Morgunblaðið - 15.08.1946, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 15.08.1946, Blaðsíða 6
6 MORGCNBEA8IÐ Fimtudagur 15. ágúst 1946 1 Útg.: H.f. Árvakur, Reykjavík. Framkv.stj.: Sigfús Jónsson. Ritstjórar: Jón Kjartansson, Valtýr Stefánsson (ábyrgðann.). Frjettaritstjóri: ívar Guðmundsson. Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson. Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla, Austurstræti 8. — Sími 1600. Áskriítargjald: kr. 8.00 á mánuði innanlands, kr. 12.00 utanlands. 1 lausasölu 50 aura eintakið, 60 aura með Lesbók. Gestir og heimamenn MAÐUR heitir Björn Fransson. Hann hefir lengi haft það starf, að taka saman erlendar frjettii- fyrir útvarp- ið. Þegar ritstjórn Þjóðviljans þykir mikið við liggja, þá er sami Björn fenginn til þess að skrifa þar greinar og skýra málin frá kommúnistisku sjónarmiði. Hann er fyrir nokkru orðinn nafntogaður meðal þjóðarmnar, fyrir það hve blygðunarlaus hann er í því að snúa sann- leikanum við, kommúnistum í vil, eins og þegar hann tók sjer fyrir hendur að staðhæfa í löngum fyrirlestr- um í útvarpinu, að hið skefjalausa einræði Rússlands, væri hið fullkomnasta lýðræði í heiminum(!) Eins og lesendum blaðsins er kunnugt, birtust hjer fyrir nokkru greinar eftir litauviska mentamanninn Teodoras Bieliackinas um ástandið, eins og það er nú, í Eystrasaltslöndunum. Hann lýsti hinni blóðugu kúgun, sem hin austræna „herraþjóð“ hefir þar í frammi og hinum sáru vonbrigðum sem þjóðir þessar hafa orðið fyrir. Þjóðviljinn kaus Björn Fransson til andmæla að þessu sinni. Birtist grein hans í Þjóðviljanum á þriðjudag. Úr andmælum varð að vísu ekkert hjá Birni. Hann reynir ekki í grein sinni að bera brigður á eitt einasta atriði í lýsingu Bieliackinasar á ástandinu í Eystrasalts- löndunum. í stað þess veltir hann sjer yfir hinn litauiska mann með óþverralegum skömmum. Er aðal efni máls hans það, að Bieliackinas sje hinn kaldrifjaðasti nasisti. Línan frá Moskva er þessa dagana sú, að úthúða öll- um fyrir það að þeir sjeu fasistar, eða nasistar, sem ekki eru já-bræður kommúnista. Er þessháttar málþóf komm- únista sennilega gert með það fyrir augum, að deyfa smátt og smátt andstygð manna á bandalagi Stalins við Hitler sumarið 1939. Bandalag það er öllum hugsandi mönnum í heiminum minnisstætt enn í dag m. a. vegna þess, að þá sannaðist það, svo aldrei mun það gleymast, að ráðstjórnin rússneska getur gert bandalag við hvaða glæpaþrjót í mannsmynd sem vera skal, og öll hin vilja- lausu kommúnistapeð um gervallan heim, að Birni Franssyni meðtöldum geta snúist strax til fylgis við hvaða stefnu sem þeim er fyrirskipað að austan. Saman- ber afstöðu Þjóðviljamanna fyrir fylgi sínu við Nasista- stjórn Þýskalands, er þeir sögðu að það væri smekks- atriði hvort menn væru með eða móti Hitlersstjórninni. Teodoras Bieliackinas hefir flutt sannar fregnir af því sem hefir verið að gerast í Eystrasaltslöndunum undanfarin ár og er að gerast þar enn í dag. Björn Frans- son getur ekki haggað við neinu orði af því sem útlend- ingur þessi hefir sagt þaðan að