Morgunblaðið - 16.10.1946, Page 1
T
33. árgangur.
234. tbl. — Miðvikudagur 16. október 1946
ísafoldarprentsmiðja h.f.
FRIÐARRÁÐSTEFMLIMNR LAUI4 í GÆR
Bjettarrannsókn iyr-
irskipuð gegn Bergi
Jónssyni sakadómara
„Fyrir óhæfileg símasamiö! úr
leyninúmeri".
FINNUR JÓNSSON dómsmálaráðlierra, hefir fyrir-
skipað opinbera rjettarrannsókn gegn Bergi Jónssyni,
sakadómara og vikið honum úr embætti á meðan á rann-
rókn stendur. I tilkynningu frá ríkisstjórninni, sem hlað-
inu barst í gær, segir svo:
„Dómsmálaráðuneytið hefir í dag skipað Gunnar A.
Pálsson, bæjarfógeta, sjerstakan dómara til að fram-
kvæma opinbera rjettarrannsókn á hendur Bergi Jóns-
syni, sakadómara í Reykjavík, út af óhæfilegum síma-
samtölum úr leyninúmeri á einkaskrifstofu sakadómara
á Fríkirkjuvegi H, við dómsmálaráðherra o. fl. aðfaranótt
miðvikudagsins 9. þ. m. og framkomu nefnds sakadóm-
ara síðan út af máli þessu.
Hefir Bergi Jónssyni jafnframt af framangreindum á-
stæðum verið vikið úr embætti um stundarsakir og Valdi-
mar Stefánsson verið settur sakadómari í Reykjavík“.
|
Verður reynt að ná
samstarfi ailra flokka?
Fonnaðar Sjálfstæðisflokksins
bendir á þá leið.
Skrifstofa forseta íslands sendi út svohljóð-
■ andi tilkynningu í gær:
Kl. 10,30 tilkynti formaður Sjálfstæðisflokksins, Ólafur
Thors, forsætisráðherra, forseta íslands þetta:
„Jeg tel ekki rjett, að jeg geri tilraun til stjórnar-
myndunar að svo stöddu, nje heldur að jeg bendi á
annan mann úr Sjálfstæðisfokknum til þess.
Álít rjettast, að hafin verði samtöl milli allra
þingflokkanna í því skyni, að leitast verði við, að ná
nægilega víðtæku samkomulagi um afgreiðslu mála
og stjórnarsamstarf“.
Kl. 11,30 átti forseti fund með formönnum allra þing-
ílokkanna saman og ræddi við þá um viðhorfið.
Samkvæmt upplýsingum, er
Morgunblaðið fekk á þinginu í
gær, höfðu formenn Alþýðu-
flokksins og Sósíalistaflokksins
þegar í stað svarað játandi
þeirri málaleitan, að flokkarn-
ir ræddust við, en formaður
Framsóknarflokksins óskaði að
ræða málið fyrst á fundi í þing-
flokknum. Að þeim fundi lokn-
um mætti vænta svars frá for-
manni Framsóknarflokksins.
LOND'ON: — Eire hefir auk-
ið innflutning sinn. á fyrri helm
ingi þessa árs um helming, ef
miðað er við fyrri hluta 1945.
Sparta lapar enn
London í gærkvöldi.
TJEKKNESKI knattspyrnu-
flokkurinn Sparta, tapaði þriðja
leik sínum hjer í Bretlandi í
gær. Þetta gerðist í Hampden
Park, Glasgow, er Glasgow
Rangers unnu Tjekkana með 3
mörkum gegn einu. Rangers
voru altaf betri og voru vissir
um sigur. Þeir skoruðu tvö
mörk í fyrri hálfleik og eitt í
þeim seinni og þá settu Tjekk-
arnir einnig mark sitt.
—Reuter.
Vilhjálmur Finsen
skipaður sendiherra
Utanríkisráðherrarnir
koma saman þann 4. nóv.
London sunnudag.
Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter.
FRIÐARRÁÐSTEFNUNNI í París lauk í gær síðdegis
og var fulltrúi Kínverja í forsæti á síðasta fundinum. —•
Flutti hann ræðu og sagði að sagan alein gæti dæmt um
þau störf, sem ráðstefna þessi hefði unnið. Fulltrúar Jú-
góslava lýstu yfir að þeir gætu ekki undirritað samn-
ingsuppköstin, þar sem þjóð þeirra hefði verið órjetti
beitt við samningsgerðina við ítali. Utanríkisráðherrar
stórveldanna fjögurra munu næst koma saman í New
York og ræða friðarsamningsuppköstin
FORSETI íslands skipaði í
dag, Vilhjálm Finsen sendifull-
trúa í Stokkhólmi, sjerstakan
sendiherra með unaboði ráð-
herra. — Vilhj. Finsen er fædd-
ur í Reykjavík 27. nóv. 1883.
