Morgunblaðið - 05.09.1946, Síða 12

Morgunblaðið - 05.09.1946, Síða 12
VEÐURUTLITIÐ. Faxaflói: Faxaflói: NA-gola eða kaldi. Ljettskýjað. UM DAGINN OG VEGINN I PARÍS. — Sjá grein Sigurðat Bjarnasonar á bls. 7. ____ Fimtudagur 5. september 1946 Sjómeim í Keffavtk neyðast til ai henda nýveiddri síld í sjóinn FRJETTARITARI Morgurtblaðsins í Keflavik símaði í gær- kvöldi, að gert væri ráð fyrir að talsvert miklu af nýveiddri Faxasíld verði hent í sjóinn. Frystihúsin þar gátu ekki veitt móttöku nema litlum hluta af afla bátanna í gær. Undanfarna daga hafa -10 bát ar stundað reknetaveiði hjer í Flóanum. Afli þeirra hefir ver- ið tregur. En nokkuð hefir hann lagast síðustu daga. í dag var afli þeirra mjög góður, eða frá 100 til 250 tunnur á bát. Vegna þess hversu mikið barst að í dag, er gert ráð fyrir að henda verði talsverðu magni aflans í sjóinn. Ástæðanu fyrir þessu er sú, að frystihúsin geta ekki tekið á móti nema 700 tunnum á dag. Um söltun er ekki að ræða. Lítilsháttar hef- ir verið flutt til Revkjavíkur og Hafnarfjarðar og víðar, en þetta er alveg hverfandi lítið. í dag bárust hingað 1500 tunnur. — Síldin er mjög stór og feit. Flestir bátar hjeðan úr Kefla vík, sem stunduðu síldveiðar fyrir Norðurlandi í sumar, eru nú komnir heim. Aðrir 10 bátar eru nú tilbúmr á reknetaveið- ar. Þeir munu þó ekki fara út, fyr en lausn hefir fengist á löndunarspursmáli þessu. RæSf um alþjóða- malvælaráð á ráð- stefnu FAO Kaupmannahöfn í gærkvöldi. Á FUNDI ráðstefnu matvæla og landbúnaðarsamtaka Sam- einuðu þjóðanna í dag flutti Sir John Boyd Orr, forseti samtakanna ræðu. Sagði hann það tillögu sína, að stofnað yrði alþjóðlegt matvælaráð, sem að nokkru tæki að sjer störf þau, sem UNRRA gegnir nú. Hann sagði, að eitt aðalverkefni ráðs þessa myndi vera að verðfesta matvæli á heimsmarkaðnum. Belgar kæra Fran- cosljómina Briissel í gærkveldi. Á MORGUN mun belgiska stjórnin senda sendiherra sín um í Washington harðorða kæru, stílaða til Sameinuðu þjóðanna, út af framferði spönsku stjórnarinnar í sam bandi við belgiska fasistafor ingjann Degrelle. Er Franco stjórninni gefið að sök að hafa skotið. skjólshúsi yfir Deg- relle og síðan hjálpað honum til þess að flýja burt, eftir að þess hafði verið krafisf, að hann yrði framseldur sem stríðsiglæpamaður. Belgisku- dómstóll hafði dæmt Deg- relle til dauða. Er jafnvei bú- Tst við því, að belgiska stjórn in muni kæra Francostjórn- ina fyrir Öryggisráðinu. — Reuter. Tónlistarskólinn fær kennara í flautu- leik Árni Björnsson lýkur námi í Englandi. ÁRNI BJÖRNSSON hljóð- færaleikari lauk á síðastliðnu vori prófi í flautuleik við Royal Manchester College of Music. Hann kom hingað til lands, á- samt konu sinni, með síðustu ferð e.s. Brúarfoss. Árni naut námsstyrks frá Tónlistarfjelag- inu, með það fyrir augum, að hann yrði síðari kennari við Tónlistarskólann. Hann fór til náms í september 1944 og lauk prófi s.l. vor, eins og fyr segir. Árni mun hefja kenslu í flautu leik við Tónlistarskólann nú í haust. Má vænta þess, að skól- anum komi starfskraftar hans að góðum notum, því að skort- ur hefir verið á kenslu í flautu leik sem og í leik ýmissa ann- ara blásturshljóðfæra. Við Roy al Manchester College of Music stunda nú nám tveir íslending- ar, Andrjes Kolbeinsson, í obó- leik, og Egill Jónsson í klari- nettleik. Andrjes