Morgunblaðið - 12.03.1946, Síða 12

Morgunblaðið - 12.03.1946, Síða 12
12 áíORGUNBLAÐIÐ Þriðjudagur 12. mars 1946 Áfrnæli: Frú Þóranna í DAG á frú Þóranna Símon- ardóttir, Guðrúnargötu &, fim- tugsafmæli. Hún er ekki gefin fyrir það, að berast mikið á, og þess vegna hefi jeg orðið að taka mjer bessalevfi til þess að vekja athygli hinna fjöl mörgu vina hennar á þessum merkisdegi í ævi hennar. Sum- ar konur telja það einka leynd- armál sitt hvað þær eru gaml- ar, en frú Þóranna er laus við allan slíkan tepruskap, og þess vegna er mjer óhætt að segja frá þessu. Jeg get bætt því við, að þeim, sem altaf hafa á sjer yfirbragð æskunnar, eins og hún, má vera alveg sama um það þótt tímans hjól veltist og mali árin hvert af öðru út 1 fortíðarhaf. Frú Þóranna hefir tekið mik- inn þátt í fjel.lífi bæjarins um margra ára skeið, en hjer skal ekki minst á annað en það, sem jeg þekki, starfsemi hennar fyr'ir Góðtempiararegluna. Má óhætt fullyrða að þar hefir hún verið með lífi og sál, um tugi ára, ásamt manni sínum, Þor- steini J. Sigurðssyni kaup- manni, því að ung helguðu þau Reglunni starfskrafta sína, og hafa jafnan staðið þar mjög framarlega. — Þeir, sem til þekkja, vita það, að tímafrek- ustu og vandasömustu störfin fyrir Regluna hlaðast mjög á einstaka menn, þá sem hæfi- leika og áhuga hafa, og eru sí- felt boðnir og búnir að gegna hverju kalli. Frú Þóranna hefir ekki farið varhluta af þessu. Hún hefir altaf verið hlaðin tímafrekustu störfum, og hún hefir altaf getað snúist við þeim, þrátt fyrir húsmóður- störfin, stundum á mjög mann- mörgu heimili. Og hún hefir eigi aðeins orðið að finna tíma fyrir sína eigin stúku, heldur fyrir allar deildir Reglunnar. Og það er sönnun fyrir því, hvert álit hún hefir unnið sjer í þeim fjelagsskap. að hún hef- ir verið Stórvaratemplar nú hin síðustu 5 árin. Jeg veit, að Templarar hugsa hlýtt til henn- ar í dag og árna henni allrar blessunar. Merkilega grein mætti skrifa um frú Þórunni sem húsmóður. Það vitum vjer vinir hennar. Vjer minnumst hver þrifnaður Símonardóttir Frú Þóranna Símonardóttir. og myndarbragur er á heimili hennar, gestrisni og vingjarn- legt viðn\þt. Hvað þar er rík samúð með þeim, sem bágt eiga á einhvern hátt, og ákveðinn vilji að hjálpa án þess að eftir því sje tekið. En að fara langt út í þá sálma að lýsa þannig einkalífi4 væri skortur á hátt- vísi, og í besta lagi gæti það skoðast sem gullhamrar, en þeim kann jeg ekki að beita. Því skal enda þessar línur með bestu heillaóskum til afmælis- barnsins og heimilis hennar. Á. — Inkarnir í Peru Framhald af bls. 11. legustu og bæta miklu við gildi bókarinnar. Þarna eru myndir, sem sjáanlega hafa verið gerð- ar í sögulandinu sjálfu (í Líma), og mun það ekki hafa kostað höfundinn litla fyrir- höfn að verða sjer úti um þær. Osiður er að taka orðrjetta kafla upp úr ritsmíðum annara manna, án þess að geta um heimildina. Á bls. 82 er þann- ig kafli úr söguþætti eftir Felipe Sassone, sem þegar hef- ir verið þýddur á ísl. tekinn orð rjett upp úr þeirri þýðingu og feldur inn í frásögnina athuga- semdalaust. Það mun ef til vill ekki vera tekið hart á slíku hnupli hjer, yfirleitt. En hnupl er það. Þórh. Þorgilsson. Hollsnskl tieriið kemur til Java London í gærkvöldi. FORSÆTISRÁÐHERRA þjóð ernissinna á Java hefir berið fram opinber mótmæli við yf- irmann hersveita bandamanna á eynni, sökum þess að um 3.000 hermenn hafa verið settir á land í Batavia. Hermenn þess ir eru fyrstir í flokki þeirra hermanna, sem í ráði mun vera að taka við af breskum og ind- verskum hersveitum, sem verið hafa á Java að undanförnu. Óvíst er talið, að koma hol- lensku hermannanna muni spilla fyrir viðræðum þeim, er fram eiga að fara á næstunni milli þjóðernissinna og fulltrúa hollensku stjórnarinnar, en yf- irvöld bandamanna þarna aust ur frá hafa tekið það»fram, að að minsta kosti fyrst um sinn munu hollensku hermennirnir hafast við í Batavíu og ná- grenni. — Varðskipin Framh. af bls. 5. væri því nú, hvað ríkisstjórn- in hygðist að gera. Reyndar mætti ráða það af skýrslu ráð- herrans, að ætlunin væri að fá bátunum skift fyrir önnur skip, sem okkur hentaði betur. En gallinn væri sá, að ekki væri enn búið að taka ákvörð- un um hvaða tilhögun við ætl- uðum að hafa á