Morgunblaðið - 16.10.1946, Page 6

Morgunblaðið - 16.10.1946, Page 6
Miðvikudagur 16. okt. 1946 6 MORGUNBLAÐIÐ Útg.: H.f. Árvakur, Reykjavík. Framkv.stj.: Sigfús Jónsson Ritstjórar: Jón Kjartansson, Valtýr Stefánsson (ábyrgðarm.) Frjettaritstjóri: ívar Guðmundsson Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson. Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsía, Ausmrstræti 8. — Sími 1600. Áskriftargjald: kr. 8.0o á mánuði innanlands, kr. 12,00 utanlands. í lausasölu 50 aura eintakið, 60 aura með Lesbók. Óvissa og kvíði í LOK síðastliðinnar viku sneri forseti íslands sjer til formanns Sjálfstæðisflokksins, Ólafs Thors, forsætisráð- herra og fór þess á leit, að hann gerði tilraun til stjórn- armyndunar. Óafur Thors bað um frest fram yfir helg- ina, til þess að svara málaleitan forsetans. í gærmorgun kom svarið frá Ólafi Thors. Svarið var á þá leið, að Ólfur taldi ekki rjett að hann gerði tilraun til stjórnarmyndunar ,,að svo stöddu“, ,,nje heldur að jeg bendi á annan mann úr Sjálfstæðisfokknum til þess“, sagði forsætisráðherrann, en bætti því næst við: „Álít rjettast að hafin verði samtöl milli allra þingflokkanna í því skyni, að leitast verði við að ná nægilega víðtæku samkomulagi um afgreiðslu mála og stjórnarsamstarf". Forseti íslands kvaddi þá formenn allra þingflokkanna saman á fund og ræddi við þá um viðhorfið. Formenn tveggja flokkanna, Alþýðuflokksins og Sósíalistaflokks- ins tóku strax vel þeirri málaleitan, að viðræður yrðu hafnar milli allra flokka. Formaður Framsóknarfokksins hafði óskað að ræða málið við þingflokkinn, áður en hann svaraði. ★ Mál þetta stendur því þannig í augnablikinu, að allar líkur benda til þess að viðræður hefjist nú alveg á næst- unni milli allra þingflokka. Það er án efa hyggilega ráðið, að nú verði gerð tilraun til að koma á víðtæku samstarfi um lausn vandamálanna. Öllum má ljóst vera, að framundan eru miklir og marg- víslegir örðugleikar. Aðalframleiðsluvara landsmanna, ís- fiskurinn hefir fallið stórlega í verði. Að þessu hlaut að koma, og mundi það óhjákvæmilega skapa mikla erfið- leika. En þessir erfiðleikar verða meira og þungbærari fyrir þá sök, að ein aðalatvinnugrein þjóðarinnar, síldar- útvegurinn, einmitt sú atvinnugrein, sem miklar og glæst- ar vonir voru við tengdar að þessu sinni, brást að veru- legu leyti. Alt þetta gerir það ekki aðeins æskilegt, heldur óum- deilanlega nauðsyn, að sterk samtök myndist með þjóð- inni, til bjargar og viðreisnar atvinnuvegum landsmanna. Og það eru einmitt stjórnmálaflokkarnir, 'sem geta mynd- að þessi samtök. * UR DAGLEGA LÍFINU Sómafólk. Á ÖÐRUM STAÐ hjer í.blað- inu er birt viðtal við Gunnár Akselsson, sem er nýkominn heim frá Noregi. Hann er mik- ill áhugamaður um íþróttir og fylgdist vel með komu íslenskra íþróttamanna til Noregs í sum- ar og var þeim hjálplegur á margan hátt. Gunnar ber íþróttamönnum okkar vel sög- una og segir að þeir hafi komið einstaklega vel fram og verið landi sínu til sóma. Þetta er ekkert oflof hjá Gunnari Akselson. Það er sömu sögu að segja frá öðrum lönd- um, þar sem íþróttafólk okkar hefir farið um á þessU ári. Iþróttamenn okkar, sem lagt hafa lönd undir fót í sumar, hafa komið fram, sem sann- kallað sómafólk. Og þannig á það líka að vera. Til eru menn, sem sjá of- sjónum yfir utanferðum ís- lenskra íþróttamanna. Telja þær ónauðsynlegt ráp. En sann leikurinn er sá, að við eigum að leggja mikla áherslu á, að senda úrvalsíþróttamenn á er- lend mót og þó einkum til Norðurlanda, þar sem okkar menn geta staðið jafnfætis, eða feti framar, ef því er að skifta. • Gott til afspurnar. ÞAÐ ER EKKI á svo mörg- um sviðum, sem við getum lát- ið á okkur bera til góðs á er- lendum vettvangi, að við eig- um að nota hvert einasta tæki- færi til þess. Nú sem stendur er Karlakór Reykjavíkur á söngför um Bandaríkin og hefir vakið slíka eftirtekt, að