Morgunblaðið - 31.03.1946, Blaðsíða 12
VEÐURÚTLITIÐ: Faxaflói:
INNFLUTNINGUR olíumál-
Sunnudagur 31. mars 1946
Varhugavert
myndahrask
Á ÖÐRUM stað hjer í blað-
inu í dag er minnst á það upp-
átæki danskra farandsala, að
hrúga hingað olíumyndum til
sölu. Var fyrsta tilraunin gerð
til þess fyrir nokkru og mun
háfa orðið svo áhótasöm
fyrir sölumennina að í dag er
fitjað upp á annari tilraun í
stærri stíl.
í gær birtist hjer í dagblaði
auglýsing, sem var svo ósvífin
að orðalagi að leitun mun vera
á öðru eins. Þar er komist
þannig að orði, að tilætlun
auglýsendanna er auðsjáanlega
sú að hafa áhrif á fullkomna
fábjána. Þar er sagt, að „mikil
cg sjerstæð málverkasýning“
hyrji í dag hjer í bænum, „þar
sem sýnd eru meðal annars
nokkur af frægustu verkum
hinna gömlu heimskunnu mál-
ara(!)“. Minna má ekki gagn
gera. En auglýsendur eru svo
nærgætnir við sjálfa sig, að
geta ekki naíns síns í sam-
bandi við sýningu þessa „fræg-
ustu verka“ hinna „gömlu
heimskunnu“ o. s. frv.
En manni skilst að nöfn'
þeigra sje að finna í 3. dálki á
4. síðu Vísis, þar sem talað er
um yæntanlega „danska sýn-
ingu“, er opna eigi hjer í dag
og sje sölusýning. Þar er
rninnst á nokkra danska mál-
ara, en enga heimskunna. í
greininni er þess ennfremur
getið, að höfundar ýmsra þess-
ara mynda hafi átt hlutdeild
í stofnun hins íslenska mál-
verkasafns.
Með öllu er það óskiljanlegt,
hvað það kemur þessari sölu-
sýningu við. Þó þessir málarar
hafi gefið eitthvað af verkum
sinum hingað fyrir 60 árum,
sem þeir trauðla hafa komið í
verð, er engin ástæða til að örfa
Reykvíkinga í dag til að láta
farandsala selja hjer mynda-
skran fyrir margfalt verð.
Allra síst þar eð þeir virðast,
-eftir auglýsingum sínum að
dæma, vera á svipuðu stigi og
cirkusleikarar, er hafa apa- og
slöngusýningar sjer að at-
vinnu.
Hiilercæska
handlekin
London í gærkveldi.
FRÁ HERFORD í Westfalen
í Þýskalandi b?rast þær fregn-
ir í kv <ld, að bresk og amerísk
leynilögregla hafi handtekið
leiðtoga allvíðtækrar leyni-
hreyfingar Þióðverja á ■ her-
námssvæðum Breta og Banda-
ríkjamanna á Þýskalandi. Var
þetta opinberlega tilkynnt í
dag. — I til]rynningunni seg-
ir, að handteknir hafi verið
sex leiðtogar hreyfingaf, sem í
voru að mestu leyti piltar og
stúlkur úr Hitlersæskunni og
samfjelagi þýskra stúlkna.
Einnig segir í tilkynningunni,
að fólk þetta hafi stofnað með
sjer fjelagsskap til þess að flýta
viðreisn Þýskalands aftur.
■—Reuter.
Nash 1946
Þessir bílar, sem eru á þessari mynd, eru jyrstu ame-
rísku bílanir af smíðaári 1946, sem hingað flytjast. Þeir
fíilmar Fenger og Jón Sigurður Guðmundsson, verslunar-
menn, komu með þá með sjer nú fyrir nokkrum dögum. í
Ameriku hafa þeir dvalið rúmlega 4 ár. Mörg þægindi eru í
bílum þessum. Fullkomnasta lofthreinsunar- og hitunartæki.
T. d. er ekið er í sandstormi og vagninn þá að sjálfsögðu
lokaður, verður þess ekki vart inni í bilnum. Loftið hreins-
ast í sjerstaklega gerðum tækjum. Þá er hœgt að breyta
cftursœti og farangursgeymslu á mjög einfaldan hátt í rúm,
sem. 3 til 4 geta sofið í. Þá hafa margar aðrar endurbætur
verið gerðar, sem of langt e að telja hjer.
Ljósm. Morgunblaðsins Friðrik Clausen.
Bærinn tekur 12 milljóna kr.
lán til byggingar túrbínu-
stöðvar o.fl.
