Morgunblaðið - 21.09.1946, Side 9

Morgunblaðið - 21.09.1946, Side 9
Laugardagur 21. sept. 1946 MORGUNBLAÐIÐ 9 íslenskur ullariðnaður Eftir Bjarna S. Hólm Sólheimar og bráðabirgðalögin ÞAÐ er öllum kunnugt að í hvert skifti sem Islendingar, á liðnum tímum, áformuðu end- urskipulagningu atvinnulífsins var íslensk ull og ullariðnaður einn stærsti liður í þeim áform- um þeirra. Það væri því ekki nýtt fyrir- bæri þó nýsköpunaráform at- vinnulífsins, í dag beindust að ullinni, þó margt hafi breyst, frá tímum Skúla og Innrjett- inganna. Það fyrsta sem gera þarf, áð- ur en hafist er handa um stór- felda framleiðslu úr íslenskri ull, er að gera nákvæma athug- un á sjálfri ullinni og fjárstofn- inum, svo hægt sje að sjá, með vissu hverskonar iðnaður, úr ullinni er hagkvæmastur. Islenska ullin er að flestu leyti sjerstæð ullartegund, þó mikinn skyldleika sje að finna með henni og ull af Shetland fje. Það sem sjerstætt er við ís- lensku ullina og sýnir ljósleg- ast frumstæði kynstofnsins er aðallega tvent: 1) Á íslensku sauðkindinni eru tvær algerlega ólíkar teg- undir af ull, af einni og sömu skepnu, nefnilega tog og þel. 2) íslenska sauðkindin fellir reyfin einu sinni á ári. Þessi einkenni sýna ljóslega hversu kynið stendur nálægt hinni svo- nefndu „Mouflon" tegund, en svo er nefnd hin fyrsta tegund fjár, sem vitað er að hafi verið tamið húsdýr, hjá Kaldeum, fyr ir um 5000 árum síðan. Eins og áður er getið skiftist revfið, af ísl. sauðkindinni í tvær tegundir: tog og þel. Tog: Þessi tegund af ull er svo frumstæð, í eðli sínu, að hún, í sumum tilfellum, lýkist meira hári af angorageit en ull. Hárin eru löng, ákaflega mis- munandi að lengd, styrk og fín- leik. Þel: Þessi tegund liggur nær skinninu og er, að mestu, hulin af toginu. Hún er mörgum sinn- um fínni en togið og hefir alt aðra eiginleika. Sá galli er líka við þelið að það er mjög mis- jafnt að styrk, fínleik og lengd. Að vísu er bæði þel og tog all mismunandi, eftir því hvaðan af landinu ullin er og er það eitt af hinum mörgu verkefn- um sem bíða sjerfróðra manna að athuga og gera nákvæma rannsókn á ullinni úr hinum ýmsu hjeruðum landsins. Þegar um er að ræða fram- leiðslu úr ull eru um að ræða 3 tegundir fullunnar vöru, sem síðan má skifta niður í fleiri flokka nefnilega filtgerð, dúka- gerð og prjón. Filt: Þessi tegund iðnaðar, úr ullinni, tel jeg ekki heppilega og er mjer ekki kunnugt um að hún hafi verið reynd hjer. íslenska ullin hefir ekki þá eig- inleika í nægilega ríkum mæli, sem ull til þessarar framleiðslu þarfnast. Prjónafatnaður: Fyr á öld- um var íslenska prjónlesið frægt um öll Norðurlönd fvrir gæði. Mikill hluti íslensku ull- arinnar var þá unnin heima, til útflutnings var aðallega unnið peysur, sokkar og vettlingar. Peysurnar náðu svo mikilli frægð, á Norðurlöndum, að en þann dag í dag eru skjólgóðar útprjónaðar peysur nefndar þar Islender eða Islandsk Tröje, enda þótt útflutningur þessi hafi legið niðri, um aldir. Jeg er sannfærður um ágæti islenskrar ullar til prjónfatn- aðar, enda virðist svo að þegar viðskifti við Norðurlönd hófust, að