austan. Björn reynir það ekki. Því hann veit sem er að ef hann reyndi slíkt myndu falsrök hans og staðhæfingar verða reknar ofaní hann jafnharðan aftur. Björn Fransson siðameistari Þjóðviljans segir í enda- lok hins soralega og máttlausa reiðilesturs síns, að ís- lendingar krefjist þess, af gestum sínum, að þeir hegði sjer eins og siðuðum mönnum sæmir. Að öðrum kosti segir ,,siðameistarinn“ er þeim kærast að slíkir gestir hypji sig brott hið bráðasta. Ekki er hlaupið að því, að finna gleggra dæmi um íasistiskt einræðis-brölt en það, sem lýsir sjer í þessum ummælum hins sálsjúka máltóls kommúnismans Björns Franssonar. Þar sem hið „austræna lýðræði“ nýtur sín, þar eru valdhafarnir ekki að hafa fyrir því, að rökræða málin við andstæðinga sína, ellegar þá, sem hafa einhvern þann sannleika að flytja, sem er þeim óþægilegur. „Slíkir menn“ eins og Björn Fransson kemst að orði, eru látn- ir hverfa á einn eða annan hátt. Islendingar kunna ekki við þær aðferðir, þó æstustu Rússa dindlar hugsi til þess sem væntanlegrar paradísar, ef íslenska þjóðin á eftir að rata í þá ómælanlegu óhamingju, að verða hinu kommúnistiska einræði að bráð, á sama hátt og hinar kúguðu Eystrasaltsþjóðir nú. UR DAGLEGA LIFINU Gamla fólkið þarf út í sólskinið. MJER hefir borist athyglis- vert brjef um þörf gamla fólks ins hjer í bænum á að ljetta sjer upp einn dag og komast út i sólskinið utan bæjarins og helst að týna svolítil ber. Á þessu er síst vanþörf og hug- myndin ágæt. Brjefið er svona: Hr. Víkar! Hjerna í bænum eru sem kunugt er margir góðir og greiðviknir menn, sem eiga einkabifreiðar. Og hjer er líka mesti fjöldi af gömlu fólki, sem margt hvert býr í sólarlitlum íbúðum, eða að minsta kosti getur ekki heitið að hreyfi sig út úr bænum yfir sumarið, eins og margir aðrir leggja land undir fót. Mjer var að detta í hug hvort einhverjir framtak- samir einkabíleigendur vildu ekki taka sig saman og bjóða gömlu fólki út úr bænum einn góðan dag, þá helst til berja, þvi að varla trúi jeg að óreyndu að aldraða fólkið sje enn búið að týna niður berjatínslunni og þeim sem fyrir þessu gengust myndi vera marglaunuð fyrir- höfn sín af þakklæti farþeganna Engir eru eins þakklátir því sem gert er fyrir þá, eins og einmitt gamalt fólk, en það er satt að segja ósköp mikið út- undan í öllum þessum ferða- glaumi, en langar hinsvegar vafalaust til þess að ljetta sjer upp ekki síður en aðra. • Elliheimilið sjer um sína. Með þesu á jeg ekki við það gamla fólk, sem dvelur á Elli- heimilinu. Heimilið sjer sjálft fyrir því. Það býður sínu fólki altaf í ferðalag á hverju sumri og eru þessar ferðir þegnar með miklu og innilegu þakkæti og til þeirra hlakkað af einlæg- um huga. — En hitt fólkið, sem býr hingað og þangað um bæ- inn, það er það sem jeg á við. Það myndi ekki þurfa mikið framtak til þess að koma þessu í kring og yrði til mikils sóma þeim mönnum, sem fyrir þessu stæði. Þetta gæti líka orðið föst venja, eins og er sumsstað ar úti um lönd, þegar þeir yngri og röskari taka sig til að gera gamla fólkinu glaðan og á- nægjulegan dag, og