LANDSBANKI ÍSLANDS hefir sent Reykjavíkurbæ til-
boð um að ábyrgjast sölu á skuldabrjefum, að upphæð sam-
tals 12 milljónir k-róna. En lán þetta verður veitt til bygg-
ingar fyrirhugaðrar eimtúrbínustöðvar við Elliðaár og til fyr
irhugaðra aukninga á innanbæjarkerfi Rafmagnsveitu
Reykjavíkur.
Bæjarráð samþykti, með 3 samhljóða atkvæðum Sjálf-
stæðismanna, á fundi sínum í fyrradag, að taka þessu tilboði
bankans.
4%skuldabrjef.
Skuldabrjefin eru veitt í
tvennu lagi. Annað til bygg-
ingu varastöðvarinnar og eru
það 4% skuldabrjef til 20 ára,
að upphæð sjö milljónir kr.
Hin skuldabrjefin eru sömu-
leiðis 4% brjef, til 10 ára, að
upphæð fimm milljónir kr.
Bankinn krefst ábyrgðar-
þóknunar 2%.
Aukning kerfisins.
í hinni fyrirhuguðu aukn-
ingu rafmagnskerfisins hjer
innanbæjar, er einn liðurinn
sá, að reist verði aðveitustöð,
fyrir vestasta hluta Reykja-
víkurhafnar og ysta hluta Sel
tjarnarnes. Gert er ráð fyrir
að stöð þessi verði vestur við
Kaplaskjólsveg.
Aðveitustöð þessi hefir í
för með sjer aukið öryggi fyr
ir alt kerfi bæjarins. Þá mun
kerfið í heild verða styrkt,
vegna aukinnar orku frá túr-
bíustöðinni og fyrirhugaðri
viðbótarvirkun Sogsvirkjun-
arinnar.
Eimtúrbínustöðin.
Um s. 1. áramót hóst undir-
búningur að byggingu eimtúr
bínustöðvarinnar og hefir því
verki verið haldið áfram síð-
an. Er svo ráð fyrir gert, að
byrjað verði að steypa grunn
stöðvarinnar eftir um það bil
hálfan mánuð. Því verki mun
verða lokið um miðjan maí.
Þegar því er lokið, verður
byrjað að setja niður ketil
stöðvarinnar. Það verk mun
taka 3 til 4 mánuði. Efni til
ketilsins er væntanlegt í
næsta mánuði.
Þessu næst verða undirstöð
ur veggja steyptar. Efni til
hússins er væntanlegt í júlí,
en það er járngrind, sem fljót
legt er að setja upp. Síðan
verður klætt utan um grind-
ina. Mun húsið sjálft verða
fullsmíðað í ágúst eða septem
ber n. k. Á þessum tíma eru
svo væntanlegar hinar ýmsu
vjelar stöðvarinnar, sem sett
ar verða niður jafnóðum og
þær koma.
Samkvæmt upphaflega fyr
irfram gerðri áætlun, átti
stöð þessi að vera tilbúin til
notkunar í okt. n. k., en verk-
föllin í Bandaríkjunum hafa
haft í för með sjer tafir á
smíði vjela og er talið að stöð
in muni taka til starfa í nóv.
eða desembgr n. k.
Kaupir bærinn
„Sólheima?
BÆJARRÁÐ hefir samþykkt
að mæla með því, að Reykja-
víkurbær kaupi húseignina
Tjarnargötu 35, en þar starf-
rækja þrír læknar sjÚKrahúsið
Sólheimar.
Læknar þessir hafa sent
bæjarráði brjef, þar sem þeir
bjóða bænum húsið til kaups.
En þeir hafa ráðstöfunarrjett á
því til 14 maí n- k.
Segir svo m. a. í brjefi lækn-
anna, að kaup þessi skuli fara
fram með það fyrir augum, að
þeir geti rekið þar áfram
sjúkrahús. eins og þeir hafa
gert á undanförnum árum. Eða
nánar tiltekið, til þess tíma að
nýtt sjúkrahús, er þeir hyggj-
ast byggja og væntanlega verð-
ur að mestu lokið innan hálfs
annars árs.
Hið nýja sjúkrahús þeirra
verður reist á túnunum fyrir
sunnan Flókagötu Er það all-
stór lóð er Reykjavíkurbær hef
ir úthlutað þeim, Sjúkrahúsið
verður mjög vegleg bvgging.
Þar verða sjúkrarúm fyrir allt
að 100 sjúklinga. Að sjálfsögðu
verður það búið hinum full-
komnustu tækjum.
Drengur
fótbrotnar
í GÆRDAG vildi það slys
til skamt frá Laugarnesskóla,
að lítill drengur, Bjarni Böð-
varsson, til heimils Efstasundi
54 varð fyrir bifreið og fót-
brotnaði mjög illa.