nýju, eftir styrjöldina hafi eftirspurn eftir prjónavörum, lopa og bandi verið mikil. Dúkagerð: Áður en hafist er handa um framleiðslu dúka verður að gera sjer ljóst hvaða tegund af garni hagkvæmast er að spinna. Nú er um tvær meginreglur að ræða: kambgarn (Worsted) og krossgarn (Woollen). Mun- urinn á þessum tveim tegund- um er aðallega sá að þegar worsted er spunnið er nauðsyn- legt að fá hárin af sem jöfn- ustu lengd og til þess að liggja öll á sama veg langs eftir garn- inu. Með sjerstökum kembir eru stuttu hárin (noil) hreinsuð úr lopanum. Dúkar úr garni þessarar teg- undar eru sljettir og áferðar- fallegir, þar sem tiltölulega mjög lítið af hárum stendur út úr garninu. Garn af þessari tegund tel jeg mjög vafasamt að borgi sig að framleiða úr íslenskri ull, í fyrsta lagi að úrgangur úr ull- inni verður svo mikill, í sum- um tilfellum alt að 30%. í öðru lagi er ullin svo ójöfn, í eðli sínu að mjög líklegt er að ó- jöfnur, sem yrðu væru óviðráð- anlegar. í þriðja lagi er aðferð- þessi talsvert kostnaðarsöm og því óvíst hvort það borgaði sig að kaupa dýrar, fullkomnar vjelar sem hæpið væri hvort mögulegt sje að vinna sam- keppnisfæra vöru, sömu teg- undar, við önnur lönd. Wollen: Þessi tegund af garni byggist á því að fá hárin til þess að krossa hvert annað, eins mikið og mögulegt er, af því leiðir að hvert einstakt hár bind ur hvort annað og er þarafleið- I andi mögulegt að nota stutt og löng hár saman. Jeg tel þessa aðferð henta okkur betur og vitað er að hún er mun ódýr- ari. Það er ljóst að erfitt er að spinna mjög fínt band, úr ís- lensku ullinni, sem stafar af því að togið er svo mikið gróf- ara en þelið og er því hætt við, þegar um mjög fínt band er að ræða, að í því sjeu veik- ir spottar sem aðeins eru nokk- ur toghár. Að þessu athuguðu gæti les- andi haldið að íslenska ullin væri ekki hæf til annars en prjónafatnaðar, en það er hinn mesti misskilningur. íslenska ullin hefir, að mínu áliti marga góða kosti. Sá er einn kostur við íslensku ullina hversu hlý hún er sem stafar af því hversu mikil lyfting er í hárunum, sem skapa loftrúm í dúkinn, Það sem jeg tel ákjós- anlegasta dúkaframleiðslu, ur íslensku ullinni eru eftirfarandi tegundir: til klæðnaðar tweed- efni fyrir yfirhafnir og sport- klæðnað. Húsgagnaáklæði, rekkjuvoðir, gólfdregla og gólfteppi. Jeg held að íslenska ullin sje það vel fallin til þess- arar tegundar að dúkar úr henni gætu orðið fullkomlega samkeppnisfærir, við erlenda vöru sömu tegundar. Jeg held að öllum sem hlut eiga að máli sje ljóst hversu f misráðið það er að selja ullina út úr landinu óunna og næsta óflokkaða, þegar möguleikar eru á að vinna hana heima og fá úr henni samkepnisfæra vöru, við önnur lönd. í stuttu máli tel jeg hag- kvæmast fyrir okkur íslend- inga að vinna úr ullinni prjóna- fatnað og tiltölulega fáar teg- undir dúka, sem svo ætti að verða okkar sjergrein, þá væri ef til vill möguleikar á að selja framleiðslu okkar á heims- markaðinn og fá þá í skiftum fínni dúka sem við þörfumst og ekki er hagkvæmt að fram- leiða hjer. Allar þær athuganir sem jeg hef gert