hóf þar nám haustið 1944, en Egill 1945. — Munu þeir báðir að líkindum ljúka burtfararprófi næsta vor. Báðir njóta þeir styrks frá Tón- listarfjelaginu, og er í ráði, að þeir verði kennarar við Tónlist arskólann. í vetur ljek Eigill á klarinett á fjórum hljómleik- um hinnar kunnu Hallé-hljóm- sveitar í Manchester. í þessari symfóníuhljómsveit eru 70—80 menn, en stjórnandi hennar er hinn heimskunni hljómsveitar- stjóri John Barbirolli. Byrnes Slullgarl London í gærkvöldi. MAC NARNEY hershöfðingi, . yfirmaður hernámssveita Bandaríkjanna í Þýskalandi, til ^kynti í dag, að James F. Byr- I nes, utanríkisráðherra Banda- . ríkjanna, myndi ílytja ræðu í (Stuttgart á föstudaginn. ■— I Áheyrendur hans verða meðlim r herstjórnar Bandaríkjamanna í Þýskalandi og þeir aðrir her- menn, sem þá verða í borginni. Byrnes mun ræða stefnu Bandaríkjastjórnar varðandi hernám Þýskalands, bæði hing að til og hjer eftir. — Reuter. Borgarstjórinn í Wrnnipeg sendir Bjarna Benedikts- syni kveðjur I GÆRMORGUN gekk Grett- ir L. Jóhannsson ræðismaður íslands í Winnipeg á fund borg arstjórans í Reykjavík, Bjarna Benediktssonar. Flutti ræðis- maðurinn persónulegar kveðjur til borgarstjórans frá Garnet Coulter, borgarstjóra Winni- pegborgar. Hljóðar brjef Coulter borg- arstjóra á þessa leið: Kæri herra borgarstjóri. Ræðismaður íslands í Winni- peg, hr. G. L. Jóhannsson, hef- ir tjáð mjer, að hann og hin ágæta frú hans munu væntan- lega fara í heimsókn til íslands. Sú heimsókn gefur mjer mjög kærkomið tækifæri til þess að flytja persónulegar árnaðar óskir íbúanna í Winnipeg til yðar, bæjarstjórnarinnar í Reykjavík og íslensku þjóðar- innar allrar. Hugurinn, sem á bak við þessar óskir liggur, er ákveðinn og einlægur. Á frumbýlisárum Manitoba- fylkis og Winnipegborgar fluttu margir Islendingar til borgar- innar og nærliggjandi hjeraða í Manitoba, eins og yður mun kunnugt um. Þessir íslensku frumbyggjar tóku algerlega sinn þátt í þróun og vexti borg arinnar og fylkisins. Vjer erum öll mjög hreykin ?f þessari þátt töku. Eftir því, sem tímarnir liðu, stækkaði íslenska þjóðarbrotið í Winnipeg. Nú er svo komið, að íbúarnir af islensku bergi brotnir láta mjög til sín taka í viðskifta-, menningar- og fje- lagslífi borgarinnar. Hjá oss voru Engilsaxar hinn grundvallandi þjóðarstofn. Fólk af íslenskum ættum átti vel heima í þjóðfjelagsbyggingu vorri. Vissulega er það ekki undarlegt, þegar um er að ræða sameiginlegan ættmeið, sam- ræmi í siðmenningu, lífsskoðun og frelsishugsjónum. Þetta ís- lenska fólk hefir algerlega sam einast háttum þjóðfjelags vors og alið upp marga menn, sem hafa með höndum ábyrgðar- miklar stöður á sviði dómstóla og stjórnmála, mennta- og upp eldismála, til gagns og bless- unar fyrir þetta land. Jeg sendi yður, herra borg- arstjóri, einlægustu kveðjur mínar, og við yður læt jeg í ljósi þær vonir mínar til ís- lensku þjóðarinnar, að hið ná- komna samband, er skapast hef ir milli íslands og þessa hlutar Kanada, megi enn haldast og efl ast. Yðar einlægur, Garnet Coulter (sign). borgarstjóri. (Frá Þjóðræknisfjelaginu). Tveir af fremstu tónsnillingum heims halda hjer hljómleika Serkin og Busch væntanlegir eitir daga. í GÆR spurði Morgunblaðið þær frjettir, að hingað væru væntanlegir tveir heimsfrægir hljómlistarmenn, fiðluleikarinn Adolf Busch