Morgunblaðið - 02.04.1946, Side 7

Morgunblaðið - 02.04.1946, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ Þriðjudagur 2. apríl 1946 r* i ■■ .i.ii ..... ....... % MINNING: Asgeirs Jónassonar skipstjóra NÆSTUM því daglega heyr- um við andlálsfregn eins eða annars kunningja og vinar, og finst það ekkert nema eðlilegt, því eítt sinn skal sjerhver deyja. En þó er eins og maður stundum geti ekki áttað sig á eða trúað, að einmitt þessi vin- ur manns hafi verið kvaddur í burtu frá oss. Svo var það einmitt með Ásgeir Jónasson. Við höfðum hitt hann glaðan og reifan að vr.nda fáum dögum áður og svo er hann fyrir til- tölulega stuttum tíma kominn í land, eftir að hafa verið sam- fleytt á sjónu.vn um áratugi og síðustu árin við hættulegustu skilyrði, sem sjófarendum hafa nokkurn tíma verið búin og margur þar hlotið hina votu gröf. Það er emmitt þetta sem maður ekki gat áttað sig á 1 bili, en um það getur mannlegt vit eða vísindi engu umþokað. Ásgeir Jónasson er fæddur að Hrauntúni í Þingvallasveit 11. nóv. 1884, en óslt upp að Mið- felli í sömu sveit En þrát fyrir það að forfeður hans hefðu yrkt jörðina og hin fræga og fagra Þingvailasveit er hann óslt upp -í heillaði huga hans og hann ávalt dvaldi þar í frístundum sínum, var annað sem heillaði hann meira en dróg til sm, það var hafið. Og þangað fóv hann. Á sjónum kunni hann best við sig, og þeim störfum helgaði hann starfskrafta sína. Hann byrjaði sjóferðir 1906 og var á hinum ýmsu skiþum, er þá voru fyrir hendi. Karl- menska hans og sjómannslund kom ávalt í Ijós „hvort sem fleytan er smá eða seglprúð að sjá. og hvert súðin er trje eða stál, hvort sem knýr hann ár eða reiði eða rammaukin vjel yfir ál“. Og hann var einn af þeim gæfusömu sonum Tslands, sem lifðu og störfuðu á þeim miklu tímum, er hinar stór- feldustu breytingar og fram- farir urðu á sjávarútvegi okk- ar og lagði þai ótrauður krafta sína, hvaða rúm sem hann skip- aði. Farmannaprófi lauk Ásgeir 1914 og gekk strax í þjónustu Eimskipafjelags íslands, er það hóf starfsemi sína og fekk sitt fyrsta skip Gullfoss. Og til gam ans má geta þess, að hann stóð við stýrði þess skips, er það sigldi inn á Reykjavíkurhöfn í fyrsta skifti. Árið 1926 varð hann fastur skipstjóri hjá Eimskipafjelagi íslands og tók þá við stjórn á Selfossi. Þar var hann til þess er fjelagið keypti Fjallfoss, þá tók hann við stjórn hans, og var þar, til hann hafði náð því aldurstakmarki, er mönnum í þjónustu fjelagsins eru sett, sem er 60 ára aldur og fór þá í land litlu seinna, eða vorið 1945, þrátt fyrir að starfskraft- ar hans væru óbilaðir. í hversdagslífi sínu og starfi var Ásgeir ávalt hægur og stilt ur. En sem hinn gjörathuguli maður veitti hann ávalt sam- verkamönnum sínum athygli og fylgdist með athöfnum þeirra og framkomu og gerði athugasemdir við þau, en ávalt þannig, að hver og einn, sem með honum var, ávalt og altaf elskaði hann og virti, og mat ábendingar hans mikils, enda var hann altaf leiðbeinandi, sjerstakiega yngri manna, sem með honum voru. Besta lýsing- in á Ásgeiri sem yfirmanni og samstarfsmanni er þannig orð- uð af stýrimanni, er var með honum nær óslitið í 12 ár: •— „Hann var sjómaður góður, at- hugull og eftirtektarsamur, hafði skarpa hugsun og rasaði aldrei fyrir ráð fram. Sam- vinnubýður við undirmenn sína, án þess að láta ganga á rjett sinn, nje þeirra er trúðu honum fyrir ábyrgðarmiklu starfi. Honum var ant um alla, sem minnimáttar voru og leið- beindi þeim á allan hátt og hjálpaði. Sjerstaklega trygg- lyndur og vinfastur, en vandur að vinum. Aftur á móti fastur fyrir, ef að honum var veitst og Ijet þá ekki sinn hlut, hver sem í ilut átti. Við samverka- menn hans sendum honum okkar hinstu kveðju, með þakk- læti fyrir samvinnuna“. Fróðleiksmaður var Ásgeir m'ikil, enda las hann mikið og átti kynstur af bókum. Einnig ljóðelskur og vel hagyrtur, og var unun að. er hann í vina- hóp hafði yfir ljóð og kvæði, enda stálminnugur á allt, er hann las og heyrði Vegna starfs síns, sífellt á sjónum, gat hann ekki tekið virkan þátt í áhugamálum