Morgunblaðið - 16.06.1946, Page 1
12 síður og Lesbók
S3. árgangui
132. tbl. — Sunnudagur 16. júní 1946
isaioiaarprentsmiSja h.i.
Alhliða íramfarir á sviði atvinnu og menn-
ingarmála. Öryggi einstaklinga og þjóðar
Hjónin, sem férusi
í brunanum á ísa-
firði
Morgunblaðið heíir áður birt
ljósmyndir af telpunum tveim-
ur og piltinum, sem fórust í
eldsvoðanum á ísafirði. Hjer
birtist mynd af ungu hjónun-
um, sem inni brunnu, Guðrúnu
Árnadóttur og Sigurvin Vetur-
liðasyni.
íuntilmyrbi vekur
éíia í Tyrklandi
Istombul í gærkvöldi.
yfir í rúmar 90 mínútur, sást
yfri í rúmar 90 mínútur, sást
í gær í Tyrklandi. Atburður
þessi vakti ofsa hræðslu víðs-
vegar í landinu og í nokkrum
tilfellum skutu íbúar afskektra
þorpa upp í loft úr byssum sín-
um, til að „hræða drekann, sem
var að gleypa tunglið11.
Samkvæmt útvarpsfregnum
frá Moskva, sást tunglmyrkvi
þessi einnig í Rússlandi.
— Reuter.
Matsuoka veikur.
LONDON: Fallið hefir ver-
ið frá því í bili að höfða mál
gegn Matsuoka, fyrrum utan
ríkisráðherra Japana, fyrir
stríðsglæpi. Ástæðan er sú,
að Matsuoka er algerlega
heilsulaus.
JpílorgttjtblaMJ
Þann 17. júní verður ekki
unnið í prentsmiðjunni og
kemur Morgunblaðið því
ekki út fyr en á miðvikudags-
morgun.
Samþyktir síðasta Landsfundar
Sjalfstæðisf lokksins
Effir þoim er stefna flokksins mörkuð. Hikið hefir áunnisf á síð-
asfa ári undir ferusfu Sjáifstæð isflokksins.
SAMKVÆMT reglum Sjálfstæðisflokk sins hefir Landsfundur hans, sem skipaður
er fulltriium úr öllum kjördæmum landsins, æðsta vald í málefnum flokksins.
Síðasti Landsfundur flokksins var haldinn á Þingvöllum í júní 1945.
Með ályktunum þessa Landsfundar voru Sjálfstæðisflokknum ákveðin þau verkefni
sem síðan hefir verið unnið að, á öllum helstu sviðum þjóðlífsins, og lialdið verður
áfram að framkvæma.
Ályktanir fundarins fara hjer á eftir, jafnfram því, sem þess er getið í fám orðum,
sem unnist hefir síðan fundurinn var haldinn, með glæsilegri forustu Sjálfstæðis-
flokksins.
Stofnun lýðveMisins.
Landsfundur Stjálfstæðis-
flokksins, haldinn á Þing-
völlum í júní 1945, lætur í
ljós fögnuð sinn yfir því, að
lýðveldi var endurreist á ís-
landi 17. júní 1944, svo sem
siðasti landsfundur fól öllum
trúnaðarmönnum flokksins
að vinna að. Þakkar fundur-
inn forystumönnum flokksins
ágæta forgöngu í málinu og
öllum landslýð nær einhuga
fylgi við það á úrslitastund.
Stjórnarsamstarfið í
samræmi við stefnu
Sjálfstæðisflokksins.
Landsfundurinn lýsir á-
nægju sinni yfir því, að með
myndun núverandi ríkis-
stjórnar hefir verið fram-
fylgt þeirri ályktun síðasta
landsfundar, að komið yrði
á sem víðtækastri stjórn-
málasamvinnu í landinu og
að mynduð yrði þingræðis-
stjórn, er nyti stuðnings
meiri hluta Alþingis.
Lýsir fundurinn eindregnu
fylgi við stefnuskrá ríkis-
stjórnarinnar,sérstaklega það
meginatriði hennar, sem lýt-
ur að nýsköpun atvinnulífs-
ins og er í fullu samræmi
við yfirlýsta stefnu flokksins
og fyrriályktanir landsfunda.
Lýðræði og Þingræði
hyrningarsteinn þjóð-
skipulagsins.
Landsfundurinn ítrekar á-
lyktun síðasta landsfundar,
að Sjálfstæðisflokkurinn tel-
ur lýðræði og þingræði hyrn-
ingarstein þjóðskipulags ís-
lendinga. Fundurinn fagnar
því, að þetta sjónarmið er
tekið upp í stefnuskrá ríkis-
stjórnarinnar varðandi end-
urskoðun þá á stjórnarskrá
ríkisins, sem verið er að und-
irbúa.