hjer á undan eru bundn ar við ullina eins og hún er nú. Jeg tel mjög mikla möguleika á að hægt sje að fá betri ull með því að flytja inn sæði er- lendra kynstofna og innanlands kynbótum. Á þessu sviði eru stórkostleg verkefni, sem bíða úrlausnar og mikil þörf sjer- fróðra manna. Eitt af því sem þörf er að koma í betra horf, hið fyrsta, er flokkun ullarinnar. Flokkun sú sem nú á sjer stað er ein- göngu litaflokkun, gæðaflokk- un getur ekki átt sjer stað með- an ullin er þvegin heima og alt kemur í einni bendu til ullar- matsmanna. Meðan engin gæða flokkun á sjer stað, verður þess varla vænst að ullin geti verið góð markaðsvara eða hversu góða fiskmarkaði hefðum við ef fiskurinn væri eingöngu met- inn eftir lit? Það er vissulega kominn tími til þess að við íslendingar opn- um augu okkar fyrir þeim möguleikum sem íslenska ullin getur skapað, á sviði iðnaðarins og þann skerf sem hún gæti lagt til þjóðarbúsins, ef rjett er á haldið. Heiðhjól með hjálparmótor til sölu, einnig 11 m af gólfdúk. — Upplýsingar á Hraunteig 12 í kjallaranum, kl. 3—5 f. h. í dag. Peninsaveski með myndum og pening- um, merkt Hermann Gunnarsson, Hringbraut 209, tapaðist fimtudags- kvöld eða föstudagsmorg- un. Skilist gegn fundar- launum til Efnisvarðar landssímans, Sölfhólsgötu i j 11. ? ‘MMMM«MMMIUIIMHII<MltrMHMIIIMMMIinHMI-ninillllie BEST AÐ AUGLÝSA í MORGUNBLAÐINU ÞAÐ mun fleirum en mjer, af þeim sem til þekkja, hafa orð- ið á að spyrja, hvað er nú að gerast, þegar þeir sáu frjett í blöðunum að taka ætti með bráðabirgðalögum barnaheimil- ið Sólheima 1 Grímsnesi leigu- námi úr höndunum á ungfrú Sesselju, sem stofnsetti það um 1930 og hefir starfrækt síðan. Sesselja bjó sig undir þetta starf með því að kynna sjer rekst- ur slíkra heimila og vinna á þeim í 7 ár, bæði í Sviss og Þýskalandi. Að þeim tíma liðn- um kom hún heim full af á- huga, löngun og stórhug í því að stofnsetja slíkt heimili til þess með því að geta fórnað sjer fyrir þurfandi smælingja, sem vegna slæmrar aðstöðu vantaði aðhlynningu og nægi- lega góð uppeldisáhrif. Þess vegna rjeðist hún í það stór- ræði, sem það var fyrir ein- stæðing, unga stúlku, að byggja á Sólheimum stærðar hús með smávegis styrk frá Reykjavík- urbæ, eða kr. 10 þúsund, og hjálp Prestafjelagisins, sem lagði stofnuninni til jörðina. Síðan byggði hún annað hús, 3 hæða steinhús, eftir beiðni ríkis stjórnarinnar fyrir fávita og fjekk til þess kr. 15. þúsund styrk úr ríkissjóði. Auk þessara styrkja fjekk hún lán kr. 10 þúsund, úr Thorkelssjóði til þessara framkvæmda allra, og eru þá taldir þeir opinberu styrkir, sem hún hefir fengið til þess að byggja þessi 2 stór- hýsi. Styrki til rekstursins mun hún hafa fengið eitthvað smá- vegis sum árin. Þegar svo ríkið setti á stofn fávitahælið á Kleppjárnsreykj- um fyrir 2 árum, voru fávit- arnir frá Sólheimum fluttir þangað, svo að nú stendur það hús tómt, sem hún byggði til þeirrar starfsemi. Jeg sem nokkuð hefi fylgst með rekstri barnaheimilisins á Sólheimum og sem nokkurt skyn þykist bera á það, hvernig búa eigi að börnum, eftir að hafa alið sjálfur upp mörg