gleði þeirra gömlu er svo innileg og barns- leg, að henni gleymir enginn, sem hefur kynnst henni. —“ • Ágæt uppástunga. SVONA var brjef þessa frum lega manns, og mjer finnst upp ástungan hreinasta perla. — Gamla fólkið er oft vanrækt, það þýðir ekki að ganga fram hjá því. Það er búið að vinna fyrir okkur, sem nú erum full- orðin og við erum því miður oft tómlát um hag þess. En jeg þekki Reykvíkinga svo vel, að jeg veit að þeir drepa ekki hendi við sóma sínum. Það hafa þeir aldrei gert. Og jeg er viss um að góða menn skortir ekki manngæsku og framtak til þess að koma á þessari skemti- ferð, safna gamla fólkinu sam- an, bjóða því og gera því glað- an dag. Og ef þetta yrði föst venja, væri það Reykvíkingum til enn meiri sóma og ánægju, — eitt af þeim atriðum, sem gætu gert bæjarlífið fegurra og bjartara. Fyrirspurnir um frímerki. ÞRÍR DRENGIR skrifa: „Við höfum safnað íslenskum frí- merkjum í nokkur ár og höfum við ætíð haft mesta ágirnd á sjaldgæfustu og dýrustu merkj unum, sem gefin eru út. Oft eru á fylgibrjefum send- inga verðmestu merkin og þætti okkur ekki nema sann- girni að þau tilheyrðu þeim sem á sendinguna. En nú er þetta ekki þannig, heldur eru frímerkin tekin á póstafgreiðsl unni og sjer maður þá ekki meira af þeim, nema ef vera kynni að þau sæust í búð seinna með okurálagningu innan um rusl, sem auðvitað þarf að kaupa með, þó maður eigi nóg af því í söfnum sínum. Okkur er sagt að andvirði þessara frí- merkja renni í sjerstakan sjóð. Er það rjett? Og hversvegna á þessi sjóður meiri heimtingu á frímerkjunum en viðskipta- vinirnir, sem hafa keypt þau sínu verði? — Jeg kém þessari spurningu hjermeð á framfæri til rjettra aðila og annarri um svipað efni frá ,,Spurulum“. Hann spyr hve lengi póstmálastjórnin ætli að hafa í gildi frímerki með mynd um dansks konungs. Að því spyr jeg líka því jeg undrast slíka ráðstöfun að hafa slík frí- merki enn í gildi hjer í hinu unga lýðveldi. • Hvað höfum við lært? Á LEIKNUM á mánudaginn kom strax í ljós að við höfum lært af Dönunum eitthvað í knattspyrnu. Spyrnurnar voru yfirleitt ekki eins háar og þær hafa verið löngum, og einmitt skiftingar í framlínu Víkings, — alveg upp á danskan máta, — gáfu þeim tvö fyrstu mörk- in eftir sjerlega lagleg upp- hlaup. Það var yfirleitt meira um lága knetti frá manni til manns, en verið hefir. — Nei, heimsóknir sjallra íþrótta- manna eru ekki ónýtar, jafnvel þó þeir segi áhorfendur hjer hlutdræga þegar heim kemur. í því sambandi get jeg sagt það, að foringi danska liðsins á leikvelli, Karl Aage Hansen, sagði við mig meðan hann dvaldi hjer, að hann hefði aldrei Ieikið landskappleik fyr ir prúðari áhorfendum en hjer. „Það er nú eitthvað annað í Stokkhólmi“, sagði hann. <iiiiiMimiiii|ll|lllllllmll|||||l|tii«iiiiiiiim«iiMmiiiiiiiiiiiiiiimriiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiimmnmi|",ll,l,lim,lnim't*«iiiiiiiiiiii mti iiiiiiiimiiiimi iiiiiiiiiiiiiiiiiiih | MEÐAL ANNARA ORÐA .... [ ” IIIIIMIItlMllllllllllMIIIIIIIIMimaMmllMIIIIIMIIIIIIIIIIIIIMmillMIIIIIIIIIIIIMIIia Flugleiðirnar yfir íshafið. Vilhjálmur