Telur fundurinn, að í
stjórnarskránni beri að
tryggja þau almennu mann-
réttindi, sem e_u grundvöll-
ur lýðræðisins, almennan og
jafnan kosningarrétt og kjör-
gengi, málfrelsi, ritfrelsi, fé-
lagafrelsi, fundafrelsi og fé-
lagslegt öryggi.
Fundurinn telur,að tryggja
beri, að ópólitísk félagasam-
tök til almenningsheilla svo
sem samvinnufélög, búnaðar-
félög, verkalýðsfélög og
önnur stéttasamtök séu eigi
misnotuð til framdráttar ein-
stökum pólitískum flokkum,
og því sé skylt að viðhafa
lýðræðislegar reglur í stjórn-
arháttum þeirra, svo sem
hlutfallskosningar til allra
trúnaðar- og stjórnarstarfa.
Frjálsræði í atvinnu-
rekstri og samstarf
stéttanna.
Landsfundurinn telur þjóð-
arnauðsyn að tryggja það, að
allir landsmenn geti haft at-
yinnu við sem arðbærastan
atvinnurekstur.
Fundurinn telur, að þessu
takmarki verði bezt náð
með því, að sem mest frjáls-
ræði ríki í atvinnurekstri
landsmanna og framtak ein-
staklinga fái að njóta sín.
Opinberar framkvæmdir og
rekstur sé í aðaltriðum tak-
markað við það að bæta al-
menna aðstöðu við framþró-
un atvinnu- og viðskiptalífs-
ins í landinu, sbr. póst og
'síma, hafnir, vita og vegi
eða víðtækar raforkufram-
kvæmdir og annað slíkt, sem
við' það miðast að hlaupa
undir bagga, þar sem bol-
magn einstaklingsins þrýtur.
Telur fundurinn, að far-
sæld í atvinnuliíinu geti
ekki þróazt nema með góðu
samrtarfi og gagnkvæmum
skilningi stéttanna, svo sem
verið hefir meginsjónarmið
Sjálfstæðisflokksins. — Með
samstarfi núverandi stjórn-
arflokka álítur fundurinn, að
þetta stjcrnarmið hafi hlotið
almennari viðurkenningu en
áður, sem hann væntir, að
megi til góðs leiða og skapa
aukið öryggi fyrir vinnufriði
og bættri afkomu.
Fundurnn bendir á, að
heppileg leið til aukins ör-
yggis og jafnvægis í atvinnu-
málum þjóðarinnar sé hlut-
deildarfyrirkomulag í at-
vinnurekstrinum, þar sem
því verður við komið, svo
að starfsmenn geti öðlast
hlutdeild í arði eða rekstri
þeirra fyrirtækja, sem þeir
vinna við.
Fundurinn er því fylgj-
andi, að sett verði löggjöf
um vinnuvernd, aukið ör-
yggi verkamanna og bættan
aðbúnað, og um vinnutíma í
þeim atvinnugreinum, þar
sem því verður við komið.
Fjármál og skattamál.
Jafnvel þótt landsfundur-
inn telji. að óhjákvæmilegt
hafi verið. eins og málum
Framh. 6 2. *íðu
Yann 1900 kréna
verðlam
Guðrún Steingrímsdóttir, sem
vann umferðarverðíaunin.
MJÖG mikil þátttaka var í
umferðasamkepni Morgunbl.,
sem fram fór dagana 5.—8. þ.
m. Alls sendu hátt á áttunda
hundrað manns iausnir á um-
ferðamyndunum. Langflestar
ráðningarnar voru rjettar, en
þó voru nokkrar rangar að
meira eða minna leyti.
Er dregið var um verðlaun-
in, kr. 1000.00, kom upp hlut-
ur ungfrú Guðrúnar Steingríms
dóttur, Lokastig 19.
i gær
París í.gærkvöldi.
Utanríkisráðherrar fjórveld-
anna komu saman á fyrsta
fund sinn í París að þessu sinni
í dag kl. 3. Fundurinn ræddi
meðal annars hvaða mál
skyldu tekin fyrir og í hvaða
röð.
Menn eru yfirleitt sammála
um, að lítil ástæða sje ’til að
vera bjartsýnn í sambandi við
fundinn, og er bent á það, hve
lítill árangur varð af fundi full
trúa utanríkisráðherranna, sem
nú er nýlokið.
Talið er víst að Bandaríkja-
menn muni beita sjer fyrir því,
að friðarsamningar verði gerð-
ir sem fyrst við Austurríki. —•
Hafa þeir þrásinnis lýst yfir óá
nægju sinm í sambandi við
þessi mál, en Rússar virðast
ófúsir að semja, að minnsta
kosti að sinni.