Hann varð stúdent 1902. Árið
1913 stofnaði hann Morgun-
blaðið með Olafi Björnssýni en'
seldi það 1919 og hvarf frá rit-
stjórn þess árið 1921 og flutti
til Oslo. Var þar ritstjóri við
Tidens Tegn og Oslo Aften-
avis. Hann varð fulltrúi í
danska sendiráðinu í Osló árið
1934, en skipaður sendifulltrúi
íslands í Stokkhólmi árið 1940
og sendifulltrúi þar nokkru
síðar. Hefir hann síðan gengt
því embætti.
Munu hafa verið
hengdirínóK.
London í gæfkvöldi.
TALIÐ er að hinir 11 dauða-
dæmdu í Niirnberg muni háfa
verið hengdir í nótt milli kl.
11 og 3, en engar opinberar
fregnir munu berast um það,
fyrr en öllum aftökunum er lok
ið. Meðan aftökurnar fara fram
verður engum hleypt inn í
fangelsið, þar sem þær fara
fram og heldu'r engum út það-
an. Vörður hefir verið elfdur
ákaflega um fangelsið. Enginn
hinna dauðadæmdu hafði áður
verið látinn vita, hvenær aftak
an átti að fara fram. Verður
þeim tilkynt það um leið og
þeir verða leiddir út til gálgans.
Berskir embættismenn
barðir og rændir í
Póllandi
Viðhorfin til Pólverja afhuguð
London í gærkvöldi. — Einkaskeyti til Morg-
unblaðsins frá Reuter.
BRESKA stjórnin hefir sent pólsku stjórninni harðorð
mótmæli, vegna þess að tveir breskir embættismenn voru
barðir og rændir í borg einni í Suður-Póllandi. — Sendi-
herra Bandaríkjanna er á förum heim, til þess að athuga
afstöðu Bandaríkjanna til pólsku stjórnarinnar.
Byrjaði með cigarettum.
Fyrir nokkru voru tveir
breskir embættismenn staddir
í borg einni í Suður-Póllandi.
Var annar breskur konsúll, en
hinn fulltrúi við bresku sendi-
sveitina í Moskva. Hittu þeir
tvo menn í rússneskum einkenn
isbúningum, og gáfu menn
þessir Bretunum rússneskar ci-
garettur. Ætluðu Bretarnir að
bjóða mönnum þessum til gisti-
húss síns og gefa þeim enskar
cigarettur í staðinn.
Pólverji kemur til sögunnar.
Á leiðinni til gistihússins
bættist pólskur liðsforingi í
hópinn. Var hann drukkinn og
rjeðist von bráðar á Bretana og
veitti þeim báðum meiðsl. Eft-
ir það drógu allir þremenning-
Framh. á bls. 11.
Lekaræðurnai.
Auk iundarstjórans, fulltrúa
Kínverja, tóku þeir til máls á
þessum síðasta fundi, Byrnes,
Bevin, Molotov og Bidault. —■
Ræddu þeir allir störf ráðstefn
unnar og var aðálinntak ræðna
þeirra það, að friðurinn yrði að
vera friður fólksins, reglulegur
heimsfriður. Byrnes flutti starfs
mönnum ráðstefnunnar þakkir
fyrir störf þeirra. Sagðist hann
vona, að þótt mörgum hefði
þótt meira krafað en starfað
á ráðstefnunni, myndi þó ár-
angur hennar verða það, sem
þjóðirnar vonuðust eftir. .
Frökkum færðar þakkir.
Bevin og Byrnes færðu
frönsku stjór?únni og Bidault,
forsætisráðherra Frakka, þakk-
ir fyrir að hafa búið ráðstefn-
unni stað í París. Voru þeir á
einu máli um það, að betri stað
ur hefði ekki verið fáanlegur
fyrir ráðstefnuna. Bevin sagði,
að hann hefði verið í bresku
stjórninni, þegar Frakkland
fjell og væri sjer það mikil
ánægja að geta nú starfað að
friðarsamningum í hinni glæstu
höfuðborg Frakklands, er væri
orðin frjáls að nýju. Bidault
sagðist aðeins harma það, að
ekki hefði líka verið samið við
Þýskaland, því raunar væri
ekki hægt að semja við sam-
herja Þjóðverja, nema því að-
eins að örlög þeirra væru einn-
i^ ákveðin.
Fulltrúar streyma heim.
Fulltrúar á ráðstefnunni eru
nú allir á förum frá París. —
Fara margir þeirra vestur um
haf, til þess að sitja þar aðal-
samkundu sameinuðu þjóðanna
sem byrjar þann 23. þ. m. —•
Byrnes mun hafa lagt af stað
í dag, en Molotov fer á morgun
með „Queen Mary“.
LONDON: — Fundið hefir
verið upp logsuðutæki, sem
nota má neðansjávar, og er tal-
ið að tæki þetta muni spara
skipaeigendum stórfje. Tækið
var nýlega sýnt í Liverpool og
er það mikið fljótvirkara en
venjulegt logsuðutæki. Það er
mjög fyrirferðarlítið.