ísland og íslensk menning mun vaxa til muna í áliti vestan hafs. Og veitti ekki af. Það mátti heyra á nörgum er verið var að undirbúa þessa söngferð vestur, að hún væri mesta óráðsflan. Og jafnvel enn, þegar fregnir hafa borist af hinni ágætu frammistöðu kórsins, heyrast illar tungur og ósæmilegar getgátur. • Ósæmílegar getgátur. JAFNVEL eitt af dagblöðum bæjarins hefir reynt að að gera lítið úr þeim sóma, sem karla- ! kórnum hefir verið sýndur vestra. Mann heyrði jeg halda ^ því fram í fullri alvöru, að það væri ekkert að marka gagn- rýni vestanblaðanna, því gagn- rýnendur myndu allir vera keyptir til að skrifa hól um kórinn! Slíkar getgátur eru ekki sæmandi nema mönnum, sem eru annaðhvort einstaklega ill- gjarnir og öfundsjúkir, eða fá- dæma heimskir. Velhepnuð tilraun. TILRAUN Varðarfjelagsins s. 1. laugardag með dansleik- inn tókst alveg prýðilega. Er það yfirleitt mál manna, sem þar voru, að þann- ig eigi þöll að vera. En eins og kunnugt er tók Varða'rfjelagið upp þá nýbreytni að halda dansleik að kvöldi til, en ákki að næturlagi og snemma morg- 'uns eins og venja er. Húsið var eins þjettskipað og hægt var að koma þar fyrir með góðu móti. Dansleikurinn hófst eins og ráð hafði verið fyrir gert og engum var hleypt inn eftir klukkan 10 um kvöld- ið. Klukkán 2 var ballið búið og allir fóru ánægðir heim til sín. Eftir þessa vel hepnuðu til- raun má gera ráð fyrir, að fleiri fjelög taki upp þetta nýja fyr- irkomulag á dansleikjum sín- um, því það mun koma í ljós, að menn vilja heldur sækja dansleiki með þessu fyrirkomu lagi. Óþarfi. UMFERÐIN er orðin það mikil á helstu götum bæjarins, að ekkert má útaf bregða til þess, að alt lendi í vandræðum. Daglega verða umferðarhnútar hjer og þar, sem stundum er erfitt að leysa. — Er mesta furða að ekki skuli verða fleiri slys og meiri skemdir á farar- tækjum, en raun er á. Má bakká það því, að bifreiðastjórar eru yfirleitt góðir og gætnir öku- menn. Mikið er bygt í bænum sem kunnugt er. Þar sem unnið er að byggingum við aðalgötur hefir verið nauðsynlegt að af- girða hluta af götunni á meðan byggingapallar eru reistir við nýbygginguna. En það er ekki nóg með það, heldur kemur fyrir að pallar þessir standa mánuðum og jafnvel árum sam- an. Sumir þessara palla eru látnir standa löngu eftir að þeirra er þörf, vegna þess að geymt er að ,,pússa“ húshlið- ar, þar til innrjettingu allri í húsinu er lokið. Þetta hlýtur að vera hægt að lagfæra með því að ljýka við framhliðar húsa strax og steypunni er lokið.. Það yrði strax til bóta fyrir umferðina. Minning Sveinbjarnar Egilssonar. SVEINBJÖRN EGILSSON er ekki eins gleymdur og höfund- ur brjefsins, sem jeg birti í gær vill vera láta. Menningarsjóður og Þjóðvinafjelagið hefir um hríð haft undirbúning að út- gáfu helstu verka hans og hafa tveir grískufræðingar unnið að útgáfunni, þeir dr. Jón Gíslason og Kristinn Ármanns- son. Var ætlunin að verk þessi kæmu út í vandaðri útgáfu þegar á þessu hausti, en úr því getur þó sennilega ekki orðið 'hjeðan af. nuiiiiiiiiiuuuuuiiiiiiMiiiiMimm l■l•l■ll<(«lllllllll■«1U MEÐAL ANNARA ORÐA . . . . <lllllfl•llllllllM■l•■l■l||||■llllll■l■ll■l••ll|*•l•lnll•l■ll;llllllllll•llllt•lllull^ Þjóðin þyrfti engu að kvíða í dag um framtíðina, ef hún bæri gæfu til að standa saman. Það heillasþor var 5'tigið með samstarfi þriggja flokka haustið 1944, að þjóð- inni voru trygð mikil og góð tæki til framleiðslustarfa. Þessi tæki eru mörg komin til landsins, Fullyrða má, að aldrei hafi verið til með þjóð vorri meiri vorhugur til nýrra framkvæmda og dáða, en hin tvö síðustu árin, meðan unnið var kappsamlega að fram- kvæmd nýsköpunarinnar. En nú er sem reiðarslag hafi. skyndilega yfir dunið, eftir að tilkynt var, að lokið væri samstarfi þeirrar ríkisstjórnar, sem stóð fyrir vakning- unni. Hvað verður nú um nýsköpunina?, spyrja menn og eru kvíðnir. Auðvitað verður