og píanósnillingurinn Rudolf Serkin. Blaðið fekk frjettir þessar staðfestar hjá formanni Tónlistarfjelagsins. Hann sagði, að þeir væru væntanlegir eftir nokkra daga. Hjer munu þeir halda alls 6 hljómleika, í Reykjavík og Hafnarfirði. Fimm hljómleikar verða haldnir hjer í Reykjavík. Þar af verða tveir fyrir styrktar- meðlimi Tónlistarfjelagsins. — Leikur þá Serkin einleik á pí- anó. Þrír opinberir tónleikar verða haldnir. Munu þeir Busch og Serkin leika hinar 10 són- ötur fyrir fiðlu og píanó, er Beethoven samdi. Hljómleik- arnir fara fram í Gamla Bíó. Sami miðinn gildir á alla þrjá hljómleikana. — í Hafnarfirði jhalda þeir eina opinbera tón- ; leika og fara þeir fram í Bæj- arbíó. Auglýsendur eru beðnir að athuga, að auglýsingar, sem koma eiga í sunnudagsblaðinu, verða að hafa borist fyrir kl. 7 á föstudagskvöld. Rudolf Serkin. fnnlaka íslands í bandalag samein- uðu þjóðanna SAMKVÆMT upplýsingum sem utanríkiSráðuneytinu hefir borist frá sendiráðinu í Washing ton, samþykkti Öryggisráð hinna sameinuðu þjóða hinn 29. f. m., með 10 samhljóða atkvæð um, að mæla með umsókn Is- lands um inngöngu í Bandalag- ið. Fulltrúi Ástralíu greiddi ekki atkvæði um neina þeirra umsókna sem fyrir lágu, en um inntökubeiðni Islands tók hann sjerstaklega fram, að Ástralía væri meðmælt inntökubeiðn- inni. Af Frakklands hálfu var lýst yíir stuðningi við umsókn íslands, en fulltrúar Banda- ríkjanna og Sovjetríkjanna sögðust mæla vinsamlega með umsókninni. Fulltrúi Póllands var í forsæti, er .inntökubeiðni Islands kom fyrir ráðið, og ljet hann þess getið, að engin á- greiningur hefði ríkt innan þess um inntökubeiðni Islands. Það skal ennfremur tekið fram, að samtímis var sam- þykkt með samhljóða atkvæð- um að mæla með inntökubeiðni Svíþjóðar og Afganistan, en öll- um öðrum umsóknum var hafn að. (Frá Utanríkisráðuneytinu). London: Bandarískur her- rjettur dæmdi nýlega 54 ára gamlan þýskan lögreglumann í ævilangt fangelsi. Hann hafði myrt bandarískan flug- mann, sem sveif til jarðar í fallhlíf. Tengdasonur Busch. Rudolf Serkin er tengdason- ur Busch. Hann er fæddur ár- ið 1903. Þeir hafa leikið saman í 25 ár. Fyrst komu þeir opin- lerlega fram í Berlín árið 1920. Þeir hafa haldið hljómleika í flestum borgum heims. — Þar hefir heimsókn þeirra verið talinn stórmerkut viðburður £ hljómlistalífi borganna. Serkin er talinn vera einn af þrem mestu píanósnillingum heims- ins. Eru á leið til Englands. Svo sem kunnugt er, kom Adolf Busch hingað á s.l. ári. Þótti honum dvölin hjer vera hin ánægjulegasta og fekk mikla ást á landinu. Nú ætl- aði hann að koma með konu sína með sjer. En svo sorglega vildi fyrir nokkrum dögum, að hún dó í sumarbústað þeirra hjóna skamt frá New York. — Serkin kemur með konu sína. Þau eru öll á leið til Englands og koma hingað sennilega um 15. þ. m., með flugvjel frá Ameríku. Hjer munu þau dvelja í tvær vikur. lækið til reynslu HARALDUR BÖÐVARSSON & CO, Akranesi, hefir boðið Reykjavíkurbæ til kaups Rad- artæki í hinn nýja togara Ing- ólf Arnarson. Sjávarútvegsnefnd hefir sam þykkt, að leggja til við bæjar- ráð, að fyrirtækinu verði gjört tilboð að setja tækið í skipið til reynslu, útgerðinni að kostn aðarlausu í samráði við eftir- litsmann ríkisins með bygg- ingu íslensku togaranna.;

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.