna, er áreiðanlegt
að meginþorri bæjarbúa er á-
sáttur um, að viðleitni bæjar-
stjórnar til að halda samræmi
í kaupgjaldi sje eðlileg og
nauðsynleg vegna hagsmuna
heildarinnar.
Þar sem áhugi bæjarstjórn
^ arinnar beinist að því einu
^að gæta þessara hagsmuna
i heildarinnar, sem þegar til
|Iengdar lætur eru ekki síður
, mikilsverðir fyrir vagnstjór-
ana en aðra, er þess að vænta,
að deilunni geti senn lokið á
þann veg, að allir geti vel við
unað.
Hitt er víst, að hjer sem
ella vinna þeir ilt verk. sem
það hlutskifti hafa valið sjer
að bera róg á milli.
Verslunarskólinn. lá- nem-
endamót skólans verður hald'-
ið í Iðnó í kvöld. Mótið er fyr-
ir eldri og yngri nemendur.
Fram fær skotskan
knattspyrnuþjálíara
KNATTSPYRNUFJELAGIÐ FRAM hefir fengið skotskan-
kaattspyrnuþjálfara, J. Mac Crae, og er hann nýkominn hingað
til landsins. Hann mun að líkindum verða um ár hjá fjelaginu.
Þetta er fyrsti erlendi þjálfarinn, sem Fram hefir haft síðan
1939, er Þjóðverjinn Lindemann þjálfaði knattspyrnumenn
fjélagsins. Mac Crae er maður víðförull. Hann ljek áður með
kunnum skotskum og breskum fjelögum.
Mac Crae hefir lengi verið
þjálfari, en áður hafði hann
leikið með ýmsum kunnum
knattspvrnufjelögum atvinnu-
manna í Skotlandi og Eng-
landi.' — I Skotlandi ljek hann
þannig með Clyde og GlasgtTw
Rangers, en í Englandi með
Mahchester United, Bury og
West* Ham.
i»jálfari Egypta.
Þá hefir Mac Crae verið í
Egyptalandi um alllangt skeið,
og þjálfaði hann landslið
Egypta, bæði fyíir Olvmpíu-
leiki og aðrar millilandakeppn-
ir. Ennfremur kendi hann fleiri
íjKÓttir í Cairo. Þá var hann
urn tíma í Tyrklandi sem þjálf-
ari. — Það var Mac Alpine, sem
hingað kom með skotska knatt-
.spyrnuliðinu árið 1921, sem út-
vegaði Frám Mac Crae.
Líst vel á sig.
Mac Crae ræddi við blaða-
ménn í gær, og ljet svo um
mælt, að honum lifist vel á
sig hjer, en hans mesta áhuga-
niál væri að byrja að þjálfa
sem fyrst. Hann sagði að mikill
skaði væri fyrir knattspyrnu-
íþróttina hjer, að ekki skyldi
J. Mac Crae
vera til grasvóllur, einkanlega
vegna þess, að menn, sem leiki
að staðaldri á malarvöllum,
þurfi langa þjálfun á grasvelli,
til þess að geta leikið með ár-
angri á slíkum vettvangi. —
Mac Crae ljek framvörð, með-
an hann stundaði knattspyrnu.
Hann iðkar einnig margar aðr-
ar íþróttir, svo sem golf. tennis
o. fl. Vonandi verður koma hans
mikill fengur fyrir Fram og
knattspyrnuna hjer yfirleitt.
Skíðamótinu ireslað
vegna hríðarveðurs
A.ðeins keppt í bruni
kvenn og í 2. flokkum
karla.
SKÍÐAMÓT Reykjavíkur
hjelt áfram s. I. sunnudag, og
þó varð að fresta miklu af því,
sem fram átti að fara þann
dag, vegna snjókomu. Keppni
fór fram í bruni kvenna í öll-
um flokkum og bruni karla í
C- og D-flokkum. — Reykja-
víkurmeistari í bruni kvenna
varð Jónína Niljohníusardóttir,
KR.
Úrslit urðu þessi:
Brun kvenna.
A- og B-flokkur: — 1. Jón-
ína Niljóhníusardóttir, KR,
1:13,0 mín., 2 Ingibjörg Árna-
dóttir, Á, 1:16,0 mín. og 3.
Sigrún Eyjólfsdóttir, Á, 1:26,0
mín.