nýsköpunin ekki drepin. Tækin eru keypt og þau koma til landsins. En vitanlega verður það mikið áfall fyrir nýsköpunina, að Sósíalistaflokkur- inn skyldi skerast úr leik þegar verst gegndi. Nú þurfti að ráðast gegn dýrtíðinni og tryggja þar með framtíð nýsköpunarinnar. Stjórnarflokkarnir höfðu best skilyrði til slíkra aðgerða. En nú ríkir óvissa og k,víði, vegna þess að sundur hefir dregið með þeim flokkum, sem stóðu að nýsköpuninni. Viðræður munu nú hefjast milli allra þingflokka um iausn vandamálanna. Á þessu stigi málsins verður engu spáð um það, hvað upp úr þessum viðræðum kann að j koma. Vonandi leiða þær til þess, að sterkur meirihluti myndist á Alþingi, til að hrinda í framkvæm þeim málum,! sem skapa öryggi fyrir atvinnuvegina og tryggja framtíð ; þjóðarinnar. í ÞAÐ ER talið, að áfengis- gróði ríkisins sje á milli 30 og 40 miljónir króna á einu ári. Af þessu mætti sjá, að drykkju skapur þjóðarinnar er óskap- legur. Auk þess er svo mikið rætt og skrifað um þenna mikla drykkjuskap og öll þau vand- ræði, sem af honum hlýst og mörg fjelög og jafnframt ein- staklingar hafa komið með á- skoranir til þings og stjórnar að koma í veg fyrir þenna ó- fögnuð. Sumir, jafnvel margir, vilja fá innflutningsbann á áfengi og væri það best ef fult öryggi væri í þvl, en þá myndi ríkið verða að kosta miklu til við eftirlitið og myndi það að vísu borga sig vel ef þá ýrði alt í lagi í þessum efnum. En þrátt fyrir allar áskoranir og umtal um þetta, minnist jeg ekki að neinn hafi komið með tillögu það, að taka aldrei oftar áfeng- istollinn upp í fjárlögin til tekna handa ríkinu og þá jafn- framt tillögu um hvar eigi að taka þessa fúlgu, en þetta yrði hvortveggja að fylgjast að og sannarlega verður þetta að gjörast. En er ríkisstjórnin, Alþingi eða þjóðin viðbúið að breyta þannig til. Það vill nú svo vel til, að til eru þrjár leiðir í þessu sam- bandi. Fyrst^ú, að leggja allar þess- ar miljónir, sem aúkaskatt á þjóðina. Myndi þetta að vísu kosta mörg orð að minsta kosti og mega þó allir sjá, að ef þjóð- in getur ekki risið undir sínum þörfum algáð, þá stendur hún þó skemur undir byrðinni ölóð og viti sínu fjær. Önnur leiðin er sú, að lækka blátt áfram útgjöld ríkisins um þennan miljónafjölda, en þar sem þjóðin er heimskulega heimtufrek við ríkið og ýmsir virðast halda, að hver fjármála- stjórn hafi lykil eða lykla að einhverjum peningaforða, sem aðeins gangi misjafnlega að ná í eftir hæfileikum og öðrum manndómi hvers fjármálaráð- herra, þá myndi þessi leið líka kosta nokkuð þó skynsamleg- ust væri. En þá er þriðja leiðin, sú að leggja helminginn af upphæð- inni á þjóðina í ábagga á þá skatta, sem fyrir eru og spara hinn helminginn og væri vist góður möguleiki til þess, ef að- eins vilji og framtak hinna ráð- andi manna er fyrir hendi. Það hefir oft verið skorað á ríkis- stjórnirnar, að minka ríkis- reksturinn með" því að fækka starfsfólki og ýmsu fleiru. Þetta virðist ekki hafa verið gert og ætti þó að framkvæm- ast á meðan atvinnan er nóg, og að líkum gætu kunnugir bent á ýmislegt í þessu sam- bandi, sem spara mætti, án þess þjóðin yrði vör við minkandi getu ríkisins til almennings- þarfa. Annars skiftir það minstu máli hver leiðin. Burt með á- fengið að einhverju eða helst öllu leyti. Setjið ekki áfengis- gróðann oftar á fjárlögin til þess að geta borgað uppbót eða niðurgreiðslur á kjöt eða aðrar vörur eða þá til þess að stand- ast straum af mentastofnunum þjóðarinnar. Þetta er h'ægt, ef. þjóðin vill og er samtaka og það er allrar þjóðarinnar að taka í taumana í hvert sinn, er illa horfir. Kæmi samt sem áð- ur einhver gróði af áfengi eru til nógar líknarstofnanir, sem gætu notað hrnn til margskon- ar líknar og þjóðþrifa. Björn Guðmundsson. Sigurður Áskelsson, capd. juris, vár nýlega skipaður full- trúi í fjármálaráðuneytinu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.