sjó- mannastjettarinnar, en með þeim fylgdist hann af áhuga miklum, og gaf oft góðar bend- ingar um hin ýmsu mál stjett- arinnar og er hann var kominn í land, var bæði af honum sjálf um ákveðið að taka virkan þátt þar í, og við stjettarfjelagar hans hlökkuðum til að njóta samvinnu hans, áhuga, skarp- skygni og þekkingu á hinum ýmsu málefnum sjómannastjett arinnai. Ásgeir kvæntist árið 1918 Guðrúnu Gísladóttur frá Gufu- skálum og eignuðust þau þrjár dætur, er allar eru nú uppkomnar. — Hafa þau ávalt átt heima hjer í bæ og komið sjer upp stóru og góðu húsi og hafa búið þar með mesta mvndarskap og átt prýðisheimili. Um áramótin síð ustu fór Ásgeir að finna til las- leika, en hafði altaf fulla fóta- vist. Fyrir skömmu lagðist hann inn á Landakotsspítala til athugunar og var gerður á hon um uppskurður er tókst vel og var farinn að hressast vel eftir hann. En versnaði svo allt í einu og andaðist aðfaranótt 24. mars s.l., rúrnlega 61 árs að aldri. Við fráfall Ásgeirs Jónasson- ar er öllum vinum og kunn- ingjum harmur búinn. — En mestur er þó harmur konu hans og dætra, er eiga á bak að sjá umhyggjusömum og ástríkum eiginmanni og föður. En hinar mörgu og ljúfu endurdminn- ingar um liðnar samverustund- ir lifa og mýkja hina miklu sorg og sáran söknuð sem þeim er búinn. Við fjelagar "hans og sam- verkarr.enn frá sjónum, kveðj- um hann og þökkum honum samstarfið og Ijúfar endurminn ingar frá því með nokkrum línum úr hinu fagra ljóði, er best hefir verið kveðið um okk- ar íslensku sjómenn: Hvort með ho’malands strörid, eða langt út í lönd, á hann leið yfir ólgandi flóð, gegnum vöku og draum, fljettar trygðin þann taum, sem hann tengir við land sitt og Þjóð, Þegar hætt reynast för, þegar kröpp reynast kjör, varpar karlmenskan íslenska bjarma á hans slóð. Blessuð sje minning þín. Þorv. Björnsson. miiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiim Hálft hús = i í Norðurmýri til sölu. — i i Ennfremur lítið hús í — i Skerjafirði. = = Haraldur Guðmundsson §E = lögiltur fasteignasali. = = Hafnarstræti 15, sími 5415 H E og 5414 heima. i iimmimmimimimmmmimimiimimmimimiimt IO Haldið því hreinu og gljáandi. HARPIC Örugt ráð til að hreinsa W. C. Illlllllllll!l!llllllllllllllllll!ltlllilllllllllllll!i:illlllllllllll = ' s 1 Vantar [aðstoðarstúBku ] s á tannlækningastofu mína 1 = nú þegar. | Uppl. kl. 9,30—13,30 á | | morgun — miðvikudag. | Stefán Pálsson, tannlæknir. 5 Hafnarstr. 17. Sími 4432. § niiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiim Kvenfjelag Lauganessóknar heldur 5 ára afmælisfagnað laugard. 6. apríl $ og hefst með sameiginlegu borðhaldi kl. 7,30 f f að Þórs-Cafe. Fjelagskonur, f jölmennið. Heimilt er að taka | með sjer gesti. Aðgöngumiða sje vitjað á Lauga- f |nessveg 61 á morgun (miðvikudag.) STJÓKNIN. Til sölu |Komplet borðstofuhúsgögn ásamt hornbóka- | skáp með tilheyrandi borði. Alt handútskorið af fínustu gerð. Einnig radiógrammófónn 18 lampa, 12 plötu skiftir o. fl. er til sölu og sýnis frá kl. 2—5 næstu daga, Tjarnargötu 3, miðhæð. f <♦> Á # w <§*$><$><$x$><$>3x$x§x$x$><$><$x$k$><$x$*$><§><§><$><$k$><$><$><$x§x$x$><$k$x^><§k$><§x§x§><§x$><$><$x$><$x$x^ Tilkynning Langferðataxtar eftirgreindra f jelaga eru sem hjer segir: Kr. 1,60 fyrir ekinn kílómeter með flutning aðra leið að 2500 kg. — 1,92 sje hlassið 3000 kg. Ef flutningur er báðar leiðir bætist 50% við. Vörubílastöðin Þróttur, Fjelag vörubílaeigenda í Hafnarfirði. Bílstjóradeild Verkalýðsfjel. Akraness, Bílstjórafjelagið Mjölnir, Árnessýslu. Bílstjóraf jelag Rangæinga, Rangárvallasýslu. Lrá barnaskóEum Reykjavíkur Fullnaðarpróf (þ. e. próf barna fæddra 1932) og ennfremur árspróf 10—12 ára deilda (þ. e. barna fæddra 1935, 1934 og 1933) fara fram í barnaskólum Reykjavíkur dagana 9—13. apríl | n.k. — Prófskyld börn á þessum aldri, sem ekki stunda nám í skólum, er hafa prófrjett- indi, skulu koma til viðtals í barnaskóla þess skólahverfis, þar sem þau eiga heima, mánu- daginn 8. april n.k. kl. 4 e. h. Skólastjórarnir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.