C-flokkur: — 1. Inga Ólafs-
dóttir, ÍR, 1:21,0 mín., 2. Hrefna
Guðmundsdóttir, KR, 1:23,0
mín., 3. Þórunn Theodórsdótt-
ir, KR, 1:27,0 mín., 4. Inga Guð-
mundsdóttir, Á, 1:31,0 mín. og
5. Sigríður Bjarnason, ÍR,
1:33,0 mín.
Brun karla.
C-flokkur: — 1. Valdimar
Björnsson, KR, 3-07,0 mín., 2.
Ásgéir Eyjólfsson, Á, 3:09,0
mín., 3. Skarphjeðinn Guðjóns-
son, KR, 3:21,0 mín., 4. Guðni
Sigfússon, ÍR, 3:26,0 mín., 5.
Grímur Sveinsson, ÍR, 3:27,0
mín., 6. Helgi Árnason, Á,
3:28,0 mín., 7. Ólafur Jónsson,
Skátafjel. Rv., 3:30,0 mín., 8.
Árni Kjartanssor, Á, 3:40,0'
mín., 9. Vilhjálmur Pálsson,
KR, 3:40,0 mín. og 10. Svan
Friðgeirsson, Val, 3:44,0 mín.
— 46 luku keppninni, en þátt-
takendur voru um 50.
D-.flokkur: — 1. Ólafur Þor-
steinsson, Á, 3:42,0 mín., 2.
Zophonías Snorrason, ÍR, 4:12,0
mín., 3. Steinþór Sigurðsson,
Skíðafjel. Rv., 4:38,0 mín., 4.
Guðmundur Finnbogason, Á,
5:30,0 mín. og 5. Guðmundur
Halldórsson, Á, 7:28,0 mín.
Á meðan C-flokks keppni
karla fór fram skall, á hríð,
svo að fresta yarð keppni í A-
og B-flokkum karla í bruni og
svigkeppni í C- og D-flokkum
karla. — Ætlar veðráttan ekki
að gera það endasleppt við
reykvíska skíðamenn. Fyrst er
snjóleysið tilfinnanlegt og síð-
an verður að fresta skiðamóti
vegna hríðarveðurs.
Báturinn frá
Sólheimasandi
kominn að
OPNI báturinn með 8 mönn-
um á frá Jökulsá á Sólheima-
sandi, sem ókominn var að
landi um miðnætti s. 1. laugar-
dag, kom að landi í Austur-
Landeyjum kl. 3 aðfaranótt
sunnudags. — Ekkert hafði
orðið að hjá bátshöfn.
Alla aðfaranótt sunnudags og
frá á sunnudagsmorgun leituðu
sex vélbátar úr Vestmanna-
eyjum bátsins.
Sjálfstæðismenn sigruðn
glæsilega á Akranesi
SJÁLFSTÆÐISMENN unnu glæsilegan sigur í bæjar-
stjórnarkosningunum á Akranesi s. 1. sunnudag. Þeir fengu
5 menn kjörna og þar með hreinan meirihluta í bæjarstjórn-
inni.
5 nýjar bækur irá
Helgafelli
UPPSTIGNING dr. Sigurðar
Nordal, prófessors. Leikrit Nor-
dals var leikið hjer í vetur við
geipilega aðsókn og fengu færri
að sjá það en vildu, vegna þess
að Lárus Pálsson, sem leikur
aðalhlutverkið, hvarf til Nor-
egs til þess að setja Gullna
hliðið á svið. Nordal hefir nú
gert nokkrar breytingar á leikn
um og ritar hann skemtilegan
eftirmála. Flestir, sem sáu leik-
ritið munu hafa beðið þess með
nokkurri eftirvæntingu að það
kæmi út. Leikritið er mjög fal-
lega útgefið eins og bækur
Helgafells fyrirleitt eru.
Þá hefir Helgafell sent út tvö
hefti af Þjóðsögum Sigfúsar
Sigfússonar, er það 6. og 7.
hefti. Eru þessi hefti mjög
merkileg meðal annars fyrir
það, að þar eru teiknaðir upp
allir hinir merkilegu og fallegu
galdrastafir, nærri hundrað
að tölu. Munu nú alls vera kom-
in út 8 hefti af Þjóðsögunum,
eða rjettur helmingur alls þess
er Sigfús safnaði. Átta heftin
sem eftir eru munu eiga að
koma á þessu og næsta ári. —
Matthías Þórðarson fornminja-
vörður annast útgáfuna, en
hin gagnmerku handrit Sigfús-
ar eru nú öll komin á Þjóð-
minjasafnið.