Stefánsson. ÞAÐ MUN hafa verið Vil- hjálmur Stefánsson landkönn- uður, sem fyrstur vakti athygli íslendinga á því, hve miklar líkur væru til þess, að margar loftleiðir myndu í framtíðinni liggja norður yfir íshafið. Þegar hann fór fyrst að tala um þetta, og aðrir sem kunnir voru þessum málum, var flugið ekki nema skamt á veg komið, í samanburði við það sem nú er. Þá áttu engar reglubundnar flugferðir sjer stað yfir heims- höfin eins og nú. Veðráttan og vegalengd. Hjer á landi þótti veðráttan ekki þessleg, að menn myndu leggja leið sína að nauðsynja- lausu um þessar slóðir er þeir væru að bregða sjer milli stór- borganna í Ameríku og Evrópu. En Vilhjálmur landkönnuður, sem hafði skrifað bækur um hin vinalegu heimskautalönd, gerði ekki svo mikið úr því, að hamfarir veðranna myndu hamla flugferðum. Hann benti á það sem aðalatriði málsins, að þegar um langflug væri að ræða, á milli landa, þá myndu menn leggja megin áherslu á, að velja sjer stystu leiðirnar. Og þá myndi heimskautaleiðin oft verða fyrir valinu. Hnötturinn. Menn eru svo vanir að horfa á landabrjef heimsins dregið upp á ferhyrndan reit, að þeir gleyma því hálft í hvoru hvern ig jörðin er í laginu. En þegar hnattlíkan er skoðað þá liggur það í augum uppi, að megin- hluti allra landa á jörðunni er öðru megin á hnettinum, og Evrópa miðsvæðis á þeim jarð- arhelming þar sem löndin eru. En öll lönd sem hafa flug- samgöngur að ráði, eru fyrir norðan miðjarðarlínu. Nú ligg- ur það í augum uppi, að ef fljúga á milli staða, sem eru á sömu breiddargráðu en alveg sitt hvorumegin á hnettinum og staðirnir eru fyrir norðan mið- jarðarlínu, þá er styttra að fara norður yfir pól, heldur en að fylgja breiddarbaugnum alla leið. Ef t. d. menn ætla að fljúga frá stað í Evrópu sem er á 60 breiddargráðu til staðar í Ameríku sem er alveg hinú megin á hnettinum en á sömú breiddargráðu, þá er það 50% styttra, að fljúga beint norður yfir pól, heldur en að halda beint í vestur á sömu breiddar- gráðu alla leiðina. Yfir norðurpól. Ef fljúga skal t. d. milli Boston og Tokio og fara skal stystu leið, þá liggur hún rjett hjá heimskautinu. Sama er, ef fljúga skal frá San Francisko til Moskva. Og mæli maður það með spotta á jarðlíkani, hve leiðin er löng milli New York og Moskva, þá furðar mann á því, hve munurinn er mikill, á vegalengdinni, eftir því hvort mælt er frá austri til vesturs, ellegar mælt er norður yfir ís- hafið. Hættuminna flug. Þegar Vilhjálmur Stefánsson byrjaði að tala um hinar norð- lægu flugleiðir, þá hjeldu menn að þetta væru draumórar einir, vegna þess að aldrei kæmi til mála að menn legðu flugleið sína yfir illviðrasvæði íshafs- ins. En reynslan hefir kent flug mönnunum, að flugið yfir ís*- hafið getur að ýmsu leyti verið hættuminna og þægilegra, en í suðlægara loftslagi. Þar er t. d. ekki eins. mikil hætta á ís- ingu eins og sunnar, þar sem loft er rakara. Og þar er hæg- ara að komast yfir storma og illviðri én annarstaðar. En mestu máli skiftir, þó eins og Framh. á bls. 3.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.