landhelgis- gæslunni í framtíðinni, nje heldur fengin niðurstaða um það atriði, hvaða stærð skipa okkur hentaði best. Vitnaði ræðumaður í þessu sambandi til þál.,'er síðasta Alþingi sam- þykti, um heildarendurskoðun landhelgisgæslunnar. Þessi at- hugun hefði þurft að fara fram áður en ráðist hefði verið í fyrri bátakaup. Lagði S. Bj. áherslu á, að niðurstaða yrði fyrir hendi um þetta atriði, þegar ný skip yrði fengin- í stað þeirra, sem nú yrði skilað. En þetta yrði að gerast sem allra fyrst, því landhelgisgæslan væri nú mjög báglega rækt. Auk þess kostuðu hin lítt starfræktu hraðskip mikið fje á mánuði hverjum. Allra hluta vegna væri því nauðsynlegt að hraða þessu máli. Dómsmálaráðherra talaði enn nokkuð orð, og þar með var þessari umræðu lokið. Handknattleiks- mólið héfsl í gærkveldi Handknattleiksmeistaramót íslands innanhúss hófst í gær- kveldi í íþróttahúsi I.B.R. við Hálogaland. Forseti Í.S.Í. Ben. G. Waage, setti mótið. — Leik- ar þetta fyrsta kvöld mótsins fóru sem hjer segir: í meistaraflokki kvenna unnu Haukar FH með 6:0. I meistaraflokki karla fóru fram 2 leikir í A-riðli. Fram og Val- ur gerðu jafntefli 11:11. (Fyrri hálfleikur Valur:Fram 7:5, en síðari Fram:Valur 6:4). Hauk- ar unnu FH með 16:6 (10:5 í fyrri hálfleik, en 6:1 í síðari). í II. flokki karla vann Víking- ur ÍR í A-riðlí með 19:9 (12:1 í fyrri hálfleik og 7:8 í síðari) og Ármann Hauka í B-riðli með 11:9 (4:4 í fyrri hálfleik og 7:5 í síðari). í kvöld hefst keppnin kl. 8 e. h. Þá keppa Fram og Ár- mann í meistaraflokki kvenna. í meistaraflokki karla keppa í B-riðli KR og ÍR og Ármann og Víkingur. í II. flokki karla keppa í B-riðli Fram og Ár- mann og Haukar og FH. — Bílferðir að Hálogalandi eru frá B.S.Í. frá kl. 7. Miljén hungurmorða í Hunanfylki Chungking í gærkvöldi. í HUNANFYLKI í Kína, þar sem matvælaskorturinn er að líkindum mestur í landinu, mun um ein miljón manna hafa orðið hungurmorða, að því er opinberar skýrslur herma. — Marshall, sendiherra Banda- ríkjanna í Kína, sem er nýkom- inn til Chungking úr ferð sinni til nokkurra borga til viðræðna við leiðtoga kommúnista, hefir látið svo um mælt við blaða- menn, að matvælaskorturinn sje ægilegur á þeim stöðum, er hann kom til. Segir hann, að brýna nauðsyn beri til þess, að eitthvað sje gert til úrbóta. —Reuter. VINNA HEFST AFTUR LONDON: Vinna er nú aftur hafin í 167 skóverksmiðjum á Bretlandi, sem lokaðar voru ó- friðarárin, og ennfremur 190 sokkaverksmiðjum, sem einnig hafa verið lokaðar. / Fæddur 25. desember 1889. Dáinn 5. mars 1946. Enn þá er orðið skarð, œttböndum svipt, vonheilug vinatengsl válega klypt. ' Sviplegt er, sólarlag sjá jyrir liðinn dag. Enn þá er orðið skarð, œttböndum svipt. Genginn er góður heim gunnreifur sveinn, Ijónfrár á lífsins braut, ■ lundskír og hreinn. Hugþekkur hvar sem var, að heiðri af öðrum bar. Genginn er góður heim gunnreifur sveinn. Sátum við hlið við hlið, - hló þá við öld, brosti við von og vor, vissum ei kvöld. Kveð jeg þig, kœri vin. ■ Kyssi þig sólarskin. Ber þú á betri svið blikhreinan skjöld. SIG. ARNGRÍMSSON, bekkiarbróðir. iiimiiiiiuiiiiiiinniiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiimimmiiimiiiiii IAIm. Fasteignasalan | er miðstöð fasteignakaupa. f Barjkastræti 7. Sími 6063. immimmiuimimmnnmmaaniuimmnuaiuiDJUi Kauphöllin er miðstöð verðbrjefa- viðskiftanna. Sími 1710. BEST AÐ AUGLÝSA í MORGUNBLAÐINU i X-9 a ...............................................................Illllllllllllllll £k & & Eflir Robert Sform iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimimmiimiiiiimmiuiuimuiiiiiiiiiiiiiimB KEE? Y0U!? MAND& MI6H ÍND NOUR BACK.S- TURNED OR I'LL PERVQRATE . m NOUR PANTALOON$! M T HOPE YOU'LL FORölVE hiöh-sear. bluff vjith rm OLD TRAN5/HIÖÖ10N éHÁFT v. "A1ACHINE ÖUN" I - AND THANKf FOR THE artillern... a REAL óllN 15 50 MUCU /HORE CONVlNCINól Munroe: Haldið uppi hrömmunum og snúið að mjer bakinu, eða jeg skal skjóta göt á brækurnar ykkar. Hann tekur upp byssurnar þeirra: Takk, fyrir þessar fallbyssur, það er alltaf miklu betra að hafa raunveruleg vopn í höndunum. Jeg vona áð þið fyrirgefið mjer hvemig jeg ljek á ykkur. Hann hendir frá sjer hjólinu, sem hann hafði haft fyrir vjelbyssu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.