Fjórða bókin er Jökullinn, en
það er þriðja bókin í bóka-
safninu Listamannaþing, sem
mun vera sjerstæðasta og merk
asta safn fagurfræðilegra bók-
menta, sem gefnar hafa verið
út hjer. Jökullinn er í hinu
mikla verki J. V. Jensen, sem
hann kallar „Langleiðir“ og
mun vera merkasta skáldverk,
sem skrifað hefir verið á Norð-
urlöndum hin síðari ár. J. V.
Jensen hlaut Nobelsverðlaun í
fyrra.
Fimta bókin er „Sjafnarmál“.
Er það mikið og merkilegt safn
spakmæla flestra þýddra, sem
höfð eru eftir ýmsum frægum
mönnum frá fyrri öldum um
konuna og ástina. Sigurður
Skúlason mag hfefir þýtt bók-
ina og safnað efninu og skrifar
hann stuttan formála.
Aðalfóndur Fjelags
veggióðrara
AÐALFUNDUR Fjelags vegg
fóðrara í Reykjavik var haldinn
s.l. fimtudag. Formaður gaf
skýrslu stjórnar fyrir s.l. starfs
ár. Fjehirðir las upp reikninga
fjelagsins og voru þeir samþvkt
ir einróma.
I stjórn fjelagsins voru kosn-
ir: Ólafur Guðmundsson, for-
maður, Jens Vigfússon, varafor
maður, Sæmundur Jónsson, rit-
ari, Friðrik Sigurðsson, fjehirð-
ir og Þorbergur Guðlaugsson,
meðstjórnandi. t
Kosningunni var ekki lok-
ið fyrr en kl. 1 um nóttina. Á
kjörskrá voru 1187, en 1044
greiddu atkvæði. Úrslitin
urðu þessi:
C-listi, Sjálfstæðismanna,
hlaut 532 atkvæði og 5 menn
kjörna, A-lísti, Alþýðuflokks
ins, hlaut 297 atkv. og 2 menn
kjörna og B-listi, Sósialista
og óháðra 199 atkv. og 2 menn
kjörna. Auðir seðlar voru 12
og ógildir 4.
Við bæjarstjórnarkosning-
arnar 27. janúar var niður-
staðan þessi: Listi Sjálfstæð-
ismanna 437 atkv. og 4 menn
kjörna, listi Alþýðuflokks-
ins 317 atkv. og 3 menn
kjörna, listi sósialista og ó-
háðra 183 atkv. og 1 mann
kjörinn og listi Framsóknar
97 atkv. og 1 mann kjörinn.
Framsókn hafði ekki lista í
framboði við kosningarnar
nú.
Akranes hefir nú fengið
starfhæfan meirihluta í bæj-
arstjórn og munu allir fagna
því.
Akumesingutitin
sem lýst var iffir
kominn fram
RANNSÓKN ARLÖGREIGL AN
Ijet í gær lýsa eftir 17 ára
gömlum pilti, Eyþóri Björns-
syni að nafni, til heimilis að
Hringbraut 39 á Akranesi. —•
Skömmu eftir hádegi í gær, gaf
hann sig fram við Rannsóknar-
lögregluna. — Hafði honum
láðst að láta vita af sjer hjer í
bænum.
Eyþór fór frá Akranesi fimtu
daginn 7. mars. — Hann bjóst
við að koma þangað aftur sam-
dægurs, eða daginn eftir. —•
En hann kom ekki. Fór þá fað-
ir hans hingað til bæjarins á
föstudag. — Leitaði hann hans
þann dag og laugardag, en ár-
angurslaust. — Leitaði hann
því aðstoðar rannsóknarlög-
reglunnar, er lýsti eftir honum
í útvarp um hádegi í gær.
Strax eftir hádegi fór rann-
sóknarlögreglunni að berast
upplýsingar um Eyþór og
skömmu síðar kom hann sjálf-
ur.
MINDSZINTY ERKIBISKUP
NÝLEGA var skýrt frá því í
frjettum, að Mindszinty erki-
biskup af Eszterdom í Ungverja
landi, hefði verið ákærður fyr-
ir landráð og að sennilega yrði
hann dæmdur til dauða. -— í
þessa frjett mun hafa slæðst
einhver misskilningur, því nú
herma fregnir, að Mindszinty
sje staddur í Róm og hafi páfi
útnefnt hann til kardínála. Má
^plja fráleitt, að biskupinn
hefði fengið að fara úr landi,
ef jafn alvarleg ákæra hefði
verið borin á hann og fyrrj
fregn hermdi.