Haraldur litli var á reið-
hjóli og var að mæta bíl, ætl-
aði hann að hemla reiðhjól-
inu, en hemlar þess munu
hafa verið slæmir. Bifreiðar-
stjórinn reyndi eftir getu, að
afstýra slysinu, og ók hann
bifreið sinni út af veginum,
en alt kom fyrir ekki. Dreng-
urinn lenti með annan fótinn
undir bifreiðinni og brotnaði
hann illa, opið brot, og skurð
á fótlegginn yfir brotinu.
Bjarni er 11 ára gamall.
Hann var fluttur í Landsspít-
alann. Honum leið vel eftir
atvikum í gærkvöldi.
6áf vantar
í GÆRKVÖLDI var Ivst eft-
ir vjelbátnum Egill Skallagríms
son frá Bíldudal. Hafði bátur-
inn farið í róður í fyrrakvöld,
frá Bíldudal, en ekkert til hans
spurst síðan. Talið yar senni-
legt að báturinn hafi lagt lóð-
ir sínar út af Patreksfirði. Voru
bátar, sem vovu á leið þangað
beðnir að skyggnast eftir bátn-
um. Veður var ekki siæmt á
þessum slóðum.
LONDON: í Núrnberg var
lögð fyrir Göring fundargerð
frá stjórnarfundi, sem hann
átti að hafa setið árið 1940.
Göring neitaði að fundargerð
þessi væri sannleikanum sam-
kvæm.
Rúmlega 200 skíðum
úthlutað til skólabarna
Skíðadagurinn
á morgun
SJÓÐSTJÓRN Skíóasjóðs
skólabarna í Reykjavík hefir
nú fengið 240 skíði fyrir börn,
frá Svíþjóð og munu þau verða
afhent barnaskólum bæjarins
áður en langt um líður.
Jónas B. Jónsson, fræðslu-*
fulltrúi Reykjavíkurbæjar
skýrði blaðamönnum frá þessu
í gærmorgun. Skiði þessi keypti
Jónas B. Jónsson, er hann var
í Svíþjóð á <j. 1. sumri, fyrir
mjög hagkvæmt verð, e.n skíð-
um þessum -'ylgja stafir og
bindingar. Sjóðstjórnin ákvað
kaupin í samráði við skóia-
stjóra barnaskólanna.
Eins og fyr segir eru í send-
ingu þessari 240 skíði. íþrótta-
fulltrúi ríkisins mun ráðstafa
60 pörum, til barnaskóla út um
land, sem óskað hafa þeirra.
Skíðadagurinn er á morgun,
mánudag. Verða þá seld merki
Skíðadagsins um nær því allt
land. Verður tekjum af sölu
merkjanna varið til að stuðla
að því. að bæjarskólabörnum
verði gefinn kostur á að kom-
ast í skíðaferðir. Á skíðadaginn
í fyrra söfnuðust í sjóðinn alls
40 þús kr., þar af 30 þús hjer
í Reykjavík. Af þeim var varið
um 1000 krónum.
Sjóðstjóm skipa 3 menn.
Einn tilnefndur af Í.B.R., Bene
dikt Jakobsson, annar af Skíða
ráði , Reykjavíkur, Einar B.
Pálsson og Jónas B. Jónasson,
en hann er foimaður stjórnar.
Þegar sjóðsstjórn þykir fært,
getur hún í samráði við skóla-
stjórnina varið innstæðu sjóðs-
ins til skálabygginga fyrir skóla
börn bæjarins. enda koini jafn
mikil upphæð annars staðar
frá, og sjeu skálarnir ætlaðir
til þess, að börn geti dvalið
í þeim bæði við nám og skíða-
iðkanir
Lesbókin í dag
Hún byrjar á grein eftir
Vilhjálm Stefánsson þar
sem hann ber saman
menhirigu vora og ósið-
aðra Eskimóa. Þar næst er
grein um Edduljóð, sem
fundist hafa suður á Suð-
urhafseyjum og svipar til
Völuspár. Þá er afmælis-
Ijóð til Eyþórs Stcfánsson-
ar tónskálds, eftir Gísla
Olafsson frá Eiríksstöðum.
Enn er grein er segir frá
spádómum hins fræga rit-
höfundar H. G. Wells um
endalok mannkynsins. Svo
er grein um hvernig hægt
er að ferðr.st og „sitja kyr
á sama stað“. Þá er Barna
hjal, þáttur af Brokeyjar-
Jóni og greinarflokkurinn
Ókunn lönd. Svo er ein-
kennileg smásaga um
mann, sem lifir líf sitt
aftur á bak. Loks er
bridge, smælki og myndir.