börn og ekki tekist það ver en hverj- um öðrum miðlungsmanni, verð að segja að jeg tel Sesselju sem forstöðukonu barnaheimilis hafa innt sitt starf af hendi með prýði, sem liggur meðal annars í því að hún hefir dálít- ið óvanalega lyndiskosti til að bera, sem nauðsynlegir eru þeim sem umgangast börn og eiga að hafa á þau góð áhrif, sem sje fórnfýsi, umhyggju, manngæði og skilning á þörfum þeirra. Enda augljóst mál, að hún hefði ekki sem ung stúlka á- kveðið sjer þetta hlutskipti eða lífsstarf, ef hún hefði ekki fundið hjá sjer sterka löngun til þess a.ð vinna að þessum sínum hugðarmálum og fórnað með því mörgum öðrum mögu- leikum til þægilegra starfa og auðveldari, fjevænlegri og vin- sælli. Nú sýnist svo sem það opin- bera telji, af mjer óþekktri nauðsyn til bera að taka úr höndum hennar þetta lífsstarf hennar og hugðarmál, sem hún svo mjög þráir að fá að vinna að áfram, eftir að hún í gegn- um marga erfiðleika er búin að búa sjer þau góðu skilyrði, sem nú eru til staðar þarna á Sólheimum. Nú má vel vera að eitthvað megi að því finna, hvernig fröken Sesselja hefir rekið þessa stofnun og er ekki sagt . með því meira en það sem segja má um hverja stofnun eða flestar, t. d. er það stað- reynd að stundum getur stað- ið þannig á, jafnvel á hverju prívat heimili hvað þá á barna- hælum, að ef maður eða menn rekast þar inn geti rekið augun í eitthvað sem ekki ætti í strang asta skilningi að eiga sjer stað, án þess þó að það sje þess virði að gera úr því veður eða opin- berar ákærur. Aðalatriðið er, að algeng, dagleg aðbúð og um- gengni við börnin sje þannig, að þeim líði vel andlega og I líkamlega, en sje haldið til aga, og að það sje og hafi verið til staðar á barnaheimilinu Sól- heimum staðfesta mín kynni í mörg ár af því heimili. Jeg hefi að vísu heyrt að kæra hafi komið fram á hend- ur Sesselju vegna einhverrar vanrækslu í starfinu, en hitt hefi jeg líka heyrt, að sá sem kæruna sendi hafi ekki haft hreinan skjöld í framkomu sinni við börn og hafi með kær- unni viljað fela sínar syndir bak við meinta bresti Sesselju kannske í von um að geta fengið forstjórastarf við Sól- heima, þegar búið væri að reka Sesselju? I þessu kærumáli mun ekki hafa gengið dómur eða úrskurð- ur enn og finnst mörgum að vonum að það ætti að gerast áður en stofnunin væri með valdboði tekin úr höndum stofn andans. Hvernig ætli Alþingi komi til með að líta á það? Reykjavik, 18. sept. 1946. Sig. Á. Björnsson frá Veðramóti. MHHHMUHHHHHHHHMHHMMHHHMMMHHMHHMHH íbúð Mig vantar tveggja til þriggja herbergja íbúð 1. okt. Fyrirframgreiðsla. •— Upplýsingar í síma 5490. Gunnar Jóhannsson, Kárastíg 5. vörubifreið 214 tonns, mo- f del 1941, í ágætu ásig-. | komulagi, er til sölu og | sýnis kl. 1—4 í dag á torg- | inu milli Túngötu og I Öldugötu við Garðastræti. | MIIIIIUIIIHIHMHHHIMUUIMMIMHHIintllMIIIHHIIHIII I Bílamiðlunin 1 I Bankastræti 7. Sími 6063 | I er miðstöð bifreiðakaupa. 1 IIMIIItllHlllillMllHlMMIHIIimilllllllllMHIIIimillHIHMI illllMIIIIIIIIII 1111111111**1111111111111111111111111111’

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.